Lögberg - 20.07.1939, Side 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. JúLí, 1939
-----------Högíjerg----------------------
Gefí?5 út hvern fimtudag af
'I-HK COIiUMBIA I’Riító, ULMLTKO
BU5 Sargent Ave., Winnipeg, Maniteba
Utanáskríft ritstjórans:
EDITOR LOGBERG, 695 Sargent Ave.,
Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÖNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “L.ögberg” is printed and published by
The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Aðsópsmikill mentafrömuður
Sá inaðurinn, er í samtíð vorri ristir einna
dýpst í mentamálum íslenzku þjóðarinnar, má vafa-
laust teljast Sigurður Guðmundsson skólameistari á
Akureyri; fer hjá honum saman hárnælnt, sálrænt
innskygni í vitundarlíf æskunnar og eldlegur alvöru-
þungi hins “algáða” alvörumanns; meðan slíkir
menn sitja við stýri íslenzkra fræðslumála og Sig-
urður skólameistari, er nokkur von haldgóðrar kjöl-
festu um hríð. Og víst er um það, að á þingi and-
legra aðalsmanna á íslenzkur stilþróttur fáa fulltrúa,
er til jafns komast við Sigurð skólameistara.
Lögbergi hefir fyrir sköminu borist í hendur
Ársskýrsla Mentaskóians á Akureyri, 1937—1939;
kennir þar margra grasa; margra lífrænna nytja-
jurta. Ein ritgerðin nefnist “Stefnan og miðið.”
Er innviðagildi hennar slíkt, að öllum þeim er í
alvöru lesa, ætti að verða það til nokkurrar sálu-
bótar. Niðurlag ritgerðarinnar er á þessa leið:
“En vér verðum því aðeins í óeiginlegri merk-
ingu, vel gáðir, að vér njótum nokkurs frelsis, meg-
um sjálfir ráða ráðum vorum og ábyrgjast oss. Án
persónufrelsis eg á hér eigi við takmarkalaust
frelsi — fær mannlegur persónuleiki eigi þroskast.
Þótt mikið skorti á, að alt sé unnitf með frelsinu
einu, sem frumherjar þess meðal menningarþjóð-
anna illu heilli héldu á síðustu öld, felast samt í þvi
mikil gæði, í hinni heilbrigðustu merkingu þess.
Því er það raunalegt, ef ungir mentamenn kunna
eigi að meta þroskagildi þess né menningarnauðsyn,
heldur trúa hinu, að kúgun og blóðöxar fái betrað líf
vort og gróðursett réttlæti á jörðu. Slík æska er
undarlega óraunsæ og skilur illa sjálfa sig, svo illa
sem henni fellur það löngum, er jafnvel hin mýkstu
bönd eða hið minsta bann eru, að einhverju leyti,
bundin henni sjálfri um hönd eða fót. Eg ætla, að
fáum sé kunnugra um þennan eðlisþátt æskunnar
en gömlum skólamönnum. En mannlegt frelsi, fé-
lagslegt frelsi og lýðræði fá ekki staðist, nema
ábyrgðar-gáðir menn og víð-gáðir menn fari þar með
völd og vandamál. Það er þjóðfrelsis og heilbrigðs
lýðræðis skilyrði, að hinir æðstu ábyrgðarmenn
skilji, hvers vegna landsmálafíllinn kemur andstæð-
ingum þeirra öðruvísi fyrir sjónir en sjálfum þeim
og hagi sér þegnsamlega eftir slíkum skilningi. Því-
líkur skilningur er geðgróin mentun, sem örðugt er
að eignast, enda öðlast fáir — enn sem komið er —
slíka menning hugar og hjarta. En frelsi og lýðræði
fá eigi til langframa þrifist nema með menningar-
