Lögberg - 16.09.1943, Blaðsíða 1

Lögberg - 16.09.1943, Blaðsíða 1
56 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. SEPTEMBER, 1943. NÚMER 37 Stórorustur á Italíu; Róm og Milan í höndum Þjóð- verja. Mussolini genginn aftur. Síðastliðinn föstudag náðu Þjóðverjar haldi á Róm og litlu síðar Mílan; hafa borgir þessar verið settar í herkví. og er svo látið í veðri vaka sem alt sé þar með kyrrum kjörum; þó róstusamt muni vera innan vébanda þeirra annað veifið. Svo þokukendar eru fréttirnar frá ítalíu um þessar mandií' að örðugt er að lesa á milli línanna; einn daginn er til dæmis fvá því skýrt, að ítalska konungsfjölskyldan sé flúin til Sikil- evjar, en næsta dag er þetta borið til baka; þó mun nokkurn veginn mega víst telja, að konungur, ásamt hirð sinni, hafi hypjað sig á brott. Badoglio forsætisráðherra, sá, er við tók af Mussolini, heyrist nú naumast nefndur á nafn. Um Mussolini hafa gengið margskonar kviksögur undan- farna daga; hann hefir átt að vera lokaður í svartholi hjá hernaðarvöldum sameinuðu þjóðanna, og hann hefir líka ált að vera gestur Hitlers; en hvað sem er um það, þá gorta Þjóð- verjar af því, að hafa með furðulegum hætti, fyrir atbeina tallhlífarhermanna sinna, bjargað Mussolini úr heljarklóm; og svo er smiðshöggið rekið á með því, að á miðvikudaginn lýsir Mussolini afturgenginn því persónulega yfir, að hann á ný hafi 1ekið að sér frelsun hinnar ítölsku þjóðar. Afar harðar og mannskæðar orustur standa yfir umhverfis Neapel og Salerno, þar sem Bretar, Bandaríkjamenn og Canada- menn að sögn líka, takast á fangbrögðum við fylkingar þýzkra Nazista, sem eiga að ýmsu leyti betri aðstöðu vegna ramm- byggilegra hernaðaraðgerða í fjöllum uppi og langvarandi und- rbúnings; en á hinn bóginn er það víst, að bandamenn auka daglega liðsafla sinn á þessum vettvangi stríðssóknarinnar, einkum í loftinu, og er þess því ekki ólíklega til getið, að slíkt ríði baggamuninn, auk þess sem meginið af ítalska flot- anum er komið í hendur sameinuðu þjóðanna. HELZTU FRÉTTIR ÞINGKOSNINGAR Á PHINCE EDWARD ISLAND. Fylkisþingið á Prince Edward Island hefir verið rofið, og nýjar kosningar fyrirskipaðar þann 15. þ. m. Þingmenn eru þrjátíu að tölu. Flokkaskiftingin var þann- ig áður en þing var leyst upp: Liberalar 22, Conservativar 4 og utanflokka 4. ♦ ♦ ♦ KOSIN í FRAMKVÆMDA- NEFND CANADISKA RITHÖFUNDAFÉLAGSINS. íslenzki rithöfundurinn, I^aura Goodman Salverson, var á ný- afstöðnum ársfundi rithöfunda- félagsins canadiska, kosin í fram kvæmdanefnd þessara fjölmennu samtaka. Frú Salverson er rit- stjóri ársfjórðungsritsins ‘‘The Icelandic Canadian”. -f 4- -f FJöRUTÍU OG NÍU ÍToLSK HERSKIP SLEPPA ÚR KLÓM nasista. Að því er nýjustu fregnir herma, hafa fjörutíu og níu ítölsk herskip af ýmissum stærð- um, sloppið úr klóm ’ninna þýzku Nazista, og eru komin í öruggar hafnir við Malta og Gíbraltar. Þrjú eða fjögur af herskipum Itala, eru sögð að hafa komist til spænskra hafna og verið tekin þar í gæzlu vegna þess að Spánn er enn að nafni til hlutlaus í styrjoldinni. Það var eitt af skilyrðum Eisen- hovers