Lögberg - 22.05.1941, Blaðsíða 8
LÖÖBEBG. FIMTUDAGINN 22. MAI, 1941
Látið Kassa í
Kæliskápinn
í 2-glasa
flösku
5c
Úr borg og bygð
Mr. Skúli Sigfússon þingmað-
ur St. George kjördæmis, var
staddur í borginni seinnipart vik-
unnar sem leið.
♦ ♦ ♦
Mr. og Mrs. Stanley Stefánsson
frá Gull Harþor, hafa dvalið í
borginni nokkra undlanfarandi
daga.
♦ ♦ -f
Mr. J. H. Norman frá Hensel,
N. Dak., koin til borgarinnar um
miðja fyrri viku og sat hér fund
í félagi frímúrara; hann dvaldi
hér fram yfir helgina.
Jón Lárus Marteinsson frá
Winnipeg og Nora Wilson frá
McKenzie Island, Ont., voru gef-
in saman í hjónaband af séra
A. J. B. Hough, að McKenzie Is-
land, hinn 15. apríl. Heimili
þeirra er að McKenzie Island.
♦••♦<>•
Fimtudaginn 15. inaí, voru
þau Halldór Thorherg Halldór-
son frá Winnipeg og Júlíana Al-
bertina Thorsteinsson frá Geysi,
Man. gefin saman í hjónaband
af séra Rúnólfi Marteinssyni, að
493 Lipton St. Heimili þeirra
verður í Winnipeg.
♦ + ♦
Gefin sanian í hjónaband, af
séra Sigurði ólafssyni i Selkirk,
þann 14. maí, Walter Calvin,
sonur Mr. og Mrs. August S.
Nordal og Edythe Irene Smith,
dóttir Mr. og Mrs. Ralph Smith,
Selkirk. *Að giftingu aflokinni
var setin vegleg veizla að heimili
Smiths-hjónanna. Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður í
Selkirk.
-f -f -f
FIiÁ MOUNTAIN,
N. DAKOTA . 1Q/11
lfi. mai 1941.
Herra ritstj. Logbergs:—
f nafni þjóðræknisdeildarinn-
ar hér vil eg biðja þig að gera
svo vel að minnast þess í næsta
blaði þínu að meðlimir “Bár-
unnar” eru beðnir að mæta á
fundi í skólahúsinu á Mountain,
á laugardagskvöhlið 24. j>. m.,
helzt kl. 8. Umræðuefni verða
aðallega: Um íslendingadags-
hald 17. júní, og um fyrirkomu-
lag á söngkenzlu, þegar R. H.
Ragnar kemur hingað suður, um
næstu mánaðamót. Það er því
áríðandi að fundurinn verði vel
sóttur.
Fyrir hönd framkv.nefndar,
Thorl. Thorfinnson,
(skrifari).
Dr. Ingimundson verður stadd-
ur í Riverton þann 27. þ. m.
-f -f -t-
SKYR TIL SÖLU
Ágætt skyr til sölu við afar-
sanngjörnu verði að 561 Sher-
burn Street. Skyr er ein hin
hollasta kraftafæða, sem hugs-
ast getur, og þá ekki sizt á sum-
arhitanum. Pantanir afgreiddar
tafarlaust.
-f -f -f
Samkoma verður haldin á
Gimli þ. 23 þ. m. til arðs fyrir
Sumarheimili íslenzkra barna á
Hnausum. Kappræður verða um
það, að lifnaðarhættir frum-
byggjanna hafa skapað ánægju-
legra heimilislíf heldur en lifn-
aðarhættir nútímans skapa. Fjór-
ar konur kappræða þetta mál.
Játandi, Mrs. Ingi Thorvardson
og Mrs. H. von Renesse; neit-
andi, Mrs. S. E. Björnsson og
Mrs. E. L. Johnsón.
-f -f -f
Gifting fór fram á heimili Mr.
og Mrs. Jóhanns Johannsonar,
norðaustur af Langruth, laugar-
daginn 10. maí. Húsið var prýtt
á viðeigandi hátt. Brúðguminn
var Randolph Linwood Bott og
brúðurin, dóttir Jóhannsons
hjónanna, Sigríður Guðlaug.
Hjá brúðgumanum stóð bróðir
hans Francis Roland Bott og hjá
brúðinni systir hennar, Guðlaug.
