Lögberg - 01.06.1939, Qupperneq 3
LÖGBEBG, FIMTUDAGINN 1. JÚNÍ, 1939
3
Námsskeið!
Námsskeið!
Námsskeið!
Á öllum tímum kemur sparnaður sér vel; þó ekki
hvað sízt þegar hart er í ári.—
Við höfum til sölu námsskeið við helztu verzl-
unarskóla (Business Colleges) borgarinnar. Það
borgar sig fyrir yður að leita upplýsinga hjá
okkur tafarlaust.
(Tl\e Columbia Press Limited
SARGENT & TORONTO
Winnipeg, Man.
öðru, þar sem þau spurðust fyr-
ir um þaÖ, hvernig á því stæði,
að Jack London gæti sent skeyti
frá Kóreu, en þeir gætu það
ekki.
Hann var sendur aftur til Söul
og hneptur þar í fangelsi, af því
að hann hafði í leyfisleysi farið
út á vígstöðvarnar. En þetta
hafði þq þau áhrif, að japanska
stjórnin ákvað að sýna öðruim
þjóðum nokkurt tillæti.
“Fjórtán af þeim fréttaritur-
um, ekki höfðu kært sig um að
láta salta sig niður í Tokio,
fengu leyfi til þess að leggja af
stað með hernum, en ferðalag
þeirra minti einna helzt á skemti-
ferðalag, þar sem liðsforingj-
arnir voru fararstjórar. Við sá-
um ekki annað en það, sem þeir
vildu að við sæjum, og þeir liðs-
foringjar, sem höfðu eftirlit .rneð
okkur, áttu fyrst og fremst að
sjá um, að við sæjum ekki neitt.
f*ó hepnaðist okkur að sjá einn
þáttinn í orustunni vð Yalu. En
þegar að því kom, að japönsk
hersveit var murkuð niður, var
okkur skipað að hverfa aftur til
herbúðanna.
Um vorið fengu fréttaritar-
arnir leyfi til þess að fara yfir
á hinn bakka Yalu-fljótsins. I
skógarlundi einum við hliðina á
uiusteri nokkru bygði herinn
handa þeim ágætar tjaldbúðir.
Jack gat baðað sig þar og spilað
á spil, en hann mátti ekki fara
lengra frá tjaldbúðunum en tvo
WlAmetra, Imeðan Japanirnir hófu
skothríð á rússnesku skotgraf-
irnar.
— Þetta er andstyggilegt!
hrópaði hann. — Eg vil aldrei
framar vera vitni að styrjöld
niilli Austurlandabúa. Aldrei
fyr hafa menn leyft sér að haga
sér þannig gagnvart stríðsfrétta-
r>turum. 1 maílok var hann til-
búinn að leggja af stað heim.
Hótun um að leiða hann fyrir
herrétt varð til þess að flýta
brottför hans. Meðreiðarsveinn
bans, sem sótti fóður handa hesti
hans, var dag nokkurn af Kóreu-
búa hindraður íi því að ná fóðr-
'nu. Þegar Jack ásakaði Kóreu-
búann um þjófnað, greip Kóreu-
búinn upp hníf sinn, en Jack
sló hann niður. Málið kom
fyrir Fuji herforingja, sem hót-
aði þvi, að málið skyldi koma
tyrir herrétt. Hinn frægi blaða-
^naður, Richard Harding Davis,
Sern ekki hafði getað sloppið
burt frá Tokio, frétti á skotspón-
nni, að Jack átti á hættu að vera
dreginn’ fyrir herrétt og skotinn.
Hann sendi þáverandi forseta,
Theodore Roosevelt, hraðskeyti,
en forsetinn mótmælti kröftug-
lega við japönsku stjórnipa. Fuji
hershöfðingi fékk skipun um að
láta Jack lausan. Jack fór aftur
til Tokio, þar sem hann hitti
hina blaðamennina, sem hann
hafði yfirgefið fjórum máruð-
ulm áður, og stöðugt biðu eftir
því að fá leyfi hins opinbera til
bess að fara með hernum.
—Alþýðubl. 30. apríl.
Ur borg og bygð
Mr. B. Th. Jónasson frá
Silver Bay var staddur i borg-
inni í fyrri viku.
♦
Jón Siguðrsson Chapter, I.O.
D.E., heldur fund að heimili
Mrs. J. B. Skaptason, 378 Mary-
land St., á þriðjudagskvöldið
6. júní.
' ♦ ♦
The Jón Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., are sponsoring a con-
cert directed by Miss Bjorg
Frederickson, to be held in the
Fedenated Church Parlors on
Monday evening, June I2th.
