Lögberg - 25.04.1940, Page 1
PHONE 86 311
Seven Lines
*<>
S«*
d
5-SSið*
4 v^*
Oot-
cr*
^ ServÍGe
and
Satisfaction
PHONE 86 311
Seven Lines
Co^
d - “nd For Better
Dry Cleaning
and Laundry
53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. APRIL, 1940 ♦ NUMER 17
Lögb( srg óskar Islendingum góðs og gl< sðilegs sumars
Frá vettvangi
stríðsmálanna
Þegar þeir menn, sem komust lífs af frá þátttöku brezka
beitiskipsins “Hardy” í sjóorustunni miklu við Narvik, stigu fæti
á brezka grund, lót flotamálaráðherra Breta þannig ummælt, að
þeir væru fyrirmynd þeirra kappa, er frelsa myndu Noreg úr
ránsklóm Hitlers, er fram á sumarið kæmi; ekkert minna gæti
samherjar undir nokkrum kringumstæðum sætt sig við.
Samgöngur um Noreg hafa
verið örðugar undanfarna daga,
og snjór víða í bygðum sem um
hávetur væri; hefir þetta þar af
leiðandi gert stríðssókn alla erf-
iðari en ella myndi verið hafa;
fregnsambönd hafa rofnað hér
,og þar, og því ekki auðvelt frá
tíðindum að segja, er telja megi
með öllu ábyggileg; þó er það
víst, að Bretar og Frakkar hafi
komið herliði alhniklu á land
hér og þar í Noregi, sem þegar
sá farið að sækja hart að hinum
þýzka árásarher; eitthvað af
Canadamönnum er komið til
Noregs þó óvíst sé um tölu
þeirra; er nú mælt, að sveitir
samherja sæki að Þrándheimi á
þrjá vegu. Frá hernaðarlegu
sjónarmiði hefir Þrándheimur
mikilvæga þýðingu, þvi þaðan
liggja járnbrautir austur um
Noreg til Svíþjóðar; og ef til þess
kæmi, sem engan veginn er ó-
hugsanlegt á þessum-. verstu og
síðustu tímúm, að Þjóðverjar
réðist á Svíþjóð, gæti þeir styrkt
sig til muna með því að nota þá
flutningaleið ef þeir á annað
borð næði haldi á henni. Sem
stendur hefir þýzki herinn náð
allstyrkri fótfestu í suðurhluta
Noregs; hann hefir enn á valdi
sínu strandlengjuna frá Bergen
til Osló, auk þess sem hann fram
að þessu ræður yfir Stavanger,
Kristiansand, Arendal, og hinum
0|g þessum þorpum fram með
Oslófirðinum; nýjar fregnir
herma, að samherjar hafi náð
á vald sitt Hamri og Elverum
norður af Osló. Loftflotinn
brezki hefir gert eina árásina á
fætur annari á Stavanger til þess
að veikja aðstöðu Þjóðverja í
þessum Þýðingarmiklu flug-
stöðvum; er víst talið, að árásir
þessar hafi borið allverulegan
árangur. Hákon konungur er
enn i Noregi; en Þjóðverjar
höfðu lagt mikið á sig til þess
að breiða það út, að hann væri
flúinn úr landi.—
Júgóslavía og HoIIand hafa
átt annríkt við það upp á sið-
kastið, að reka spæjara, mest-
megnis þýzka spæjara úr landi,
er þar höfðu bækistöð svo þús-
undum skifti. Ungverjaland
hefir heldur engan veginn farið
varhluta af hinni svörtu hönd
Nazismans; hefir stjórnin falið
rannsóknarlögreglunni að hafa
strangar gætur á fyrrum stjórn-
arformanúi, Bela Imredy, sem
orð leikur á að vera muni leyni-
tól í höndum Hitlers.
Fregnir frá Berlín herma, að
þýzka stjórnin hafi komist að
samningum við Rúmeníu um
það að fá keypt þar í landi svip-
að olíumagn á næstu mánuðum
og viðgekst á hliðstæðu tímabili
í fyrra.
ftölsk blöð láta mikið yfir
sigurvinningum Þjóðverja í
skandinavisku löndunum og spá
þeim þangað söguríkri frægðar-
för. Sjálfur er Mussolini sagna-
fár, en veltir ekki ósennilega
fyrir sér hinu fornkveðna:
Hvorumegin má eg detta? Hinn
nýi forsætisráðherra Frakka,
Paul Revnaud, varð fyrir því
einkennilega æfintýri á föstudag-
inn, að fá í þinginu traustsyfir-
lýsingu með 514 atkvæðum, og
engu atkvæði á móti; sannar
þetta öllu öðru betur samstiltan
vilja frönsku þjóðarinnar við-
víkjandi sókn stríðsins.
