Lögberg - 08.06.1939, Side 1
52. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. JÚNl, 1939______________________NÚMER 23
Islenzk mentakona hlýtur
prófessorsembœtti við
merkan háskóla
Mrs. Dora S. Lewis, er undan-
farin tvö ár hefir skipa'Ö stöðu
sem City Supervisor of Home
Economics Education i borginni
Seattle, hefir nýveri'Ö hlotiÖ kjör
Mrs. Dora S. Lewis
sem prófessor viÖ New York
University í New York borg.
Tekur hún við stöðunni þar á
komadi hausti sem Professor of
Education and Chairman of the
Department of Home Making
and Home Economics in the
School of Education. Er þetta
því fullkomið prófessors embætti
að viðbættri deildarstjórn við
þennan mikla háskóla. Er tals-
vert á þriðja hundrað kennara í
Education deildinni einni við
þessa umfangsmiklu mentastofn-
un, en tala nemenda er innritast
hafa fyrir lengri eða skemri
námsskeið á þessu ári um fjöru-
tíu og þrjú þúsund. Er þetta
því ein af risavöxnustu menta-
stofnunum Bandaríkjanna, sem
nýtur einnjg hins mesta álits
fyrir vel unnið starf og frábæra
afstöðu á þessu , alheimstorgi
menningar og viðskiftalífs. Er
því ekki lítill heiður að hljóta þar
prófessorsembætti án þess að
sækja um stöðuna, einungis
vegna þess að hlutaðeigandi hef-
ir orðið þjóðkunn á sviði þeirrar
fræðimensku er hún stundar og
fyrir persónulega glæsimenku i
hvívetna. En það er rétt sögð
saga þessarar embættisveitingar
er Mrs. Lewis hefir orðið fyrir.
En vitanlega er það ekkert ný-
hrigði að Mrs. Lewis láti til sín
taka á sviði imientamála. Hún
er ein af þeim íslenzku konum
hér i Ameríku er lengst hefir
komist í þeim efnum, og á hún
glæsilegan mentaferil að baki.
Hún er fædd að Milton í Norð-
ur Dakota og er dóttir Sumar-
Uða gullsmiðs Sumarliðasonar, er
andaðist vestur við Kyrrahaf
l927, °g seinni konu hans Helgu
Kristjánsdóttur, sem enn er á
lífi og ern. Hafa þær mæðgur
átt heimili saman nú síðustu ár-
in. Heimili þeirra Sumarliða
og Helgu hafði það til að bera
af gáfum og mannkostum að
traustur grundvöllur var þar
lagður til manngildis. Mun Mrs.
Lewis kannast við það fram á
þennan dag að þaðan hafi hún
tekið með sér það veganesti er
haklbezt hafi reynst í lífinu. í
barnæsku fluttist hún með for-
eldrum sinum vestur að Kyrra-
hafi. Var heimili þeirra fyrst í
Seattle og síðan í nánd við
Olyimipia f Washingtonríki. Naut
(Framh. á bls. 7)
Frá Islandi
Samkvæmt upplýsingum, sem
Emil Jónsson vitamálastjóri hef-
ir veitt tíðindamanni Tímans,
verður talsvert um nýbyggingar
vita og endurbætur á gömlum
vitum í sumar. Verður alls varið
um 65 þúsund krónum til ný-
bygginga á þessu ári. Er um
þessar mundir verið að fullgera
Knarrarósvita við Stokkseyri og
verður kveikt á honum i sumar.
Var hann steyptur í fyrra og er
einn af hæstu vitunum hér við
land. Kostar hann 50 þúsund
kr. fuLlgerður. Vitanurr^ á
Brimnesi við Seyðisfjörð og
Hafnarnesi við Fáskrúðsf jörð
verður breytt í gasvita, en þeir
hafa verið litlir olíuvitar. Á
næstunni verður byrjað að
byggja vita á Þrídröngum við
Vestmannaeyjai* og að því loknu
verður hafin vitabygging á Mið-
fjarðarskeri í mynni Borgar-
fjarðar. Verða sennilega báðir
fullgerðir í sumar og eiga að lýsa
12—14 sjómílur. Talað hefir
verið um að reisa radiovita á
Hornbjárgi, en eigi er enn að
fullu ráðið, hvort úr þeim fram-
kvæmdum verður í ár. Loks
verður sett hljóð- og ljósdufl við
Sandgerðissund. Kostar það um
20 þúsund krónur og á að vera
fullgert seinni hluta sumars. Auk
þess er að sjálfsögðu lagt til
viðhalds og smærri umbóta á
gömlu vitunum.