♦ -f
20. maí voru þau William
Gregory Halldorsson frá Lundar
og Thora Vioilet Lindal, sömu-
leiðis frá Lundar gefin saman í
hjónaband, af presti Fyrtsa lút-
erska safnaðar, að heimili hans
776 Victor Street.
Viku 9Íðar, 27. maí voru gefin
saman á sama stað og af sama
presti, þau Minnie Mathilda
Anderson, 739 McGee St., Win-
nipeg, og Nelson Stuart Watson,
643 Furby Street, Winnipeg.
-f -f
Karlaklúbbur Fyrsta lúterska
safnaðar hélt síðasta fund sinu
á yfirstandandi starfstimabili
kirkjunnar, og um leið ársfund
sinn, í neðri sal kirkjunnar á
mánudagskvöldið. Var salurinn
vel skipaður fólki, enda var kon-
um sérstaklega boðið að sækja
þenna fund. Forseti kJúbbsins,
Mr. E. S. Feldsted, setti fund-
inn strax og máltíð var lokið,
með lipurri ræðu. Gerði hann
grein fyrir starfsemi félagsins á
utnliðnu ári. Mr. Norman Berg-
man flutti ræðu fyrir minni
kvenna, en Mrs. B. B. Jónsson
svaraði. Séra Rúnólfur Mar-
teinsson mælti fyrir tninni kirkj-
unnar en forseti safnaðarins, Mr.
G. F. Jónasson svaraði. Aðrir
sem tóku til máls voru, séra S.
O. Thorlaksson og kona hans,
Mr. S. O. Bjerring og Mr.
Gunnlaugur Johannsson, sem las
upp kvæði. Dr. A. V. Johnson
las upp fjárhagsskýrslu félags-
ins. Ákveðið var að leggja $10
úr félagssjóði til kaupa heyrnar-
tækja þeirra, sem nýlega hafa
verið sett up í kirkjunni. Em-
bættismenn klúbbsinsi voru kosn-
ir fyrir næsta ár: Lincoln John-
son, Dr. A. V. Jöhnson, Herbert
Hinrickson, Arni Eggertson, Jr.,
og Barney Davidson. Hinn nýi
forseti ávaraði fundinn að lok-
um. Fundurinn var hinn á-
nægjulegasti í alla staði.
-f -f
YOUNG ICELANDERS
NEWS
Due to the conditions of the
road to Petersons Fann, Head-
ingly, the Young Icelanders have
decided to hold the outing of
June 3rd at Selkirk Park.
It is hoped that at this gather-
ing the Icelandic Societies of
Selkirk will participate.
All those attending are asked
to meet at the Jón Bjarnason
Academy at 3 p.m. on Saturday,
June 3rd and a bus will be
there to transport all present.
Return itransf>ortation oharges
will be about 50C per person.
AH are welcome to attend, and
those seho intend to be there, are
askd to notify some member of
the executive beforehand.
Frá Islandi
Um síðastliðin mánaðaimót var
fiskafli á öllu landinu orðinn
26651 smálest, en var 21767 smá-
lestir á sama tíma í fyrra. Á
einstakar veiðistöðvar skiftist afl-
inn þannig: Vestmannaeyjar
5057 smálestir, í fyrra 5376;
Stokkseyri 260, í fyrra 213;
Eyrarbakki 50, í fyrra 48; Þor-
lákshöfn og Selvogur 260, i
fyrra 167; Grindavík 507, i
fyrra 604; Hafnir 267, i fyrra
232; Sandgerði 1996, í fyrra
1453; Garður og Leira 739, í
fyrra 515; Keflavík og Njarð-
víkur 4303, í fyrra 2763; Vatns-
leysuströnd og Vogar 200, í
fyrra 117 ; Hafnarf jarðartogarar
1822, í fyrrai 1726; önnur fiski-
skip í Hafnarfirði 445, i fyrra
682; Reykjavíkurtogarar 2681,
i fyrna 3066; önnur fiskiskip í
Reykjavík, 1127, í fyrra 500;
Akranes 2450, í fyrra 1714,
Hellissandur 197 smálestir, í
fyrra 182; Ólafsvik 175, í fyrra
97; Stykkishólmur og Grundar-
fjörður 81, i fyrra 40 smálestir.
’-f
Samkvæmt upplýsingunn', er
Runódfur Sigurðsson, fram-
kvæmdarstj óri Fiskimálanefndar,
gefur í grein i Ægi, hefir nefnd-
in gert fyrirframsamning við
þrjú ensk fyrirtæki um sölu á
frystum fis'ki. Eru nú seldar
fyrirfram 560 smálestir af þorsk-
flökum, um 140 simálestir af ýsu-
f'lökum, 75 smálestir af stein-
bítsflökum og 35 smálestir af
karfafilökum. Alilur útflutning-
ur þessara fiskafurða nam 260
smálestum siðastliðið ár.
