Lögberg - 03.08.1939, Síða 1
PHONE 86 311
Seven Tjlnes
«ííá^^ ,y>r
YNur ^ð-c Better
V ^ 0<- Drj' Oleanlnft
c antl Ijaundry
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 3. ÁGÚST, 1939
NÚMER 30
FJA LLKONA ÍSLENDINGA I)A GSINS
að Gimli 7. ágúst 1939
Miss Sigurborg Davidson
Ritstjóri Lögbergs og
frú vestur á Strönd
Ritstjórj Lögbergs, jíinar
Páll Jónsson er nú að heim-
sækja fslendinga vestur á
Kyrrahafsströnd. Lagði hann,
ásamt frú sinni, af stað vestur
síðastliðinn föstudag. Á sunnu-
daginn (30. júlí) átti hann
að vera kominn til Blaine, til
að flytja aðalræðuna á mið-
sumarmóti fslendinga þar.
Einnig flytur ritstjórinn fyrir-
lestur um íslenzkar bókmentir
og sögu á Western Washing-
ton College of Education, í
Bellingham, Wash., en það er
einn af stærstu kennaraskól-
um Washington ríkis, þar sem
um eða yfir þúsund kennarar
sækja sumarnámsskeið á ári
hverju. Er gott til þess að
vita, að fsland hefir við og við
formælendur á þessari vold-
ugu stofnun. Þetta hefir tek-
ist um alhnörg undanfarin ár
fyrir ötula milligöngu Andrés-
ar Danielssonar, fyrrum þing-
manns, í Blaine.
Á sunnudaginn kemur, þ. 6.
þ- m. flytur Einar ritstjóri
ræðu á fslendingadagshátíð-
inni að Silver Lake, Wash.,
skamt frá Seattle. Er þetta
venjulega fjölsóttasta sam-
koma fslendinga á ströndinni
ár hvert.
Einnig er ráð fyrir því gert,
að Mrs. Jónsson flytji erindi
á nokkrum stöðuin, en hún er,
sem kunnugt er, gáfuð kona
og prýðilega máli farin. Að
líkindum heiinsækja ]iau hjón
fleiri bygðir fslendinga vestra
áður en þau snúa aftur heim-
leiðis. Eru þau væntanleg
heim aftur um miðjan mán-
uðinn. Lögberg óskar að ferð-
in inegi verða þeim hjónum
til hvíldar og hressingar, en
veit að hún inuni auka hróð-
ur fslands á vesturvegum.
Fyrir skönnnu harst Gunn-
ari B. Björnssyni, fyrrum rit-
stjóra “Minneota Mascot” til-
hoð frá ríkisstjórn íslands um
að heimsækja ættjörðina í
sumar. Því miður gat hr.
Björnson ekki tekið boði
þessu vegna stjórnarembættis
er hann skipar i heimaborg
sinni, Minneapolis. Mun því
enginn Vestur-fslendingur fara
heim í sumar.
Guðbjartur Johnson
látinn
Mánudaginn 24. júlí lézt
hann að heimili sínu í Upham,
N. Dak. Veiktist snögglega
kvöldinu áður. Varð engri
hjálp við komið þrátt fyrir
beztu hjúkrun og atbeina
lækna. Er þar fallinn vin-
sæll inaður og drengur hinn
hezti.
Hann var fæddur 26. maí,
1866, að Víghólsstöðum á
Guðbjartwr Johnson
Fellsströnd í Snæfellsnes-
sýslu. Foreldrar hans voru
Jón Magnússon, lengi vestan
póstur, og kona hans Þórunn
Þórðardóttir. Hann ólst upp í
foreldrahúsum og naut þeirr-
ar haldgóðu uppfræðslu, er
tíðkaðist á íslenzkum sveita-
heimilum. Sú kensla efldi á-
reiðanlega andlegt hungur og
sjálfstæðan þroska. Guðbjart-
ur var söngelskur, Ijóðrænn
og bókhneigður. Fylgdu þessi
einkenni honum og auðguðu
líf hans, þó lítill væri þess
kostur að jafnaði að leggja
ra>kt við þetta eins og löngun
stefndi til.