Fregnir á miðvikudagsmorg-
uninn skýra frá nýrri Stikla-
staða orustu, er canadiskir
skíðagarpar og franskar fjall-
gönguhetjur taki djarfan þátt í;
er orusta þessi háð, að því sem
frá er greint, með það fyrir aug-
um, að opna veg að norðan inn
til Þrándheims. Þá er og símað
frá Stockholm um sömu mund-
ir, að bitur sjóorusta standi yfir
í Skagerrak; eru úrslit óljós að
svo komnu máli.
Fjálmálaráðhei’ra Breta, Sir
John Simon, lagði fram í brezka
þinginu fjárlagafrumvarp sitt
fyrir nýbyrjað fjárhagsár, og
nema áætluð útgjöld 12 biljón-
um dala.
Frá Islandi
'i<,'l|l|UIIIIIIIII!llllllllllll!llllllll!lllllllllllll[l!llllllllllllllllll<linilllllll!lllllllllllllllllllllll!lllllllll|'"'
Fcll í sknrð og knfnaði
Það sviplega slys varð síðast-
liðinn sunnudag. að Laugabóli
i Reykjadal, að 17 ára piltur,
Haukur, sonur hjónanna þar,
Trygg^'a Sigtryggssonar og Unn-
ar Sigurjónsdóttur, féll ofan í
tveggja inetra djúpan skurð og
beið bana.
Haukur og bræður hans tveir,
Eysteinn 15 ára og Ásgrímur 13
ára, voru í leik úti við, og ætluðu
að hlaupa yfir skurðinn, en yfir
honum var snjóhulda. Héldu
þeir snjóinn traustari en hann
reyndist. Haukur og Eysteinn
féllu ofan i en Ásgrímur stóð
eftir á b^kkanum. Eysteinn kom
niður standandi, en Haukur hér
um bil á höfuðið. Snjófylla var
mikil í skurðinum, og var Ey-
steinn nokkra stund að losa um
Hauk, og er honum hafði tekist
það, var Haukur meðvitundar-
laus.
Ásgrímur hljóp þegar eftir
hjálp, en Eysteinn hélt undir
höfuð bróður síns unz hjálp
barst og hægt var að ná þeim
upp úr skurðinum. Haulcur var
fluttur heim i Laugaból og lífg-
unartilraunir gerðar nokkrar
klukkustundir.
Læknir ifrá Húsavík komst
ekki fyr en eftir 21 stundu, þvi
færi var vont. Fann hann ekk-
ert lifsmark með piltinum og
taldi að hann mundi hafa dáið
fljótlega -— sennilega kafnað í
snjónum, því að skurðurinn var
v.atnslaus að heita mátti.
—Mbl. 27. marz.
Biblían kom aftur!
Nýlega komu hingað í pósti
frá Englandi nokkrir bóka-
pakkar, er sendir voru með
“Bergenhus” héðan í janúar-
Endurkosinn Stórtemplar
A. S. BARDAL
Á nýafstöðnu ársþingi Stórstúku
Manitobafylkis og Norðvestur-
landsins, var Mr. Bardal endur-
kosinn Stórtemplar; hefir hann
oft gegnt því embætti, þó eigi
gegndi hann því síðastliðið kjör-
tímabil. Mr. Bardal er einn af
harðsnúnustu bindindisfrömuð-
um þessa lands, og telur engin
aukaspor eftir sér í þágu áhuga-
rnála sinna. Mr. Bardal varð 74
ára á mánudaginn var, og er
þrunginn af áhuga og lífsgleði
sem ungur væri.
byrjun áleiðis til Danmerkur. ^
Pakkar þessir voru illa til
reika, höfðu sýnilega lent í vatni,
enda fylgdi sú orðsending með
þeim, að þeir hefðu fundist í
sjó. Ekki var tilgreint hvort
þeir hefðu rekið, ellegar þeir
hefðu verið á rúmsjó. En lík-
legra er að þeir hafi fundist á
reka.
