Lögberg


Lögberg - 20.06.1940, Qupperneq 1

Lögberg - 20.06.1940, Qupperneq 1
PHONE 86 311 Seven Lines i&o* C,ot- * á Service and Satisfaction '•‘J JS amofj £Þ U0SSJnHd a -SJJV, PHONE 86 311 Seven Lines Oot’ _Vte<* cntd ''C'ÚA0'* For Better Dry Cleaning and Laundry 53. ÁRGANGrUR LÖGBERG, FIMTUDAGTNN 20. JÚNl 1940 NÚMER 25 Canadastjórn herskyldar allan mannafla þjóðarinnar til landvarna heima fyrir ásamt allri hennar auðlegð vegna stríðssóknarinnar— Liðsöfnun til herþjónuátu hc^ndan um haf, fer fram eins og áður að sjálfboðahœtti, að því er Mr. King skýrir frá. A þriðjudaginn gerðust þau niikilvægu tiðindi í sambands- þinginu, að Mr. King lýsti yfir því, að vegna hins alvarlega við- 6órfs hefði stjórnin ákveðið, að *e8gja samstundis fyrir þing frumvarp tfl laga. er að því lyti að herskylda allan mannafla þjóðarinnar til landvarna heima jfyrir ásamt allri hennar auðlegð. vegna striðssóknarinnar; þessu jafnframt lét forsætisráðherra þess getið, að einungis sjálfboða- aðferð yrði beitt til herþjónustu handan um haf eins og við hefði gengist fram að þessu. Ennfrem- ur tilkynti Mr. King þingheimi bað, að sveit canadiskra her- nianna væri komin til íslands til styrktar þeiin enska herafla. sem þar væri fyrir; gert er ráð fyrir að frumvarpi því. sein hér um ræðir, verði hraðað í gegnum háðar þingdeildir á einum til tveimur dögum; líklegt þykir að aldurstakmark h e r s k y ldaðra nianna til landvarna, verði frá 13 til 45, þó vera megi að öðru- visi ráðstafanir verði gerðar. Al- þjóðar skrásetning á mannafla landsins verður þegar hafin; ný ráðuneytisdeild skal stofnuð, er yfirumsjón hafi með öllum lið- um stríðssóknarinnar, og ráð- herrum jafnframt fjölgað um- fram það. Mr. King lét i ljós heita samúð með frönsku þjóð- inni, og kvaðst sannfærður um það, upp úr hinum blóðidrifna franska jarðvegi, hlyti að risa óstöðvanleg og ómótstæðileg frelsisalda, er hefja myndi hina frönsku þjóð til menningarlegs öndvegis á ný. Mr. King kvað Mp. Churchill hafa mælt fvrir munn canadisku þjóðarinnar, er hann í hrezka þinginu hefði lýst yfir því, að þrátt fyrir þá ógæfu, er hent hefði Frakkland, væri brezka þjóðin staðráðin í því, að berjast til þrautar; hin canadiska þjóð væri engu síður staðráðin í að berjast til sigurs og þraut- ar; hugsjónin, sem til grundvall- ar lægi hjá báðum þjóðum væri ein og hin sama; hugsjón lýð- frelsis og mannréttinda; hugsjón hinnar sönnustu lífsstefnu. Frakkland að þrotum komið; ný stjórn undir forustu marskálks Petain, leitast fyrir um vopnahlé við Hitler París féll í hendur Þjóðverja á föstudaginn var; franska stjórnin hafði áður lýst yfir því, að hún myndi eigi verja borg- ina. og vildi með því koma í veg tyrir að hún yrði eyðilögð ineð sprengjum; mun og því nær eng- in spjöll þar hafa verið gerð; niannfjöldi mikill hafði flúið úr borginni út á landsbygðina. Hinn hýzki árásarher hafði hert sókn ina jafnt og þétt, og orðið mikið ágengt svo að segja á öllum víg- stöðvum. Bretar höfðu sent niikinn herafla og miklar vopna- hirgðir til Frakklands um þess- nr mundir; en þá gerðust þau tíðindi, er urðu þess valdandi. að brezkar hersveitir voru tafar- inust kvaddar heim.