Lögberg - 16.11.1939, Síða 1
PHONE 86 311
Seven T.ines
,\V^
# AV®
V^ö* * Servlœ
and Satisfaction
52. ARGANGUR
Býður sig fram á ný
Paiz/ Bardal, imra-borgarstjóri
Mr. Bardal hefir setið i
bæjarstjórn í samfleytt 8 ár;
hann hefir getið sér þar hinn
ágætasta orðstír sakir glögg-
skygni og drengilegrar hlut-
töku í velferðarmálum borg-
arinnar; hann var um eitt
skeið forseti í hinni ábyrðar-
miklu atvinnuleysisnefnd, og
leysti þann vandastarfa af
hönduin með slíkum ágætum,
að til fyrirmyndar var talið;
um þessar mundir á Mr. Bar-
dal sæti í lögreglunefnd, heil-
brigðisnefnd og sjúkrahúss-
nefnd, auk þess sem hann er
formaður þeirrar nefndar, er
umsjá hefir með atvinnubóta-
vinnu; hann hefir tvisvar ver-
ið skipaðnr vara-horgarstjóri,
og gegnir þeirri sýslan i ár.
Mr. Bardal hefir aukist fylgi
í hverjum kosningum, og ætti
svo enn að verða; á sínum
tíma verður hann vafalaust
kjörinn til borgarstjóra í Win.
nipeg. fslendingar í 2. kjör-
deild ættu að sjá sóma sinn í
því að fylkja Iiði um Mr.
Bardal á föstudaginn þann
24. þ. m.
BRÆÐUR KVONGAST
SAMA DAGINN
Stórkostlega ánægjuleg at-
höfn fór fram að heimili Jó-
hannesar og Sigurlaugar Ein-
arsson við Calder, Sask. seinni
hluta sunnudagsins 12. þ. m.
Synir þeirra hjóna, tveir,
voru að gifta sig: Jóhannes
gekk að eiga Sveinidu Svein-
son; foreldrar hennar Jónas
og Málfríður Sveinson eiga
heima í Chicago, og Einar gift-
ist Kristínu Helgu Bjarnason,
foreldrar hennar eru Sigurður
sál. Bjarnason og Björg, i
grend við Churchbridge.
Svaramenn Jóhannesar og
Sveinidu voru þau George
Martin og kona hans Margrét,
systir brúðgumans. Svara-
Jnenn Einars og Kristínar voru
Ingi Einarsson og Helga
Bjarnason. þngi er bróðir
Einars og Helga systir Krist-
inar.
Að lokinni athöfn var sezt
PHONE 86 311
Seven Lines
#
sfcr
JS
/V **'nr
5ve Better
Dry Cleaninjt
and liaundry
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. NÓVEMBER, 1939
NÚMER 45
Úr borg og bygð
Stofnað til
tjorraða við
Adolf Hitler
Á miðvikudaginn þann 8.
þ. m. héldu þýzkir Nazistar
mannfagnað á ölknæpu nokk-
nrri í Munich til minningar
um pólitískt samsæri Hillers
á þeim stað árið 1923; voru
þar, auk Hitlers, er flutti aðal-
ræðuna, aðal forkólfar flokks-
ins svo sem Goering og Hess.
Tíu mínútum eftir að Hitler
hafði lokið máli sínu og var
horfinn á brott, varð spreng-
ing í ölkjallaranum, er olli
bana sjö manna, auk þess sem
því nær átta tugir sættu mis-
munandi meiðslum. Leynilög-
regla Nazista hefir reynt að
skella skuldinni á Breta
eins og reyndar flest annað,
þó slíkt væri vitanlega hin
mesta fjarstæða; hitt er miklu
líklegra, að um heimabrugg
sé að ræða innan vébanda
Hitlers eigin flokks, þvi senni-
lega fara augu þjóðarinnar
að opnast fyrir þeirri stað-
reynd hvern vandræðamann
hún hafi að leiðtoga.
til borðs að mörgum ágætis
réttum; töluðu menn yfir
borðum stutt erindi. Menn
skemtu sér með mörgu móti
eftir að staðið var upp frá
borðum. Mun stundin ógleym-
anleg öllum viðstöddum.
