Lögberg - 18.03.1943, Qupperneq 1
%
Tilkynning um námsstyrk til Vestur-
Íslendinga í íslenzkum fræðum
í háskóla islands
Eins og skýrt hefir verið frá
í íslenzku vikublöðunum, sam-
þykkti Alþingi íslande síðast-
liðið vor frumvarp um styrk til
íslendinga vestan hafs til náms
í íslenzkum fræðum í Háskóla
íslands.
Fyrir stuttu síðan barst stjórn-
arnefnd Þjóðræknisfélagsins til-
kynning frá sendiherra íslands
i Washington þess efnis, að með
lögum frá 4. júlí 1942 væri
kennslumálaráðherra íslands
heimilað að veita vestur-íslenzk-
um manni styrk úr ríkissjóði til
'fyrnefnds náms. Fylgdi þeirri
filkynningu bréf frá kennslu-
rriálaráðuneyti íslands þar sem
■riælst var til þess, að stjórnar-
nefndin gerði íslendingum í
Vesturheimi kunnug ákvæði urn.
ræddra laga og tæki við um-
sóknum um styrkinn. Verði
sb'kar umsóknir síðan sendar
úl heimspekideildar Háskóla ís-
lands með tillögum stjórnar-
nefndarinnar. Mun kennslumála
raðuneytið síðan ákveða hver
styrksins verður aðnjótandi með
hliðsjón af tillögum Þjóðræknis-
^élagsins og heimspekideildar-
innar.
Samkvæmt þeim fyrirmælum
eru ofannefnd lög því birt hér
almenningi til fræðslu og sér-
staklega væntanlegum umsækj-
endum til leiðbeiningar:
1. gr.
Kennslumálaráðherra skal
heimilt að veita manni af ís-
lenzkum ættum, einum í senn,
Sem búsettur er í Kanada eða
Randaríkjum Norður-Ameríku
°S lokið hefir stúdentsprófi þar,
atyrk úr ríkissjóði til náms í
lslenzkum fræðum í heimspeki-
öeild Háskóla Islands.
2. gr.
Námsstyrkur samkvæmt 1. gr.
skal miðaður við það, að nem-
andinn fái greiddan hæfilegan
kostnað af húsnæði, fæði og
kaupum nauðsynlegra náms-
bóka. Ráðherra úrskurðar kostn-
að þennan, að fengnu áliti heim-
spekideildar Háskólans, og skal
fæðis- og húsnæðiskostnaður
greiddur á mánuði hverjum fyr-
irfram.
3. gr.
Ráðherra ákveður, hver styrks
þessa skuli verða aðnjótandi i
hvert sinn, að fengnum tillög-
um stjórnar Þjóðræknisfélags
Islendinga í Vesturheimi og
heimspekideildar Háskóla Is-
lands.
Sá, er styrk hlýtur, skal
njóta hans með hann stundar
nám í deildinni, þó aldrei leng-
ur en 4 ár.
Athygli skal dregin að því, að
í lögunum um styrkinn eru eng-
in skilyrði sett um það, hvaða
störfum væntanlegir námsmenn
ætli að gegna að afloknu námi
sínu í Háskóla íslands. Ennfrem-
ur skal það tekið fram, að með
stúdentsprófi mun átt við B.A.
(Bachelor of Arts) próf eða jafn-
gildi þess.
Umsækjendur um námsstyrk
þennan eru beðnir að senda
umsóknir sínar til annarshvors
undirritaðra fyrir 15. maí næst-
komandi.
F. h. Stjórnarnefndar Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vest-
urheimi.
Richard Beck, forseti.
University Station, Grand
Forks, N.-Dakota.
J. J. Bíldfell, ritari.
238 Arlington £$. Winnipeg,
Manitoba.
\
HELZTU FRÉTTIR
cHurchill búinn að
sér.
Eins og vitað var, lá ChurchilL
Ursætisráðherra nýlega í lungna
bólgu, og fékk eigi gefið sig vití
stjórnarstörfum um hríð; nú er
bann að sögn orðinn albata, og
urætti í þinginu á mánudaginn;
Var komu hans á þing fagnað
^ð margföldum húrrahrópum.