yfirherforingja fvrir vopnahléinu við ítali, að þeir gerðu alt, sem í þeirra valdi stæði til þess að fyrirbyggja að ítölsk skip, jafnt herskip sem verzlunarskip, kæmust í hendur Ljóðverja. DÝR UNDIRTYLLA. Nýlega gerðist sá atburður, að Þýzk undirtylla í ræningja- flokki Hitlers í Kaupmannahöfn var drepin, og Danir sakaðir um tilverknaðinn. Manngjöld þau, er þýzku hernaðaryfirvöld- in kröfðust fyrir líf þessa légáta síns, námu $1,000,000, og bæjar- stjórn Kaupmannahafnar gert að skyldu að greiða þetta lítil- ræði refjalaust. 4 4 4 CANADISKT MANNTJÓN Á SIKILEY. Hernaðarvöldin í Ottawa hafa tilkynnt, að canadiskt manntjón í Sikileyjarleiðangrinum hafi, að því er bezt sé vitað, numið 2,387. Slysalistinn ber með sér, að 38 foringjar voru drepnir í orustu eða dáið af sárum, 123 særðir og 10 ókomnir fram; úr flokki óbreyttra liðsmanna féllu eða dóu af sárum 438; 1,641 særðust, en 137 voru týnd- ir, eða höfðu verið teknir til fanga. ♦ 4 4 LENGI Á LEIÐINNI. Mr. C. H. Harness,' bifhjóla- kaupmaður, 715 Banning, hér í borginni, fékk þann 10 þ.m. bréf spjald frá bróður sínum á Eng- landi, sem dagsett var 20. júlí, 1912. Bréfspjaldið kom frá fæð- ingarbæ Gladstone, hins víð- kunna stjórnmálamanns biezku þjóðarinnar. Það þyk-r eins dæmum sæta að bréfspjald þetta skyldi komast til skila eftir freklega þrjátíu og eitt ár. 4 ♦ ♦ SAMEINAST C.C.F. Samtök verkamanna, sem vinna við stáliðnaðarverksmiðj- urnar í Austur-Canada, hafa í einu hljóði fallist á það, að ganga í pólitískt bandalag við C.G.F.-flokkinn. LIBERALAR BOÐA TIL FUNDAR. Að boði forsætisráðherra, hafa Liberalþingmenn á sambands- þingi verið kvaddir á fund í Ottawa, til skrafs og ráðagerða þann 27. þ. m., en landssamtök- um Liberala hefir jafnframt ver- ið stefnt til fundar í höfuðborg- inni þremur dögum seinna; hvort þetta hvorutveggja getur skoðast sem fyrirboði sambands kosninga á næstunni, er enn eigi vitað. 4 4 4 RÚSSAR TAKA BRYANSK. Samkvæmt tilkynningu frá Berlín síðastliðinn þriðjudag, hafa Rússar endurheimt Bry- ansk, hina miklu iðnaðai- og járnbrautarmiðstöð á mið-víg- stöðvunum. Þjóðverjar höfðu haldið borg þessari í því nær tvö ár; næsta stórborgin, sem víst má telja, að falli Rússum í hendur, verður Smolensk, og fer þá heldur en ekki að sax- ast á limina hans Björns míns austan Dnieper-fljóts. * * * JAPANIR í KLÍPU. Eftir harða sókn af hálfu Bandaríkjamanna, sem staðið hefir yfir nokkuð á aðra viku; hafa Japanir hröklast á ílótta frá Salamaua á New Guineu, og skilið þar eftir kynstrin öll af vopnabirgðum; mannfall af hálfu Japana á stöðvum þessum varð gífurlegt, auk stórkostlegs flugvélatjóns. “Eins og í sögu,, “Þetta gengur ^lveg eins og í sögu”, segir fólk þegar ein- hverju miðar sérstaklega vel áfram. Á það sannarlega við um “Sögumálið” síðan nýia nefnd- in tók það að sér. Nýlega hefir það verið ákveð- ið að þetta annað bindi verði um hundrað blaðsíðum stærra en fyrsta bindið. Auk þess verð- ur þetta bindi enn þá eigulegra sökum þess að í því verða sex eða sjö fræðandi landabréf. Verða þar sýnd öll helztu héruð og allir merkustu