Lögberg - 14.12.1939, Side 1
52. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. DESEMBER, 1939
NÚMER 49
Vilhjálmur Þór
heiðursborgari
í New York
fslandi og íslendingmn var
í gær í ráðhúsi New York
borgar sýndur óvenjulegur og
stórkostlegur heiður.
Laust eftir hádegið í gær
var Vilhjálmi Þór bankastjóra
— framkvæmdarstjóra fs-
landsdeildar New York sýn-
ingarinnar veitt í ráðhúsi
borgarinnar af La Guardia
borgarstjóra heiðursmerki úr
gulli, en það er aðeins veitt
mönnum, sem á einhvern hátt
hafa unnið (framúrskarandi
starf i þágu New York borgar.
Jafnframt afhenti La Guardia
Vilhjálmi Þór skírteini, þar
sem hann er útnefndur heið-
ursborgari New York borgar.
Þessi mikli heiður, sem
Vilhjálmi Þór hefir verið
sýndur, er jafnframt og ekki
síður heiður fyrir islenzku
þjóðina — og mun gleðja
hana mikið.
Bandarikjamenn hafa hvað
eftir annað siðan heimssýn-
ingin var opnuð, látið í ljós
hrifni sína yfir íslandsdeild-
inni og aðdáun sina á ís-
Jenzku þjóðinni. Kom það
víða fram, að þeir töldu, að
íslandsdeild sýningarinnar
hefði staðið mjög framarlega
og jafnvel borið af fjölda
mörgum öðrum deildum. La
Guardia hefir staðið fremstur
í flokki þessara manna, sem
hafa talað um ísland og látið
aðdáun sína i Ijós á því.
Nægir í því sambandi að
minna á ummæli La Guardia,
er hann hafði — þegar ís-
lendingar heldu þjóðhátíðar-
dag sinn 17. júni í sumar há-
tíðlegan á heimssýningunni.
Þá sagði hann: “Eg flyt
kveðju frá stærstu horg ver-
aldarinnar til merkustu þjóð-
ar heimsins!” — Síðar flutti
La Guardia erindi í útvarp i
Chicago og inintist þá íslands
sem fyrirmyndarlands og hins
ævagamla lýðræðislega stjórn-
arfyrirkomulags þess, sem
mætti vera öðrum þjóðum til
fyrirmyndar.-—Alþ.bl. 18. nóv.
Nýjustu fregnir
Loftflotaráðherra Breta, Sir
Kingsley Wood, lýsti yfir því
á mánudaginn, að brezk loft-
för hefði sprengt að minsta
kosti nitján þýzka kafbáta og
sökt þeim, síðan núverandi
Norðurálfustyrjöld hófst.
+
Fregnir frá Genvea á mið-
vikudagsmorguninn herina, að
Rússar hafi þverneitað að
verða við kröfum Þjóðbanda-
lagsins um það, að leggja
deilumálin við Finna í gerð-
ardóm. — Fram að þessu
sýnist Finnum hafa veitt
beitur í stríðinu við Rússa
þó við ofurefli só að etja.
Thor Thors, alþingismaður
Útvarpsræðu þá hina ágætu,
er hr. Thor Thors flutti í
Reykjavík um heimsókn sína
til fslendinga vestan hafs, og
kynni sín af þeim, lót oss í
tó Grettir Leo Jóhannsson,
konsúll íslendinga og Dana í
Manitoba, er barst ræðan í
hendur boðleiðis frá höfundi.
l'hor Thors alþingismaður bað
Lögberg fyrir munn Grettis
konsúls, að flytja Vestur-fs-
lendingum alúðarkveðjur fyr-
ir viðtökurnar í sumar er leið.
Vegleg bœjarráðshöll
í Selkirk
Síðastliðinn laugardag var
formlega opnuð með viðeig-
andi hátíðarhaldi, hin nýa og
veglega bæjarráðshöll í Sel-
kirk; skoðaði mannfjöldi
mikill bygginguna þá um dag-
inn og var öllum veittur hinn
rausnarlegasti beini. Nokkr-
ar stuttar ræður voru haldnar
í tilefni af opnun bygingar-
innar, þar á meðal ein af .1.
T. Thorson, K.C., þingmanni
Selkirk kjördæmis.
Sagt var oss það á laugar.
daginn i Selkirk, að engin
skuld hvildi á hinu nýja ráð-
húsi, og iná það kallast vel
að verið.
Menn eiga ekki örðugt með
að komast i himnaríki, þótt
þeir eigi sér auðæfi, heldur
fyrir þá sök, að auðæfin eiga
þá.—Dr. Caird.
Brezkar hersveitir tóku i
fyrsta sinn þátt í orustu á
vesturvigstöðvunum síðastlið-
inn þriðjudag frá því i byrjun
núverandi styrjaldar, og
reyndust Þjóðverjum óþægur
Ijás í þúfu; tóku þær allmargt
þýzkra fanga án þess að sæta
nokkru skakkafalli.