Fkki flutti Mr. Churchill neina
raeðu að þessu sinni, en fyrir-
spurn vegna kafbátahernaðar
jóðverja svaraði hann á þá
eiu, að sameinuðu þjóðirnar
Vaeru öldungis á einu máli um
P*r varnarráðstafanir, sem
teknar yrðu á næstunni gegn
þes,
sum óvinafagnaði.
^HARKOV fallin.
Rússnesku hernaðarvöldin
ystu yfir því á mánudaginn, að
Prátt fyrir frækilegt viðnám aí
alfu rússneskra varnarsveita,
eíðu Þjóðverjar þá um morg-
Uninn náð Kharkov á vald sitt
! ^riðja sinn síðan Hitler hóf
lnurás sína í Rússland. Kharkov
er fjórða stærsta borgin í Rúss-
andi, 0g hefir geysimikla hern-
a arlega þýðingu, vegna fjöl-
*Us Járnbrautakerfis, er liggur
a 0rginni og frá. Megin orust-
stóð yfir í fjóra daga, og
°staði hvorutveggja aðilja
sUurle)gt mannfa(ll. Gagnsókn
Þjóðverja á stöðvum þessum
stóð enn yfir, er síðast fréttist,
og var harðsnúnust í Donets-
bugðunni suður og austur af
Kharkov.
Á norðvesturvíglínunni, sem
liggur að Ilmenvatni, hafa her-
skarar Nazista látið Undan síga,
og eins á mið-bardagasvæðun-
um, þar sem Rússar halda uppi
látlausri sókn í áttina til Smo-
lensk, sem teljast má aðal varn-
arvirki Þjóðverja í þeim hlufa
Rússlands.
MILJÓNAMÆRINGUR
LÁTINN.
Síðastliðinn Töstudag lézt að
Boca Grande í Florida, miljóna-
mæringurinn ameríski, J. P.
Morgan, heimsfrægur maður fyr
ir margháttaða fjármálastarf-
semi sína; hann var 75 ára að
aldri. Mr. Morgan var að skemta
sér við fiskiveiðar í Florida, er
dauða hans bar að.
•♦•■♦••♦■
FYRRUM BÆJARFULLTRÚI
LÁTINN.
Á mánudagskvöldið var, varð
bráðkvaddur í áheyrendasæt'
sínu í Amphitheatre hér í borg-
inni, J. Fred Palmer, fyrrum
bæjarfulltrúi fyrir 3. kjördeild,
69 ára að aldri. Mr. Palmer var
kosinn í bæjarstjórn árið 1827,
er Col.- Dan McLean lét af
bæjarráðsmannssýslan og bauð
sig fram til borgarstjóra. Mr.
Palmer rak fasteignaverzlun um
alllangt skeið.
ÁRÁSIRNAR Á ESSEN.
Svo magnaðar hafa loftárúsir
sameinuðu þjóðanna verið á
Essen upp á síðkastið, að stað-
hæft er, að þýzk hernaðarvöld
hafi orðið til þess knúin, að
flytja á brott úr borginni megin-
þorra barna og kvenna. I Essen
hafa bækistöð hinaar risafengnu .
Krupp-vopnaverksmiðjur, þær
mestu slíkrar tegundar í heimi,
og það var á þeim, sem Bretar
og bandamenn þeirra vildu ná
sér niðri; hafa spjöll orðið þar
svo mikil af þessum orsökum,
að framleiðsla hefir að minsta
kostí um stundarsakir þorrið til
helminga,
•f •♦• -f
TILLÖGUR UM ÞJÓÐFÉLAGS-
LEGT ÖRYGGI.
