Lögberg - 23.09.1943, Side 1

Lögberg - 23.09.1943, Side 1
56 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 23. SEPTEMBER 1943. NÚMER 38 HELZTU FRÉTTIR íslenzkir siúdeniar nýkomnir iil háskólans í Wisconsin. Þeir sem standa frá vinstri til hægri eru: Sigurður Sigurðs son og Þórhallur Halldórsson, en sitjandi frá vinstri til hægri: Unnsteinn Stefánsson og Júlíus Guðundsson. Stú- dentar þessir eru nýkomnir heiman frá Islandi. Frá Islendingum sunnan landamæra 1 tilefni fimmtíu ára atmælis Emile Walters listmálara, sem minnst var á sínum tíma hér í blaðinu, birtist gagnorð og eink- ar vinsamleg grein um hann og málverk hans í hausthef'i hins merka tímarits, “The Amercan- Scanctinavian Review”. Ejallar frásögn þessi aðallega um hm mörgu málverk hans frá íslandi, en þar ferðaðist hann jm og málaði mánuðum saman árið 1934. Vöktu málverk þessi mikla athygli, og er hér vitnað til lof- samlegra ummæla listdómara um þau. Einnig fylgja greininni ágætar myndir af fimm umræddra mál- verka: “The Glacier Blink” (Jökulskin), nú í listasafni Pomona College í Californiu; Hekla, í listasafni Newark borg- ar í New Jersey ríki; “Thc Brok en Plain” (Þingvöllum); “Snow- Capped Mountain” (Jökultindur frá Þingvöllum), og Þingvalla- kirkju, í þjóðminjasafn'nu í Helsingfors (Helsinki) 1 Finn- landi. Munu myndir þessar draga athygli margra lesenda að sérkennileik og töfrum íslenzks landslags. Birgir Halldórsson söngvari, sem íslendingum í landi hér er að góðu kunnur fyrir sör.g sinn á ýmsum stöðum, hefir í sumar sungið í söngleiknum “The Vaga bond King” (Flakkarakóngur- inn), en frumsýning leiksms var á Broadway í New York þann 29. júní. Ber þátttaka Birgis, í þessum fræga söngleik því fagr- an vott, hve prýðilega honum gengur söngnám sitt austur þar. Fagna landar hans yfir fram- gangi þessa efnilega unga söng- manns og vænta nýrra sigur- vinninga frá harís hálfu í fram- tíðinni. Hjálmar Björnsson, sem verið hefir viðskiptafulltrúi Banda- ríkjanna á Islandi síðan seint á árinu 1941, er nýlega kominn heim aftur. Eftir því, sem ís- lenzkum blöðum segist irá og vænta mátti, hefir hann getið sér hið besta orð í starfi sínu þar. Var honum í þakkar- og kveðju skyni haldið fjölment og virðu legt samsæti áður en hanr. hvarf aftur vestur um haf. Richard Beck. -f -f Skarar fram úr Þann 3. þ. m., útskrifaSist Eric H. Bergman sem Pilot Officer af No. 5 Air Observer School, Stevenson Field, og er hann nú farinn austur til Que- bec til nokkurra vikna framhaldsnáms; hann hefir veriS ráöinn til starfs viíS þá deild flughersins, sem nefnd er Ferry Command og þaS hlutverk hefir mefi höndum, að stýra orustu- flugvélum héðan úr landi yfir hafið. Bekkjarhræöur Erics voru 18 að tölu, og hlaut hann langhæsta einkunn þeirra allra, auk þess að vera sæmdur Starratt verðlaunum, sem fólgin voru i afarvönduðu úlnliðsúri með við- eigandi áletran. Eric er sonur þeirra H. A. Berg- man, K.C., forseta Manitoba Law' Society, og frú Emeliu Bergman, 221 Ethelbert Street. Annar sonur þeirra Bergmans hjóna, Norman, skipar nú majors-stöðu í canadiska hernum austan við haf. Lögfræðingar fagna Mr. Thorson Eins og áöur hefir veriS frá skvrt, kom Hon. J. T. Thorson, dómsforseti hingaS til borgarinnar um síSastliSin mánaðamót; var þetta hans fyrsta heimsókn til Vesturlandsins eftir aS hann var skipaSur