Lögberg - 02.10.1941, Blaðsíða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
d
c<Sio*
U<^ ®ÍV°’ Servioe
Cot> and
Satisfaction
PHONE 86 311
Seven Lines
4w?íe
d
^ííSss^
t,ttU*Vx0> ®'Ð' For Better
Cot>°V Dry Cleaning
and Laundry
54. ÁRGrANGUR ^ LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. OKTÓBER, 1941 NÚMER 40
Hálfníræður eins og ekkert hefði í skoriát
Iíristján ólafsson
Síðastliðinn þriðjudag átti hr. Kristján ólafsson, umboðs-
maður New York Life félagsins, áttatíu og fimm ára aldursafmæli;
fæddur hinn 30. dag septembermánaðar árið 1856; hann hefir
starfað i þjónustu áminsts lífsábyrgðarfélags í hart nær 40 ár,
og notið þar sem annarsstaðar, óskifts trausts samferðamanna
sinna; enda er Kristján maður heilsteyptur í skapgerð, hverjum
manni vinfastari og drengur góður í þess orðs sönnustu merkingu.
Starfsemi Kristjáns hefir gripið inn í margt, og hún hefir öll
verið þess eðlis, að íslenzlca mannfélagið vestan hafs á honum
margt og mikið gott upp að unna.
Kristján er tvíkvæntur; misti fyrri konu sína í'yrir löngu
síðan, en af því hjónabandi eru fjögur börn á lífi, Kristján, Mrs.
W. R. Pottruff og Salína í Winnipeg, og Kristjana hjúkrunarkona
í þjónustu Bandaríkjastjórnar. Seinni kona Kristjáns er Gerða,
fædd Halldórsson, ágætur kvenkostur; eiga þau tvö börn, Theo-
dosiu og Harold, er bæði stunda nám við Manitobaháskólann.
Lögberg árnar Kristjáni og fjölskyldu allra heilla í tilefni
af áminstu hálfníræðisafmæli.
Líknarsamlagið
Eins og Winnipegbúum er
kunnugt um, stendur yfir fjár-
söfnun þessa dagana til Líknar-
samlags borgarinnar; söfnuninni
lýkur þann 4. þessa mánaðar;
ekki verður annað sagt, en und-
irtektir almennings hafi verið
góðar, þó enn vanti að vísu
nokkuð á að hinu setta marki
verði náð. Veturinn er að ganga
í garð, og börn, gamalmenni og
aðrir munaðarleysingjar, þarfn-
ast notalegrar aðbúðar yfir hina
köldu og löngu vetrarmánuði;
þess vegna má enginn, sem
nokkúrs er umkominn, láta það
undir höfuð leggjast, að greiða
Líknarsamlaginu þann skerf,
smáan eða stóran, er hann sjálf-
ur má undir nokkrum kringum-
stðum án vera. Hafið hugfast,
að margt smátt gerir eitt stórt!
——-----V--------
Sendiherra
Bandaríkjanna .
kominn til Islands
Samkvæmt hraðskeyti frá
Reykjavík, kom sendherra
Bandaríkjanna, Lincoln Mac-
Veagh, til fslands þann 26. sept-
ember síðastliðinn, ásamt frú
sinni. Mr. MacVeagh er fyrsti
sendiherrann, sem Bandaríkja-
stjórn hefir skipað á íslandi.
Canadisk flotasnekkja
ferst, átján menn
týna lífi
Flotamálaráðherra Canada-
stjórnar, Mr. Macdonald, gerði
heyrinkunnugt síðastliðinn laug-
dag, að flotasnekkjan Lewis,
hefði farist af óvinavöldum;
átján menn áhafnarinnar létu
líf sibt, en þrír björguðust af.
Fjórir Winnipeg menn fórust
með skipinu.
------V-------
Amerískir fréttaritarar
komnir heim
Hér fara á eftir nöfn þeirra
kvikmyndatakara og fréttaritara,
sem nýlega fóru til íslands.
Auk Björns Björnson frá
Minneapolis eru það: Philip
Ault frá llinois, sendur af United
Press; Lawrence Kennedy, send-
ur af Fox Movitone og á taka
fréttamyndir; Samuel Schulman,
sendur af International News
Photos; Niel Sullivan, sendur af
Pathe News Co.; Walter Lane,
sendur af Life-tímaritinu.
