Lögberg - 23.05.1940, Page 1

Lögberg - 23.05.1940, Page 1
PHONE 86 311 Seven Lines aot* dePclS ^ Co^- s Service and Satisfaction ^.'0 ‘ -JS atuou Cfr PHONE 86 311 Seven Lines * o-g!' tJUJ^'crs ^ ^PaUnív\V^ ^ For Better q0-c.^ * Dry Cleaning and Laundrv 53. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. MAl, 1940 NÚMER 21 Fregnir af vesturvígstöðvunum Ekki verður annað réttllega sagt, en að þunglega horfist á um þessar mundir af hálfu Bandamanna á vesturvígstöðvunum, þó mælt sé að þeim hal'i síðustu klukkustundirnar lánast að stemma eitthvað stigu fvrir hinum þýzka árásarher á þevsireið hans til hafnarborganna gagnvart Englandi; eru orustur þær, sem haðar hafa verið undanfarandi í Norður Frakklandi, og enn standa yfir, taldar að vera þær geigrvænlegustu, er sögur fara af; tala her- manna, er þar sækjast á skiftir miljónum, auk þúsunda af flug- vélum og hraðskreiðum brynvögnum; morðvélamenningin sýnist vera komin í slíkan algleyming á þessari tiltölulega smáu spildu hnattarins, að þar komist engin önnur æðistegund í hálfkvisti við; mannfall ;egilegt, og eldi tortímingar hleypt af stokkum viðnáms- lítið eða jafnvel viðnámslaust. Forsætisráðherra Frakka, Paul Reynaud, tilkynti franska þinginu það á þriðjudagsmorguninn, að þýzki árásarherinn væri þá nýbúinn að ná á vald sitt frönsku borgunum Arras og Amiens, og færi hraðföriyn niður með Somme-flótinu á leið til sjávar; en snemmendis á þriðjudaginn er mælt, að Bandamenn hafi rekiö Þjóðverja út úr hinni fyrnefndu borg, og riðlað allmjög fylkingum þeirra á öðrum svæðum. Hinn franski forsætisráðherra var ekki myrkur í máli; hann lýsti því meðal annars yfir afdráttarlaust í öldungadeildinni, að framrás Þjóðverja í Norður-Frakklandi mætti að miklu kenna refsiverðri handvömm hinnar frönsku herstjórnar; alvarlegar fyrirskipanir hefðu verið að vettugi virtar, svo sem þær, að sprengja upp ýmsar þær brýr, er yfir Meuse-ána liggja, en slíkt hefði til þess leitt, að vélaher Þjóðverja hefði átt þar viðnámslausa yfirför; slík hálfmenska yrði eigi liðin í tramtíð- inni; viðhorfið væri slíkt, að franska þjóðin þvrfti á allri karl- mensku sinni að halda, heilli og óskiftri. “Þessar tvær voldugu þjóðir, Bretar og Frakkar,” sagði forsætisráðherra, “geta aldrei liðið undir lok; og segi einhver mér það, að einungis kraftaverk fái verndað Frakkland, þá trúi eg hiklaust á kraftaverk vegna þess að eg trúi á Frakkland ” Belgiuherinn heldur enn uppi frækilegri vörn þó við raman sé reip að draga, en svo þóttu horfur tvísýnar, að stjórnin sá þann kost vænstan, að koma sér fyrir á Frakklandi þar til eitthvað rofaði betur til. Hinn brezki foísaétTsráðherra, Winston Qhurchill, talaði kjark i þjóð sína með hinni voldugu útvarpsræðu, er hann flutti á sunnudaginn; að brezka þjóðin standi saman sem einn maður verður ekki um vilst; enda er stjórn hennar nú skipuð slíku mannvali, að eigi getur annað betra. Forsætisráðherrann kvaðst eigi ganga þess dulinn, að Hitler hygði á innrás í brezku eyjarnar; veruleg innrás þangað, hefir eigi komið til framkvæmda síðan 1066. Að Hitler verði kápan úr því klæðinu, mun samt sem áður mega teljast lítt hugsanlegt, því í mörg horn hefir hann óneitan- lega að líta eins og sakir standa; enda er brezka þjóðin þannig viðbúin heima fyrir, að innrás inn í landið, er nokkru fengi áork- að, þarf