Lögberg - 08.04.1943, Blaðsíða 1

Lögberg - 08.04.1943, Blaðsíða 1
56 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 8. APRÍL 1943. NÚMER 14 HELZTU ber gandhi einræði Á BRÝN. Mr. Clement Attlee, vara- forsætisráðherra brezku stjórn- arinnar, flutti ræðu í brezka þinginu á miðvikudaginn þann 13. marz, s. 1., um Indlands- málin, þar sem hann bar Gandhi það á brýn, að hann væri for- hertur einræðissinni. “Eg hata einræði”, sagði Mr. Attlee, “í hvaða mynd, sem það birtist, hvort heldur sem það kemur fram hjá dýrlingi eða synda- sel.” Mr. Attlee kvað brezku stjórn inni mjög umhugað um það, að veita Indlandi fullkomið sjálf stæði, þó hún á hinn bóginn væri ófús á, að fela völdin ein- stökum sérkredduflokk í hendur. •f ♦ mr. eden í ottawa. Rt. Hon. Anthony Eden, utan- ríkisráðherra brezku stjórnarinn ar, flutti ræðu í sameinuðu þingi í Ottawa síðastliðinn fimtudag, þar sem hann varaði alvarlega áheyrendur sína við því, að láta sér það til hugar koma, að stríðið tæki skjótan enda, því langtum fleira benti í þá att, að það yrði langdregið, og fylztu átaka þörf af hálfu binna sameinuðu þjóða áður en yfir lyki; hitt væri og auðsætt,t að SVO framarlega að’ tryggt ætti að vera um framtíðarfrið, yrði óhjákvæmilegt að afvopna með óllu Þjóðverja, Itali og Japana, að loknu yfirstandandi stríði. aldarfjórðungsafmæli. Þann 1. þ. m. átti konunglega flugliðið brezka aldarfjórðungs- afmæli, og var þess minst með viðeigandi mannfagnaði í Lond- °n. I tilefni af atburðinum, var Churchill forsætisráðherra kos- inn heiðursfélagi í flugliðinu; hann lærði að stjórna flugvél árið 1913, og hefir flogið 30 þúsund mílna vegalengd síðan að yfirstandandi styrjöld hófst, °g ' þrásinnis haldið sjálfur um hjálmunvöl' í slíkum leiðangr- um. ♦ ♦ ♦ JAPANIR fá sína VöRU SELDA. Um síðustu helgi komu amerískar flugvélar auga á Japanska skipalest, sem var í þann veginn að hafna við Kavieng á New Ireland eyjunni; þær veittust þégar að skipa- lestinni, og lintu eigi atsókn fyr eu sjö herskip voru meira og ftúnna löskuð, og sumum ef til viH sökt,* auk þess sem fjögúr allstór vöruflutningaskip sungu þarna sitt síðasta vers. ♦ ♦ ♦ TóNSNILLINGUR látinn. Þann 29. marz síðastliðinn, lézt að heimili sínu að Beverly Hills í Californíuríkinu, rúss- neski tónsnillingurinn Sergei V. Rachmaninoff, tæplega sjötug- Ur að aldri; hann var fæddur í Novgord-fylki í Rússlandi. Rach fiaaninoff efndi til sinna fyrstu lúanóhljómleika, er hann var 9 ara að aldri; hann .var sérkenni- ^egt tónskáld, og varð heims- frægur maður fyrir preludíu sma í C-moll, sem jafnan mun lalin verða til hinna ódauðlegu listaverka; hann var búsettur í Bandaríkjunum síðan 1917. Síðustu hljómleika sína í ^Vinnipeg hélt Rachmaninoff í lóvembermánuði 1934. FRÉTTIR . HERMDARVERKí KHARKOV. Rússneskir föðurlandsvinir urðu þýzkum hermanni að bana í Kharkov, skömmu eftir að Þjóðverjar náðu haldi á borg- inni í þriðja sinn; og í hefndar- skyni fyrir þenna eina mann, létu þeir taka 200 Rússa af lífi án dóms og laga. ♦ ♦ •♦ TVENNIR FLOTAR UNDIR EINNI STJÓRN. Samkvæmt fregnum frá London þann 30. marz síðastl., hefir Karl Doenitz, aðmíráll tek- ist á hendur yfirstjórn þýzka og ítalska flotans í sameiningu. Doenitz er sægarpur mikill, og hefir frá því í stríðsbyrjun