Lögberg - 28.08.1941, Side 1
PHONE 86 311
Seven Lines
£o*°
á ?o*
det-8^
d
\\TCV
Cot‘
Service
and
Satisfaction
PHONE 86 311
Seven Lines
LÍO*
Cot
d
For Better
Dry Cleaning
and Laundry
54. ARGANGUB
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. AGÚST, 1941
NCMER 35
Kvœði, flutt í silfurbrúðkaupi
Sveins E. Björnssonar læknis
og frú Maríu Björnsson
í Árborg 1 0. ágúát 1941
í fálæti dimmgræns dalsins
bjó draumlyndiur, hljóður sveinn,
er leitaði að ám.og lömbum
og lék sér við ekki neinn,
en hlustaði á seiðmagn Selár,*
og sat þar á kveldin einn.
Á æfinnar æskumorgni
með útþrá hins skygna manns,
hann leitaði landa nýrra
við ljóðblys síns heimararms,
en konan varð mesta bÆéðið,
er kvaðst inn í vitund hans.
f útlegð hann ennþá brýnir
hin ísllenzku tungusverð;
hans ljóð verða öll að lífi
í leitandans heimskautsferð.
Eg veit það að Sveinn fær síðast
sitt sveinsbréf í ljóðagerð.
Einar P. Jónsson.
*)Selá í Vopnaflrði.
Fjórðungur aldar
Fána tjaldar
Sællar sambúðar
Sveins og brúðar.
Á þeirra andlitum,
Sem eigin ritum,
Vant er ei rósa
Né vizku ljósa.
Búið er öndvegi
Á þessum degi,
Þeim ungu hjónum
Fyrir allra sjónum.
En af þeim skipað
Er annað svipað
Oss í hugskoti
Heima í koti.
Berum við á borð
Vor beztu orð,
Þótt fáir heyri,
—Heiður þeim að meiri,
Heilan vorn hug
Ei hafinn á flug,
Heldur þeim handgenginn
Og heimafenginn.
Það er sjaldan hæst
Sem er hjarta næst,
Lætur lítt yfir sér
Það sem lofsvert er,
Bumbur ei það ber,
Sem betur fer
Sé hefir sig hátt um
Fyrir hallargáttum.
Er vor aðdáun
Engin fágun
Né silfmr þvottur,
En sæmdarvottur.
Vel megi þau njóta
Og virðing af hljóta
úti og inni,
Á æfi sinni.
Njóti þau hylli
Hárrar skáldsnilli,
Læknislistar,
Langrar heimsvistar
Og geisla fráns
Góðs barnaláns,
Fyrir utan elli,
Á Iðavelli.
Guttormur J. Guttormsson
Þú lagðir ungur frá ættarlands strönd
Með einbeittan vilja og starfandi hönd,
Og hitann frá ísa-lands arni.
Spámannsins andi um speglandi haf
Var spurúll um framtíð, og stefnuna gaf,
En skáldið í æskunnar sakleysi svaf
Á sólríku íslenzku barni.
ókunna landið varð óskaland þitt,
Vor ættjörð er stórlát og gjöful á sitt
Ogjniðlar af andlegum eldi.
Þú reyndist þeim báðum hinn sannasti, Sveinn,
Sonur í hvívetna, trúmensku hreinn.
En þó er það varlegra að vera ekki einn
Á vordýrðar inndælu kveldi.
Og hér átti lífið að leggja þér braut,
Hér logaði ástin við náttúru slcaut.
Og nú var hún komin þín kona
Og alt varð nú heilagt sem landnemaljóð;
Hún iýsti upp þinn feril og tíguleg stóð,
Þið stofnuðuð inngang að þroskaðri þjóð
í þættinum - “dætra og sona.”
Þið frelsinu unnuð, og öll ykkar störf x
Voru andlega frjálslynd og hugsjónadjörf
f þágu þess göfuga og góða.
Og læknirinn fann, þó að stefnan sé ströng, .
Stormasöm nóttin og andvöku löng,
Skáldið má yrkja þar sigur og söng
Úr sólskini íslenzkra ljóða.
G. O. Einarsson.
Minningarvika
Vikan frá 10. til 17. september
næetkomandi, verður helguð
þeim eanadiskum mönnum, sem
gripið hafa til vopna mannrétt-
indum og lýðræði í heiminum
til verndar; verður þá þriðja
árið byrjað frá því er Canada
lagði út í núverandi Norðurálfu-
styrjöld; stjórnarvöld þessa
lands æskja þess, að allur al-
menningur Ijái máli þessu lið
af fylzta áhuga. Yfirlýsing í
þessa átt, er gefin út af Hon.
J. T. Thorson, War Services
ráðherra.