naumast að gera skóna. Nýjustu fregnir herina, að hersveitir Bandamanna hafi sprengt til agna allar brýr yfir Somme ána til þess að hnekkja framgangi Þjóðverja. Staðhadt er, að flugvélatap Þjóðverja síðan innrásin í Belgíu, Holland og Norður Frakkland hófst, sé þrefalt meira en tap Bandamanna, slíkrar tegundar. Ægilegt manntjon á Hollandi Staðhæft er, að l'jórði hluti hollenzka hersins, hundrað þús- Und manns, hafi fallið í orustu við hinn þýzka innrásarher þá limin daga, sem baráttan um yfirráð landsins stóð yfir; áttu Hollendingar ekki annars úr- kosta eins og i pottinn var húið, en að gefast upp. í Rotterdam, einum mikilvægasta hafnarbæ Hollands, er mælt að um hundr- að þúsund af ílnium borgarinn- ar, hafi látið líf sitt af sprengj- úm og öðrum morðtólum Þjóð- verja; borgin hafði að sögn orð- ið allsendis vatnslaus um hríð. Barney Stephen Benson, BSc. Þessi ungi og efnilegi menta- maður lauk Bachelor of Science prófi með ágætum vitnisburði við Manitobaháskólann við ný- afstaðin vorpróf; hann er sonur Björns S. Benson lögfræðings, sem lézt í Selkirk, og Floru Benson bókhaldara hjá Columbia Press, Ltd.; hann er fæddur í Selkirk 5. júní 1919, sama árið og faðir hans dó. Stríðssókn canadisku þjóðarinnar Forsætisráðherrann, Mr. King, lýsti yfir því í þingræðu á mánu- dagskveldið, að kostnaður þjóð- arinnar vegna stríðsins yfir fjár- hagsárið 1940—41, næmi að minsta kosti $700,000,000. Mr. King lét þess ennfremur getið, að gerð yrði tafarlaust gangskör að því, að safna liði í hina þriðju herdeild, jafnframt þvi sem flýtt vrði fyrir sendingu 2 herdeildar austur um haf; jafnframt þessu yrði ÖIl hugsanleg áherzla lögð á eflingu hins canadiska loftflota; á öllum sviðum yrði á striðs- sókninni hert unz yfir lyki. Woodsworth veikur f lok fyrri viku fékk .1. S. Woodsworth, þingmaður Mið- Winnipeg kjördæmisins hins nyrðra, og foringi C.C.F. flokks- ins í Canada, aðkenning af slagi í Ottawa, og liggur rúmfastur; fregnir á þriðjudagskveldið telja líðan hans eftir atvikum sæmi- lega. Mr Woodsworth hefir ver- ið veill á heilsu undanfarin ár; hann er 65 ára að aldri. Miss Guðrún J. Bjcrring, B-A. Miss Bjerring hefir nýlokið Bachelor of Arts prófi með á- gætri einkunn við Manitobahá- skólann; hún er dóttir þeirra Mr. og Mrs. S. O. Bjerring hér í borginni. Miss Bjerring hefir tekið mikinn þátt í félagsmálum háskólastúdenta, og er frábær- lega vinsæl og vel gefin stúlka. Frá Islandi úr Jökulsárhlið i Norður- Múlasýslu skrifar Björn Krist- jánsson bóndi i Grófarseli: — Tíðarfar síðastliðið surnar var hið hagstæðasta, sem komið hefir síðan 1925; þá var hið á- gætasta tíðarfar alt sumarið, en þó hvassviðrasamara en hið síð- astliðna. Síðastliðið sumar voru hér. óþurkar aðeins hálfan mán- uð i byrjun sláttar. En gras- spretta var aðeins i meðallagi á túnum, en ekki það á útjörð. Þó varð heyfengur sæmilegur vegna hagstæðrar veðráttu. Fyr- ir fáum árum var talið, að garð- rækt væri ekki gerleg á þessum slóðum, og hún rekin á sárfáum bæjum aðeins. Nú hefir þetta breyzt svo, að kartöflur og róf- ur eru ræktaðar allsstaðar, meira eða minna, og er sveitin sér nú nóg i þeim efnum. En þó eiga rnenn alt undir veðráttunni um garðræktina, en hér er jafnað- arlega mjög stormasamt. — Sið- astliðið sumar var bygt stein- steypt íbúðarhús á einum bæ og 3 steinsteyptar hlöður. Er á siðustu árum búið að byggja upp á 9 bæjum af 18, alt steinhús, flest með nútímaþægindum. Hlöður er búið að byggja vfir 2/3 hluta hevsins og á 4 bæjum eru öll hús undir járni- Mjög víða pr neyzluvatn leitt til bæj- ar. Síðan 1920 hafa verið gerð 4 nýbýli. Sláttuvélar eru 9 í sveitinni, 4 þeirra með hey- skúffum, er smiðað hefir Stein- dór Jóhannesson járnsmiður á Akureyri. Er slíkur útbúnaður til mikillar hjálpar, einkum þó ef slegið er á graslitlu útengi.