Lögberg - 17.08.1939, Qupperneq 1
52. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 17. ÁGÚST 1939 NÚMER 32
Heimleiðis
Flutt i lilainc 30. júli 1939.
RT. HON. W. L. MACKENZIE KING
Þann 8. þ. m. voru liðin tuttugu ár frá þeim tima, er nú-
verandi forsætisráðherra Canada, Rt. Hon. W. L. Mackenzie
K’ing, var kjörinn forystumaður Liberalflokksins; var þessa
merkisatburðar í lífi forsætisráðherra minst í Toronto með
afarfjölmennu og veglegu samsæti í heiðursskyni við hann;
voru þar saman komnir aðdáendur Mr. Kings úr flestum
kjördæmum landsins, er hyltu hann á margvíslegan hátt.
^lr. King hefir gegnt stjornarforystu í tólf ár, og mun jafnan
talinn verða meðal ágætustu sona hjnnar canadisku þjóðar.
Yndis fagra eyjan bjarta!
ávalt býrð þú mér í hjarta,
þó eg flækist fjarri þcr.
Hjá þér liggja æskuárin,
unglingssporin, gleði tárin,
líka sorg, er sótti að mér.
Frá þér hef eg alt, sem ann eg,
einnig það sem veit og kann eg,
litill þó að sjóður sé.
Engu vil eg af því gleyma,
ávalt mun eg vernda og geyma
það, sem lézt mér þú í té.
Lítt þó hefði eg loðnar mundir
lifði eg hjá þér unaðsstiindir
margar, og eg man þær enn.
Hlýddi á frjálsa fuglakliðinn,
fossa drunur, lækja niðinn,
eitt og tvent og alt í senn.
Á hverju vori upp þú yngist,
og á metaskálum þyngist
hróður þinn, og hækkar æ.
Fortíðin þó flaki í sárum,
framtíðin mun sigla á bárum
gæfu og frama á glæstum sæ.
Þú átt mæta menn í samtíð,
megnuga til að skapa framtíð
þína, og starfa þér í vil.
Knga fyr þú áttir betri,
aldrei var með stærra letri
skráð: að bráðum birti til.
Birtan hafin, bjarmi af degi,
bátar rónir, alt á fleygi-
ferð, og kvak í mýri og mó,
Reykir læðast burt frá bæjum,
bændur víkja fé úr slægjum.
Þjóðin vöknuð — rofin ró.
Birtan er að breiðast hærra,
bráðum verður ennþá stærra
dagsverk ykkar drengir, fljóð.
Öldin hefir ykkur vakið,
áfram piltar, herðið takið,
kastið ljóma á land og þjóð.
Carnegiesjóðurinn hefir á
þessu ári veitt sex íslending-
um 1700 kr. í hetjuverðlaun.
Eru það þessir menn: Magnús
Árnason smiður á Grund í
Hrafngilshreppi fékk 300 kr.
fyrir að hafa bjargað manni,
sem farið hafði niður um is
með hest og sleða. Jón Sig-
urðsson vinnumaður á Hlíðar-
enda i Bárðardal fékk 200 kr.
fyrir að bjarga gömlum
manni, stm hafði losnað við
hest sinn í vatnsmikilli á, og
var straumurinn að bera hann
burtu, þegar Jón hljóp á bak
ósöðluðum hesti, reið út í ána
og náði honum. ólafur Tómas-
son háseti og Oddur Odsson
vélstjóri, báðir. á Gullfossi,
fengu 300 kr. fyrir að hafa
kastað sér útbyrðis til að
bjarga manni, sem fallið hafði
útbyrðis, er skipið var í rúm-
sjó á leið frá Leith til Vest-
mannaeyja. Páll Ásgeir
Tryggvason, Hávallagötu 9 í
Beykjavík, 10 ára gamall,
hlaut 300 kr. fyrir að bjarga
dreng, sem hal'ði hvolft kajak
undir sér. Friðrik Ottóson,
sendisveinn á ísafirði, 17 ára
Gleymdu öllu gaspri um morðin
gleðstu af því að fúnar korðinn
og fyrri alda fanta stryk.
Frami er enginn fólk að myrða,
og fúlmenskuna eina virða,
en gullvæg öll hin góðu vik.
Lifðu heil, við ljósar nætur.
Ljóma skært þá döggin grætur,
glitraðu eins og gimsteinn
hreinn.
Vaxi grös frá fjöru að fjalli,
fjölgi blóm á klettastalli.
Hefjist skógur hár og beinn.
Harma lítt þó hafir minna
handa á milli, en sumir hinna,
með blóðflekkótta sjóðinn sinn.
Lát þér nægja að auðga andann
með afli hugans greiða vand-
ann,
og fylla al' púðri pennann þinn.
Við svanahljóm og sólskins
nætur,
sittu glöð, þá heimur grætur:
hruninn maura hauginn sinn.
Lát þú börn þin stunda stærra,
stefna ofar, iniða hærra,
svo þau flekki ei fánann þinn.
Verið sælir sumar dagar,
sundin bláu, grænu hagar,
verjamóar, brekkur, fjöll.
Seinna mun eg sitja í lundi,
sælu njóta á ykkar fundi,
þegar mætumst aftur öll.
ó, sú gæfa, ef eg mætti
eyða mínum síðsta þætti
uppi i hárri hlíðar kinn,
og láta sæta lóukvakið
létta hinzta andartakið,
og deyja svo o’ni dalinn minn.
gamall, hlaut 300 kr. l'yrir að
hafa, bjargað sex ára gömlum
dreng, sem fallið hafði milli
skips og bryggju á ísafirði.