Islenzkir fuiltrúar í Washington
Eftirfarandi frétt barst Lögbergi á
þriðjudaginn frá hr. Vilhjálmi Pór,
forstjóra við Landsbanka Islands, dag-
sett I Washington, þann 25. þ. m.
—Ritstj.
Þrír viðskiftafulltrúar frá Is
landi eru komnir hingað. Það
eru þeir Vilhjálmur Thor stjórn-
andi Þjóðbankans á íslandi, fyr-
verandi aðalræðismaður íslands í
New York og yfirumsjónarmað-
ur ísJenzku sýningarinnar i
New York; er hann formaður
þessarar fulltrúanefndar. Ásgeir
Ásgeirsson yfirstjórnandi Út-
veglsbankans á íslandi, fyrver-
andi forsætisráðherra íslands og
forseti Alþingis. Þriðji maður
nefndarinnar er Björn Ólafsson
meðlimur ensk-íslenzku nefnd-
arinnar og einn af stjórnendúm
verzlunarráðsins á íslandi.
Erindi þessarar fulltrúanefnd-
ar frá stjórninni á fslandi til
Bandaríkjanna er það, að semja
við Bandaríkjastjórnina um
fjármál, verzlunarmál og við-
skifti milli þessara tveggja landa.
Nefndin kom til Washington
á laugardaginn og var hún boðin
velkomin af Sumner Welles að-
stoðar utanríkisráðherra.
Um undanfarin ár liafa fs-
leniddngar gert sér far um það,
að draga að sér athygli Banda-
ríkjamanna; láta þá vita af því
fyrst og fremst að þeir væru til
og sýna þeim fram á það, að á
fslandi sé áglætt tækifæri fyrir
Ameríkumenn til verzlunar- og
iðnaðar viðskifta. Til dæmis
um þessar tilraunir má nefna
þátttöku íslendinga í heiinssýn-
ingunni í New York þar sem
íslendingar kostuðu til meira fé
hlutfallslega við fólksljölda en
nokkur önnur þjóð í heimi; enn-
'fremur það, að fslendingar
stofnuðu verzlunar- og viðskifta-
skrifstofu í New York árið 1930
og hafa nú skipað síðastliðið ár
alræðismann í New York.
Seytjánda júlí síðastliðinii
lentu hermenn frá Bandaríkjun-i
um við fsland til þess að verja
landið sem einn þáttinn í varn-J
arkeðju Vesturálfunnar. Hiniij
ungu Ameríkumenn, sem jníj
komu til íslands, þykja þar bæðí
prúðir og mannvænlegir; fslend-
ingar láta af þeim hið allra
bezta og fagna þeim sem góðum
gestum og friðsömum ferða-
mönnum. Þeir skoða þá sem
stoð og styrk til j>ess að efla
vernd og sjálfstæði landsins.
íslenzka jijóðin horfir fram i
tímann með þeirri von og sann-
færingu að vinátta og samvinna
megi styrkjast og viðhaldast
milli þessara tveggja lýðstjórn-
arlanda, bæði í verzlunarvið-
skiftum og menningarmálum.
Amerisku hermennirnir hafa
sagt fólkinu á íslandi að landið
sé miklu skemtilegra en þeir
höfðu gert sér í hugarlund áður.
Þeim finst veðráttan miklu hlýrri
landslagið fegurra og nútíðar-
menning fullkomnari en þeir
höfðu búist við. Þetta skrifa
þeir óefað til vina sinna og
vandafólks þegar til kemur.
í samningnum milli forsætis-
ráðherrans á íslandi og forseta
Bandaríkjanna að því er snerti
verndun fslands, lofuðu Banda-
ríkin því, að efla hag fslands i
öllu tilliti, að svo miklu leyti
sem mögulegt væri; þar á meðal
var því lofað að láta íslendinga
fá allar þær vörur og nauðsynj-
ar, sem þeir þyrftu og sjá um
að flutningur á þeim héldist
hindrunarlaust; flutningur bæði
austur ög vestur, og að haga
þannig ölllum verzlunar- og við-
skiftamálum, að þau gætu orð-
ið fslendingum að sem mestum
notum.
Með þetta alt hugfast og með
tilliti til þess hversu miklar
breytingar hafa átt sér stað í
sambandi við vörn Bandaríkj-
anna á íslandi, hefir stjórninni
á íslandi fundist það óhjákvæmi-
legt að senda fulltrúanefnd til
Washington nú þegar til þess
að semja við Bandaríkjastjórn-
ina um ýmsar hliðar fjármál-
anna, verzlunarmálanna og við-
skiftamálanna; alt þetta er ís-
landi ef til vill lífsskilyrði eins
og nú standa sakir.