í hiS nýja og viröu- lega embætti sitt; kom hann hingaS i embættiserindum á leið vestur til Van- couver og Victoria. MeSan Mr. Thor- son átti viödvöl hér í borginni, sat hann fjölment þing lögfræSinga, sem hér var þá háS. Vinir Mr. Thorsons og stéttarbræöur hans á vettvangi lög- vísinnar, þeir, er óminst þing sátu, fögnuðu komu hans, og fluttu honum hlýjar árnaðaróskir í tilefni af vali hans í hiö virðulega dómsforsetaem- bætti. M)-. H. A. Bergman, K.C., forseti Manitoba Law Society, flutti Mr. Thorson fögur ávarpsorö, en Mr. H. S. Scarth, forseti félags mála- flutningsmanna, sem er tengdabróöir hans, hylti hann fyrir hönd félagsskap- ar síns. Allmargir aðrir lögfræSingar tóku til máls viö þetta tækifæri, og féllu ummæli þeirra í sama farveg og hinna tveggja áðurgreindu. Mr. Thorson þakkaöi meS vel völdum orS- um þann hlýhug, sem ræSurnar allar báru vott um, og kvSa sér slíkt mundu seint úr minni líSa. ♦ -f ♦ Bandalag við C.C.F. Á lokafundi Canadian Congress of Labor í Moptreal þann 18. þ. m., varS þaS aS ráSi, aS þessi voldugu og fjöl- fmennu verkamannasamtök ^kyldu í .pólitískum skilningi sameinast C.C.F. flokknum; niSurstaSa þessi var bygS á því, aS vegna reynslu undangenginna ára, og afstöSu gömlu stjórnmála- flokkanna til hagsmunalegra samtaka meSal verkalýSsins, væri þaS sýnt aS nýjar leiöir yrSi aS finna til úrlausnar atvinnumálum landsins aS. loknu stríSi; ein slík leiS væri sú, aS koma við pólitísku bolmagni, og þá sýndist ekkert liggja nær, en bandalag viS vinstrimanna flokkinn í landinu. LeiStogi C.C.F. flokksins, Mr. J. M. Coldwell, lét þegar í ljósi fögnuS sinn yfir áminstri niSurstöSu Cana- dian Congress of Labor, og tjáSist sannfærSur um þaS, aS þannig mundu brátt önnur samtök verkamanna á eftir fara. + -f ♦ Liberalar vinna kosn- ingar í P.E.l. Þann 15. þ. m., fóru fram almennar kosningar til fylkisþingsins á Prince Edward Island, og lauk þeirn þannig, aö Liberalflokkurinn, undir forustu J. Walter Jones forsætisráöherra vann endurkosningu meS yfirgnæfandi meirihluta. Tala þingmanna á fylkis- þingi nemur 30. Liberalar hlutu 20 þingsæti, en íhaldsmenn 10. Foringi þeirra er J. P. MacMillan, sem um eitt skeiö hafSi stjórnarforustu meS hönd- um. C.C.F. flokkurinn hafSi 9 fram- bjóSendur í kjöri, og töpuðu þeir allir tryggingafé sínu. FREGNIR AF HELJARSLÓÐ. Rússneskar hersveitir halda enn áfram óslitinni sigurför; er nú svo komið, að víst þykir, að innan tiltölulega skamms tíma muni þær endurheimta bæði Smolensk og Kiev. Síðastliðna tvo daga hafa Rússar lagt 8.000 þjóðverja að velli og leyst úr .klóm þeirra 1,150* bæi og bygð- arlög. Dauðadóm Hitlers má nú hvarvetna lesa, og ef alt skeikar að sköpuðu, má vel ætla, að Rúss- ar verði komnir vestur að landa- mærum Póllands áður en fyrir alvöru vetur gengur í gaið. Frá viðureigninni á ítalíu er það að segja að vörn Þjoðverja við Salerno hefir farið með öllu út um þúfur, og svipaðri útreið sæta þeir auðsýnlega í barátt- unni um Neapel; nýjustu tregnir láta þess getið, að þeir séu nú önnum kafnir við það, að reyna að brenna þessa fornfrægu borg upp til agna. Á hverjum einasta degi, senda sameinuðu þjoðirnar nýjan liðsauka inn á ítalíu, og verður því eigi um það efast, að áður en tiltölulega langt um líður, verði þar látið til skarar skríða, og falla úrslit þá á einn veg. Bandaríkin