þjóð og mentaþjóð. Mentun er fólgin í þeirri hinni
réttgáðu dæmigreind, sem i athöfn og breytni greinir
aðalatriði frá aukaatriði, svikinn málm eða .sviknum,
hégóma og hismi frá líffrjóum raunveruleik og alvar-
leik. Mentun er fólgin i eðlisleikni í því, að greina
hvað er staðreynd og hvað er hugarburður. Mentun
er fólgin i virðingu á staðreyndum, inér liggur við
að segja lotningu fyrir staðreyndum. Án slíkrar
mentunar, virðingar og lotningar verða engar fram-
farir haldgóðar í landinu. Því má eigi gleyma, að
mentun, í skýrðum skilningi, er eigi fullkomin
mentun, nema hún sí-seytli ofan í hugarrætur vorar,
sígi ofan í hvatir vorar og geðsmuni, vökvi þar og
frjóvgi. Án slíks verður mentunin eigi að þeirri
eðlsmentun, sem temprar skaplyndi vort, rennir oss
í hold og blóð hófsemi og gáleika í trú og skoðun,
varnar oss að gleyma því, að jafnan getur oss yfir-
sézt, óviljandi og óvitandi getum vér haft á röngii
að standa. Slíku gleymdu þeir algerlega, blindu
mennirnir, í kappræðum sínum um fílinn og sköpu-
lag hans. Mentun í öllum þeim skilningi, sem eg
hefi nú gert grein fyrir, er síðasta markmið skóla
vors. Hann veit vel, að slíkt markmið er torsótt, og
hann bíður margan ósigur i þeirri hinni miklu menn-
ingarþraut. En hann vonar líka, að hann vinni
nokkurn sigur. Skólinn bíður þess öll heilög ráð
og regin, að honum auðnist á æviferli sínum að ala
upp handa þjóð sinni sem flesta umburðarlynda
áhugamenn, raunsæja hugsjónamenn, fullgáða menn
og algáða menn.”
Fimtíu ára hátíðin
AÐ GIMLI ÞANN 7. ÁGÚST 1939
Eftir Davíð Björnsson
-M-t-
I.
Nú eru aðeins rúmar þrjár
vikur þar til fimtíu ára afmæli
íslendingadagsins fer fram, og
það má engirin gleyma því að
koma á þá hátíð, því þetta er
ein allra íslenzkasta hátíð árs-
ins og eina tækifærið á árinu
fyrir íslendinga að koma saman
þar sem
“Blómstrandi flötin er fögur að
sjá
ogi faðm-mjúk sem æskan í
leik.—”
Og þar sem,
“að fegurst oss lítast hin ljós-
hjörtu vé,
og loft er sem heilnæmið tært,
og skínandi vatn og skógar-hlé
í skrautdaga klæði er fært—”
En áður en eg fer fleiri orð-
um í sambandi við hátíðahaldið
í ár, langar mig að líta augna-
blik um öxl.
II.
Það var fyrir fimtíu árum síð-
an, að sú hreyfing ruddi sér til
rúms meðal íslendinga, að koma
saman einn vissan dag á árinu
og minnast fslands, minnast átt-
haganna og minnast frænda og
vina, á ættjörðini. En eins og
allir vita, var mest af landinu þá
órutt. Þá voru engir vegir, engir
bílar, engar járnbrautir eða önn-
ur farartæki, sem nú tíðkast. Þá
tók það marga daga, jafnvel vik-
ur, að ferðast frá Nýja íslandi
til Winnipeg. En íslendingar
létu ekki slíka smámuni aftra
sér frá að sækja íslendingadag-
inn. Þá voru þeir i einlægum
hátíðahug. Og svo var áhuginn
mikill að sækja þessa hátíð, að
þeir komu gangandi og keyrandi
á hestum og uxum úr nýlend-
unum, og þó þetta ferðalag tæki
þá nokkra sólarhringa hvora
leið, gerði ekkert til, þvi þeir
voru í anda á leiðinni heim.
