Lögberg - 29.07.1943, Side 1

Lögberg - 29.07.1943, Side 1
Þjóðerni og Kirkja Það er mikið talað um inn- rásir um þessar mundir, og þær eru víða gerðar. Innrás í Eng- land var talað um á sínum tíma og er ef til vill enn. Og innrás á meginland Evrópu hefir lengi verið á dagskrá, svo að nefnt sé aðeins það stærsta. Vér hér á landi höfum líka talað um innrás, liðna og vænt- anlega, innrás á sjó eða í lofti. Alt er þetta innrásir vopnaðs liðs, innrásir, er miðai að því að hertaka löndin með vopnavið- skiftum — eða án þeirra. ef hinn aðilinn sér sér ekki fært að verjast. Noregur varðist inn- rás, en Danmörk ekki, en sama var gerðin á báðum stöðum í raun og veru. Hingað var og gerð innrás með sama hætti. Vopnað lið kom og fór sínu fram. Nú er hér enn vopnað lið, er hingað kom eftir samningi, en innrás var það á sama hátt. Ef ekki hefði verið ófriður í heiminum og innrásir gerðar, hefðu ís- lendingar ekki þurft að biðja og ekki beðið um neina vernd. Þá værum við ekki farin að sjá neitt herlið hér á íslandi, annað en þessa gaman-dáta, sem stundum stigu hér á land af herskipum, þar sem tappar voru í öllum fallbyssuhlaupum og friðarplástur yfir hermanns- hjartanu. Við lifum á tímum innrásar og hermennsku. tímum, þegar gamanið er á brott en alvaran starir andvökuaugum á hvern mann. Við lifum á ógnatímum og vitum þó minnst. af ógnun- um en sem komið er. En í hættunni érum við — ekki að- eins yfirvofandi hættu utan frá, þeirri ókomnu, heldur beinlínis í hættunni. Það er í veði, sem að réttu er ekki minna dýrmæti en líkamlegt líf og vellíðan. Öllum er það Ijóst, að með komu hins fjölmenna erlenda herliðs steðjaði að þjóðinni hætta, sem er ný og einstök í sögu landsins. Um þetta hefir verið skrifað og skrafað, fundir haldnir og ályktanir samþykkt- ar og jafnvel “gerðar innrásir”. Flest af því hefir þó lotið að einu atriði, mökum íslenzkra kvenna við hina erlendu her- menn, rétt eins og engin önnur hætta stafaði af þessari miklu innrás. Vissulega hefir þetta verið orð í tíma talað, enda hef- ir það sennilega verið lesið og samþykkt af flestum nema þeim, sem hlut áttu að máli og áhrif atti að hafa á. En ekki er nóg að líta í þessa einu átt. Víðar oru hættur, sem steðja að þjóð- emi okkar af völdum þessarar innrásar. Og þó að við séum sjálfsagt og með réttu hneyksl- UÖ á framferði stúlkna þeirra, sem ganga hugsunarlaust með orlendum hermönnum, þá hefð- om við gott af að renna einnig sugunum til aninara, og meðal snnars okkar sjálfra og athuga, hve vel þar er' staðið á verði. f’að mætti líka kannske ætlast til meira af sumum öðrum en þessum vesalings stúlkum, sem illa hafa staðizt einkennisbún- ingana og þá, sem í þeim eru. Hér kom nýlega á döfina mál, som íét lítið yfir sér, en var þannig vaxið, að það var góður Prófsteinn á varðmeAnina. Eins og almenningi er kunn- u'gt, hefir brezki herinn fengið afnot íslenzka útvarpsins, eg mtla eina klukkustund á dag, °g notað þessa stund til þess að akemmta mönnum sínum hér, k>æði með því að endurvarpa fréttum frá Englandi og flytja ýmislegt skemmtiefni. Enginn hefir amazt við þessu. Á sjó og landi njóta þessa útvarps margir menn, sem allir hljóta að kennS í brjósti um, menn, sem rifnir eru frá heimilum og venjulegum háttum öllum og settir á vörð hér á norðurhjar- anum. Þeir ná betur til