haft á hendi yfirumsjón með kaf- bátahernaði þjóðverja. ♦ ♦ ♦ SPRENGJUÁRÁS Á KISKA. Amerískar sprengjuflugvélar gerðu þrjár árásir á þriðjudag- inn var á Kiska, sem er megin- bækistöð Japana á Aleutian- eyjunum, og ollu þar að sögn, all tilfinnanlegu tjóni, skutu niður fjórar japanskar flugvél- ar, og sprengdu benzíngeyma. í öllum þessum árásum mistu Bandaríkjamenn eina orustu- flugvél. ♦ ♦ ♦ FER FRAM ÚR ÁÆTLUN. Fjársöfnuninni í sjóð Rauða krossins í þessu landi, er nú lokið, og komst hún nokkuð yfir hið setta 10 miljón dollara mark. Skerfur sá, sem íbúar Manitobafylkis var ætlaður, var miðaður við 600 þúsund dollara; en um það, er söfnuninni lauk, voru framlög fylkisins komin upp í $633,434.12. ♦ ♦ ♦ DANSKAR VERKSMIÐJUR SÆTA SKEMDUM AF VÖLD- UM BREZKRA FALLHLÍFA- HERMANNA. Þýzka útvarpið gerði það heyrum kunnugt á föstudaginn var, að brezkir fallhlífahermenn hefðu þá alveg nýverið orsakað hin og þessi eignaspjöll víðs- vegar um Danmörku, þó mest hefði kveðið að skemdum í Kaupmannahöfn, þar sem fjórar verksmiðjur og þýzkar herbúðir hefðu brendar verið til kaldra kola. Nazistar börmuðu sér ámát lega yfir þessum tilverknaði, og töldu hann benda augljóslega í áttina til yfirvofandi innrásar á meginland Norðurálfunnar. * * * WILLIAM EDDIE LÁTINN. Á föstudaginn var lézt á St. Joseph’s sjúkrahúsinu hér í borginni, William Eddie fyrrum yfireftirlitsmaður siðgæðislög- reglunnar í Winnipeg, 71 árs að aldri; hann lét af starfi sínu með fullum eftirlaunum árið 1937. * * * FRÁ HELJARSLÓÐ RÚSSLANDS. Umferð á Rússlandi hefir und- anfarna daga verið svo torveld vegna vorleysinga, að heþnaðar- aðgerðir þar hafa að mestu hjakkað í sama farinu. Tilraun- ir Þjóðverja til þess að komast á ný yfir Donetsfljót, hafa þó fram að þessu engan árangur borið. Á Smolensk vígstöðvun- um, eru vegir svo illir yfir- ferðar, að eigi hefir verið unt að koma við skriðdrekum, og því mest verið um rannsóknar- flug á þeim svæðum. Snarpt áhlaup, sem Þjóðverjar gerðu á mánudaginn á liðssveitir Rússa suður af Izyum, endaði samt með skelfingu og allmiklu mann tjóni af hálfu Nazista. KJÖTSKÖMTUN í AÐSIGI. Fjármálaráðherra sambands- stjórnarinnar, Mr. Ilsley, lýsti yfir því í þinginu á fimtudag- inn, að kjötskömtun í Canada myndi ganga í gildi snemma í næstkomandi maí-mánuði, og yrði vikulega tvö pund á mann. * * * HERT Á LOFTÁRÁSUM. Undanfarna daga, sýknt og heilagt, hafa loftgammar sam- einuðu þjóðanna helt eldi og brennisteini yfir Þýzkaland, Frakkland, Holland og Belgíu; mest hefir þó að árásum þess- um kveðið á Essen og hafnar- borgina Kiel, þar sem umfangs- miklar skipasmíðastöðvar eru starfræktar. Canadiskir flug- menn tóku þátt í þessum snörpu atrennum, og létu ekki sitt eft- ir liggja, að því er við kom frækilegri sókn; þeir mistu þrjár orustuflugvélar, en Bretar átta; flugvélar Þjóðverja varð helm- ingi meira. Þoka var meðan árás in á Kiel stóð yfir, svo örðugt var að átta sig á árangri. Daginn eftir sveimuðu rannsóknarflug- vélar yfir borginni í heiðskíru veðri og tóku ljósmyndir; og eftir þeim að dæma, höfðu skemdir á ýmissum .verksmiðj- um, járnbrautum og rafstöðv- um, orðið geysimiklar. ♦ ♦ ♦ BLÓÐSÚTHELLINGAR í AÞENU. Á fullveldisdag grísku þjóðar- innar þann 1. þ. m., gengu fylk- ingar grískra