Og það var heldur erignn ó-
myndarbragur á þessum fyrsta
fslendingadegi landanna. Þeir
stofnuðu til skrúðgöngu og tóku
þátt í henni um fimtán hundruð
manns; vakti skrúðganga þessi
svo almeiuia athygli og hrifning
meðal hérlends fólks, að íslend-
ingar hækkuðu mikið í tigninni
frá þvi, sem áður var. Ensku
blöðin höfðu orð á hve hátíðin
hefði farið vel fram, og að
skrúðgangan hefði verið sú fjöl-
mennasta og athyglisverðasta,
sem séðst hefði í Winnipeg.
III.
Þannig fóru fslendingar á stað
með hið fyrsta íslendingadags
hátíðahald sitt hér í Winnipeg.
En síðan eru nú liðin fimtíu ár.
íslendingadags-hátíðahaldið hef-
ir ávalt verið vinsælt, það hefir
dafnað ár frá ári og verið fagn-
að af öllum sönnum íslending-
um. Og út frá þessum Winnipeg
íslendingadegi hafa aðrir mynd-
ast víða út um bygðir íslendinga.
En fjölmennasti og vinsælasti
hátíðisdagur íslendinga, sérstak-
lega á síðari árum, er íslendinga-
dagur Winnipeg, Selkirk og
Gimli manna, er síðan 1932, hef-
ir verið haldinn að Gimli, og frá
þeim tíma blómgast ár frá ári.
IV.
Að morgninum, þann 7. ágúst,
kl. 10, byrjar fyrsti þáttur í-
þróttanna með hlaupí fyrir börn
og unglinga, drengi og stúlkur, á
aldrinum sex og upp til fjórtán
ára, og eru sem fyr, þrenn verð-
laun gefin fyrir hverja ákveðna
hlaupa vegalend, þrenn verðlaun
fyrir drengi og þrenn fyrir stúlk-
ur. Þá eru og hlaup fyrir ungar
stúlkur og drengi, giftar konur
og gifta menn, og er þessum
flokkum einnig gefin þrenn verð-
laun fyrir hverja ákveðna hlaupa
vegalengd.
Klukkan ellefu hefjast aðal í-
þróttirnar á íþróttavellinum í
skemtigarðinum, og af auglýs-
ingum, sem dreift hefir verið út
um bygðirnar, gétur fólk áttað
sig á hverjar þær eru. Verðlaun
verða gefin fyrir hverja íþrótt
fyrir sig. Og auk þess verður
kept um Skúla Hansons bikar-
inn og Oddsons skjöldinn. Bik-
arinn verður gefinn þeim til eins
árs, er flesta vinninga fær, en
skjöldurinn þeim íþróttaflokki
til eins árs, er hefir flesta vinn-
inga.
Þar sem iþróttirnar fara fram
í skemtigarðinum, er yndislegt
að vera, því fólkið getur setið,
staðið eða gengið í skjóli og
skugga trjánna og varið sig fyr-
ir hita og ofbirtu sólarinnar,
sainhliða því, sem það getur
drukkiðl í sig hina lifandi angan
skógarins, og nýtur í bezta lagi
alls, sem fram fer á íþróttavell-
inum. Og þaðan er heldur ekki
nema steinsnar til þess staðar í
skemtigarðinum, sem aðal
skemtiskrá dagsins fer fram.
V.
Eg hygg það sé ekki ofsagt, þó
eg segi að skreyting staðarins
verði óviðjafnanleg. Þeir, sem
hafa áður verið á fslendinga-
deginum að Gimli, hefir, hygg eg,
flestum líkað skreyting skemti-
staðarins vel, og hafa hin prýði-
legu 4jöld af náttúru íslands,
máluð af okkar vinsæla lista-
manni, Friðrik Sveinsson, átt
einna mestan þátt í að gera stað-
inn svipmikinn og hrífandi. f
þetta sinn bætast við tvö ný
tjöld til sérbreytingar í skemti-
garðinum, bæði eftir Friðrik
Sveinsson. Sýnir annað tjaldið,
sem er 12x18 fet að stærð, fyrstu
lending landnemanna við Gimli,
eins og staðurinn og umhverfið
leit út þá, skógi þakið og vilt,
með dulrænt, heillandi yfirlit.
