Lögberg - 07.09.1939, Qupperneq 1
52. ÁRGANGUR LÖGRERG, FIMTUDAGINN 7. SEPTEMBER, 1939 NÚMER 35
Adolf Hitler ræðst inn á Pólland með óvígan her og stofnar
með því til Norðurálfustríðs
Bretar og Frakkar segja Þýzkalandi álríð á
hendur... ítalir átanda hjá . .. Roosevelt forseti
lýsir yfir hlutleysi Bandaríkjanna . . . Þýzkur
tundurbátur sökkvir brezka farþegaskipinu
Athenia 240 mílur undan átröndum Skotlands
. . . 1400 farþegar um borð; um þúsund af
þeim bjargaát.
HERTZOG-STJÓRNIN í
SUÐUR-AFRÍKU
FER FRÁ VÖLDUM
Forsætisráðherra S u ð u r-
Afriku sambandsins, General
Hertzog, hefir látið af völdum
vegna aðstöðunnar til núver-
andi Norðurálfustríðs. General
Hertzog krafðist hlutleysis í
stríðinu fyrir hönd þjóðar
sinnar, en fór halloka í þing-
inu. General Smuts hefir ver-
ið falin á hendur myndun nýs
ráðuneytis; hann átti sæti i
alríkisstríðs ráðuneyti Breta í
heimsstyrjöldinni frá 1914.
i
INNRÁS þýzkra her-
sveita á Pólland hefir
B3Ö3 verið sótt af kappi
miklu, og haft í för með sér
mannfall mikið og eignatjón
á báðar hliðar; hafa spiængj-
ur Þjóðverja orsakað geig-
vænlegar hörmungar i ýmsurn
helztu horgum Póllands. Sím-
fregnir á miðvikudagsmorg-
uninn láta þess getið, að
stjórn Póllands sé í þann veg-
inn að leita á brott úr Varsaw
og flytja þaðan fólk alt vegna
hinna þrotlausu loftárása;
þetta ber ekki þannig að skilja
sem Pólverjar séu að gefast
upp, heldur er þar einungis
um óumflýjanlegar varúðar-
ráðstafanir að ræða. Fullyrt
er að pólskar hersveitir hafi
ráðist inn á Austur-Prússland
og gert þar usla mikinn. All-
inörg pólsk loftför vörpuðu
sprengjum yfir Berlín á þriðju
daginn.—
Síðastliðinn mánudag flugu
nokkur skip úr brezka loft-
flotanum yfir herskipastöðv-
ar Þjóðverja við Cuxhaven
og Wilhelmshaven og vörp-
uðu sprengjum á þau herskip,
er þar lágu; tvö stór og
vönduð herskip urðu fyrir
stórskemdum, eða jafnvel
eyðilögðust, að því er upplýs-
ingaráðuneytinu brezka segist
frá. f þessari viðureign skutu
Þjóðverjar niður sex hrezk
flugför.
Bretar hafa sökt fyrir Þjóð-
verjum þremur vöruflutninga-
skipum, en tvö brezk vöru-
flutningaskip hafa sokkið af
völdum Þjóðverja í Baltiska-
hafinu.
Nú hafa Frakkar ráðist að
varnarlínu Þjóðverja á vest-
urvígstöðvunum á hundrað
mílna svæði, og þykir einsætt,
að til tíðinda nokkurra muni
þar draga á næstunni, því sótt
verður þar á af kappi miklu.
Bretar hafa lokað Norður-
sjónum og fleiri siglingaleið-
um fyrir Þjóðverjum, og má
þess því vænta, að áður en
langt um líður þrengi mjög
að um vistaflutning og vopna
til Þýzkalands.
Þeir Winston Churchill og
Anthony Eden hafa verið
teknir inn i stríðsráðuneyti
Breta; hinn fyrri sem flota-
málaráðherra, en hinn siðar-
nefndi Dominions ráðherra.
TAKAST Á HEINDUR
HERFORINGJASTÖÐU
Tveir ungir og efnilegir fs-
lendingar hér i borginni, þeir
Njáll Bardal og John Hjálmar-
son, hafa tekist á hendur her-
foringjastöðu í þeim hinum
canadiska her, sem boðið
hefir verið út vegna Norður-
álfustyrjaldarinnar. Njáll er
sonur þeirra Mr. og Mrs. A.