— A sunnudagskveldið baðst ttcynaud stjórnin lausnar eftir niarga og alvarlega ráðuneytis- iundi; var það þá sýnt að ýmsir nt æðstu foringjum hersins áttu ekki lengur samleið ineð henni. ■snemma á mánudagsmonguninn tóru fram stjórnarskifti, og t’etain, marskálkur, 84 ára að al(tri, sá er heimsfrægð hlaut í orustunni við Verdun í síðustu veraldarstyrjöld, tók við ráðu- neytisforustu; lét hann það Verða sitt fyrsta verk, að ávarpa Pjóð sína í útvarpsræðu. og lýsa ytir því, að þannig væri málum komið, að óhjákvæmilegt va>ri nllra ástæðna vegna, að leitast tyrir um vopnahlé; kvaðst hann Pegar hafa sett sig í samband við Franco Spánarhöfðingja með það fyrir augum, að fá hann sein niilligöngumann milli sín og Úitlers. Ávarp Petains inarskálks Var á þessa leið: ‘Synir og dætur Frakklands! Samkvæmt áskorun frá forseta hins franska lýðveldis, hefi eg tekist ráðuneytisforustu á hend- ur. Eg hefi verið að hugsa um hermenn vora, sem með hug- prýði sinni hafa á vígvelli unnið sér ódauðlega frægð í baráttunni við óumræðilegt ofurefli; eg er einnig að hugsa á þessu augna- bliki um hinn ógæfusama flótta- lýð, gamlmenni, konur og börn, sein hvergi á höfði sínu að að halla, og flýtur að feigðarósi, verði ekki gripið til skjótra hjörgunarráðstafana; eg er ein- ráðinn í að helga þeim ráðstöf- unum þeirri hjargráðaviðleitni, minn síðasta blóðdropa. Mér, sem gömlum hermanni, er þyngra innanbrjósts en orð fá lýst, er eg verð að gera yður heyrinkunnugt þann ásetning minn. að leitast nú þegar fyrir um vopnahlé, og sem hermaður við hermann, leita drengilegs friðar fyrir hönd þjóðar minnar; ekkert annað getur franska þjóð- in sætt sig við; hún hefir verið ofurliði borin á vigvelli, og á ekki annars úrkosta, en grípa til þeirra ráða, er eg nú hefi skýrt frá. Bg treysti því, að þjóðin á þessari örlagaríku stund styðji ráðuneyti mitt í þeim tilraunum, sem einar sýnast, eins og ástatt er, Iíklegar til þess, að bjarga þjóðinni frá enn alvarlegri at- burðum en þeim, er þegar hafa að höndum borið. Látum oss horfast í augu við örlögin eins og frönskum þegnum sæmir, með bjargfasta trú á viðreisnarmátt og framtíð landsins.” —* — Þeir Hitler og Mussolini áttu fund með sér í Munich á þriðju- daginn, og komu sér saman um einhverja svokallaða friðarkosti gagnvart Frakklandi; um inni- hald þessara væntanlegu afar- kosta, er enn eigi vitað, er blaðið er búið til prentunar. KARLAKÓR ISLENDINGA I NORTH DAKOTA Þessi vinsæli söngflokkur syngur undir stjórn Ragnnrs H. Rngnnr i Wynynrd þnnn 27. þ. m., Moznrt 28. og i Leslie þnnn 29. þ. m. Miss Iínthryn Arnson aðstoðnr flokkinn með pínnóspili. Canadiskt herlið komið til Islands Á ferðalagi í þj óðr œkn iserindum Dr. Richard Beck, prófessor við ríkisháskólann í North Dak- ota, kom til borgarinnar um miðja fyrri viku, og hélt norður til Hayland og Vogar, þar sem hann á föstudagskvöldið flutti fyrirlestur að tilstuðlan lestrar- félagsins í þeim bygðarlögum við ágæta aðsókn. Næstu daga á eftir ferðaðist Dr. Beck nokkuð um þessar fögru og vingjarnlegu fslendingabygðir í erindum Þjóð- ræknisfélagsins, sem hann er forseti í, og vann þar við góð- um árangri að útbreiðslu félags- ins; átti hann hvarvetna hinu>” ástúðlegustu viðtökum að fagna, því þar sem annarsstaðar á ís- lenzk risna djúpar rætur. Dr. Beck mun i sumarfríi sínu. heimsækja í þjóðrækniserindum eins mörg íslenzk bygðarlög, og hann má framast við