—Tíminn 27. júlí.
ÞJÓÐFIJDKKAHÁTIÐ
Stofnað verður tii veglegrar,
almennrar hátíðar i höfuð-
borg North Dakotaríkis, Bis-
marck, dagana frá 21. til 25.
yfirstandandi mánaðar, að
báðum dögum ineðtöldum, er
helguð skal minningu frum-
byggja ríkisins, og hefir mjög
verið til undirbúnings vandað.
Hinn 22. ágúst, “All Nations
Day,” verður einkum marg-
þættur og litbrigðaríkur. fs-
lendingar láta þar mikið til
sín taka, og koma þar fram
undir þjóðfánum íslands og
Bandaríkjanna; konur koma
fram á sjónarsvið í íslenzkum
þjóðbúningi, auk þess sem
Karlakór íslendinga að Moun-
tain, undir forystu Ragnars
H. Ragnars, lætur þar til sín
heyra.
Héraðsdómari Guðmundur
Grímsson í Rugby, hefir átt
drjúgan þátt í undirbúningi
hátíðarhaldsins.
Úr borg og bygð
Mrs. Jóhanna Sveinsson,
545 Home Street hér í borg,
varð bráðkvödd á mánudags-
nóttina er var, 87 ára að aldri.
♦ ♦
Nýlátinn er að 1136 Gar-
field Street hér í borginni,
Tryggvi Henricksson, 74 ára
að aldri.
♦ ♦
Einar P. Jónsson, ritstjóri
Lögbergs, kom heim úr ferða-
lagi vestan af Kyrrahafsströnd
á mánudagskvöldið ásamt frú
sinni.
♦ ♦
Mr. og Mrs. Hoseas Johnson
frá Toronto, Ont., hafa dvalið
í borginni um hríð. Mr. John-
son er sonur frú Guðríðar
Johnson, 512 Toronto Street.
♦ ♦
Látin er í Detroit, Mich.,
frú Soffía Thorsteinson, kona
Matthiasar Thorsteinssonar
þar í borginni; mæt kona og
vinsæl.
♦ ♦
Miss Valborg Nielsen, B.A.,
frá Ottawa, dóttir þeirra Mr.
og Mrs. Charles Nielsen,
dvaldi hér um slóðir nokkra
daga í gistivináttu foreldra
sinna; hún fór austur aftur á
sunnudagskveldið.
♦ ♦
Nýlátinn er á Almenna
sjúkrahúsinu í Selkirk, merk-
isbóndinn Gestu^ lóhannsson
frá Poplar Park. 88 ára að
aldri; hann lætur eftir sig
þrjú börn, Jóhann prófessor í
Winnipeg. Oscar bónda við
Poplar Park og Mrs. Midford
í Selkirk. Gestur var gáfu-
maður og prýðilega hagorður;
hann var Húnvetningur að ætt.
♦ +
Young lcelanders News
A corn roast has been plan-
ned for Tuesday, August 22.
Those intending to be present
will please meet at Jón Bjarna-
son Acadeiny at 8 p.m. A
charge of 15c will be inade
for refreshments. Everybody
welcome.
Arrangeinents have been
made for a Boat Ride to the
Picnic grounds.
♦ ♦
Allfjölment og virðulegt
samsæti var þeim Vilhjálmi
Þór, framkvæmdarstjóra og
frú hans og Árna G. Eylands
og frú, haldið á Royal Alex-
andra hótelinu hér í borg á
miðvikudagskveldið þann 9.
þ. m. Samsætinu stjórnaði hr.
Ásmundur P. Jóhannsson;
margar stuttar tölur voru
haldnar og sungið á milli.
Heiðursgestir þökkuðu með
velvöldum orðum þá velvild,
er lægi til grundvallar fyrir
mannfagnaðinum, og árnuðu
Vestur-fslendingum blessunar
og heilla.
Frá sumarnámskeiði
Bandalagsins
Gleði og sólskin einkennir
stað og stund, en æska og fjör
unglingana, sem hér dvelja,
um 50 að tölu.
Vonir hafa ræzt, til gæfu
hefir verið af stað farið, og til
sigurs er nú stefnt.
Nú langar oss til að sem
flestir megi muna oss, og
þennan æskuríka stað, og því
bjóðum vér þeim, sem hlýju
og vinsemd berá til vor og
málfefnisins, og sem tíma og^
tækifæri hafa, að heimsækja
oss á sunnudaginn kemur, 20.
ágúst; njóta þar fyrst guðs-
þjónustu kl. 2 eltir hédegi,
þar sem séra Rúnólfur Mar-
teinsson prédikar, og svo á
eftir þiggja hressandi góðgerð-
ir, eftir þvi sem oss er fram-
ast unt að veita. Kl. 7 verð-
ur lokasamkoma námskeiðs-
ins, sem allir eru velkomnir
að hlýða á.
Uppsögn námskeiðsins verð-
ur næsta morgun.
Vér öll, sem hér dveljum,
sendum vinarkveðju ykkur,
sem gjört hafið þetta nám-
skeið mögulegt, hvort heldur
það er “æska sem nemur eða
aldinn', sem temur.”
Komið og sjáið oss og sann-
færist um blessun þá, sem af
þessu starfi leiðir og mun
leiða.
E. H. Fáfnis,
Dean of Camp.
Jónas Pálsson.
FRÁ ÍSLAND.f