Einnig er liklegt, að á þessu
ári verði mikil aukning á út-
flutningi hraðfrystra hrogna,
santkvæmt því, er segir í áður-
nefndri grein. Verða þau flutt
til Bretlands. Léttir þá jafn-
framt nokkuð á sænska markað-
inum fyrir sykursöltuð hrogn.
♦
Bóndi í Borgarhreppi í Mýra-
sýslu, Einar Runólfsson á öl-
valdsstöðum, hefir í vetur lagt
stund á tilraunir til að lækna fé,
er sjúkt er af mæðiveiki. Hefir
hann samfleytt í hálfan mánuð
ferðast um meðal bænda, er vilj-
að hafa fá hann til þess að gera
tilraunir með fé sitt. Einar not-
ar við þessar tilraunir sínar lyf,
sem hann hefir sjálfur fundið
upp og sett saman; sprautar
hann því í barkann. Samkvæmt
bréfum, sem Tknanum hafa bor-
ist frá bændum efra, virðast
þessar tilraunir hafa borið nokk-
urn árangur, þannig að sjúkar
kindur, sem ekki voru mjög
langt leiddar, hafa hrest við og
tekið að mestu fyrir útbreiðslu
veikinnar. I fé Einars sjálfs
byrjaði veikin í fyrra, og var
DR. B. H.OLSON
Phonea: 35 078
906 047
Consultation hy Appointment
Only
Helmili: 5 ST. JAMES PI.ACB
Winnipeg, Manitoba
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medica! Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Rt.s.
Phone 22 866
Res. 114 QRENFELL BLVD.
Phone 62 200
orðin nokkuð mögnuð fyrir jól.
Þá sprautaði hann það með lyfi
sínu, og nú í vor er talið að ekki
verði annað séð, en það sé full-
hraust. Á öðrum bæ í Borgar-
hreppi, þar sami veikin var orðin
mjög mögnuð, virðist algerlega
skifta í tvö horn eftir að Einar
hafði framkvæmt lækningatil-
raunir sínar og hefir engin kind
sýkst á þeim bæ síðustu þrjá
mánuðina. Timinn 6. mai
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Grahani og Kennedy Sts.
Phone 21 834—Oftice tímau 3-4.30
Heimili: 214 WAVERLEY ST.
Phone 403 288
Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK
Sérfrœtiingur f eyrna, augna, nef
og hélssjökdðmum.
216-2 20 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy
ViCtalstlmi — 11 tll 1 og 2 tll 5
Skrifstofuslml — 22 til
Heimili — 401 991
DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. PHONE 26 645 WINNIPMO Dr. S. J. Johannesson 272 HOME ST. STE. 4 THELMA APTS. á fyrsta gðlfi Talsími 30 877 Viðtalstfmi 3—5 e. h.
DR. A. V. I0HNS0N Dentist 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124 Home Telephone 36 888 H. A. BERGMAN, K.C. islrnzkur lögfrœöinffur Skrifstofa: Room 811 McArthur Buildlng, Portage Ave. P.O. Box 1666 PHONES 95 052 og 39 043
LINDAL, BUHR & STEFÁNSSON Barristers, Solicitors, Notaries, etc. W. J. Ijindal, K.C., A. Buhr Björn Stefánsson Teiephone 97 621 Offices: 325 MAIN STREET
DR. K. J. AUSTMANN 410 MEDICAL ARTS BLDG. Stundar elngöngu, Augna-, Eyrna-, Nef- og Háls- sjúkdöma Viðtalstlmi 10—12 fyrir hádegi 3—5 eftir hádegi Skrifstofusími 80 887 Heimilisslmi 48 551
J. T. THORSON, K.C. islenxkur löofrœOingur 800 GREAT WEST PERM. BLD Phone 94 668
Thorvaldson & Eggertson lslenzkir lögfrœöingar G. S. THORYALDSON, B.A., LL.B. A. O. EOOERTSON, K.O., LL.B. Skrifstofur: 705-706 Oonfederattcm Life Blg. SlMI 97 024
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG., WPEG. Fasteignaaalar. Leigja hús. Ot vega peningal&n og eldsftbyrgS af öllu tægl PHONE 26 821
A.S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur lfkkistur og annast um út- farir Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarCa og legstelna. Skrifstofu talslml: 86 607 Helmilis talslmi: 601 562
ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœffileffur og róleffur bústaöur 1 miöbi/oi bori/arinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; meí baSklefa $3.00 og þar yflr. Agætar máltlOir 4 0c—iOc Tree Parking for Guests