Áður hafði blaðið frétt, að
eitthvað af pósti þeim, sem tek-
inn var úr “Bergenhus“ til skoð-
unar í Englandi, hafi verið sent
þaðan með skipi, er sökk í
Norðursjó. En hvaða skip það
var, og hvenær það var, er blað-
inu ekki kunnugt.
Það vakti sérstaka eftirtekt, er
pakkarnir komu til baka, að
meðal bókanna, sem sendar
höfðu verið var gömul biblía
(Guðbrandarbiblia?). Var hún
tiltölulega litið skemd, hafði þol-
að sjóinn vel.
Eðlilegt væri, að ekki yrði gerð
önnur tilraun til þess að koma
þessari gömlu bók út úr landinu,
úr því hún komst hjá því í þetta
sinn, að lenda ytra, og náði landi
eftir volkið.—Mbl. 17. marz.
Vinnur námsverðlaun
Trgggvi J. Oleson, M.A.
Þessi skarpgáfaði mentamað-
ur, sem stundað hefir framhalds-
nám undanfarandi við háskól-
ann í Toronto, hefir nýverið
hlotið hin svokölluðu Leonard
námsverðlaun. Tryggvi er son-
ur þeirrú Mr. og Mrs. G. J. Ole-
son i Glenboro; hann er efni í
mikilhæfan fræðimann, og svo
vel að sér i íslenzkri tungu og
bókmentum, að þvi nær einstætt
mun vera meðal hinna yngri fs-
lendinga hér í landi.
Fyrsti amerískur
rœðismaður
á Islandi
SÉRA N. S. THORLÁ KSSON
Bertel E. Kuniholm, ræðismað-
ur Bandaríkjastjórnar í Zurich á
Svisslandi, hefir verið skipaður
fyrsti ameriskur ræðismaður á
íslandi. Utanrikisráðherra Banda
rikjanna, Cordell Hull, gerði
heyrinkunna ráðstöfun þessa á
laugardaginn var, en Guðmund-
ur dómari Grímsson í Rugby
N. Dak., sendi Lögbergi fregn-
ina til birtingar.
Frú
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Fædd 27. sept. 1856
Dáin 16. marz 1940
f dag er frú Bríet Bjarnhéðins-
dóttir til moldar borin, og á ís-
lenzka kvenþjóðin þar ótrauðum
brautryðjanda á bak að sjá, með
því að frú Bríet kvaddi sér
hljóðs kvenna fyrst í hinni svo
kölluðu kvenfrelsisbaráttu.
Starfseini hennar hefir borið
mikinn og góðan árangur, þann-
ig að nú í dag njóta konur kosn-
ingarréttar og kjörgengis, hafa
frjálsan aðgang að mentastofn-
unum öllum, rétt til embætta á
við karlmenn og standa þeim
að öllu jafnfætis að þvi er al-
menn borgaraleg réttindi snertir.
Þetta alt ber fyrst og fremst að
þakka starfi frú Bríetar, en
nokkru fyrir aldamótin hófst
hún handa um að ryðja þessum
kröfum braut og bera þær fram
til sigurs. Barðist hún fyrir
þessum áhugamálum sínum í
ræðu og riti, stofnaði sjálf blað,
“Kvennablaðið” og hafði rit-
stjórn þess með höndum, og
fórst henni það svo vel og giftu-
samlega, að blaðið náði tiltölu-
lega fljótt mikilli útbreiðslu og
vinsældum, og mun óhætt að
fullvrða, að það hafi um skeið
verið eitt hið útbreiddasta blað
hér á landi, og átt beztan hljóm-
grunn hjá kvenþjóðinni allri,
þótt ef til vill hafi eitthvað greint
á um leiðir eins og gengur.—
í baráttu sinni fyrir réttinda-
málum kvenna mun frú Bríet
hafa orðið að ögra öllu þvi, sem
góðum málefnum stendur önd-
vert, og bjóða birgin háði og
hleypidómum, og sigrast á doða
og deyfingjahætti, sem rikust
átti tökin hér á landi um það
leyti er kvenréttindabaráttan
hófst, að minsta kosti að því
leyti, sem þá baráttu snerti. En
frú Bríet var góðum gáfum
gædd, ritfær í bezta lagi, bjart-
sýn og kjarkmikil, og henni
Nú eru liðin 58 ár síðan séra
Steingrímur hóf skólakenslu í
örsmáum bjálkakofa að Moun-
tain, N. Dak.; var hann fyrsti
kennarinn í þessu undur fagra
ameríska-islenzka skólahéraði.