föðurlandsvina um meginstræti Aþenu undir þjóð- fána Grikkja, og sungu ættjarð- arsöngva; þetta þoldu ekki hern aðarvöld þjóðverja, skutu þegar með vélbyssum á flokka hinna grísku ættjarðarvina og létu margir þeirra líf sitt. ♦ ♦ ♦ VÍSAR AF SÉR TIL FYLKJANNA. Ellistyrksmálið kom til um- ræðu í sambandsþinginu seinni part vikunnar, sem leið; héldu ýmsir þingmenn úr öllum þing- flokkum því fram, að stjórninni bæri að sinna þessu máli hið bráðasta, annaðhvort með hækk uðum ellistyrk að lögum, eða þá með greiðslu dýrtíðaruppbót- ar. Fjármálaráðherrann, Mr. Ilsley, svaraði á þá leið, að elli- styrksmálið kæmi undir vald- svið fy.lkjanna, og sambands- stjórn gæti þar engan hlut átt að nema því aðeins, að stjórnar- skrár breytingu yrði fyrst hrund ið í framkvæmd. I ♦ ♦ ♦ BARÁTTAN UM TUNISÍU. Þar hefir oltið á ýmsu upp á síðkastið, og sókn sameinuðu herjanna miðað treglega áfram vegna óhagstæðs veðurfars; báð- ir hafa stríðsaðiljar öflugum landher á að skipa, þó nú séu miklar líkur á að yfirburðir hinna sameinuðu þjóða í loft- inu, ríði á sínum tíma bagga- muninn. Megin herskipahöfn möndul- veldanna á vígstöðvum þessum, Bizerta, hefir verið hart leikin af þrálátum sprengjuárásum bandaþjóða úr .lofti, og hafa möndulveldin í þeirri orrahríð mist yfir fjörutíu orustuflug- vélar, auk þess sem skip af ýmissum stærðum, er á höfn- inni lágu, hafa sætt meiri og minni skemdum. ♦ ♦ ♦ HÆKKAÐAR TEKJUR. Árið, sem leið, námu tekjur þjóðeignabrautanna, Canadian National Railways, $375,000,000, eða rúmum 20 miljónum dollara umfram tekjurnar frá fyrra ári. SVÍUM SEND MÓTMÆLI. Samkvæmt fregnum frá Lond- on á mánudaginn, hefir stjórn Breta sent sænsku stjórninni mótmæli út af því, að hún hafi leyft þjóðverjum flutning her- liðs og flugvéla um Svíþjóð; hverju sænska stjórnin svarar til, er enn eigi vitað. * * * ÞINGFRESTUN í LOK NÆSTU VIKU. Forsætisráðherrann, Mr. King, hefir lýst yfir því, að í lok næstu viku verði þingfundum frestað fram yfir páskana, eins og venja stendur til; einstöku þingmenn eru frestuninni mót- fallnir, og telja það mun æski- legra, að þing haldi áfram störf- um sínum slindrulaust, og ljúki þeim mun fyr við verkefni þau, sem liggja fyrir. Mr. Coldwell, leiðtogi C.C.F. flokksins, fór fram á það við forsætisráðherra, að hann hlut- aðist til um það, að haldinn yrði á naéstunni lokaður þingfundur til þess að ræða um ýmis mikil væg mál varðandi stríðssókn- ina. Mr. King vildi engu um það lofa, en R. B. Hanson kvað kröfu Coldwell til þess borna fram, að vekja athygli á flokk hans með hliðsjón af kosningum. * * * HELDUR SÉR VIÐ GULLIÐ. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Henry Morgenthau, hefir látið í ljós þá skoðun sína. að óhjákvæmilegt verði að loknu stríði, að allur gjaldmiðill þjóð- anna sé trygður nieð gulli. ♦ ♦ ♦ SKIPATJÓN MÖNDULVELDANNA. Útvarpsstöðin í Algiers hefir tilkynt, að í marz-mánuði síðast- liðnum hafi möndulveldin mist 25 skip af völdum kafbáta í Miðjarðarhafinu, auk 32 er hafi meira og minna laskast. * * * NÁLGAST NOVOROSSISK. Að því er nýjustu fregnir frá Moskva herma, er rússneski her- inn kominn að austanverðu í nárhunda við hafnarborgina Novorossisk við Svartahafið, þrátt fyrir ítrekaðar gagnsóknir af hálfu þjóðverja. Gaman og alvara Amerískur