hafa sett lið á land á Sardiniu, en hinir frjálsu Frakk ar, með. tilstyrk Itala, hafa lent liði miklu á Korsíku, þer sem Napoleon Bonoparte var fæddur. -► -f ♦ SIR KINGSLEY WOOD LÁTINN. Nýlátinn er í Lundúnum Sir Kingsley Wood, fjármálaraðherra Churchill stjórnarinnar, 64 ára- að aldri; hann fylgdi jafnan íhaldsflokknum að málum og hafði átt l^nga þingsetu. Sir Kingsley var maður óvenju vfir- lætislaus, en var almennt ráð- hollur og vinur vina sinna. FYLKISÞINGMAÐUR DEYR. Síðastliðinn sunnudag lézt að heimili sínu í Brandon, George Dinsdale, fylkisþingamaður fyrir Brandon-kjördæmið, 56 ara að aldri; hann var tvisvar borgar- stjóri í Brandon, en var fyrst kos inn á fylkisþingið í Manitoba 1932 sem stuðningsmaður íhalds flokksins. -f -f -f VINNUR NÁMSVERÐLAUN Kornung og bráðgáfuð íslenzk stúlka, Kristín Cecelia Anderson frá Baldur, hefir hlotið hin svo nefndu Cora Hind námsverðlaun, er nema $325.00 á ári og njóta má í fjögur ár; verðlaur þessi eru veitt til náms við hússtjórrv ardeild Manitobaháskólans, ganga einungis til háskólastú- denta utan vébanda Winnipeg- borgar. Miss Anderson er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Sigurður Anderson við Baldur, Man. í herþjónustu Jón Edward Breckman, 19 ára að aldri, innritaðist í canadiska herinn þann 19. ágúst síðastlið- inn, og er nú kominn til Tor- onto háskólans til véifræði- náms. Bróðir hans, Lieut. Gordon Douglas, er nú í herþjónustu Royal Canadian Corps of Signals. Piltar þessir eru synir þeirra Mr. og Mrs. E. Breckman, 646 Beverley St. hér í borginni, og teljast þeir til þriðju kynslóðar innar, sem tekið hefir þátt í canadiskri herþjónustu. Faðir þeirra tók þátt í fyrri heims- styrjöldinni, en afi þeirra, Thor- arinn Breckman.. var þáttfakardi í uppreisninni 1885. Rabbað við bónda og rithöfund Eyjólfur Guöniundsson bóndi og ritliöfundur á Hvoli i Mýrdal var hér á snöggri ferö, og átti ritsjtórn blaös- ins tal viö hann og spuröi almennra tiöinda ag austan. Fénáöarhöld uröu yfirleitt góö í Mýrdal, sagöi Eyjólfur, enda þótt voriö væri kalt. VarS aö gefa sauöfé inni fram á sauöburS. Fóru því upp miklar heybirgöir, en alt bjargaSist vel, meS fóSurbætisgjöfum. Hey- fyrningar eru því litlar nú i sveit- inni, sem víöa annarsstaöar. Mýrdælingar fara nú oröiö yfirleitt vel meS fénaS sinn, enda mikill mun- ur á, hvaö afuröirnar eru meiri og betri. Mikiö er af tvílembum. Kyn- bætur sauöfjár hafa og sumsstaöar komiS aS góötí gagni, t. d. hjá Jóni Halldórssyni í Suöur-Vík. Hefir hann komiö upp ágætu fjárkyni og margir notiS góSs af. Mýrdælingar byrjuöu í vor að senda mjólk í Mjólkurbú Flóamanna; fyrst í smáum stíl, en hefir stöSugt fariS vaxandi. Flutningur mjólkurinnar er langur, tekur 5 tíma, en alt hefir þetta hepnast þaö sem af er. Hefir mjólkin úr Mýrdal yfirleitt þótt góö. Fólkseklan. Þar er sömu söguna aö segja úr öllum sveitum. Vantar vinnu- fólk og kaupafólk, og þaS fæst ekki, hvaö sem í boSi er. En hvaö er aö segja um ritstörf þín? Hvenær má vænta næstu bókar frá þér — Pabba og mömmu ? —Eg heyri, aS þú ert búinn aS skíra bókina — þaö er meira en eg hefi gert. En hvaS sem nafniö verður á bókinpi, vona eg aS hún komi út eftir nýár; fyr getur þaS ekki orðiö. Rétt er þaS, aö þar verða skráSar endur- minningar um pabba og mömmu — sumpart minningar sjálfs mtn urn þau, og svo