staðir, sem koma við sögu vesturflutning- anna, og einnig sýnd lega og afstaða flestra bygða Vestur- íslendinga. Meira en helmingur allrar bókarinnar er nú stílsettur. Verður hún fullprentuð og kom in á markaðinn í tæka tíð fvrir jólin. Betri eða eigulegii jóla- gjöf verður ekki hægt að velja í þetta skifti. Heima á íslandi er sala bókar- innar tryggð; Jónas Jónsson al- þingismaður frá Hriflu, sem á ýmsan hátt hefir sýnt frá- bæra velvild og vináttu í garð Vestur-íslendinga skrifaði ný- lega Soffaníasi Thorkelsayni og lofaði fylgi sínu við útbreiðslu bókarinnar heima; og fyrir fá- um dögum kom símskeyti frá Mentamálaráði Islands til próf. Richards Beck forseta Þjóð- ræknisfélagsins þar sem það lofar að gangast fyrir sölu bók- arinnar. Er þetta trygging fvrir sölu hennar heima og ætti að mega vænta þess að Vestur- Islendingar láti ekki síður til sín taka við kaup og sölu þess- arar bókar. Nú líður að þeim tíma þegar leitað verður sérstakra liðs- manna í hverri einustu íslenzkri bygð, sem taki að sér að koma þessari bók inn á sem allra flest heimili. Gleðilegt væri að sjá svo mikinn áhuga fyrir þessu máli að einn eða tveir í hverri bygð gæfu sig fram sem sjáliboða við þetta starf og gerðu það sem allra fyrst. Þessar línur eru ritaðar til þess að láta fólk vita hvermg gengur. — Meira síðar. Sig Júl. Jóhannson. í herþjónustu Serg. Sigurður G. Kjartanson, 25 ára, innritaðist í herinn i nóvember 1941, en fór til Eng- lands í vor, sem leið. Jón G. Kjartanson, 23 ára, gekk í canadiska herinn í febrúar 1941. Hann hefir dvalið á Englandi í 18 mánuði og starfar þar fyrir eina af flutn- ingadeildum hersins. Gunnar R. Kjartanson innrit- aðist í flugherinn í ágústmán- uði 1942; hann er 28 ára að aldri og er enn við æfingar í Canada. Foreldrar þessara bræðia, voru Björn Kjartanson, sem látinn er fyrir nokkrum árum við Amaranth, og Margrét Kjartanson, sem þar býr. ♦ ♦ Kjartan Stadfeld innritaðist í herinn' þann 31. ágúst s. 1., hann er 36 ára að aldri og hefir stund- að fiskiveiðar á Winnipegvatni; hann er fæddur í Riverton; for- eldrar hans eru: Guðrún, fyrir nokkru látin, en faðir hans Jóhann Stadfeld, er búsettur á Gimli. 4 4 -f Baldwin Sigurðson gekk í her- þjónustu þann 6. ágúst síðastl.; hann er fæddur í Glenboro, og þar er faðir hans, Herbert Sig- urðson búsettur. ENDURKOSINN í FORSETAEMBÆTTI. Prófessor Walson Kirkconnell Á nýafstöðnum ársfundi rit- höfundafélagsins í Canada, sem haldinn var í Toronto, var próf. Watson Kirkconnell endurkos- inn í forsetaembætti. Mr. Kirk- connell er vinmargur meðal Is- lendinga vegna margítrekaðra vinsemda hans í þeirra garð og þýðingastarfsemi hans a ís- lenzkum ljóðum á enska tungu. EIN ÁRÁSIN Á SPITZBERGEN ENN. I fyrri viku var frá þvi skýrt, að Þjóðverjar hefðu náð haldi á Spitzbergen, og rekið á brott alt setulið sameinuðu þjóðanna, sem þar var fyrir. En á þriðjudags- morguninn flutti brezka útvarp- ið þá fregn, og bar fyrir sig Berlín, að fimm brezkir tund- urspillar frá stöðvum Breta við ísland, hefðu þá nýverið komið til Spitzbergen og sett þar á land nokkuð