Eftirlaunaráðherra sambands-
stjórnar, Mr. Mackenzie, lagði
fyrir sérstaka þingnefnd á
þriðjudaginn, tillögu um þjóð-
félagslegt öryggi í Canada, varð-
andi fólk á öllum aldri; fara
þær í líka átt og Beveridge-
uppástungurnar á Bretlandi. Ný-
mæli þau, sem Mr. Mackenzie,
og þá vitaskuld ráðuneytið í
heild, telur nauðsynlegt að þing
ið samþykki, fara fram á hækk-
aðan styrk til barnauppeldis;
og ellistyrk er nemi $30 á mán-
uði, og að aldurstakmark styrk-
þega sé lækkað fyrir karlmenn
niður í 65 ár, en konur 60 ár.
Atvinnuleysisstyrk skal hækka
þannig, að hann nemi $4.80 á
viku fyrir einhleypa menn, en
$14.40 fyrir giftar persónur. Ör-
orkubætur skulu nema $30 á
mánuði fyrir einhleypa en $45
fyrir giftar persónur; sérhverj-
um þjóðfélagsþegni skal trygð
læknishjálp; barnsfararstyrkur
skal veittur atvinnulausum kon-
um, en ekkjustyrkur skal kom-
ast til jafns við ellistyrk.
Styrkur til jarðarfara, er á-
ætlaður $100 fyrir fullorðna,
$65 fyrir unglinga, en $25 fyrir
börn.
Þá er og ráðgert, að lagt verði
fyrir þing frumvarp til laga um
almennar heilsutryggingar, þar
sem svo skal fyrirmælt, að sam-
bandsstjórn leggur hinum sér-
stöku fylkjum til vissar fjár-
hæðir í slíku augnamiði.
♦ -♦- ♦
ÞINGLAUSNIR.
Á miðvikudaginn var Mani-
tobaþinginu slitið undir forustu
hins nýja forsætisráðherra, Hon.
Stuarts S. Garson; var þetta eitt
hið allra friðsamasta þing, er
sögur fara af; jafnvel afgreiðsla
fjárlaganna fór fram svo að
segja hljóðalaust; nokkurs hita
var vart í umræðunum um það
hvort banna skyldi veðreiðar
hér í fylkinu meðan á stríðinu
stæði; fyrir banninu barðist Mr.
Stubbs, fyrrum héraðsréttar-
dómari, og utanflokka þingmað-
ur fyrir Winnipeg-borg; en svo
fór að lokum, að þingsályktunar-
tillaga G. S. Thorvaldson, Winni-
peg, um að veðreiðar yrðu heim-
ilaðar eins og að undanförnu,
var samþykkt, með miklu afli
atkvæða. Svo fór um sjóferð
þá. .
Þá kom í ljós hjá háttvirtum
þingmönnum kapp nokkurt út
af því, hvort banna ætti börn-
um innan 14 ára aldurs aðgang
að kvikmyndasýningum, eða
ekki; þeim hefir verið leyft það
fram að þessu; mál þetta var
réttilega svæft í nefnd, og verð-
ur því engu í þessu efni um
brevtt að sinni.
Kosinn í trúnaðarstöðu
Dr. Halldór Hermannsson.
Á ársfundi stjórnarnefndar
menningar- og fræðafélagsins
The American Scandinavian
Foundation, sem haldinn var í
New York borg þann 6. febrúar
síðastliðinn, var dr. Halldor Her-
mannsson, prófessor í norræn-
um fræðum í Cornell University,
Ithaca, New York, kosinn einn
af forráðamönnum (Trustee)
nefndrar stofnunar, en hann
hefir um margra ára skeið átt
sæti í útgáfunefnd hennar. Með
kosningu þessari er honum mak-
legur sómi sýndur og verðug til-
trú, en jafnframt má skoða hana
sem viðurkenningu á auknum
menningarsamböndum milli ís-
lands og Bandaríkjanna, er vax-
andi fjöldi íslenzkra stúdenta
stundar nú nám við mennta-
stofnanir í landi þar. Kosning
íslendings í umrædda trúnaðar-
stöðu mun og mega líta á sem
vott aukins áhuga í Bandaríkj-
unum á íslenzkum bókmentum
og menningu þjóðar vor’rar. I
því sambandi má geta þess, að
John Watkins, umsjónarmaður
stúdenta-starfsemi The Ameri-
can Scandinavian Foundation,
stundar nú nám í íslenzku undir
handleiðslu Halldórs prófessors
í Cornell.