Nefndin er þess fullviss að
ferð hennar beri góðan árangur
—árangur, sem ekki einungis
verði landi og jijóð til bráða-
byrgðar hagsmuna, heldur skapi
fastan og tryggan grundvöll und-
ir aukin framtíðar viðskifti i
verzlun og fjármálum, og verði
einnig upphaf nýrra og glæsi-
Jegra hagsmuna á báðar hliðar
á svæðum menta og menningar
milli þessara tveggja lýðræðis-
ríkja — litla en aldna íslands
og Bandaríkjanna, sem að sönnu
eru ung að árum en stærsta og
voldugasta lýðríki heimsins.
-------V-------
Breta og Rússar
ráðast inn í Iran
Til þess að fyrirbyggja það í
tíma, að Þjóðverjar næði haldi
á hinum auðugu oliulindum í
Iran (Persíu), hafa Bretar og
Rússar tekið sér fyrir hendur að
hernema landið til bráðabirgða,
eða þar til stríðinu lýkur; hafa
báðar þessar þjóðir lýst yfir því,
að landinu verði trygt fult sjálf-
stæði í framtíðinni.
U.S.A. REVENUE CUTTERS ARRIVE IN
BRITAIN TO JOIN WAR ON U-BOATS
A view of some of the U.S.A. fast revenue cutters on arrival
at a British port, after their transfer work with the Royal Navy
under the Lease-Lend agreement. Their speed and armament
make them ideal for submarine hunting in the Battle of the
Atlantic.
Veizluhöld
í Nýja Islandi
i.
Það er ekki ofmælt, að síðan
hinum veglegu fslendingadags-
hátíðahöldum í Nýja íslandi á
Hnausum og Gimli sleit í önd-
verðum þessum ménuði, hafi ein
stórveizlan rekið áðra þar i
norðurbygðum; enda má í raun
réttri segja, að allar þessar veizl-
ur hafi verið íslendingadagar,
því hvar sem íslenzkt fólk kem-
ur saman til mannfagnaðar, er
stofnþjóðar vorrar jafnan á einn
eður annan hátt fagurlega minst,
og ættartengslin treyst; þannig
skvldi það og ávalt vera. Einn
slíkur fslendingadagur var há-
tiðlegur haldinn í samkomuhús-
inu í Árborg síðari. hluta sunnu-
dagsins þess 10. þ. m., er helg-
aður var fjórðungsaldar hjóna-
bandsafmæli hinna merku hjóna,
Sveins E. Björnssonar læknis og
frú Mariu Björnsson; veður var
heiðbjart og hlýtt, og sólin
“helti geislum” yfir heiðursgesti
og þann hinn mikla mannfjölda,
er saman var kominn til þess að
gleðjast með þeim við áminst
eyktamörk í sambúð þeirra, er
verið hefir hin giptusamlegasta.
Veizlustjórn hafði með hönd-
um B. M. Púlsson lögfræðingur;
og fórst honutn sá starfi hið
snyrtilegasta úr hendi.
Eins og ræður að líkum, var
við tækifæri þetta mikið urn
ræðuhöld, auk þess sem kvæði
voru flutt. Ræður fluttu skáld-
konan frú Guðrún H. Finnsdótt-
ir (Jónsson); frú Andrea John-
son, frú Emma von Renesse, frú
Gourd, Sveinn Thorvaldsson,
M.B.E.; séra Guðmundur Árna-
son, séra Philip M. Péturs-
son, Stefán Einarsson, Páll S.
Pálsson, skáld; Jón Laxdal,
bróðir silfurbrúðarinnar, Svein-
björn Björnsson, sonur silfur-
brúðhjónanna, og Ásmundur P.
Jóhannsson, er flutti ávarp fyr-
ir hönd Þjóðræknisfélagsins, en
Svánn læknir er vara-forseti
þess félagsskapar. KVæði fluttu
Guttormur J. Guttormsson, G.
O. Einarsson og Einar P. Jóns-
son; gnótt var söngs á milli
ræðuhalda og kvæðaflutnings
undir forustu ungfrú Maríu
Bjarnason, og veitingar hinar
ríkmannlegustu.
Þau Sveinn læknir og frú
María, hafa átt búsetu i Árborg
um því nær tuttugu ára skeið,
og aflað sér víðtækra vinswlda
sakir mannkosta og heimilis-
risnu; enda hefir heimili þeirra
jafnan legið í þjóðbraut; þau
hjón hafa jöfnum höndum tek-
ið áhrifamikinn þátt í islenzk-
uin mannfélagsmálum, og aldrei
legið á liði sínu. Sveinn læknir
er gott skáld og batnandi, en
frú María gædd ágætum for-
ustu hæfileikum. Vel sé hverj-
um þeim, er þannig ávaxta vest-
an hafs hið íslenzka menningar-
pund! Ymsar forkunnar fagrar
gjafir fóllu heiðursgestunum í
skaut, þar á meðal fingurgull
eitt mikið frá Frimúrurum, er
Sveinn ITiors'aldsson afhenti.