Markmið þeirra er að auka
kynni á landi og þjóð, miklu
fremur en að taka myndir af
hersveitum. Allir eru þeir stað-
ráðnir í þvi að láta verk sitt
verða til aukins skilnings og
vináttu í garð íslendinga.
Ánægjuleg kvöldstund
Á mánudagskvöldið var, 29.
þ. m. var gestkvæmt mjög á hinu
stóra og höfðinglega heimili
þeirra Arinbjarna S. Bardal og
Margrétar konu hans, að 62
Hawthorne Avenue, East Kil-
donan.. Þetta var einmitt kvöld-
ið sem eldri söngflokkur Fyrsta
júterska safnaðar hafði valið
sér til útiskemtunar, og sam-
neytis undir beru lofti. Rúmlega
fimtíu manns voru þarna sam-
ankomnir, þvi flest af söngfólki
þessu er gift og tók maka sína
með í skemiferð þessa svo sem
að líkum lætur, eða þá aðra ná-
komna vini. Kvöldið reyndist
hið ánægjulegasta. Stuðlaði að
því bæði ágætt veður, og ná-
kvæmur undirbúningur húsráð-
enda, sem höfðu boðið söng-
flokknum til sín þetta kvöld.
Hafði Arinbjörn reist viðarköst
einn mikinn á árbakkanum
skamt frá heimili sínu, og rað-
að bekkjum og borðum í kring
um köstinn í hæfilegri fjarlægð.
Safnaðist nú fólkið þarna laust
eftir kl. átta. Var svo kveikt
bálið, sem nægði bæði til ljóss
og hita það sem eftir var kvölds-
ins. Allri formfestu og hátíð-
leik var nú kastað á bálið, ásamt
áhyggjum um strit og stríð. Eng-
inn þurfti að kasta ellibelgnum,
því þetta er flest alt miðaldra
fólk og yngra, en allir yngdust
þó upp nokkuð við frjálsa og
glaða lífið þessa stund á árbakk-
anum hjá Bardal. Sjálfur var
hann yngstur allra, þrátt fyrir
mótmæli almanaksins. Hví
eitt gamalt amanak að hefta
anda hins unga manns? Var nú
mikið sungið og þeir húsráðandi,
Jóhann Beck og Halldór Swan
þeyttu harmonikuspil til skiftis
af miklum krafti. Meðlimir
söngflokksins höfðu komið með
vistir með sér á staðinn. Hafði
hver og einn í þeim efnum orðíð
að lúta boði og banni Soffiu
Wathne, sem frumlcvæðið átti að
þessu samkvæmi og veitti því
forstöðu. Vistirnar reyndust
hinar ljúffengustu, enda voru
þeim gjörð hin beztu skil. Að
lokum sló fólkið hring um bál-
ið, hélt höndum saman, söng
nokkra iskilnaðarsöngva, og
hrópaði svo margfalt “húrra”
fyrir þeim Bardals hjónum.
Mælti Arinbjörn þá nokkur
þakkar og hvatningarorð til
söngflokksins; var máli hans
tekið með miklu lófaklappi.
Bálið á árbakkanum var nú
næstum útbrunnið, en það log-
aði enn skært á arineldi gest-
risninnar hjá húsráðenduin. Var
öllum hópnum boðið til stofu.
Skemti fólk sér þar enn við
song um hríð, með undirspili
söngstjórans Frank Thorolfsons.
Laust fyrir miðnætti fór fólk að
tínast heim. Allir viðstaddir
hefðu gjarnan viljað að kvöld-
stund þessi hefði enst lengur.
En það gerir ekkert til þótt
kvöldið yrði ekki lengra, því að
síðustu orðin sem heyrðust af
vörum húsráðenda, er kvatt var
voru : “Komið öll aftur — kom-
ið sem fyrst.” V. J. E.
--------y--------
Baráttan á Rússlandi
Að þ\i er séð verður, halda
Rússar að fullu sínu á mið-vig-
stöðvunum, Smolensk-Moskva
línunni, og er hið sama um
Leningrad-vörnina að segja; á
hinn bóginn benda nýjustu
fregnir til, að Þjóðverjar vinni
nokkuð á í atsókninni að Khar-
kov, hinni mildu iðnaðarborg
skamt frá Doná.
Canadastjórn skipar
sendiherra fyrir
Argentínu
Hon. W. F. A. Turgeon, dóms-
forseti í hæztarétti Saskatchewan
fylkis, hefir verið skipaður af
hálfu Canadastjórnar sendiherra
fyrir Argentinu, og mun taka
við hinu nýja embætti sínu við
allra fyrstu hentugleika. Mr.