Jóhannes verzlar með verk-
færi í bænum Calder og Einar
er kornhlöðumaður í Church-
hridge.
Heimili þeirra Jóhannesar
og Sigurlaugar stendur opið
gestum og gangandi. Myndar-
skapur er með afbrigðum.
Eiga þau hjón til að telja
hinna mætustu manna á Norð-
urlandi. Var Jóhannes einn
af stofnendum Kaupfélags
Þingeyinga; leiddi stofnun
þess félagsskapar til þess, að
verzlunarmál fslands breytt-
ust og dönsk verzlun hvarf að
miklu leyti úr Iandinu, og ein-
okunarverzlun rekin á dyr.
Heiinilið er eitt hið allra
islenzkasta vestanhafs, það
hvílir yfir því nokkurs kon-
ar íslenzkur blær, sem flytur
manni ómengaðan íslenzkan
þrótt og gekþekki. Gaman er
Hka að skoða hinar aldur-
hnignu íslenzku bækur í bóka-
skáp Jóhannesar; höfundur
þeirra munu flestir gengnir til
hvílu, en bækurnar lofa meist-
arann, inörgu er þar góða að
kynnast frá þeirri tíð.
Hughcilar árnaðaróskir
fylgja hinum ungu hjónum, og
hjartans þakkir öllum, sein
studdu að því að gera stund-
ina stór-ánægjulega og eftir-
minnilega.
Séra S. S. Christopherson
gaf saman.
Viclor R. Aiulcrson
Mr. Anderson verður í vali
í 2. kjördeild við bæjarstjórn-
arkosningarnar, sem fram fara
á föstudaginn þann 24. yfir-
standandi mánaðar af hálfu
hins óháða verkamannaflokks;
hann átti sæti í bæjarstjórn í
tvö kjörtimabil, og reyndist
hinn nýtasti fulltrúi; skyldu-
rækinn og samvinnuþýður. fs-
lendingar ættu að tryggja hon-
um sæti í bæjarstjórn með
samhljóða atkvæðum i á-
ininstum kosningum til hæj-
arstjórnar.
Flytur rœðu á
fullveldisdaginn
Mrs. Laura Goodman-
Salve-rson
Yngri deild Þjóðræknisfé-
lagsins (Young Icelanders),
hefir ákveðið að efna til dans-
leiks og samsætis á Marl-
borough hótelinu á fullveldis-
dag íslenzku þjóðarinnar þann
1. desember næstkomandi;
ættu íslendingar að virða
þessa viðleitni að makleikum
með því að fjölmenna á sam-
komuna.
Skáldkonan Mrs. Laura
Goodman-Salverson, flytur
ræðu við þetta tækifæri, og
mun mörgum það hugðarefni
að hlýða á mál hennar; ræð-
an fjallar um fsland nútímans
og menningarlegar framfarir
með þjóðinni hin síðari ár.
Heklu fundur í kveld
(fimtudaginn).
Guðsþjónustunni frá Fyrstu
lút. kirkju verður útvarpað á
sunnudagskvöldið 26. nóvem-
ber, kl. 7, frá CKY stöðinni.
*
Mr. Guttormur J. Guttorms-
son skáld frá Riverton, kom
til borgarinnar síðastliðinn
mánudag.
*
Mr. T. L. Hallgrimson, fiski-
kaupmaður frá Riverton,
dvaldi í borginni fyrri part
yfirstandandi viku.
+
Mr. Hermann -Thorsteinsson
fiskikaupmaður frá Riverton
var staddur í horginni á
þriðjudaginn.
+
YOUNG ICELANDERS’ NEWS
Dr. and Mrs. P. H. T. Thor-
lakson, Grenfell Blvd., were
hosts to the Young Icelanders
at their monthly meeting on
November 12th. About seventy
five members and their friends
were present.