sjómaður: — Sum herskipin okkar eru það stór, að skipstjórarnir verða að láta aka sér í bíl um þilförin, þegar þeir eru að líta eftir, að allt sé í röð og reglu um borð. Enskur sjómaður: — Ekki þykir mér það nú mikið. Matar- potturinn í eldhúsunum á skip- unum okkar eru það stórir, að matsveinarnir verða að sigla um þá á kafbátum, til þess að rann- sajca, hvort kartöflurnar séu soðnar. ♦ ♦ ♦ Útlendur rithöfundur skrifaði vini sínum á þessa leið: — Þ,ú spyrð mig, hvaða ánægju eg hafi af lífinu og hvers vegna eg haldi áfram að starfa. Eg held störfum mínum áfram af sömu ástæðu eins og hænan heldur áfram að verpa eggjum. Hver einasta lifandi vera hefir í sér fólgna starfsþrá. Lífið krefzt þess, að því sé lifað. Aðgerðar- leysi er stórskaðlegt bæði líkama og sál; það er í raun og veru óhugsandi. Engir nema deyj- andi menn geta verið algerlega aðgerðalausir. Tveir víðfrægir sijórnmálamenn. Á mvnd þessari getur að líta tvo víðfræga stjórnmálamenn, þá Rt. Hon. Anthony Eden, utanríkisráðherra Breta, og Rt. Hon. W. L. Mackenzie King, forsætisráðherra Canadisku þjóðarinnar. Mr. Eden kom til Ottawa sunnan úr Banda- ríkjunum í sömu orustuflugvélinni og hann ferðaðist með frá London til höfuðborgar Bandaríkjanna. Meðan Mr. Eden dvaldi í Ottawa flutti hann áhrifamikla ræðu í sam- einuðu þingi, eins og þegar hefir verið vikið að hér í blaðinu Litla húsið Eftir L. A. Johannson. Sjá litla húsið, er í eyði stendur og öllum lokað nótt og bjartan dag; þar stara blindir blæjulausir gluggar á borgarlíf um fagurt sólarlag. Sjá gamla strompinn, enn sem höfði heldur og hluttekningu þeirra fyrirleit er fram hjá gengu, og ræddu í lágum lestri um leyndarmál, sem auða húsið veit. Sjá litla húsið, — leiðist því á kvöldin, er langir skuggar teygjast yfir snæ? Þar tíndra rúður, tár sín reyna að dvlja er tendruð skína ljós um allan bæ. Sjá litla húsið, eins og órótt bíði að endurskapist fyrri hagur sinn; að gömul kona, gráhærð dyrnar opni við gestum brosi og segi: “Kom þú inn-” Sig. Júl. Jóhanneson, þýddi. Hreiðar E. Geirdal: Máttur orðsins Málsins göfga upphaf ómar alltaf, þegar dagur ljómar, endursögð um heiminn hljómar Herrans skipun: Verði ljós. Orðin sundra öllum kvíða, — eins og söngvar helgitíða — vekja líf í alheims æðum, orkustraum til lands og sjós. Krafti máls um aldir alda enginn syngur verðugt hrós. \ Þokur hæst í hæðum brunnu. Hnettir nýjar brautir runnu. Glóðu í mistri geislar sunnu. Gengu í bylgjum lönd og haf. Dreifði skuggum dagur feiminn. Drottinn var að skapa heiminn. Skipun hans, með helgikrafti, hknni og jörðu framtíð gaf. Máttur orðs varð allra hluta uppistaða og fyrirvaf. Hjarðir krupu að lífsins lindum. Löndin náðu föstum myndum. Gróður óx að efstu tindum, alla leið frá sævarströnd. Ægisbúum öldur sungu ás^arljóð á hafsins tungu. Ár og lækir lendur skreyttu líkt og fögur silfurbönd. Fossar þuldu þýða söngva, þeyttu úða um gróðurlönd. Röðull vermdi grös á grundum, geisla rétti vík og sundum. Fuglar sungu í fögrum lundum, færðu Drottni þakkargjörð, Vizka og snilli voru að mætast. Vonir stærstu áttu að rætast. v Mett af blessun láðs og lagar lifði farsæl dýrahjörð. Út úr myrkri, auðn og tómi orðið seiddi fagra jörð. SamtíSin.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.