af stórskotabýss- um til uppbótar fyrir þær vopna birgðir, sem Þjóðverjar höfðu átt að eyðileggja í áminstri á- rás þeirra á landið. FORSETI FJARSÖFNUNAR. J. N. Connacher Mr. Connacher forseti nefndar innar, sem gengst fyrir fjár- söfnun í sjóð Líknarsarnlags Winnipegborgar. Ákveðið er, að upphæð sú, sem safna skal, nemi $325.000. í framkvæmdarsljórn líknar- samlagsins í Winnipeg Frank Denne Kveðja til Noregs Þríburar fæddir á Fljótsdalshéraði Stúlkur, 8, 10 og 12 merkur. Þann 18. júlí síðastliðinn fædd ust þríburar að Fossvöllum á Héraði. Voru það þrjár stulkur, Stúlkurnar eru allar hraustar og matlystugar og dafna vel. Þær eru allar dökkar á brún og brá. Fæðingin gekk ágætlega. Móðir þríburanna heitir Anna Björg Einarsdóttir, en faðwinn Ragnar Gunnarsson. Sagt er, að áður en- þrí- burarnir fæddust, hafi tveir menn veðjað um það hvort móðirin gengi með einu barni eða tveim. Veslings mennirnir töpuðu báðir. Næst á undan þessum ný- fæddu þríburum munu þríburar hafa fæðst hér á landi siðast 7. júní 1936. Þeir fæddust að Skál- holti á Hellissandi. Börnin voru sveinbarn 14 merkur, meybarn 11 merkur og sveinbarn 12 merkur. Foreldrar þeirra voru Sigurást Friðgeirsdóttir og Þor- kell Sigurgeirsson. Þríburafæðingar eru sjaldgæf ar. A. Guzzom, kunnur Talna- fræðingur og sérfræðingur í barnsfæðingarmálum, hefir kom ist að þeirri niðurstöðu, að af hverjum 7,103 fæðingum, sé 1 þríburafæðing. Tvíburafæðingar eru algengar ein af hverjum 87 fæðingum. Fjórburafæðingar eru mjög sjald gæfar, 1 af hverjum 757,000 fæðingum. 17. maí 1943. Eg man þann bjarta morgun við þín yztu, auðu sker, í árdagsljóma, gamla land, þá heilsaðirðu mér. — Það lýsti yfir Dofra, — með ljós á hverjum tindi og lagði ilm af skógi með hægum morgunvindi. Já, — þetta var þá Noregur, — hið forna feðraland. Með fjöll af sólargulli, líkt og óendanlegt band! — Og hrein og fögur gleði um hugann ungan streymdi, — eg hallaðist að söxum. — Eg starði fram. — Mig dreymdi. Mér fannst eg hefði áður siglt um þessi þröngu sund, eg þekkti fjöll og víkur og ilm af birkilund. — Hér var eg ekki útlendur, — átti enn hér heima: Um Islendings hjarta fann eg Norðmanns blóðið streyma. / Því moldin sjálf og grjótið og fjörðurinn og fjöll mér frið og ástúð bauð, svo að deilumálin öll sem hýði duttu’ af fræjum: Þau frjógast gátu’ í næði. — I framtíð vár eg ríkur, — eg átti löndin bæði. Við þekkjum ykkar dáðir og drengilega vörn, er dvergur varðist risa — og rjúpa flaug á örn. — Þá svall oss stoltur harmur, er hrammur Noregs barði. og hrammurinn var særður, — því fólkið landið varði. Við hyllum ykkur, drengir, sem þolduð þessa raun og þáðuð aðeins dauðann í hetjusigurlaun. Nei, dauði sá er lífið, þótt legstaðir sé’ faldir. — Og ljóma slær á Noreg og syni hans um aldir! \ Þú bugast aldrei, Noregur, þótt verjist nú í vök. Þú vannst þinn stóra sigur: Að liggja ei undir sök. Á knjánum verstu enn, meðan svíða sér og blæða. — I sigri munt þú rísa, sem Dofrafjöll. til hæða! Þórir Bergsson. Eimreiðin. Mbl., 30. júlí.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.