Turgeon er talinn meðal hinna
ágætustu lögfræðinga þjóðarinn-
ar, og hefir skipað forsæti í fleiri
konunglegum rannsóknarnefnd-
um, en nokkur annar núlifandi
lögfræðingur í Canada. Mr.
Turgeon er annar sendiherrann,
sem Canada-stjórn skipar í
Suður-Ameríku; hinn fyrri gegn-
ir sendiherra-embætti í Brazilíu.
------V-------
Islendingur ráðinn
til Brezka upplýsinga-
málaráðuneytisins
Upplýsingamálaráðuneytið
brezka hefir nýlega ráðið til sín
Bjarna Guðmundsson til starfa
í London. Fór hann til Englands
í vikunni sem leið.
Bjarni á að annast sendingar
á fréttaskeytum til Reykjavíkur-
blaðanna og tala vikulega í
brezka litvarpið á íslenzku. En
starf hans verður ákveðið nánar
þegar hann kemur til London.
Upphaflega var áætlunin að
Bjarni yrði íslenzku blaðamönn-
unum samferða til Englands, en
hann var ekki ferðbúinn fyr en
nú, enda þurfti hann í ýms horn
að lita, áður en hann færi af
landi burt til dvalar.
Bjarni er Reykvikingur að
ætt, sonur Guðmundar Guðna-
sonar gullsmíðameistara og konu
hans, Nikolínu Sigurðardóttur
frá Litla-Seli. Hann lauk stú-
dentsprófi 1927 og innritaðist í
norrænudeild, en hvarf frá námi
vorið 1929 og réðist til Morgun-
blaðsins. Haustið 1930 sigldi
hann til náms í Þýzkalandi og
lagði stund á blaðamensku.
Næsta vetur dvaldi hann í París
við samskonar nám, ennfremur
um tíma í Genf í Sviss og siðar
í London.
í ársbyrjun 1933 réðst hann á
skrifstofu H.f. Kol og Salt, og
varð árið eftir skrifstofustjóri
þess fyrirtækis, en þar starfaði
hann til 1939. í stríðsbyrjun var
hann útnefndur kolaeftirlitsmað-
ur í Reykjavik, en nú í ársbyrj-
un fékk hann sig lausan frá þvi
starfi til þess að starfa hjá
brezku sendisveitinni, hjá dr.
Mckenzie blaðafulltrúa.
Bjarni er ágætlega að sér í
landafræði Evrópu og þjóðhátt-
um, því auk þess, sem að fram-
an getur hefir hann tvisvar far-
ið utan, í fyrra skiftið til Rúss-
lands og Norðurlanda 1934, en í
siðara skiftið 1935 (brúðkaups-
för með konu sinni, Gunnlaugu
Briem) til Englands, Frakklands,
Þýzkalands og Danmerkur.
Bjarni er manna bezt að sér
í útbreiðslustarfssemi (propa-
ganda), enda lagt mikla stund
á að menta sig vel í þeirri grein.
Hann er ágætur tungumálamað-
ur, talar ensku, þýzku og ifrönsku
auk Norðurlandamála og er
“gutlfær í spönsku og ítölsku”
eins og hann segir sjálfur.
Þótt starf Bjarna sé að mestu
einskorðað við kynningu og út-
breiðslustarfsemi fyrir Breta, þá
mun hann geta orðið íslandi að
margskonar liði og til þess er
Bjarni manna hæfastur. Hann
er glæsimenni á velli, mentaður
vel, hæverskur og öruggur i
framkomu.
—(Morgunbl. 15. júlí).
Biluð gaslögn veldur
dauða fjögra í Winnipeg
Síðastliðinn sunnudag vildi
það sorglega slys til, að fjórar
manneskjur biðu bana hér i borg
af þeirri orsök, að biluð gaslögn
fylti húsið að 11 Cornish Ave.
slíkri svælu, að eigi varð líft
inni; þeir, sem fórust, voru Dr.
og Mrs. S. G. Herbert og foreldr-
ar hans, Mr. og Mrs. James Her-
bert; móðir læknisins hafði ver-
ið lasin, og hafði sonur hennar
komið ásamt konu sinni til að
vitja hennar, og afráðið að dvelja
yfir nóttina. Borgarstjóri hefir
falið verkfræðingum bæjarins, að
rannsaka gaslagnir á því svæði
bæjarins, er slysið vildi til.