korna. Dr. Beck leggur -af stað heimleiðis í dag. —-------------- Sœnsk-amerískur söngflokkur heimsækir Winnipeg Á laugardagsmorguninn kom hingað til borgarinnar fjölmenn- ur sænsk-ameriskur karlakór, Ámerican Union of Swedish Simger úr Mið-Vesturríkjunum; í söngflokknum voru um 200 manns. Veglegt og afarfjölment samsæti var haldið á Marl- borough hótelinu þá um kveld- ið, og skorti þar hvorki gleði né góðan fagnað. Var þar mikið um söng, er sænski karlakórinn hér og Karlakór íslendinga í Winnipeg, auk gestakórsins, tóku þátt i; þar voru og flutt inörg Avörp og velkomenda minni; meðal annars af ræðis- mönnum Norðurlandaþjóðanna þrem, þeim Mr. Gretti Leo Jó- hanssyni, ræðismanni Danmerk- ur og fslands, Mr. Hermannson, ræðismanni Svía, og Mr. Rum- men, ræðismanni Noregs. Á sunnudaginn kl. 3 e. h. söng hinn voldugi aðkomuflokkur i Winnipeg Auditorium fyrir fjöl- menni miklu fagnandi áheyr- enda. Slíkar heimsóknir sem þessi, eru söngelskum borgarbúum jafnan kærkomnar. FREGNIR FRÁ LOXDON Frá London er símað á þriðju- daginn, að talið sé víst, að Neville Chamberlain verði knúð- ur til þess að víkja úr ráðuneyt- inu einhvern hinna næstu daga; jafnfi-amt er staðhæft, að Lloyd George muni kvaddur verða til þess að gegna mikilvægu ráð- herra embætti. Frá Islandi Sæbjörg dregur ísafjarðnrbát að Inndi Björgunarskútan Sæbjörg kom hingað i gærkveldi með einn af bátum Samvinnufélags ísfirð- inga, Vébjörn, í eftirdragi. Hafði öxull bátsins brotnað, er bátur- inn var að veiðum undan Jökli. Óhappið skeði i fyrrinótt og var veður vont, stormur og kol- svart kafald. Var Sæbjörg þó ekki lengi að finna Vébjörn, því að hann hefir talstöð og gat Sæbjörg tekið nákvæmar mið- anir. Sannar þetta tilfelli enn einu sinni, hversu nauðsynlegt það er, að bátar hafi talstöðvar. 4- Menn voru í gær farnir að ótt- ast um v.b. Sæborgu frá Kefla- vík, sem farið hafði i róður á föstudagsnótina, en ekki komið að landi. Er báturinn talstöðv- arlaus og gat ekki tilkynt um hagi sína. Um kl. 11 kom Sæborg að. Hafði engin bilun orðið hjá bátn. um, en hafði slitið lóðina um nóttina og fór þá ekki að landi, heldur beið þess að kafaldinu létti. Þegar veður batnaði leit- uðu bátverjar að lóðinni og fundu hana um hádegi í gær. —Vísir 14. maí. • Nýtt verkalýðsfélag stofnað á Akureyri Nýleiga var nýtt verkamanna- jfélag stofnað á Akureyri fyrir forgöngu Hermanns Guðmunds- sonar, formanns verkamannafé- lagsins Hlífar í Hafnarfirði. Eru það verkamenn og iðnaðarmenn, sem félag þetta stofnuðu. og voru stofnendur liðlega 30 að tölu. Félagið nefnist Sleipnir, og er formaður þess Leo Árnason tré- smiður. Hermann Guðmunds- son mun fara víða um Eyja- fjörð og nágrenni og vinna að undirbúningi að stofnun verka- lýðsfélaga, eftir því sem við verður komið á hverjum stað. —Vísir 7. maí. Rússar færa sig upp á skaftið Símað er frá Moskva á þriðjudaginn, að Rússar hafi sent ógrynni liðs inn í Lithuaniu, Latviu og Estoníu og tekið öll þessi þrjú smáríki hernámi. Eins og vitað er, knúðu Rússar þessi lönd til einhverskonar samvarn- arsambands við sig í fyrra. Nú er sú málamýnda réttlæting gerð á þessu atferli af hálfu Rússa, að Lithuaníumenn liafi beitt ó- sæmilegri aðbúð við rússneska hermenn. Forsætisráðherrann, Mr. King, lýsti yfir því í sambandsþinginu á