Bardal, en John sonur þeirra
Mr. og Mrs. Chris. Hjálmars-
son; vera má að fleiri íslend-
ingár hafi þegar. hlotið for-
ingjatign í hernuin, þó blað-
inu sé það eigi kunnugt.
VERÐLAGSNEFND
SKIPUÐ
Samhandsstjórn hefir skip-
að verðlagsnefnd vegna af-
stöðu Canada til Norðurálfu-
stríðsins, er hafa skal það
hlutverk með höndum, að
fyrirbyggja okurverð á lífs-
nauðsynjum og tryggja heil-
hrigt jafnvægi á sviði við-
skiftalifsins. Verkamálaráð-
herrann, Hon. Norman Rogers,
gerði þetta heyrinkunnugt í
útvarpsræðu síðastl. sunnu-
dag.
ST.IÓRN ÍSLANDS FELUR
VILHJÁLMI ÞÓR AÐ
ANNAST UM KAUP
Á HVEITI
Herra Vilhjálmur Þór fram-
kvæmdarstjóri, er staddur i
New York í þeim erindagerð-
um af hálfu hinnar íslenzku
stjórnar, að kaupa amerískt
hveiti, sé þess nokkur kostur;
stafa þessar ráðstafanir vafa-
laust frá Norðurálfustyrjöld-
inni, og þeim örðugleikum,
sem það verður bundið fyrir
ísland að afla sér korns og
annara vista þar um slóðir.
SÉRA RAGNAR E. KVARAN
LÁTINN
Símskeyti harst Dr. Rögn-
valdi Péturssyni frá Reykjavík
þess efnis, að látist hefði þar
af völdum uppskurðar þann
24. ágúst síðastliðinn, séra
Ragnar E. Kvaran, 45 ára að
aldri. Hann lætur eftir sig
ekkju ásamt tveimur börnum.
HANS HÁTIGN
KONUNGURINN ÁVARPAR
ÞEGNA SfNA
Á sunnudaginn ávarpaði
hans hátign Georg Bretakon-
ungur þegna sína vegna hinn-
ar nýbyrjuðu styrjaldar og
þátttöku Breta í henni; var
ræðan mótuð hugsjónum mann
úðar og frelsisástar; kvaðst
hans hátign treysta því, að
brezkir þegnar víðsvegar uin
heim, stæði sainan sem ein
sál og sýndi í hvívetna rólyndi
á yfirstandandi tímum alvöru
og hinna þyngstu fórna.
SAMBANDSÞING KVATT,
TIL FUNDA
Vegna Norðurálfustyrjaldar-
innar og afstöðu Canada til
hennar, hefir sambandsþingi
verið stefnt til funda á fimtu-
daginn þann 7. ]>. in. í glæsi-
legri og alvöruþrunginni út-
varpsræðu, sem King forsætis-
ráðherra flutti á sunnudaginn,
lýsti hann yfir því, að á föstu-
daginn yrði lagðar fyrir þing
þær megin ákvarðanir, er
stjórnin hefði komið sér sam-
an um að enga þyldi bið. Var
Mr. King harðorður i garð
Hitlers og lýsti jafnframt yfir
því, að hin canadiska þjóð
myndi einhuga styðja málstað
Breta og demokratiskra sam-
herja þeirra í núverandi
frelsisstríði.
Frá Islandi
Fyrir fimm árum siðan var
byrjað á laxaklaki við árnar í
Þistilfirði. Gekk þá alls eng-
inn lax í sumar þeirra, svo
sem Svalbarðsá, Sandá og
Hölkná, en lítils háttar í aðrar,
til dæmis Laxá og Hafralnsá.
Þó var laxinn að ganga til
þurðar einnig þar. f fyrra
sumar varð vart nokkurs á-
rangurs af klakstarfseininni
og gekk þá nokkuð af laxi í
árnar. f ár hefir laxinn að
sjálfsögðu gengið í árnar að
nýju og mun meira heldur en
í fyrra sumar.