Síðasta sunnudag í aprílmán-
uði var sýning haldin á vefnaði
og handavinnu námsmeyja í
Laugalandsskóla. Var hún fjöl-
sótt, ekki hvað sízt af Akureyri,
en þaðan fór margt bifreiða
fram að Laugalandi þann dag.
Sýingin þótti hin glæsilegasta og
bar bæði kennurum og nemend-
um góðan vitnisburð. Meðal
þeirra muna, sem á sýningunni
gat að líta, voru gluggatjöld, á-
breiður, borðreflar, flosofnar
mottur, veggreflar, kjólaefni,
borðdúkar og þurkur, alt ofið af
námsmeyjum sjálfum; sumar-
kjólar, isaumíaðar treyjur og
kápur, saumað af námsmeyjum,
og efni ofin af þeim. Auk þess
var sýndur margsháttar ísaumur,
alt úr íslenzku bandi og sumu
lituðu islenzkum jurtalitum. Stíli
og gerð saumsins ramislenzk.
-t
Hafnfirðingar hafa sýnt mik-
inn áhuga fyrir trjárækt og
skógrækt, enda náð undraverð-
urn árangri. Fáment félag, sem
upphaflega ihafði alt annað
markmið, hefir komið upp í ut-
anverðum bænum einum sér-
kennilegasta og fegursta skrúð-
garði, sem til er hér á landi,
Hellisgerði. Hafnfirðingar eiga
og tvær skóggirðingar, aðra í
Undirhlíðum, en hina í Sléttu-
hlíðum. Auk þess, sem hlúð
er að kjarrinu, sem fyrir er í
þessum girðingum, eru á hverju
vori gróðursettar nýjar plöntur í
skjóli þess. I fyrra vor voru 2
þúsund plöntur gróðursettar og
störfuðu skólabörn bæjarins í
þrjá daga að því verki. I vor
verður að venju plantað allmiklu
í þessar girðingar, einkum i
Sléttuhliðagirðinguna, bæði greni
og furu, og nokkuð af birki.
Verður byrjað á því verki innan
fárra daga. í Hellisgerði er
þessa dagana unnið að venjuleg-
um vorstörfum. Fá bæjarbúar
þaðan talsvert af blómplöntmn
og dálítið af’ trjáplöntum og ber
bærinn þess ljósan vott, að svo
hafi verið um nokkuð langa hríð.
Flensborgarskólanum í Hafn-
arfirði var sagt upp í síðustu
viku. í honum stunduðu nám
um 130 nemendur síðastliðinn
vetur, en 23 luku burtfararprófi.
24 nemendur voru i heimiavist,
en auk þess borðuðu þar nokkrir
fleiri. Fæði, þvottar og þjón-
usta kostaði kr. 1.31 á dag fyrir
pilta, en kr. 1.05 fyrir stúlkur.
Munu þess fá dæmi, að dvalar-
kostnaður hafi orðið jafn lítill
í skólum, jafnvel sjaldan í fjöl-
mennum sveitaskólum, sem eiga
við góða aðstöðu að búa. Viður-
væri var þó ágætt. Heimavistar-
ráðskona var ungfrú Margrét
Auðunsdóttir úr Skaftafellssýslu.
-f
Nemendaskifti milli isl. og
danskra mentaskóla verða i sum-
ar á líkan hátt og áður hefir
átt sér stað, síðast 1936. 1. júlí
leggja nemendur frá Östre-
Borgerdyd-skóla i Kaupmanna-
höfn að stað til Islands mcð
Brúarfossi. Dveljaj þeir hér um
tveggja vikna skeið. Um 20.
júli halda þeir heimleiðis og
verður þá einn íslendingur úr
mentaskólanum á Akureyri eða
í Reykjavík í fylgd með hverj-.
um Dana. íslenzku nemendurnir
verða í Kaupmannahöfn til 9.
ágúst. —Tíminn 11. maí.
Innanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Harold L. Ickes, krefst
þess að Roosevelt verði enn í
kjöri af hálfu Demokrata-flokks-
ins við forsetakosningarnar 1940.
—Ýimsir af vildarvinum Mr.
Roosevelts eru því samt strang-
lega mótfallnir að hann leiti end-
urkosningar.
Hér getur aS líta enn eina mynd af hinum glœsilega sýningarskála fslands á heimssýningunni;
hefir bœði skálinn og Islandsdeildin dregið að sér mannfjölda mikinn og vakið feikna athygli.