íslenzku stöðvarinnar en heimastöðv- anna. Einn tíma á dag er spjall- að við þá og á þeirra máli fyrir milligöngu þessarar ná- lægu stöðvar, talað og sungið og leikið. Nú eru hér komnir miklu fleiri rnenn frá Ameríku. Og þó að þeir skilji enskuna og hevri hana sem sitt móðurmál, þá má búast við því, að þeim þyki sér eitthvað annað henta. Og nú hafa þeir farið fram á að fá einnig útvarpsstöðina íslenzku til sinna þarfa. Og þeir hafa boðið meira. Þeir vilja helzt fylla út í þann tíma, sern^ við ætlum ekki að nota stöðina, og þeir vilja einnig tala á íslenzku, tala við íslendinga. Og um þetta var gerður samn- ingur. Nú hrukku imennj við, og raddir hófust gegn þessu. Hér væri verið að fara inn á svið, sem engri átt næði að hleypa neinum inn á nema fslending- um sjálfum. Við ættum sjálfir að ráða því fullkomlega, hvern- ig þetta mikla áróðurstæki. út- varpið, væri notað í viðskiftum við okkar eigin þjóð. Þar dygði ekkert “eftirlit”, því að fljótt myndi reynast ókleift að vísa nokkru frá, sem hinn erlendi aðili vildi bjóða fram. Eg er þessu fullkomlega sam- þykkur. / Við getum ekki neitað hinum einmana hermönnum, hvort sem þeir eru frá Englandi eða Ame- ríku, um það, að fá að nota út- varpið einhverja ,stund á degi hverjum til þess að fá fréttir og annað til gamans og dægra- styttingar. En svo er því líka lokið, sem við getum leyft. Hér er ekki að ræða um vinsemd eða óvinsemd. Þetta er metnaðar- mál, grundvallarregla, sem ekki á að víkja frá. Eg ætla ekki að ræða þetta mál hér, heldur nefni eg það einungis sem dæmi. Mér dettur ekki í hug að ætla þeim neitt illt, er að þessum samningi stóðu, hvorki frá hlið Ameríku- manna né fslendinga. En það eftirtektarverðasta í málsvöm íslendinga er það, að þessi samningur virðist hafa verið gerður í hálfgerðu hugs- unarleysi. Þetta var svo lítil- fjörlegt í augum þeirra, er þá gerðu. Ef til vill hefir það verið það — og ef til vill ekki. Það fer eftir því, hvernig á það er litið. Við verðum að skilja það, að hver þjóð hefir sínar sérstæðu skyldur. Stórþjóðirnar hafa sín- ar skyldur. Þær verða að vera við hinum miklu átökum bún- ar. En smáþjóðirnar hafa sínar skyldur við sjálfar sig og þær því brýnni, sem þær eru smærri. Og þar er ein fremsta skyldan að vera sí og æ á verði. Það er varúðin, mér liggur við að segja tortrignin (í góðri merk- ingu), sem smáþjóðirnar verða að þjálfa sig í. Við eigum klassiskt dæmi þessa, þar sem er beiðni ólafs konungs Haraldssonar um Grímsey og svar Einars Þver- æings. Grímsey var vesaldar- hólmi, langt frá landi, kaldur og verðlítill. Var það ekki til- valið að s’na Ólafi konungi þá velvild, að lofa honum að fá þennan hólma, og var það ekki beinlínis hyggilegt, að verjast frekari kröfum hans án þess að glata vináttu hans, með því að gera honum þennan litla greiða? Reynslan skar ekki úr þessu, því að ráð Einars var tekið, að gefa ekki Grímsey. Ekki einu sinni Grímsey. Ýms dæmi mætti nefna. Skömmu fyrir ófriðinn komu hingað sendimenn frá þýzku flugfélagi með samingsboð um það, að koma upp flugsamgöng- um milli íslands og meginlands Evrópu. Félagið var hér að góðu kunnugt. Það hafði stutt mjög að því, að flugferðir hér innan- lands hófust. Og aðalsendimað- urinn var einnig kunnur hér að öllu góðu. Hann hafði starfað hér, eignazt marga vini og reynzt