Miss Lilja Guttormsson lék á
píanó giftingarlag. Viðstaddir
voru nánustu ættingjar. Heimili
brúðhjónanna verður að Lang-
ruth.
Við það tækifæri voru einnig
skírð tvö börn, barnabörn Jó-
hannsons hjónanna, en börnin
voru Carol Joyce Clark, sem
heima á í Winnipeg og Marlene
Anne Johanson, sem heima á í
Lanigruth.
f -f -f
Ágæt samkoma verður haldin í
samkomuhúsi Víðirbygðar þ. 30.
maí næstk. Verður þar meðai
annars til skemtunar ungmenna-
leikflokkur með hinn þjóðfræga
leik “Þyrnirósa,” sem áður hefir
verið leikinn í nyrðri bygðum
N. íslands og tekist vel. Þá verða
þar negrar með sína þjóðdansa,
sem menn sækjast venjulega
eftir að sjá og heyra. Ennfrem-
ur ungmeyjasöngflokkur frá Ár-
borg og myndasýning frá fs-
landf, en söngfl. stýrir ungfrú
María Bjarnason og myndirnar
sýnir frú E. Steinþórsson frá
Reykjavik. Er sú síðarnefnda
dóttir Jónasar Jónssonar alþm.,
sem allir hér kannast við.
Arður þessarar samkomu
rennur í rekstursjóð Sumarheim-
ilis ísl. barna á Hnausum. Mun-
ið að hér er góð samkoma fyrir
gott málefni.
S. E. B.
f f -f
TIL ÍSLENDINGA
Vltí MANITOBA-VATN
Af ýmsum ástæðum varð
Karlakór fslendinga í Winnipeg
að hætta við að hafa hljómleika
að Lundar á þessu vori. Karla-
kórinn þakkar vinum sínum þar
norður frá, er ætluðu að annast
samkomuna, fyrir góðvilja þeirra
Oig fyrirhöfn. Fólk er hér með
beðið afsökunar á að ekkert gat
orðið af þessari samkomu, en
kórinn vonast til að geta haft
samkomu þar næsta haust eða
a. m. k. næsta vor.
Stjórnarnefnd
Karlakórsins.
f f f
Vegna þess að eg hefi ekki
séð þess getið neinstaðar í ís-
lenzku blöðunum sem nú skal
greina, skrifa eg þessar línur.
Vestur í Welsh, B.C., sem er
námabær uppi i fjöllum alllangt
norður af Vancouver-borg fór
f'ram gifting þann 19. febrúar
s.l. Brúðguminn var Wilbert
Bjarni Johnson frá Brú í Argyle-
bygð í Manitoba, sonur Mrs.
Sigrúnar Johnson ekkju Stefáps
G. Johnsonar frá “Hólmi” í
Argylebygð, en brúðurin er dótt-
ir Mrs. Thorbjargar Goodmanson
ekkju Hans Goodmansopar i
Glenboro, Man. og heitir Kristín
Lilja; hún stundaði hjúkrunar-
störf undanfarið en brúðguminn
er vélaviðgerðarmaður. Gifting-
una framkvæmdi rektor Anglican
kirkjunnar þarna í bænum, Rev.
Brown. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður fyrst um sinn
í þessu þorpi. Vinir víðsvegar
óska til hamingju. Víða dreifist
fslendingurinn í æfintýraleit.
E. II. F.
f f f
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran Church, Victor
St., will hold their final meeting
of this season at the home of
Mrs. G. S. Eby, 660 Henderson
Highway, on Tuesday afternoon,
May 27th at 2.30 p.m. All mem-
bers are cordially invited to at-
tend..
Með SÍMA getið
j>ér nóð til 92% af
Símum Heimsins!
Þér getið verzlað, heimsótt,
skipulagt með SÍMA.
Þetta er koálnaðarlítið.
Ilugsið yður! Það stendur á sama hve ein-
angrað heimili yðar er . . . stendur á sama
um veður . . . sama hvernig vegir eru — á
fáum sekúndum getið þér með SJMA fengið
hjálp — talað við vini, rekið verzlunarvið-
skifti.
Haldið sambönd-
um y ð a r með
SÍMANUM
HRVE VOUR OWn H 0ITIE TELEPHOn E
Dánarfregn
Laugardaginn 10. maí andaðist
Björn Austfjörð, kaupmaður í
Hensel. Hafði hann verið veik-
ur rúman mánuð, og þungt hald-
inn síðasta tímann. Björn sál.