♦ ♦
Frá Stokkhólmi er símað á
mánudaginn, að sænska
stjórnin telji það vafamál
hvort þjóðinni verði kleift að
vernda hlutleysi sitt mikið
lengur eins og málum nú sé
skipað vegna árásar Rússa á
Finnland. Samsteypustjórn er
nýtekin við völdum í Svíþjóð,
er þingflokkarnir allir standa
að.
.iillllllllllll!llllllllllllllllllllllllllllllll!llll!'lllllllllll!lllllll!llll!IIIIIIIIIUIIIII!llllllllllllllllllli'.
Frá Islandi
l|l!l!llllllll!llll!il|lll!ll!l!llll!l!l:!ll!lltllllll!llllll!lllllllllllll!!!lllllll!l!l!llllll!lllll'lllllllll|1'
Svo sem kunnugt er hefir
tiðarfar i Mýrdal í sumar
stungið mjög í stúf við það,
er annars staðar hefir verið í
andinu. Magnús Finnboga-
son bóndi í Reynistað hetir
tjáð Tímanum, að með komu
ágústmánaðar hafi brugðið
til svo mikilla óþurka þar
eystra, að slíks sóu naumast
dæmi. Allan ágústmánuð
komu aðeins þrír þurkadagar,
sem eigi notuðust, nema að
litlu levti, vegna þess, að stór-
rigning var dagana á undan
og eftir. Mestur hluti útheys-
aflans stórskemdist því og enn
liggja úti mörg hundruð hest-
burðir heys, sem orðið er ó-
nýtt með öllu. Af þessum
sökum er heyfengur hænda,
er búa um miðbik sýslunnar,
i allra lólegasta lagi. Náði
óþurkasvæðið yfir mestan
hluta Mýrdalsins, Álftaver,
Skaftártungu og að nokkru
leyti austustu hreppa sýslunn-
ar. Þó bætti nokkuð úr sum-
staðar, að há spratt i bezta
lagi og gátu þeir, er aðstöðu
höfðu til votheysgerðar, nýtt
sór það. Siðari hluta júní-
mánaðar voru að vísu óvenju-
legir þurkar á þessum slóð-
um og allan júlímánuð kom
ekki dropi úr lofti. Drógu
þessir þurkar injög úr gras-
sprettu, sem mjög leit vel lit
um framan af vorinu, og hófst
sláttur þess vegna seinna en
ella hefði orðið. — Kartöflu-
uppskera er ákaflega misjöfn;
sumstaðar ágæt, en annars
staðar, einkum í Vík, hefir
spretta í görðum orðið mikl-
uin mun lakari en vonir stóðu
til, vegna langvarandi þurka
fyrri hluta sumars. — Sauð-
fjárslátrun hefir staðið yfir
í Vík og Hólmi og í heild
slátrað með mesta móli vegna
hins rýra heyfengs, þó nokkru
færra í Hólmi en venjulega.
Allar afurðir eru fluttar til
Reýkjavikur jafnóðum og hef-
ir kaupfólagið 4—5 bifreiðar
í förum daglega. Dilkar munu
vera í vænna lagi. — Mikill
fjöldi fólks flytur úr sveitum
þar eystra til Reykjavikur um
þessar mundir, bæði fólk, sem
dvalið hefir þar i atvinnuleit
um sumartímann, og stúlkur
að austan, sem ráðast ætla til
vetrarvistar i Revkjavík. h>fa-
laust mætti útvega mörgum
unglingum vetrarvistir eystua.
En svo er sem enginn vilji
við því líta.
4»
Trausti ólafsson, forstjóri
rannsóknarstofu atvinnudeild-
ar háskólans, vinnur um þess-
ar mundir að rannsókn á hita-
einangrunargildi ýinissa ein-
angrunarefna, sem hér eru
notuð við húsabyggingar. Hef-
ir hann til dæmis athugað
einangrunargildi það, sem
vikurplötur hafa, bæði úr
hvitum' vikri af Snæfellsnesi
og svörtum vikri úr Grinda-
vikurhrauni. Samkvæmt á-
bendingu Trausta munu for-
ráðamenn Rey j aví k u rbæ j ar
nú vera að athuga um mögu-
leika á að nota vikur af
Röykjanesskaga til einangrun-
ar við hitalagnir innan bæar.
Mun sá vikur þó heldur lak-
ari til hitaeinangrunar en
Ijósi '/ikurinn af SnæfeSls-
nesi, en ástæða til að ætla að
ódýrra yrði að afla hans.
Einnig hefir Trausti athugað
hvert hitaóinangrunargild.i
flögur, sem gerðar eru lir svo-
kallaðri froðusteypu, hafi; eru
þær hæði úr sementi og sandi
eða seinenti einvörðungu.
Loks mun hann innan skamms
rannsaka, hve haldgott reið-
ingstorf er til hitaeinangrunar.