hinn bezti og ötulasti drengur í alla staði. Hvað var sjálfsagðara en að nota þetta ágæta tækifæri, þetta vingjarnlega tilboð, til þess að bæta úr brýnni þörf á fljótum samgöngum? En Islendingar eru smáþjóð og verða að vera tortryggin þjóð. Þessu var neifcað. Þessu vingjarnlega boði var hafnað. Enga flugstöð vildum við hér hafa í höndum útlendinga. Sendi maðurinn fór móðgaður og hryggur. Það hafði verið slegið á fnamrétfca vinarhönd. Reynslan skar ekki heldur hér úr, af því að neitað var. En einhverjar afleiðingar hefði það getað haft fyrir okkur, ef hér hefði í stríðsbyrjun verið vel útbúin þýzk flugstöð. Það er hætt við, að við værum þá búnir að sjá töluvert af vopna- viðskiftum hér í Reykjavík. Reykjavík stæði þá naumast jafnkeik og nú er. Þegar 5 ára búsetuskilyrði til kosningaréttar var sett í stiórn- arskrá okkar, þá þótti það hart að gengið. íslendingur, sem hafði verið búsettur ytra og fluttist heim, varð að sitja í 5 ár án kosningáréttar. En var það ekki rétt að taka á sig þessi óþægindi í öryggis- skyni? Þá þurftu Danir líka að vera hér 5 ár til þess að fá sama rétt. Uppsagnarákvæði sam bandslaganna voru þröng. Það þurfti ekki marga menn til þess að ráða þar úrslitum. Það var auðvel't að koma hér rétt í svip, ef áhugi var nógur, og ráða úrslitum. Hitt var erfiðara að sitja hér í 5 ár. Ef til vill hefir þetta verið óþarfa tortryggni. Hér var engin óvinsemd á ferð, aðeins varúð. Menn gera ekki samninga af tortryggni einni, heldur af sjálfsagðri varúð. Og hvað er óþarft? Aldrei nokk- urntíma hefir jafnmargt, sem áður var talin óþarfa varúð, reynzt raunhæft í mesta lagi, eims og nú á tímum. Ef nútíminn hefir kennt þjóð unum nokkuð, og þá ekki sízt smáþjóðunum, þá er það þetta heilræði, sem ekki er skemmti- legt að öllu leyti: Verið sífelt á verði! Þetta allt hefir nú komið upp ' í hugann út af þeirri sérstöðu, sem ófriðurinn hefir valdið. En það veitir ekki af að horfa víðar. Hemaðarinnrás er ekki sú eina innrás, sem varasöm er. Hernaðarinnrásin er í svip- inn ef til vill ekki sú hættu- legasta, sakir þess, að á hana horfa nú allir og hana óttast allir. Við Íslendingar megum vel ugga að okkur. Hér hefir verið einangrun og mikið afskifta- leysi. Flest stóð hér í stað, um langan aldur. En svo hófust innrásir allskonar áhrifa, að- streymi úr ýmsum áttum. Sjaldan hefir önnur eins inn- rás verið hafin og framkvæmd eins og sú, sem við höfum átt við að búa. Á einum manns- aldri hefir svo að segja allt ger- breytzt. “Framfarirnar” hafa gert innrás í land okkar. Þó að eg setji orðið framfarir í gæsa- lappii*, þá er það ekki til þess að láta í ljós neinn ímugust á þeim eða hæðast að þeim eða jafnvel efast um ágæti þeirra. Eg geri ekkert af því. Eg segi ekkert við þeim. Þær hlutu að koma og urðu að koma og áttu að koma. , En eg set orðið í gæsalappir til þess að benda á, að þetta ber okkur að skoða vel og vand- lega. Við höfum ekki lifað hér á einangruninni einni, heldur einnig á sjálfstæðri og rótgró- inni þjóðarmenningu. Þjóðin og landið höfðu gróið saman. Úr þeim samgróningi varð að vísu engin glæsimynd. Margt vant- aði, sem til þess þarf. En það var einlægni og sjálfseignar- svipur yfir því öllu saman. Það var, eins ðg eg held að Eng- lendingar segi: Lítið, en mitt eigið. Torfbærinn verður aldrei að höll, en hann