Austfjörð fæddist 16. október
1864 í Ekkjufellsseli í Fellum í
Norður-Múlasýslu á íslandi. For-
eldrar hans voru Jón Árnason
og Sigríður Björnsdóttir, er þar
bjuggu. Björn kom til Ameríku
árið 1887 og dvaldi mest af frá
því í Norður Dakota. Seinustu
38 árin var hann kaupmaður í
Hensel. Hann giftist 1888 Hall-
dóru Vatnsdal. Er hún dáin
fyrir löngu síðan. Fjögur börn
þeirra eru á lífi. f annað sinn
giftist Björn 1917, Þórey Ás-
grímsson; lifir hún mann sinn
ásamt 4 dætrum þeirra.
Björn var í ýmsum trúnaðar-
stöðum. Um langt skeið skrifari
og féhirðir skólans í Hensel; um
langt skeið gjaldkeri fyrir korn-
kaupafélag, og varð þar að borga
út feikna mikið fé. He/ir þvi
verið viðbrugðið hversu frábær
reglusemi var á því starfi og alt
hárrétt ávalt. Mun sú reglu-
semi og aðgætni sffelt hafa ein-
kent starf hans. Heimili hans
var mjög myndarlegt og hafði
hann lagt við það ágæta rækt.
Hafði hann líka gefið börnum
sínum tækifæri að afla sér góðr-
ar mentunar. Yfirleitt var hinn
látni mikill myndarmaður og vel
látinn í sveit sinni. Tveir bræð-
ur lifa hann, Guðmundur á Akra,
N. D. og Halldór í Mozart, Sask.
Jarðarför Björns sál fór fram
frá heimilinu og kirkju Vídalíns-
safnaðar, miðvikudaginn 14. maí.
Fjöldi fólks fylgdi hinum látna
til grafar og kistan var skreytt
mörgum fögrum blómvöndum.
Séra H. Sigmar jarðsöng.
Hátíðarmessur á Hvítasunnu
Á Hvítasunnudaginn 1. júní verða hátiðaguðsþjón-
ustur haldnar í Fyrstu lútersku kirkju. Við ensku ár-
degismessuna fer fram altarisganga og ferming rúmlega
þrjátíu ungmenna. íslenzk guðsþjónusta að kvöldi, og
þar á eftir stuttur safnaðarfundur til að kjósa erindreka
á komanda kirkjuþing.
MESSA í GEYSIR
Séra Bjarni A. Bjarnason
messar væntanlega í kirkju
Geysisstafnaðar næsta sunnudag,
þ. 25. maí, kl. 2 e. h. Safnaðar-
fundur eftir messu. Fólk vin-
samlegast beðið að fjölmenna.
Kvikmyndin “Iceland on the
Prairies”, sem sýnd var í Fyrstu
lútersku kirkju á þriðjudags-
kveldið, var hin prýðilegastá, og
rakti almenna hrifningu; hún
var sýnd fyrir atbeina Karla-
klúbbs safnaðarins og Junior
Icelandic League. Árni G. Egg-
ertson, K.C., hafði samkomu-
stjórn með höndum.
Gefin voru samanj hjónaband
þ. 18. maí Sigtryggur Roy Mc-
Lennan frá Riverton og Annie
Makara, frá Washow Bay, Mani-
toba. Séra Bjarni A. Bjarnason
gifti, og fór athöfnin fram á
heimili hans á Gimli. Brúðgum-
inn er islenzkur í móðurætt og
starfar sem vélamaður á flutn-
ingsbátnum “Barney Thomas” á
Winnipegvatni. Brúðurin er af
ungverskum ættum. Heimili
þeirra verður i Riverton.
-f ♦ -f
Leikfélag Sambandssafnaðar
í Winnipeg kemur til Árborgar
með leikinn “öldur” á miðviku-
dagskvöldið þann 28. þ. '*m. kl.
8.30. Eins og auglýst var áður
varð leikflokkurinn að hætta við
leiksýning í Árborg fyrir nokkru
síðan vegna vondra vega. Er nú
vonast til að enginn þurfi að
sitja heima vegna þess. Má fólk
búast við góðri skemtun og svo
verður dans á eftir. Einnig
verður leikurinn sýndur á Gimli
laugardaginn 7. júní, kl. 8.30 að
kveldi.
