Lögberg - 29.06.1939, Blaðsíða 1
PHONE 86 311
Seven Idnes
m&'
Servlce
nnd Satisfaction
PHONE 86 311
Seven I/ines
#
<«>
o'fX
v
,#SS°
#v
í'or
Better
Dry CieaninR
and Jjaundry
52. ARGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. JÚNÍ 1939
Ríkisháskólinn í Norður Da kota heiðrar Krónprins Norðmanna
Olav krónprins Noregs, hélt skólauppsagnarrœðnna við ríkisháskólann í Norður Dakota
7. júní. Við það tœkifœri gcrði háskólinn hann heiðursdoktor i lögum. Sýnir myndin
þann atburð. Frá vinstri tit hœgri: Martha krónprinsessa, Olav ríkiserfingi, Dr. John C.
West, forseti háskólans, og dr. Richard Bcck, er útnefndi krónprinsinn til doktorskjörs.
Rakel Oddson
Fædd 28. júní 1862 — Dáin 6. desember 1938
Frá börnum hennar.
Hvild er þreyttum líkn að liðnum degi,
Ijúftir dauÖinn — Gröfin skelfir eigi
þann, sem lifað hefir heilan dag,
haldið velli fram' á sólarlag.
Þú varst stór í stríðu jafnt sem blíðu,
stóðst og barðist þegar aðrír flýðu;
'föður okkar veittir þrek og þrótt,
þreytt að morgni eftir vökunótt.
JAMES A.
fílCUA TtDSON LATINN
Á iménudagsmorguninn varð
bráðkvaddur að heimili sínu hér
i borginni einn hinn mesti fé-
sýslu- og athafnamaður canadiskti
þjóðarinnar um þessar mundir,
James A. Richardson, 54 ára að
aldri; hann var mannkostamað-
ur hinn mesti, og varði árlega
stórfé til liknar og niannúðar-
mála.
FfíÚ ANDREA
JOHNSON
Á búnaðarmálaþinginu, sem
haldið var í iBrandon í fyrri
viku, og sagt er frá á öðrum
stað hér i blaðinu, var frú
Andrea Johnson í Árborg 'kos-
in til vara-forseta i hinum ný-
stofnuðu búnaðarsamtökum
Manitobafylkis, The Manitoba
Federation of Agriculture; er
þetta talandi vottur þess trausts,
er frú Andrea hvarvetna nýtur.
Lögberg flytur henni hlýjar árn-
aðaróskir í tilefni af þessum
nýja sæmdarauka.
Móðir kær; í minninganna ríki
myndin þin er geymd, þó annað viki;
hana rökkva engin skuggaský,
skín hún altaf fjögur, björt og ný.
Marga bæn þú sendir yfir okkur
upp til himins, þó ei vissi nokkur.—
Eftir því, sem árin færast nær,
airkast gáfur ti.1 að skilja þær.
Móðursálin kann og kennir betuf
kjarna lífs en nokkur annar getur.
Drottinn lætur mjúka móðurhönd
mála barnsins' fyrstu draumalönd.
Kveðjuorð frá öllum börnum! þínum
alheimssálin flytji á vængjum sínum
til þin yfir eilífðanna höf —
ást og friður signi þína gröf.
Sig. Júl. Jóhannesson.
ÞAKKARORÐ
Þegar það slys vildi til á um-
liðnu vori að hús okikar brann
og við stóðum uppi allslaus,
gengust góðfúsir menn fyrir
fjársöfnun okkur til aðstoðar.
Hluturn við þannig mikla og
hagkvæma hjálp. Við þökkurn
af alhug þeim, sem fyrir fjár-
söfnuninni gengust, og gefend-
unum öllum, gjafir peninga og
gagnlegra! muna, og biðjum Guð
að launa kærleika þann, er við
höfum orðið aðnjótandi.
Mr. & Mrs. Halldór Einarsson
Árnes P.O., Man.
SIGNÝ EATON HELDIJR
PIANÓ-HLJÓMLEIKA
Þann 20. þ. m. efndi Signý
Eaton til pianó-hljómleika í
kenslusal Mona Bates í Toronto,
og hlaut lofsainlega dóma hjá
þeim, er á hilýddu; lék hún þar
meðal annars tónverk þeirra
Schuberts, Bach, Brahms, Schu-
nianns og ýmsra annara frægra
meistara; það er því virðingar-
verðara hvó mikla rækt hún
leggur við fagrar listir, sem vitað
er hve annríkt hún á stöðu sinn-
ar vegna á sviði samkvæmislifs-
ins.
THÓRÐUfí
THOfíSTElN SSON
LATINN
Siðástliðinn laugardag lézt hér
í borginni Thórður Thorsteins-
son, sonur þjóðskáldsins Stein-
gríms Thorsteinssonar; hann
Var fæddur 7. janúar 1884.