Final arrangements for the
banquet and dance to be held
at the Marlborough Hotel on
December lst were made.
The guest speaker of the
evening was Professor Watson
Kirkconnell, who read three of
his own poeins. These had
Manitoba as their background,
a hackground, which he said,
had been very little nsed hy
our Canadian poets, with a
few exceptions such as
Stephan G. Stephanson and
Guttormur J. Guttormsson.
Dr. K. J. Austman, in mov-
ing a vote of thanks to the
speaker, said that he had often
wondered how the poets found
their theines and the inspira-
tion to deal with them, and
that the reading of thesc
poems, together with the ex-
planations given with them,
had given him an insight into
these factors, as well as en-
joyment.
Dr. Larus A. Sigurdson
moved a hearty vote of thanks
to our host and hostess for
their generous hospitality.
+
VEITIÐ ATHYGLI!
23. nóvember næstkomandi
(á fimtudag) heldur Kvenfé-
lag Fyrsta Iúterska safnaðar
sinn árlega haust bazaar, í
samkomusal kirkjunnar. Auk
allskonar vandaðs varnings,
sem þar verður á boðstólum,
verður hægt að fá þar skyr
og rjóma, og súkkulaði, og hið
alþekta kvenfélags-kaffi, sem
hver getur drukkið af sem
hann lystir, og borgað fyrir
sem hann má. — Einnig verð-
ur hægt að fá þar alskonar
heimatilbúinn mat af beztu
tegund. Eins og allir vita er
þetta bezti staður fyrir kunn-
ingja að mætast og skemta
sér við samræður, og “sýna
Miss Martha Stefánsson
Miss Stefánsson er dóttir
Dr. Jóns heitins Stefánsson-
ar og konu hans, söngkon-
unnar vinsælu, Joönnu Stef-
ánsson, sem einnig er látin;
stúlka þessi, sem einungis er
13 ára gömul, er frábærlega
vel gefin og listræn með af-
brigðum; hún lauk áttunda-
bekkjar prófi i vor sem leið
með ágætiseinkunn; hún þyk-
ir efni í ágæta söngkonu og
pianóleikara; hún lék í vor
forustuhlutverkið “Yum Yum”
í óperettunni “The Mikado,”
Og þegar hún lauk síðasta
bekkjarprófi, söng hún hið
fræga lag Schuberts “Ave
Maria”; þessu jafnframt hlaut
Miss Stefánsson American
Legion verðlann, auk þess sem
henni var veitt heiðursskýr-
teini og bronze-medalía; eru
slík virðingarmerki aðeins
veitt einum neinanda við
bekkjarpróf á ári. Miss
Stefánsson er til heimilis hjá
móðursystur sinni og manni
hennar, Mr. og Mrs. Lialko í
Philadelphia.
sig og sjá aðra.” Komið því
allir, sem unnið málefninu og
góðum félagsskap.
+
10. þessa mánaðar andaðist
Sigríður Markúsdóttir, Árna-
sonar, ekkja Haraldar stein-
smiðs Sigurðssonar frá Sauð-
árkróki, hjá dóttur sinni frú
Lilju Haraldsdóttur og manni
hennar ólafi H. Jenssyni
póstmeistara í Vestmannaeyj-
um. önnur dóttir hennar er
Goðmunda Haraldsdóttir í
Winnipeg, kona Þ. Þ. Þor.
steinssonar. Sigríður var
þrem árum og einum mánuði
betur en áttræð, er hún lézt.
Hún átti fimm alsystkin og
níu hálfsystkin. Hvílir móðir
hennar, Filipía Hannesdóttir
prests og rímnaskálds að Rip
i Hegranesi, Bjarnasonar, og
tvær hálfsystur, Margrét og
Filipia Björnsdætur, í cana-
diskri mold. Tveir albræður
Sigríðar eru á lífi í Winnipeg,
Magnús skáld og Jón Markús-
synir. Hin systkinin, ásamt
föður hennar, hvila i íslenzkri
jörð.