— Árið 1931 var byrjað að leggja akveg eftir sveitinni og hefir jafnaðarlegast verið unnið dá- lítið að framlengingu han« á hverju sumri. Er nú svo komið, að ekki er eftir að leggja nema um 5 kilómetra vegarkafla til þess að fært sé bifreiðum um sveitina endilanga. Var þessa vegar mikil þörf, því að 80 kíló- metra leið er til kaupstaðar úr miðri sveit, og því erfiðar lesta- ferðir. — 1 vetur hefir tíðarfar verið fremur milt og stórviðra- lítið. Fé var þó víðast tekið um 9 nóvembermánaðar, og hefir þurft að gefa þvi fullkomlega í meðallagi, og á mörgum bæjum hefir fé verið gefið alveg inni í nokkrar vikur. P Úr Skagafirði hafa blaðinu ný- Iega borist þessi tiðindi: — Marzmánuður hefir orðið erfið- asti mánuðurinn á þessum vetri. Hríðarveður með talsverðu frosti héldust fram yfir miðan mánuð- inn og setti þá niður snjó all- mikinn. Síðari hluta mánaðar- ins stilti til og gerði þá rifa- hjarn, isalög mikil og akfæri gott. Af þessum sökum hefir orðið haglítið, einkum i Blöndu- hlíð, og þó viðar, og er það afar sjaldgæft Hefir orðið að taka talsvert af hrossum í hús og á hey.— Fiskafli i firðinum er að glæð- ast og er fiskurinn nú genginn alveg inn að söndum við fjarðar- botn og er það mest hrygnandi stórþorskur. Vart hefir orðið við loðnu, en náist hún til beitu er gefinn hlaðafli, að rninsta kosti um stund. Annars má heita dágóður afli á frosna síld sem beitu. KSÍ Sæluvika Skagfirðinga og sýslunefndarfundir héraðsins var Nefndarstörfum lokið Sú hin konungjega nefnd, er skipuð var af sambandsstjórn fyrir tveimur árum til þess að kynna sér til hlýtar hagfræði- lega afstöðu fylkjanna til lands- stjórnarinnar, og bera fram uppástungur til umbóta, hefir nú lokið starfi, og stjórnin lagt nefndarálitið fram í sambands- þinginu; er hér um margbrotið álitsskjal að ræða, er fer fram á ýmsar mikilvægar og róttækar breytingar frá núverandi fyrir- komulagi; ein uppástungan geng- ur í þá átt, að sambandsstjórnin taki að sér að sjá farborða því fólki öllu, sem atvinnulaust er, en talið er vinnufært. Fjármálaráðherra Manitoba- fylkis, Mr. Stewart S. Garson, var framarla í hópi þeirra, er rannsóknarnefndarinnar kröfð- ust, og bjó málið að miklu undir af hálfu fylkisstjórnarinnar. A víðavangi Mr. Soffonías Thorkelsson verksmiðjustjóri, sem nú dvelur á íslandi, biður þess getið í Lögbergi, að bréf til sín verði send c-o Eimskipafélag íslands yfir England. Mr. Thorkelsson segir blíðviðri á íslandi, og líð- an almennings auðsjáanlega góða í höfuðstað >|andsins Mr. Thorkelsson fékk ágætt veður á leiðinni heim. -t- ♦ ♦ Þau Mr. og Mrs. McGraw frá La Platte, Nebraska, komu til borgarinnar á föstudagskveldið var; en að því var vikið í síð- asta blaði, að þeirra væri þá von hingað. Mrs. McGraw (Hrefna Finnbogadóttir) er fyrsti islenzkur kvenlæknir á meginlandi Norður Ameríku, og hefir unnið sér víðtækan orðstir