Thórður heitinn tók þátt í
heimsstyrjöldinni miklu, frá
1914; hann var1 vandaður maður
og hyggjuhreinn. Útför hans fór
fram frá Bardals í miðvikudag-
inn.
Frá Islandi
Þorvaldur Guðmundsson,
f ramkvæmdarst j óri niðursuðu-
verksmiðju S. í. F., hefir, ásamt
dönskum manni, Carl Carlsen,
hafi tilraunir um álaveiðar í
Skógtjörn á Álftanesi. Byrjuðu
þeir veiðamar um síðastliðin
mánaðamót og hafa alls lagt átta
álagiildrur, sem eru pokar, gerðir
úr netuimi. Hafa þeir veitt alt
að hundrað ála á sólarhring og
hefir veiðin, heldur færzt í auk-
ana upp á síðkastið. Álarnir eru
misjafnir að stærð, og vega sum-
ir alt að tvö pund. Þorvaldur
reykir álinn og hefir selt þá
þannig tilreidda hér í bænum.
Markaður mun þó vera fyrir ál
víða eríendis. Mikið mun vera
hér af ál, sennilega kringum alt
land, en þó einkum við strend-
urnar, þar sem sjórinn er hlýj-
astur. Veiðitíminn ætti að geta
varað fram i september og jafn-
vel fram í októbermánuð, að
állinn heldur aftur til hafs.
Fréttaímiaður Tímans hefir ný-
lega hitt Ágúst B. Jónsson, bónda
á Hofi i Vatnsdal og spurt hann
frétta úr héraði sínu, m. a. um
fjárskiftin i H'eggstaðanesi og
árangur þeirra tilrauna. — Þessi
tilraun, segir Ágúst, var fram-
kvæmd þannig, að haustið 1937
var beitiland fimm bæja afgirt
og sýkt fé, er þar hafði gengið,
tekið burt. Mánuði síðar var
flutt þangað um fimm lmndruð
fjár úr Norður-Þingeyjarsýslu,
flest lömb, og slept á hið af-
girta land. Veturinn ef.tir gekk
fremur illa að fóðra lömbin og
urðu nokkur vanhöld i fénu til
haustí 1938. Síðastaliðinn vetur
voru fjárhöldin hinsvegar ágæt;
hefir heilsufar fénaðarins verið
NÚMER 25
Sigurður B. Helgason
Þessi stórmyndarlegi og bráð-
gáfaði, ungi rnaður, sem myndin
hér að ofan sýnir, útskrifaðist á
þessu vori úr Búnaðarhás.kóla
Manitobafylkis, og hlaut þau
hæstu verðlaun, sem við þann
skóla eru veitt, sem er gull-
medalia'fylkisstjóra (Lieutenant-
Governor’s Gold Medal). Hefir
Mr. Helgason á sínum námsferli
sýnt framúrskarandi gáfur og
ástundun, prúða og drengilega
framkomu í hvívetna, og þannig
áunnið sér virðingu og hlýhug
kennara sinna og skólabræðra.
Sézt það bezt á þeim heiðri, sem
Mr. Helgason hlotnaðist áður við
þennan sama skóla, þar sem hann
vorið 1938, var kosinn forseti
fórðabekkjar stúdenta.
Foreldrar þessa unga manns,
Stefán Hélgason og Margrét
Jónsdóttir kolmiu frá íslandi fyr-
ir mörgum árum síðan; ættuð af
góðu bændafólki úr Eyjafirði;
fluttu þau til Saskatchewan og
reistu þar bú, þar er Mr. Helga-
son fæddur.
Á fyrsta ári misti hann móður
sína, tók þá við honum föður-
systir hans, Kristin Helgason,
sem nú um langt skeið hefir bú-
ið í Argylebygð, hefir hún geng-
ið honum i móðurstað, og sett
hann til menta.
Strax eftir sinn fyrsta vestur
á Búnaðarskólanum var Mr.
Helgáson þar svo vel kyntur, að
honum var jafnan boðin vinna
við skólann á sumirin, og að
enduðu námi hlaut hann fasta
stöðu hjá búnaðarmáladeild
Canada á fyrirmyndarbúi hennar
í Morden, Man.
Hin fagra fyrirmynd, sem Mr.
Helgason hefir þannig sett, ér
hvatning til ungra manna og
kvenna, að verða þannig sjálf-
um sér og sinum þjóðflokk til
gleði og sóma eins og Mr. Helga-
son hefir gert.
G. A.
hið bezta og engin kind drepist
úr neinum kvilla. Hefir fjár-
skiftatilraun þessi sýnt, að ekki
er við því hætt, að aðflutt fé
fái mæðiveiki úr bithögum, þótt
veikt fé hafi gengið þar áður.
Tíminn 20. maí.