Ætlast hafði verið til að farið
yrði til Brú í Argylebygð föstu-
daginn 23. þ. m., en vegna ófyr-
irsjáanlegra ástæðna verður því
ekki við komið. Er fólk þar í
bygð beðið að veita þessu eftir-
tekt og láta það berast.
Barnahljómleikar
fimtudaginn 29. maí
Þj^ðræknisdeildin “Frón” efn-
ir til barnahljómleika í Good-
templarahúsinu fimtud. 29. maí.
Barnakórinn syngur tíu lög und-
ir stjórn R. H. Ragnar. Verður
skemtiskráin hin vandaðasta í
alla staði. Ritstjóri “Lögbergs”
Einar P. Jónsson flytur stutt
erindi “Áhrif söngs á siðmenn-
inguna.” Lúðvík Kristjánsson
flytur frumsamdar vísur og
kvæði, Ragnar Stefánsson skemt-
ir með framsögn, Richard Beck
Ieikur piano solo og Dolores
Swail og Fred Schmidt syngja
einsöngva. Marian, Marion Hart
og Margrét Sigmar syngja ein-
söngva með kórnum en Lily
Bergson og R. Beck leika á piano
með flokknum. Aðgangur verð-
ur aðeins 25 cent og eru að-
göngumiðar nú til sölu hjá ís-
lenzku verzlununum á Sargent
Ave. nefndarmönnum “Fróns”
og meðlimum Barnakórsins.
R. H. R.
Til þess að tryggja gður
skjóta afgreiðslu
Skuluö þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
AND TRANSFER
FRED BUCKLE, Manager
•
PHONE
34 555 - 34 557
SARQENT and AQNES
Sunnudaginn 25. maí messar
séra H. Sigmar í Garðar (eldri
kirkju) kl. 11 f. h. og í Eyford
2.30 og ensk messa fyrir ung-
menni skólans sem eru að ljúka
námi þessa vors, í Mountain kl.
8 að kveldi. Allir boðnir og vel-
komnir áð öllum þeim guðs-
þjónustum. Altarisganga i Ey-
Iford söfnuði.
♦ -f -♦-
Guðsþjónusta við Yarbo og
Tantallon, sd. 25. maí: f Valla-
skóla kl. 11 f. h. og í Hólaskóla
kl. 3 e. h., ensk messa. S. S. C.
♦ ♦ -f
LÚTERSKA KIRKJAN
i SELKIRK
Sunnudaginn 25. maí, 6. sd. e.
páska:—
Sunnudagaskóli ld. 11 árd.;
íslenzk messa kl. 7 síðd.; safn-
aðarfundur eftir messu. — Fólk
vinsamlega beðið að fjölmenna á
messuna og fundinn.
S. ólafsson.
GIMIA PRESTAKALL
Sunnudaginn 25. maí:—
Betel, morgunmessa; Gimli, ís-
lenzk mtessa kl. 7 e. h.; sunnu-
dagsskóli Gimli safnaðar kl. 2
e. h. B. A. Bjarnason.
V V -♦
LÚTERSKA PRESTAKALLIÐ
í VATNABYGÐUM
Sunudaginn 25. maí:—
Mozart kl. 11 f. h.—ísl.
Foam Lake, kl. 3 e. h.
Leslie, kl. 7 e. h.
Vinsamlegast,
Carl J. Olson.
Wynyard, Sask.
Talsími 27.
SEEDTIME
CUttcC
HARVEST
By
Dr. K. W. Neatby
> Direclor, Agricultural Department
North-West Line Elevators Association
AN INVITATION
During the past winter 4,870
different samples of farmers’
seed have been sent in to the
North-West Line Elevators As-
sociation for gerinination tests.
As a result of the prevalence of
frost damage in northern areas,
particularly to oats and barley,
the results of the tests have been
of great importance to farmers
availing themselves of the ser-
vice.
About 2,500 farmers have ask-
ed us to make growing tests in
the field in order to determine
the variety purity of their stocks.
We have undertaken to do this
for wheat varieties only. In
oats, varietal purity is hard to
establish, and, since it is largely
a matter of feed, purity is of
small concern except to seed
growers. Barley is more difficult
than wheat, and we hesitate to
burden university or government
cerealists unduly.