þriðjudaginn, að hin fyrsta sveit canadiskra hermanna aust- an hafs, væri komin til fslands til styrktar þeim brezka herafla, sem áður var kominn þar á land, og tekið hafði fsland bráða- birgðahernámi. Hér á vestur- slóðum hefir heyrst yfir útvarpið undanfarna daga, að Hitler væri Söngskrá Karlakórs ísl. í N. Dakota f næstu viku á söngferð sinni um Vatnabygðir hefir karlakór fsl. í N. Dakota ákveðið að gefa nýja söngskrá í hverjum stað. Vonast kórinn eftir að með því móti verði það margir er fýsir að heyra kórinn oftar en einu sinni. Lögin eru hin vönduðustu er völ var á, þar af eru mörg sem almenningi eru gamalkunn en einnig mörg er fólk í Vatna- bygðuiri mun ekki hafa áður heyrt. Einsöngvarar með kórn- um verða Tani Björnson, Eric Sigmar og Mundy Snydal. Frú Margrét ;Sigmar verður í för með flokknum og syngur hún einsöngva á öllum samkomun- um. Auk þess syngja þeir á sinni samkomunni hvor, Carl Erlendsson, Mundy Snydal og Eric Sigmar. R. H. Ragnar stjórnar söngflokknum og leik- ur píanó-einleik á öllum sam- komunum, ef sæmileg hljóðfæri verða fáanleg. Kathryn Arason leikur á píanó með söngflokkn- um og einsöngvurum. Það er einlæg ósk söngflokksins að þessi för takist vel; til þess að svo megi verða æfir söngflokk- urinn daglega og vandar eftir beztu getu til söngsins. staðráðinn í því að ná haldi á íslandi með það fyrir augum, að koma þar á fót flugstöðvum. Auk Breta, hafa stjórnir Banda- ríkjanna og Canada vakandi auga á því hvað líklegt sé að kunni að gerast á íslandi frá hernaðarlegu sjónarmiði, með því að sýnt þykir, að Hitler hafi í hvggju að leita þaðan innrásar á Grænland og Vesturálfu heims. Þjóðstjórnar krafist Mr. Hanson, leiðtogi íhalds- ílokksins i sambandisþinginu. krafðist þess með strangyrðum miklum á þriðjudaginn í þing- ræðu, að komið yrði umsvifa- laust á fót þjóðstjórn í landinu; lét nærri, að Mr. Hanson hefði í hótunum fengi hann ekki vilja sínum framgengt; taldi Mr. Han- son þetta öruggustu leiðina til þess að igeta sýnt óvinunum í tvo heimana. Loftárásir á Þýzkaland Flugherinn brezki hefir und- anfarna daga gert snarpar árás- ir á þýzkar borgir, svo sem Ham- burg, Essen, og ýinsa fleiri verzl- unarbæi, og gereytt þar að sögn kynstrum af olíu og hergögn- um; hafa loftvarnir Þjóðverja á þessum stöðum ekki fengið rönd við reist. í fyrri nótt gerði flugher Breta eina árásina af annari á þýzk vopnabúr í Rhur- héröðunum, og vgrð vel ágengt, að þxd er símfregnir herma. KIRKJUÞING Kirkjuþing Hins evangeliska lúterska kirkjufé- lags íslendinga í Vesturheimi verður haldið, eins og áður e.r auglýst, í kirkju lúterska safnaðarins að Lundar, Manitoba, frá 21.—25. júní næstkomandi. Það hefst með þingsetningarguðsþjónustu kl. 8 að kvöldinu, föstu- daginn 21. júní. Hvern þingdag verða starfsfundir frá kl. 9—12 f. h. og frá 2—6 e. h. Á hverju kvöldi verða sérstök mót. Á laugardagskvöldið væntanlegt ung- mennamót. Á sunnudagskvöldið erindi er séra Carl J. Olson flytur. Á mánudagskvöldið erindi á ensku er Dr. Tappert frá New York flytur. Á þriðjudagskvöldið trú- málafundur um “Ungmennastarf.” Á sunnudaginn kl. 11 f. h. verða guðsþjónustur bæði að Lundar og Otto. Um eftirmiðdaginn er þingheimi boðið á útisamkomu niður við vatnið.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.