er ástmögur hvers listamanns að útliti og ihlýr þeim, er í honum búa, þó að lítið sé um hitunartækin. Synfóníur voru ekki samdar, en þjóðlögin eru efniviður í listaverk og sjálf fögur og verm andi um hjartaræturnar. Heim- spekibækur voru hvorki skrifað ar né prentaðar, en spakmæli segja það, sem aðrir hefðu sam- ið bók um. Stakan segir efni langs kvæðis eða ádeilugreinar í heimsblaði. Hér hefir búið margur ikonungur á Kálfskinni, sjálfráður maður á litlum bletti. Sá, sem vildi heyra söng, varð að syngja sjálfur. Sá sem vildi leika á hljóðfæri, 'varð stundum að smíða það sjálfur. Sá, sem vildi klæðast vel, varð að'koma upp öllu saman: Finna snið og efni og aðferð. Fegurðina urðu menn að sjá í fossum og fjalls- eggjum. Svo kom innrásin, og nú gefst á að líta og til að taka. Það er ljóta kotungsveröldin, sem við höfum lifað í! Sjáið þið híbýlaprýðina í Bíó — eða klæðaburðinn. Heyrið þið fagrar raddir úr Niflungaheimi út- varpsins. Öll ríki veraldarinnar og þeirra dýrð virtust sjást af þessu ofurháa fjalli tækmnnar og framfaranna. Það virtist ekki einu sinni þurfa að falla fram fyrir neinum ljótum karli til þess að eignast það? Alt þetta mun eg gefa þér sagði innrásarherinn, og ekkert “ef” virtist vera þar með? Eg set spurningarmerki við þessar setningar, þó að þær séu ekki í spurnarformi. Við höfum það orð á okkur íslendingar, að við séum sein- teknir og þumbaralegir í um- gengni. Og sjálfsagt er ekki lít- ið til í þessu. Þetta er galli á okkur, en við því er erfitt að gera, sem er eðli manns.. Fyrir vikið fáum við það, að öðrum þjóðum gezt miður að okkur, og í okkar hóp grípum við til ýmissa ráða og misjafnlegra góðra til þess að verða “samkvæmishæfir”. En fátt er svo með öllu illt o. s. frv. Þessi þumbaraháttur er ekki með öllu illur, enda er ekki að vita nema hann sé smátt og smátt tilorðinn við þörf. Hér er á ferðinni tregða þess manns, sem finnur ósjáif- rátt, að hann þarf sífelt að verjast. Hér er viðnámsafl gegn því, sem vill leggja Okkur undir sig og buga okkur, hvort sem það er úfinn sær eða ill færð, hríðarveður eða heiðavegur. Útlendingar kvarta undan þessu. Danir, okkar góða sam- bandsþjóð, hafa fengið að kenna á því um alirnar. Þarna hafa Islendingar þumbast en aldrei gefizt upp, oft látið í minni pokann, en aldrei viljað sleppa sínum poka. Góðum skilyrðum hafa þeir hafnað og aldrei venð hrifnir eða ánægðir. Eg hef heyrt sögu af því, að Jón Sigurðsson hafi verið í boði hjá konungi, nokkru eftir að hann gaf íslendingum stjórnar- skrána 1874. Drottningin vék sér að Jóni og segir: “Jæja, herra Sigurðsson, eruð þið nú ekki ánægðir?” Jón hneigði sig hofmannlega fyrir drottningu og svaraði: “Það er góð fyrjun, yð- ar hátígn!” Þetta var ósvikið Islenzkt svar við dönskum greiða. Sama sagan fer af okkur enn. Aðrar þjóðir geta ekki búist við öðru af okkur. Hinar miklu þjóðir, sem hafa gert okkur þann greiða að vernda okkur, hafa aldrei séð verulegan þakk- lætisglampa í augum okkar. I blöðum þeirra fer heldur vont orð af okkur, ekki beinlínis fyr- ir ókurteisi eða illskiftni, held- ur fyrir sérgæðingshátt og stífni. Við viljum allt hafa en ekkert láta, við séum alltaf iþurrir á manninn. Sumir hneikslast á þessu um- tali erlendra blaða um okkur. Eg get það ekki. Mér þvkir fremur vænt um það. Því að þótt vitanlega