We shall, therefore, have
about 2,000 samples of wheat
seed plánted for purity tests. I*1
nearly all cases, the plots will be
identical with the crops the in"
dividual farmers concerned are
growing, since they voluntarily
sent their own seed in to us.
The plots will be located at thc
University of Manitoba.
I take this opportunity of in-
viting farmers and others who
may be in Winnipeg this suiu-
mer to visit our office, laboratory
and plots. Our address is 763
Grain Exchange Building. At tbe
same time you can visit the
Dominion Grain Inspection
Offices and the Grain Research
Laboratory of the Board of Graiu
Commissioners.
Minniát BETEL
í
erfðaskrám yðar
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and Jewellert
699 SARGENT AVE., WPG.
H. BJARNASON
TRANSFER
Annast greiClega um alt, sem a8
flutningum lýtur, smfium eCa
stðrum Hvergi sanngjarr.ara
ver8.
Helmili:
591 SHERBURN ST.
Sfmi 35 909
BÆNDUR, KAUPMENN
FLUTNINGSBÍLASTJÓRAR
Muskrat, Badger og Bcaver óskast
Verð hrðskinna og annara tegunda,
sem við verzlum með, hafa allmjög
hækkað í verði; yður mun undra
hve hátt vér greiðum. Sendið oss
hr&skinn I dag. Nákvæm vigt, og
peningaávísun send um hæl.
American Hide&FurCo.Ltd.
157-159 RUPERT AVENUE,
WINNIPEG, MAN.
SENDIÐ FATNAfí YÐAR
TIL ÞURHREINSUNAR
TIL PERTH’S
Pér sparið tíma og peninga. Alt
vort verk ábyrgst að vera hið
bezta I borginni.
Simið 37 261
eftir ökumanni v$rum
í einkennisbúningi.
Pevflis
Cleaners - Dyers - Launderers
HAMBLEY UNGAR úr Rafofni
Skjðt afgreiðsla. púsundum ungað út
á hverri viku, og sendir nú þegar
af flestum tegundum.
SKBIFIÐ, SENDIÐ SKEYTI,
SlMIÐ eða KOMIÐ
Úrvals ungar, stjórnarviðurkenning,
seldir með samkepnis verði.
MANITOBA VERÐ
100 60
85
w. Leghorns ...>10.25 $ 5.50 $8.90
w. L. Pullets 22.00 11.50 6.00
w. Íj. Cockerels .... ».00 1.75 1.00
Barred Rocks 11.75 6.25 $.25
B. R. Pullets ..... 17.00 0.00 4.75
B. R. aml N. H. 2.75
Cockerels 10.00 5.25
New Hampshires 11.75 6.25 3.25
N. Hamp. Pull 17.00 9.00 4.75
100.% Live Arrival Guaranteed.
Pullets 98% accurate
HAMBLEY R.O.P. Sired ChickS.
Our Portage and Brandon Hat-
cheries will produce only R.O.P-
Sired Chicks for 1941.
Effective Mixed Sex Pullets
May 10 100 50 100 50
W. Legs ...$12.25 $0.50 $25.00 $12.75
B. Rocks ... 13.75 7.25 21.00 10.7Ö
R. I. Reds .... 14.50 7.75 23.00 12.00
B.R. Cockls. .... 11.00 5.75 Pullets 98%
W.L. Cockls. ... 4.00 2.25 Aecurate
J. J. HAMBLEY HATCHERIES
WinniiM'K, Ilrandon, Portaife, Dauphin
Leiksýning
Leikfélag Sambandssafnaðar í Riverton sýnir sjónleik-
inn “ÖNNUM KAFNI MAÐURINN”, gamanleik í þremur
þáttum, eftir Ludvig Holberg, i samkoinusal Sambands-
kirkjunnar í Winnipeg 30. maí, kl. 8 e. h.
Nokkru af ágóðanum verður varið til styrktar
Sumarheimilinu á Hnausum.
Inngangseijrir fgrir fullorðna 50c, fyrir börn 20c
Leikurinn verður ennfremur sýndur í Árborg, i
Goodtemplarahúsinu, föstudíaginn 23. maí. kl. 9 e. h.
Á Gimli í Parish Hall 27. mai, kl. 9 e. h.
Aðgöngumiðar fyrir Winnipeg1 verða til sölu hjá.;
Mr. Steindór Jakobssyni á horninu á Sargent og Victor,
og skrifstofum Heimskringlu og Lögbergs.