Hitt tjaldið, sem einnig er 12x18
feta stórt, sýnir hina nýju Þing-
velli, eins og þeir líta út í dag,
í þeirri mynd, sem hugvit manns
og hönd hefir gróðursett og prýtt
hinn fornhelga og fræga sögu-
stað.
Fer eg svo ekki lengra út i að
lýsa skreyting skemtistaðarins
að Gimli, eins og hann verður
þann 7. ágúst næstkomandi, þvi
það yrði of langt mál. En öll-
um fslendingum vil eg ráðleggja
að koma, sjá og sannfærast
um það, sem mig skortir orð til
að lýsa.
VI.
Um sjálfa skemtiskrána skal
eg ekki verða fjölorður, sökum
þess að hún verður birt lið fyrir
lið í blöðunum.
Ætlast er til að aðal skemtun-
in byrji kl. 2 e. h. í “Parkinu”
XI. 1.30 hefst skrúðganga út í
jarðinn og leikur hljómsveit
fyrir henni. Numið verður stað-
ir við landnema minnisvarðann
og lagður á hann blómsveigur
if Fjallkonunni, Miss Sigurborg
Davíðson, og sungið, “ó, Guð
vors lands.” Þaðan verður hald-
ið út í garðinn. Fjallkonan, Miss
Canada og Miss Ameríka, ganga
til sætis, og forseti, Jón J. Sam-
son, setur hátíðina. Þá verða
minni flutt í óbundnu máli. Séra
V. J. Eylands flytur ræðu fyrir
minni íslands, Friðrik Sveinsson
fyrir minni landnemanna í sam-
bandi við málverkið. Prófessor
Richard Beck flytur kvæði fyrié
minni íslands, V. J. Guttormsson
á Lundar, flytur kvæði fyrir
minni landnemanna. og E. P.
Jónsson kvæðl fyrir minni Vest-
urhéims.
Fjörutíu manna hljómsveit
spilar þar af og til allan daginri.
Hinn vinsæli Karlakór fslendinga
í Winnipeg, syngur þar einnig
nokkur lög undir stjórn Ragnars
H. Ragnar. Sextán stúlkur frá
Selkirk, allar klæddar einkennis-
búning, sýna þar listdansa. Hafa
þær ár eftir ár tekið fyrstu verð-
laun í “Festival” í Selkirk, og
munu stúlkurnar eflaust skemta
áhorfendum vel. Að kvöldinu
verða alþýðusöngvar sungnir
undir stjórn Alderman Paul
Bardal. Og að síðustu fá allir
að skemta sér við dans, svo
lengi sem þá langar til.
VII.
Sökum þess hve “Bus-in”
reyndust óábyggileg í sumar sem
leið, verður ekki leitað til þeirra
sérstaklega til að flytja fólk
fram og.til riaka frá Wi.mipeg
og Girnli, en bæfu ‘ Train” ng
“Bus” verða á ferðinni eftir
föstum áætlunum fyrri hluta
dagsins, og er fólk vinsamlega
beðið að tryggja sér far með
þeim. Síðasta “Train”-ið fer
frá Gimli kl. 12 að kvöldi.
F'argjald fram og til baka frá
Winnipeg og Gimli, er $1.25. Að-
gangur í garðinn 25c fyrir full-
orðna og lOc fyrir börn innan
tólf ára. Aðgangur að dansin-
um að kveldinu 25c.
VIII.
íslendingar! Fjölmennið á
þessa fimtíu ára hátíð fslend-
ingadagsins. Og þó ykkur kunni
að finnast einhverjir örðugleik-
ar í sambandi við að komast á
hátíðina, þá látið það ekki angra
^kkur eða hefta för ykkar.
Munið eftir hvað frændur ykk-
ar og vinir lögðu mikið á sig
til að sækja íslendingadaginn
fyrir fimtíu árurn síðan, og ber-
ið farartækin, sem þið getið