Séra Steingrímur er enn sem
ungur væri, og leikur við hvern
sinn fingur. Nú hefir ákveðið
verið, að hann verði þeirrar mak-
tókst að yfirvinna alla erfiðleik-
ana, sem byrjuninni voru sam-
fara.
Frú Bríet fór utan nokkru
eftir aldamótin og fór þá víða
um Norðurlönd, til þess að
kynna sér kvenréttiryjabaráttuna
þar. Stofnaði hún úpp úr því,
er heim kom, Kvenréttindafélag
fslands, er gerðist meðlimur í
alþjóða-kvenréttindasambandinu
og var hún þrásinnis fulltrúi fé-
lagsins á funduin sambandsins
erlendis.
Er fram á efri árin kom dró
frú Bríet sig mjög í hlé, þótt
hún fylgdist af áhuga með öllu
því, er varðaði málefni ' kven-
þjóðarinnar. Naut hún í elli
sinni vináttu og virðingar hinna
yngri starfssystra sinna, og má
fullyrða, að virðingin hafi verið
óskift hver sem í hlut átti og
hver sem viðhorfin að öðru leyti
voru.
Frú Bríet giftist Valdemar
Ásmundssyni ritstjóra, og eru
börn þeirra bæði þjóðkunn, ung-
frú Laufey og Héðinn Valde-
marsson alþm. * Naut hún um-
hyggju og ástúðar þeirra í ell-
inni, og þá ekki sízl dótturinn-
ar, sem hjá henni hefir dvalið
öll síðustu árin, að heita má frá
því hún lauk námi.
Frú Bríet varð háöldruð kona
ög voru líkamskraftarnir mjög
á þrotum. Mun hún því hafa
orðið hvíldinni fegin, eftir langt
og umhleypingasamt æfistarf.
G. G.
—Vísir 30. marz.
legu sæmdar aðnjótandi, að ár-
bók skólans 1940, sem nú er
jafnframt stór miðskóli, verði
helguð honum, og hinni fyrstu
fræðslustarfsemi hans í Moun-
tainbygð. Útgáfa árbókarinnar,
sem verður að öllu hin vand-
aðasta, og skrýdd fjölda fagur-
prentaðra mynda, er nú vel á
veg komin.
Nýr stjórnmálaflokkur
Stjórnarandstæðingar í Al-
berta, 19 að tölu, er kosnir voru
á fylkisþing þann 21. marz síð-
astliðinn, héldu fund í Edmon-
ton á laugardaginn var, og á-
kváðu, að mýnda nýjan, óháðan
stjórnmálaflokk. Fundarstjóri
var Mr. Andrew Davidson borg-
arstjóri í Calgary, og einn hinna
óháðu þingmannaefna, er kosn-
ingu náðu; þykir líklegt, að hann
verði framsögumaður og þing-
leiðtogi hins óháða flokks á
næsta fylkis]»ingi.
HAROLD SIGMAR, B.A.
Þessi ungi og efnilegi menta-
maðnr, er sonur þeirra séra Har-
aldar og frú Margrétar Sigmar
að Mountain, N. Dak. Hann er
útskrifaður af ríkisháskólanum
í Grank Forks með ágætum vitn-
isburði, en skipar um þessar
mundir stöðu sem “Senior Class
Advisor” við miðskólann á
Mountain; það er hann, sem
vfiruinsjón hefir með útgáfu
Árbókar, sem miðskólinn á
Mountain gefur út i vor, og helg-
uð er fræðslustarfsemi afa hans,
séra N. S. Thorlákssonar.
DANSHÖLL BRENNUR —
203 NEGRAR TA’NA LÍFI
Á þriðjudagskveldið brann til
kaldra kola danshöll í bænum
Natchey í Missouriríki, og létu
203 Negrar þar lif sitt, en 40
björguðust af næsta sárt leiknir.
YOU AND I
What means our love to such as you and I?
Rich life intensified in joy and grief.
Your tears are mine and yours my every sigh.
All joy is ours in this our fond belief.
We’ve soared to heaven wrapped in tender bliss
And trod infernal flames when hearts were sore,
Since long ago, in that first welding kiss,
Our lives were merged in one forevermore.
Love wove of all the sweetest things in life
A mystic web and subtly o’er us shed,
Entangling hearts that naught, in calm or strife,
Could stir to sever one bejewelled thread.
CAROLINE GUNNARSSON,
158 Ruby Street, Winnipeg, Man.