Þeim er ekki ósýnt um að
nota plóginn og hestaflið,
frændunum Valdimar á Álf-
hólum og Ágúst í Sigluvfk i
Vestur-Landeyjahreppi. Eitt
sumarið mun Valdimar hafa
með hestum plægt alt að 90
dagsláttum í sveit sinni. Fyrir
nokkrum árum var frá því
skýrt, hversu hann flýtti fyrir
greftri á miklum áveituskurði
úr Þverá, með plógnum og
hestunuin. f vor kom Ágúst í
Sigluvik upp 1160 faðma
langri engjagirðingu á ótrú-
lega skömmum tima með þeim
hætti, sem hér verður frá
greint: Fyrst var stungið
ineð skóflu eftir streng alla
vegulengdina, þar sem garð-
urinn skyldi standa. Siðan
var komið með plóginn ineð
þrem hesctum fyrir og plægðir
upp þrír þykkir jarðstrengir,
einskonar kekkir. Siðan var
garðurinn hlaðinn úr strengj-
unuin og voru tvö neðri lögin
höfð þversúm en þriðja kakk-
arlagið langsum. Tvo daga
tók að plægja, en á sex dög-
um var síðan þessi 1160faðma
langi igarður hlaðinn af sex
mönnum og voru þó tveir
þessara manna unglingar. Að
þessu loknu voru síðan settir
tveir vírstrengir ofan á garð-
inn og er nú girðingin talin
fullkomlega sauðheld, þar eð
plógfarið stendur fult af
vatni, með því að girðingin
var reist á jafnlendu inýrlendi.
—Tíminn.
Konan í kotinu
Áður fyr þá myrkra mein
mest sér lék í blænum,
vökunótt hún átti ein
oft í gamla bænum.
Hríðar gjörðu hreysið kalt
hugans frusu lindir.
Sig þá lögðu yfir alt
ýmsar kynjamyndir.
Freðna lagði á rúðu rós
raunir sárar herti.
Annað hvort var ekkert ljós
eða tólgarkerti.
Byljir næddu um brostin þil,
brutust tár á hvarmi,
kvíðinn tíndi allan yl
úr ekkaþrungnum hvarmi.
f fölri skímu fram við hlóð
fálma knýttar hendur.
eldur dauður, engin glóð,
askur tómur stendur.
Blæða undir, svíða sár
sönn er gleði vegin,
en kotunganna tregatár
teljast — hinumegin.
Kristbjörn Benjaminsson.
—Samtíðin.
SIGURÐUR FRá ARNAR-
HOLTI LÁTINN
Sigurður Sigurðsson skáld
frá Arnarholti lézt að heimili
sínu hér í bænum í gær. Bar
dauða hans brátt að, því að
hann hafði verið við góða
helisu undanfarið.
Hann var lengi lyfsali í
Vestmannaeyjum, en kunnast-
ur er hann af skáldskap sín-
um. Á unga aldri gaf hann
út ljóð eftir sig og var þegar
tekinn í beztu skálda tölu ís-
lenzkra.
Þá er hann og kunnur af
starfi sínu í þágu björgunar-
mála við Vestmannaeyjar.
Sigurður var hár maður og
höfðinglegur, og var eftir
honum tekið, hvar sem hann
fór. —Alþýðubl. 5. ágúst.
HERTOGINN AF WINDSOR
HVERFUR HEIM
Simað er frá París á mánu-
daginn að hertoginn af Wind-
sor sé í þann veginn að flytja
til Englands ásamt hertoga-
frúnni og setjast þar að; hef-
ir hertoginn boðið brezku
stjórninni hverja þá aðstoð í
stríðinu, er hann fái í té látið.
COL. RALSTON
VÆNTANLEGURf
OTTAWA-RÁÐUNEYTIÐ
Ottawa-fregnir á mánudag-
inn láta ]>ess getið, að víst
megi nú telja, að Col. Ralston
taki sæli i sambandsstjóminni
þá og þegar. Hann var um
eitt skeið hervarnaráðherra i
ráðuneyti Mr. Kings.