------V------
Vaxandi|hermdarverk
Fregnir frá London þann 1.
þ. m., herma, að í Moraviu og
Moldaviu, fylkjunum, sem fyrir
hernám Hitlers töldust til
Czechoslovakíu lýðveldisins, hafi
nýlega 844 menn verið hneptir
í fangelsi, og 95 sviftir lífi; gáfu
Nazistar mönnum þessum margt
að sök, en létu i megin atriðum
gott heita, að sannast hefði á þá
svikráð við herveldið þýzka. En
sannTeikurinn mun vera sá, að
fólki þessu hafi verið orðið ólíft
í landinu vegna hinna þýzku kúg-
unarafla.
----—V—------
Italía sœtir hörðum
loftárásum
Sdðasitliðinn mánudag veittist
loftflotinn brezki þunglega að
ýmisum helztu iðnaðarborgum
ítalíu, sem og á Sikiley, og or-
sakaði viða margháttað tjón;
var hér um enga smáræðis vega-
lengd að ræða, eða hvorki meira
né minna en fimtán hundruð
mílur. Bretar mistu ekki eina
einustu orustuflugvél í leiðangri
þessum; spá ýmsir þvi, að þess-
ar árásir séu upphaf að þrálát-
um loftárásum með það fyrir
augum, að knýja ftalíu til þess
að biðjast friðar og leggja niður
vopn.
Churchill flytur rœðu
Á þriðjudaginn flutti Churchill
frsætisráðherra ræðu, þar sem
fram kom ineira bjartsýni horf-
um stríðsins viðvíkjandi, en
venja hefir verið til; taldi hann
það nú sýnt, að Bretar væri
Hitler yfirsterkari í loftinu;
vistaforði brezku þjóðarinnar
væri meiri en hann hefði verið
í striðsbyrjun, og tap brezkra
verzlunarskipa hefði um þrjá
síðustu mánuði, numið einungis
þriðjungi við það, sem viðgekst
fyrstu þrjá mánuði yfirstandandi
árs; en þó viðhorfið sýndist ó-
neitanlega nokkuð breytt til hins
betra, yrði samt hver og einn
brezkur borgari að vaka á verði,
því enn væri engan veginn loku
fyrir það skotið, að Hitler myndi
freista innrásar á brezku eyj-
arnar.
--------V---------
“Tímarnir breytaát”
(Til Þ. Þ. Þ.)
Þú ert stiltur, Þorsteinn,
—það er engin lýgi—
þrotlaus þolinmæði
þín — á hæsta stigi.
Einrænn ugludómur
ef mér væri sendur,
mundi eg köldum klaka
kasta á báðar hendur.
Veit eg sigursælli
samt er þögn og stilling,
meðan fram hjá flýtur
fordómanna trylling.
Oft varð þras um “Þyrna”
Þorsteins Erlingssonar:
drengur sá var dæmdur
dómum ýmis konar.
Fordóm fékk að launum
Fjallaskáldið góða
fyrir sál og sannleik
sinna beztu Ijóða.
Nú er nafni beggja
nælt á hæztu fána.
Þeir, sem þrá að fljúga,
þeirra fjaðrir lána.
Sannleik sögu þinnar
seinni tímar geyma,
blessa bækur þinar
bæði vestra og heima.
Sig. Júl. Jóhannesson.
September
f kjarri kveða þrestir
Sín kveðjuljóð i dag. ^
Þeir glöðu sumargestir
Nú grípa hrygðarlag.
Það deyfir unaðsóma
Og eykur hugarstríð,
Að hugsa um hreiðrið tóma
Og horfna sumartíð.
Þeir vinir ljóss og ljóða
Nú leita senn á braut,
Er fellir grundin góða
Sitt glæsta sumarskraut.
Þá hnígur blómið bjarta
Og bliknar laufa-krans,
Og hrolli slær að hjarta
Við haustsins grímudans.
Þó hapstið hernám geri
Og húmið ríki um stund,
Þó fölni flest sem gréri
Og fönnin hylji grund,
Er hríðin hús mitt leinur,
Eg heyri lífsins óð,
Og veit að vorið kemur
Með vængjaþyt og glóð.
Svo eins á æfihausti
Er að fer dauðastund,
f fullu friðartrausti
Eg festi hinzta blund.
En ljóss og lífsins kraftur
Mun leysa dauðans bönd.
Eg veit til vorsins aftur
Mig vekur Drottins hönd.
Kristján Pálsson.