Halldór Hermannsson varð
hálf-sjötugur upp úr áramótun-
um, því að hann er fæddur 6.
janar 1878. Hann lauk stúdents-
prófi á lærða skólanum í Reykja
vík 1898 og stundaði síðan nám
á háskólanum í Kaupmannahöfn
1901— 1904; en snemma á þeim
árum komst hann í kynni við
íslandsvinirm og fræðimanninn
Willard Fiske og gerðist hon-
um handgenginn og samverka-
maður hans að ýmsum fræði-
störfum. Síðan 1905 hefir Hall-
dór Hermannsson verið bóka-
vörður hins mikla íslenzka Fiske
bókasafns í Cornell, en jafnhliða
hefir hann haft með höndum
kennslu í Norðurlandamálum og
bókmenntum og verið prófessor
í þeim fræðum síðan 1924.
Háskóli íslands gerði Halldór
Hermannsson heiðursdoktor í
heimspeki Alþingishátíðarárið
1930. Islandsstjórn gerði hann
Stórriddara með stjörnu af
Fálkaorðunni 1939, en áður
hafði hann sæmdur verið bæði
Riddara- og Stórriddarakrossi
þeirrar orðu. Hann er heiðurs-
félagi í Bókmenntafélagi Islands
og einn af elstu heiðursfélögum
Þjóðræknjsfélags íslendinga í
Vesturheimi.
Hin umfangsmiklu fræðistörf
Halldórs Hermannssonar eru
íslendingum beggja megin hafs-
ins löngu kunn, og leyfi eg mér
að vísa til greinar minnar um
það efni í Tímarili Þjóðraeknis-
félagsins í fyrra. Meta landar
hans hann og virða að verð-
leikum fyrir þá merkilegu og
þörfu stárfsemi hans.
Veit eg‘ því, að eg tala eigi
aðeins í nafni Þjóðræknisfélags-
ins heldur einnig fyrir munn
landa hans almennt í landi hér,
er eg flyt honum hugheilar ósk-
ir í tilefni af kosningu hans í
fyrnefnda virðingarstöðu og í
tilefni af nýafstöðnu 65 ára af-
mæli hans. Er það einlæg ósk
vor, að hans megi enrí lengi
njóta á vettvangi íslenzkra
fræða.
Richard Beck.
Jón Halldórsson
Á miðvikudaginn í fyrri viku,
var til moldar borinn Jón Hall-
dórsson frá Kúfustöðum í Svart-
árdal, fæddur á þeim bæ _þann
5. apríl árið 1875. Hann kom
hingað til lands 8 ára að aldri;
voru foreldrar hans og systkini
komin vestur nokkuru á undan
honum, og sezt að í Nýja-ís-
landi; hjá foreldrum sínum ólst
Jón þaðan af upp, en tók
snemma að vinna fyrir sér sjálf-
ur, svo sem títt var um börn
íslenzkra landnema hér um
slóðir, því mörg voru átökin, og
mörg þau Grettistök, er lyfta
þurfti á frumbýlisárunum. Jón
var snemma hagur við vinnu,
og kom það sér af skiljanlegum
ástæðum vel, þar sem verkefnin
voru bæði mörg og frábrugðin.
Þann 1. marz, árið 1902, kvænt-
ist Jón, og gekk að eiga Önnu
Sigurðardóttur frá Hryggstekk
í Skriðdal, hina mestu greindar-
og tápkonu; reistu þati þegar
bú í Víðisbygð, og dvöldu þar
15 fyrstu hjúskaparár sín, en
fluttu að þeim tíma liðnum til
Riverton og dvöldu þar lengst
af sínurn samverutíma.