Þann 4. júlí, 1895, kvæntist
Guðbjartur Guðrúnu ólafs-
dóttur frá Stóruhvalsá í Hrúta-
firði í Strandasýslu. Er hún
greind kona og mæt, og mun
hann með réttu hafa talið það
mestu gæfu lífs síns að njóta
samfylgdar þessarar ágætu
konú. Þau fluttust til Ame-
ríku árið 1900 og settust að í
Mouse River bygðinni við Up-
ham. Bjuggu þar ætíð síðan,
lengst af á hújörð sinni, en
nokkur síðustu árin í þorp-
inu. Varð þeim sex barna
auðið. Eini skugginn í sam-
bandi við frábært barnalán
þeirra, var fráfall efnilegs son-
ar, Jóns að nafni, er lézt úr
spönsku veikinni 1918, þá
tuttugu og eins árs. Hin öll
hafa rutt sér braut til ment-
unar og frama, svo sliks munu
fá dæmi, þó hagur heimilisins
væri jafnan þröngur. Tveir
synir, ólafur og Kristján, eru
vellátnir læknar i Rugby, N.
Dak. Aðrir tveir synir eru
metnir lögfræðingar, þeir
Niels (Nels) og Einar. Er
hinn fyrnefndi búsettur í
Towner, N. Dak., og var þar
rikissóknari nokkur ár, við
góðan orðstír. Kaus þá sjálf-
ur að láta af embætti og leka
vaxandi lögmannsstarf á eigin
reikning. Einar er búsettur í
Lakota, N. Dak. Er hann
yngri, en vel á veg kominn til
álits. — Einkadóttir þeirra,
Lilja, er gift séra Valdimar J.
Eylands, presti Fyrsta lút-
erska safnaðar í Winnipeg.
Er hún gáfuð kona og vel
mentuð, er stundaði kenslu
áður en hún giftist. — Er
þessi afkoma barnanna glegst-
ur vottur um hve haldgott það
var, sem heimilið lagði þeim
til. ,
Það er ekki ofmælt, að Guð-
bjartur var sannur gæfumað-
ur. Börn hans og tengdabörn
hafa kepst um að auðsýna
foreldrum sínum ástúð og um-
hyggju. Síðastliðinn vetur
dvöldu þau hjónin á heimili
séra Valdimars og frú Lilju, í
Winnipeg. En auk heimilis-
farsældar naut Guðbjartur vin-
sælda hjá öllum, er hann
þektu. Mouse River bygðin er
annáluð fyrir góðan sveitar-
brag, og var slíkt samlyndi er
ríkti milli heimila Guðbjartar
og bróður hans, Stefáns, er
hjó í næsta nágrenni, gott til-
lag til heilbrigðs hygðarlífs.
Þar einnig ríkti sami mann-
dómur og mentaþrá. öll börn
Stefáns hafa einnig komist
vel til manns. Jón mynd-
höggvari og Anna kennari í
New York eru meðal þeirra.—
Hefir bygðin yfirleitt verið til
fyrirmyndar í mentaþrá og
framsækni æskulýðsins.
Jarðarförin fór fram mið-
vikudaginn 26. júlí frá heim-
ilinu og íslenzku kirkjunni í
Upham, að viðstöddu fjöl-
menni. Séra K. K. ólafson
jarðsöng, en í húskveðju at-
höfninni tók einnig þátt séra
Valdimar J. Eylands.
K. K. ó.
MISS CANADA, 1939
Miss Evelyn Torfason,
Gimli, Man.
Komin til Winnipeg
Frú Lára Goodman Salver-
son, íslenzka skáldkonan vel-
þekta, kom til Winnipeg í
vikunni sem leið, ásamt manni
sínuin. Komu þau frá Vic-
toria, B.C., þar sem þau áttu
heima um hríð nú síðast; þar
áður voru þau um skeið í
Calgary. Nú búast þau við að
dvelja hér í Winnipeg fram-
vegis. Lögberg hýður frúna
velkomna og vonar að hún
megi dvelja hér um langt
skeið. Frúin er nú að búa
undir prentun nýja sögu, sem
koma á út í haust. Áður eru
komnar út tíu sögur hennar
og ljóðabók, auk þess hefir
hún samið allmargar smásög-
ur. Tvær heiðursviðurkenn-
ingar hefir frúin hlotið fyrir
ritstörf sín; gullmedalíu frá
Institute of Arts and Letters í
París, fyrir prýðilega vand-
virkni í ritum sinum og Gov-
ernor General’s Medal, i Can-
ada, fyrir beztu sögu er hér
kom út 1938, “The Dark
Weaver.” — Vér íslendingar
megum vissulega finna til
metnaðar, vegna þessarar is-
lenzku skáldkonu.
Mrs. Hansina Olson kom
heim á mánudaginn, frá Wyn-
yard, Sask., þar sem hún
dvaldi um tveggja vikna tíma
í heimsókn hjá dóttur sinni,
Mrs. J. S. Thorsteinsson.
Miss Guðrún Anna ísfeld,
Garðar, N.D.
L