+
Timanum hefir borist frá
stórstúkunni greinargerð um
starfsemi hennar árið 1938,
sakmvæmt skýrslum embætt-
ismanna á stórstúkuþinginu i
suinar. Þessar skýrslur hafa
að geyma margvíslegan og
þýðingarmikinn fróðleik um
margt það, er áfengismál
snertir, áfengisneyzlu þjóðar-
innar, afleiðingar áfengis-
nautnar o. s. frv., auk þeirrar
vitneskju, sem þar er að fá
um stúkustarfsemina og út-
breiðslu þeirra. Meðlimir i
stúkunum 1. febrúar 1939
voru 9403. Heíir þeim því
fjölgað verulega frá þvi, er
var áður. í skýrslu Felix
Guðmundssonar, stórgæzlu-
inanns, er yfirlit um áfengis-
lagabrot í Reykjavík árið
1938. Á því ári gerðu 065
manns sig seka um ölvun á
almannafæri og 018 manns
verið settir i varðhald vegna
ölvunar, 39 menn hafa ekið
bifreiðum druknir, upp komst
um 3 smyglara, 17 leynivín-
sala og 1 bruggara, 788 sinn-
um var lögreglan kvödd á
opinbera samkomustaði vegna
drykkjuskapar og 564 sinn-
um i heimahús, og alls voru
hókaðar 3374 kvartanir. í
þessari skýrslu er einnig
greinargerð um áfengissölu í
landinu. Árið 1938 var sell
áfengi i útsölustöðum vín-
verzlunarinnar fyrir 3,052
þúsundir króna, þar af yfir
2.5 iniljónir í Reykjavík. Er
þetta nokkru hærri upphæð en
meðaltal áranna þriggja 1930
—1937. Við þetta er þó þess
að gæta að útsöluverð áfengis
hefir hækkað. Þá telur Felix
Guðmundson í þessari skýrslu
sinni, að tvö hin síðustu ár
hafi verið keyptur og drukk-
inn brensluspíritus hér á landi
fyrir 150—200 þúsund krón-
ur hvort árið.
—Tíminn 18. okt.
Bezta ráðið tit þess,' að
verða hamingjusamur, er að
finna til með þeim, sem eru
okkur minni máttar, en
glevma hinum.—Josh Billings.
,il!!lllll!llll!l!llllllllllllllllllllllllllllll!!!lllllllll!!!lllll!llll>ll!llllllll!!lllllllll«llllllllllllllllii..
0r borg og bygð
>'|i||||||||||llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!lll!!llll!llllllllllllll!!lllllll!llll!IIIIVr
Home Cooking Sale and
Sale of Novelties suitable for
Christmas gifts, with Bridge
in the evening, Saturday, Dec.
10, from 2.30, under the
auspices of the Ladies Aid of
the F'ederated Church, Ban-
ning St., Winnipeg, Man.
*
Mr. og Mrs. Harry Floyd,
Víðir, Man. mistu nýlega
rúmlega ársgamla dóttur sína,
Olive Guðrúnu að nafni, hún
andaðist þann 6. des., eftir
sjúkdómsstrið, er varði lengst
af hennar stuttu æfi. útför
hennar fór fram frá heimili
foreldranna þann 9. þ. m., að
viðstöddum ástvinum og
mörgum bygðarlnium. Sókn-
arprestur jarðsöng.
+
Guðný Eyford, kona Guð-
mundar E. Eyford, Ste. 15
Manitou Apts., lézt að Jieim-
ili sinu um hádegisbil á
þriðjudaginn eftir langvarandi
vanheilsu, 74 ára að aldri;
ættuð frá Sælingsdalstungu í
Dalasýslu; auk manns sins
lætur hún eftir sig dóttur, Mrs.
Forest Gangwer, Muskegon,
Mich. útförin fer fram kl. 2
e. h. á föstudaginn kemur frá
kirkju Sambandssafnaðar;
hin frainliðna var sæmdar-
kona hin mesta og bráðskýr.
Lögberg færir aðstandendum
innilega samúðarkveðju.
+
Jóns Sigurðssonar félagið,
l. O.D.E., hefir ákveðið að
efna til spila og danssamkomu
á Marlborough hótelinu á
föstudagskveldið þann 2. febr.
næstkomandi; gengur arður-
in i þann sjóð félagsins, sem
varið verður til gagns og
gleði þeim íslenzkuin mönn-
um, sem innritast hafa og
síðar innritast I canadiska
herinn. Félag þetta vann hið
mesta nyta- og mannúðarverk
ineðan styrjöldin frá 1914 stóð
yfir, og vinnur það vafalaust
ekki siður i núverandi hild-
arleik; starfsemi þessi verð-
skuldar stuðning og þökk
allra sannra fslendinga.
*
Á fimtudaginn þann 7. þ.
m. , lézt að heimili sínu í Chi-
cago, frú Sigurlaug Thorlak-
son, kona Ed. Thorlaksonar
rithöfunds, hæfileika kona hin
mesta og þeim öllum harm-
dauði, er haft höfðu af henni
persónuleg kynni; hún var
dóttir Gunnars Guðmundsson-
ar, er um langt skeið átti
heima í grend við Mountain,
N. Dak., og lézt þar sumarið
1928 hjá Valgarði póstmeist-
ara, syni sínum. útför frú
Sigurlaugar fór fram þann 11.
þ. m. Frú Sigurlaug var vin-
mörg hér i borg frá kenslu-
árum sínum við Success verzl-
unarskólann.