Árnaðarskeyti bárust hinum
mætu silfurbrúðhjónum að úr
ýmsum úttum, þó eigi verði þau
skrásett í stuttri blaðafregn.
Þau Sveinn læknir og frú
Maria fluttu hvort um sig fagur-
lega samsett þakkarávörp til
þeirra allra, er að samsætinu
stóðu, og stuðlað höfðu að því,
að gera það eins ánægjulegt og
raun bar vitni um.
II.
Á laugardagskveldið þann 16.
Leningrad í hœttu
Samkvæmt síðustu fregnum af
'Stríðinu milli Þjóðverja og
Rússa, er Leningrad, önnur
stærsta og mannflesta borg Rúss-
lands í mikilli hættu stödd.
þ. in., var mikið um að vera í
Mikley; samkomuhúsið þéttskip-
að prúðhúnu fólki, og umhverí-
ið fagurlega skreytt; tilefni
veizlunnar var það, að kveðja
hr. Skúla Sigurgeirsson, sem tek-
ið hefir sér fyrir hendur guð-
fræðinám við prestaskóla Sam-
einuðu lútersku kirkjunnar í
Saskatoon; var samsætið að
sjálfsögðu jafnframt helgað frú
hans og syni. Foreldrar Skúla,
þau Jakob Sigurgeirsson og
Victoria Sigurgeirsson, eru bæði
látin. Skúli er bráðvelgefinn á-
hugamaður, sem tekið hefir, á-
saint hinni ágætu konu, frú Sig-
riði, dóttur Márusar heitins
Doll, mikinn og giftudrjúgan
þátt í málefnum Mikleyinga;
ekki sízt safnaðarmálum, auk
þess sem hann hefir átt sæti i
sveitarráði Bifrastar við góðan
orðstír.
Forsæti i þessu eftirminnilega
samsæti, skipaði ungur og bráð-
efnilegur maður, Helgi K.
Tomasson, sonur þeirra merku
Reynistaðahjóna, Kristjáns og
frú Sigþóru Tomasson; mælti
hann skörulega á íslenzka tungu,
og fórst veizlustjórn úr hendi
með ágætum. Af há'lfu fólksins
á eynni, flutti ræðu fyrir minni
heiðursgests, Mrs. Einar P. Jóns-
son, sem er fædd og uppalin á
þessari yndisfögru ey, og afhenti
honum jafnframt sjóð nokkurn
frá vinum hans og samferða-
mönnum. Frú Sigþóra Tomas-
son mælti fýrir minni frú Sig-
ríðar fyrir hönd kvenfélagsins
Undina, og þakkaði henni fagur-
lega nytsamt og veglegt samstarf',
um leið og hún afhenti henni
peningagjöf af hálfu þess fé-
lagsskapar; því næst afhenti lit-
ið stúlkubarn frú Sigríði fagran
blómvönd. Forseti Mikleyjar-
safnaðar, Gunnar Tomasson,
flutti heiðursgestuin hlýtt ávarp
af hiálfu safnaðarins, og. fékk
þeim í hendur nokkura peninga-
gjöf. Annar sonur þeirra Reyni-
staðahjóna, Wilfrid Laurier,
ávarpaði með fögrum orðuin
heiðursgesti fyrir hönd ung-
mennafélagsins p eynni og árn-
aði þeim allra heilla.
Af hálfu sveitarráðsins í Bif-
röst, ávarpaði Gísli verzlunar-
stjóri Sigmundsson, Skúla Sigur-
geirsson, þakkaði honum ágæta
samvinnu, og sæmdi hann vand-
aðri minjagjöf; úr sveitarráði
tóku einnig til máls þeir S. V.
Sigurdsson og Snæbjörn John-
son oddviti, en þar á eftir fluttu
þeir S. E. Sigurdsson og Einar
P. Jónsson stuttar tölur. Með
einsöng skemti Jón Sigurgeirs-
son, föðurbróðir Skúla, hálfátt-
ræður að aldri, en þrunginn af
lífsfjöri, sem ungur væri; ágæt-
ur söngflokkur, sem G. A. Wil-
liams kaupmaður hafði æft,
hafði forustu um söng, en við
hljóðfærið var ungfrú Sigurbjörg
Stefánsson.
Samsæti þetta var að öliu hið
virðulegasta, og mun lengi í
minnum haft. Þau Skúli og frú
Sigríður þökkuðu hvort um sig
með vélvöldum orðum gjafirnar
og þá vinsemd, er samsætið bæri
vott um, og árnuðu Mikleyjing-
um allra heilla.
Frá öðrum veizluhöldum i
Nýja íslandi verður skýrt í næsta
blaði.