væri bezt að vera svo fullkominn, að geta hvort- tveggja í senn, verið hvers manns hugljúfi og staðið þó fast á sínu, alið allt hið góða og hafnað öllu hinu illa. þá er varla von, að það náist þegar í stað. Og þá finnst mér ein- mitt þessi tilfinning útlending- anna benda á, að í okkur sé enn hið gamla viðnám, sem kemur þeim fyrir sjónir eins og kuldi í fasi og þvergirðings- leg framkoma. Einar Þveræing- ur fær enn hljómgrunn a Is- landi. Við verðum að varast það að falla þegar fram. Milljónir hafa streymt til okkar, en við meg- um ekki falla fram til þess að eignast þær, ekki fórna heiðar- leik og réttsýni fyrir þær. Við getum notað allt hið nýja, lært með augum og eyrum, séð svo að segja og heyrt um allan heim, en við megum ekki falla fram og fórna eðli okkar, tungu okkar, háttum okkar, menning- ararfi okkar, nægjusemi okkar. Mér sýnast tvær leiðir vera til, er fara mætti til þess að vernda þjóðerni og góðan arf okkar í þessari miklu innrás hins nýja tíma, bæði fyrir ó- frið og í ófriðnum. 1. önnur er sú, að ráðast gegn því, bannfæra það, vísa því öllu norður og niður. Þessi leið er að mínu viti bæði ófær og óheppileg. Hún er ófær af því, að við getum ekki vísað þessu á bug. Við erum ekki menn til þess, þó að við vildum, að verjast hernaðarinnrás. Við getum ekki hrundið her stórveldanna héðan úr landi. En hitt stórVeldið er þó enn völdugra. Bíó og Hollywood eru voldugri en England og Banda- ríkin. Það er nútíminn sjálfur, sem sendir þennan innrásarher. Hann er búinn að leggja stór- veldin undir sig. Við gætum aldrei vísað því úr landi, þótt við vildum, og við viljum það ekki heldur. Og þessi leið er óheppileg vegna þess, að allt þetta nýja er framför, ber í sér möguleika til þroska og frama. Að hafna því er sama sem að vilja ekki búa betur í hendurnar á sér. Það er nýjungarhræðsla, sem er ef til vill enn verri en nýjungar girni, ótrú á þróun sköpunar- verksins, vanmet á eigin þroska möguleikum. Eitthvað af þessu er til í hverri tíð. Menn halda jafnan, að heimur fari versn- andi, yngri kynslóðin sé að ganga fyrir stapann. Gamal- mermanöldrið verður alltaf til og alltaf eins og aldroi til neins gagns. Yingri kynslóðin fer ekki eftir því og á ekki að fara eftir því. Þetta verður allt orðið gamaldags, þégar uppvax- andi *kynslóðin er orðin gömul, •og hún vitnar þá í það eins og ímynd heilbrigðisins gegn því inýja, sem þá verður komið. Frh. Solveig Bennett 1897—1940 (Undir nafni móður hennar.) Frá samvist með þér eg man svo margt; sú minning um liðin ár nú gleður minn huga, en grætir ei. Hún græða mun öll mín sár. Er lífið þér út rótti hlýja hönd og hjarta þitt svölun fann. var svipur þinn bjartur og bros þitt hlýtt, sem blærinn, og frjálst sem hann. Þú barðist sem hetja í hæstri raun er hjarta þíns strengur brast; í þá sýndir þú ættstofns þíns aðalsmark svo alfrjálst og stefnufast. Á blæhlýju vori þú hlómstur varst, með brosandi lifcaskraut. Á lífssumri ungu þú hvarfst svo hljótt. sem hljómur í þagnarstkaut. Sem hljómur, er fer um himingeim þú hélzt beint, í daginn inn, þar, sem þú áttir og endurfanst elskaða drenginn þinn. Og nú á þín minning máttarorð þess máls, sem ei tungan nær; að sæl er með honum sálin þín mér sannastan fögnuð Ijær. S. E. Björnsson.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.