þaS, sem eg hefi grafiö upp. —Og nú færö þú ekki meira upp úr mér, sagöi Eyjólfur og kvaddi. En næsta bók Eyjólfs veröur mörg- um kærkomin. — Mbl. 10. júlí. EKKI LANGT UNDAN LANDI. Flotamálaráðuneytið í Ottawa gerði það lýðum ljóst á briðju- daginn, að Þjóðverjar hefðu í síðastliðnum júní mánuði komið fyrir á allstóru svæði tiltölulega skamt fyrir utan höfnina í Hali- fax, neti miklu af tundurduflum, sem átti að koma í veg .fyrir flutning hergagna frá áminstri borg, eða þá að draga úr hon- um til muna. Canadisk hernaðar völd komust að þessum óvina fagnaði í tæka tíð, og hreinsuðu siglingaleiðina, án þess hið minsta tjón hlytist af. Or borg og bygð Gjafir scndar í byggingarsjóð Bandalags lúterskra kvenna: Djáknanefnd lút. safn., Gimli, Man., $15.00; Magnús Josephson, Blaine, Wasli., $5.00 (í minningu um elskaSa eiginkonu, Steinunni ólafsdóttur Jo- sephson, d. 20. okt. 19400 ; Ragnhildur iStevens, Gimli, Man., $5.00, í þakk- látri minningu um Mrs. Margréti 'Elíasson frá Laufhóli í ÁrnesbygS, dáin 10. sept. 1943; Mrs. Kirstín Ólafson, GarSar, N.D., $5.00. Meðtekið meS þakklæti, Hólmfríður Daníelsson. ♦ -f -f Mr. Jóhannes Pétursson frá Árborg, sem skorinn var upp á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni fyrir nokkru, er nú kominn þaðan á ágætum bata- vegi. VEITIÐ ATHYGLI! Aðstandendur hermanna erlendis, senf tilheyra Sambandssöfnuöi eru visamlega beðnir aS senda núverandi utanáskrift sem allra fyrst til Mrs. B. Hallson, 638 Alverstone Street, 34 707 eöa Mrs. E- Árnason, 676 Agnes St., 87 842 — Winnipeg. -♦ ♦• ♦ LA UGARDA GSSKÓLINN TEKUR TIL SrARFA ÁkveöiS hefir veriS, aö Laugar- dagsskóli Þjóðræknisfélagsins taki til starfa í fundarsal Fyrstu lútersku kirkju á laugardaginn þann 2. októ- ber næstkomandi, kl. 10 aS morgni, og veröa nú i fyrsta sinn teknar til afnota hinar nýju og ágætu kenslu- bækur frá Islandi. Þeir, sem aS skól- atium standa, vænta þess aö aðsókn fari vaxadi, og skorar á foreldra, að láta börnin ekki fara á mis viö þá dýrmætu fræðslu í íslenzkri tungu, sem skólinn hefir upp á að bjóSa. Forstöðunefnd Skólans. ♦ ♦ + A FMAILIS VISA 16. SEPTEMBER, 1943 Hvitu hárin el eg enn eins og hý á gjögur, tvítug árin tel eg þrenn tíu, níu, fjögur. F. H. Til Mr. og Mrs. Ottenson í samsæti á heimili þeirra. Á þessum stað er ljúft að verma lund ' og lesa sögu okkar fornu vina, sem hafa fylgt oss farna langa stund og fágað geislum alla sambúðina. Það er svo gott þá geysa élin köld að geta fundið hjartans samúð þíða, og því er okkur koman hér á kvöld svo kær og hlý við endurminng blíða. Að geyma andans eld frá bernsku tið er æðsta markmið vorra hröðu daga, þá verður létt og ljúft vort æfi stríð og ljóssins rúnum fáguð okkar saga. Þó skyggi leið, og lánið sýnist valt má létta stríðið bróður hönd og vilja, á tímans vegi verður aldrei kalt hjá vinum sem að takmark lífsins skilja. • Þið hjón sem með oss mættuð sæld og þraut og merktuð daginn rausn og kærleiks vilja. v Vér óskum gæfan greiði ykkar braut unz gengur sól til hafs og leiðir skilja. Til N. Ottenson Fyrir marga mæta veizlu, magál, svið og riklinginn, hangiketið, skyr og skötu, skálaflóð og hákarlinn. Hljóttu þökk og lifðu lengi, lífsins stríði öllu f jær, meðan Bakkus ylar andann allur vegur þér er fær. M. Markusson.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.