Þeim Jóni og Önnu varð 8
barna auðið; fyrsta barnið Guð-
finna Ingibjörg, dó í æsku, hin
7, sem eftir lifa, verða hér tal-
in í aldursröð:
María, gift Gunnsteini East-
man, búsetj í Winnipeg; Ingi-
björg Lillian, gift Jochum Ás-
•geirssyni, rafvirkja í Winnipeg;
Kristjón Sigurður, kvæntur
Aðalheiði Jónasson, Winnipeg;
Sigríður Felicitas, gift Edward
W. Hammill, Flin Flon; Thor-
berg Halldór, kvæntur Júlíönu
Thorsteinson, Winnipeg; Guð-
finna, gift William E. Lynch.
Calgary, og Sigurbjörg Rose,
gift G. A. Bardal, Winnipeg.
Auk ekkju sinnar og fyr-
greindra barna, lifa Jón þrjú
systkini: Tistran í Goldfield,
Sask., Thorbergur á Betel, og
Margrét í Victoria, B. C.
Öll eru börn þeirra Jóns og
Önnu glæsilegt drengskaparfólk.
Jón var maður bókhneigður,
og laglega skáldmæltur, þó eigi
kæmist hann í þeirri grein til
jafns við Baldvin bróður sinn,
sem var einn af snjöllustu fer-
Skeytlumeisturum sinnar tíðar.
Jón var hinn mesti fríðleiks-
maður, og fíngerður í fram-
göngu; hann var óvenju við-
kvæmur í lund, og þoldi ekki
vel mótbyr; hann var gleði-
maður í aðra röndina og skemt-
inn í vinahóp, þó vinir hans,
jafnvel líka þá, findu til draum-
kends alvöru — eða þunglyndis-
tóns; hann var trygglundaður
maður og góður drengur.
Útför Jóns Halldórssonar fór
fram frá Sambandskirkjunni í
Winnipeg áminstan miðvikudag,
að viðstöddum fjölmennum
hópi ástvina og annara sam-
ferðamanna. Séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
Þökk fyrir gleðina alvöru-
blöndnu, góði vinur, og sólin
blessuð signi þig.
E. P. J.
TUNISÍA.
Af vígstöðvunum í Tunisíu
hafa engar fregnir borist síð-
ustu daga, er máli þykja skipta;
landorustur hafa enn eigi háðar
verið, er nokkru verulegu ráði
um úrslit; en báðir hernaðar-
aðiljar þreyta daglega rann-
sóknarflug yfir hinum ýmsu
varnarvirkjum með það fyrir
augum, að reyna að komast að
hvar hvor um sig sé veikastur
fyrir. Veðurfar í Tunisíu hefir
verið næsta mislynt upp á síð-
kastið, og umferð hin versta.
Séra Guðmundur Arnason
Dáinn 24. febrúar 1943.
Höggvið er djúpt á hjartans mið
harmur kveðinn er Frónskum lýði.
Árlega fellur landnáms lið
leiðandi menn og þjóðar prýði.
Sjaldan fanst nokkur fremri þér
fjölhæfur, lærður, prestur mætur,
valmennið sitt, í valnum hér,
vestur íslenzka þjóðin grætur.
Alstaðar barst þú höfuð hátt,
hreinskilinn sannleiks vinur svarinn.
Ofvaxið þér var ærið fátt,
afburða snjöllu rnáli farinn.
Þurfandi fólki lagðir lið,
löngum var knúð á góðvild þína.
Þitt var hið æðsta mark og mið,
manndóm og kærleik öllum sýna.
Rökstudd og sönn þín ræða var,
rífc af hugsun og kærleiks anda;
vitni um andans auðlegð bar
orðsnildin þín í mestum vanda.
Glaðværð þú vildir glæða mest,
gáfum og elju til þess fórna,
ávalt það tókst þér einum bezt
almennings gleði fundum stjórna.
Særðir vinir með sorgarbrag
senda þér ástar þökk í hljóði,
söfnuður, kirkja og kvenfélag,
kveðja þig elsku vinur góði.
Móti þér brosi lífsins lönd,
lífið nýja þér fögnuð boði,
faðmi sál þína, á friðarströnd,
fagur guðsríkis morgunroði.
V. J. Gutlormsson.