á sviði fræðigreinar sinnar; hún var við messu í Fyrstu lútersku kirkju á sunnudagskveldið, og ávarpaði safnaðarfund, sem haldinn var að aflokinni guðs- þjónustu. haldin í Sauðárkróki siðustu viku marzmánaðar. Var mjög mannmargt í Sauðárkróki síðari hluta vikunnar, enda veður og færð hið ágætasta, og inikið um dýrðir, svo sem venja er til. Al- mennir málfundir voru haldnir í barnaskóla þorpsins tvö kvöld og flutt fjögur mál. Karlakór Sauðárkróks undir stjórn Ey- þórs Stefánssonar hélt söng- skemtun eitt kvöld. Sjónleikir voru sýndir af U.M.F. Tindastóll sjö sinnum, Hinu skagfirzka kvenfélagi tvívegis og V.KF. Aldan tvivegis, og söng kvenna- kór félagsins þá einnig. Tvi- vegis var sýnd leikfimi, dans og “plastik.” Kvikmyndasýningar voru þrisvar i vikunni. Loks voru danssamkomur fimm kvöld á vegum U.M.F. Tindastóll. All- ar,voru þessar skemtanir vel skipulagðar, og svo hagað til, að ekki fór fram nema eitt .skemtiatriði samtímis. i heilbrigðisskýrslum ársins 1937 er útdráttur úr skýrslum frá ljósmæðrum landsins. Þó er yfirlit þessu nokkuð áfátt þar eð skýrslur vantar úr þrem læknishéruðum. Eru barnsmæð- ur alls taldar 2,301, ]>ar af 644 frumbyrja. Fædd börn eru talin 2,301, en fósturlát 54. Af þess- um börnum hafa samkvæmt frá- sögn ljósmæðranna 1915 verið Hhomas Leonard Brandson, Bachclor of Commerce. Thomas er sonur þeirra Dr- og Mrs. B. ,1. Brandson, og hlaut Bachelor of Commerce menta- stig við nýafstaðin vorpróf Mani- tobaháskólans; hann er glæsi- menni hið mesta, eins og hann á kyn til. Roosevelt krefst feikna fjárhœðar til aukinna vígvarna Roosevélt forseti hefir farið fram á það við þjóðþing Banda- rikjanna, að það heimili á fjár- lögum eina biljón og átta hundr- uð miljónir dala til aukinna víg- varna vegna hins ískyggilega við- horfs á vettvangi heimsmálanna; mest mun áherzlan verða lögð á aukning loftflotans; krafa þessi hefir þegar fengið góðan byr í neðri málstofunni og er komin til íhugunar í öldungadeild. Aldrei hefir Bandarík jastjórn áður farið fram á slíka feikna fjárhæð til vígvarna í einu lagi. LÁGMA BKSVERÐ HVEITIS Vegna verðhruns á hveiti á kornmiðlarahöllinni í Winnipeg í síðustu viku, ákvað sambands- stjórn að skerast í leikinn, og fastsetja fyrst um sinn lág- marksverð hveitis. Kristján Thor Austmann, B.Sc. Þessi ungi námsmaður er son- ur þeirra Dr. og Mrs. Kristján ,1. Austmann; lauk hann nýverið Bachelor of Science prófi með ágætum vitnisburði við Mani- tobaháskólann. nærð á brjósti einvörðungu, en önnur ýmist á pelamjólk eða pelamjólk og brjóst^mjólk, en um nokkur börn vantar greinar- gerð um þetta atriði. 78 börn eru talin hafa verið eigi full- burða er þau fæddust, og 10 hafa verið vansköpuð. Tvær mæður er skráð að hafi látist við barnsburð —Tíminn 9. april. Hauál Hvítur eins og heilagur andi haustsnjór sig um akrana þandi, faldi þá í faðminum hlýjum, fylti þá af lífskrafti nýjum. Lifið sagði: “Sofið i næði, sofið undir dúnmjúku klæði; látið ykkur dýrðlega dreyma daga þá, sem upprisu geyma. Hræðist enga draugborna drauma, drekkið svlefnsins lífrænu strauma; etg skal yfir vöggunni vaka, vel á m'óti draugunum taka. Vakið ei þó vindarnir syngi, vetrartröllin ísklukkum hringi, sofið meðan völd þeirra vaka, vaknið þegar fuglarnir kvaka. Sig. Júl. Jóhannesson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.