Lögberg - 30.09.1943, Side 1

Lögberg - 30.09.1943, Side 1
56 ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGÍNN 30. SEPTEMBER 1943. NÚMER 39 HELZTU FLUGVÉLATAP BRETLANÐS OG BANDARÍKJANNA. Sir Archibald Sinclair, flug- máiaráðhert-a brezku stjórnar- innar, gerði þá yfirlýsingu í berzka þinginu þann 23. þ. m., að frá byrjun yfirstandandi árs og fram til ágústmánaðarloka, hefðu Bretar tapað 1,651 flugvél, en Bandaríkin 447 í sprengju- leiðangrum yfir norðurhluta Evrópu. í -f- ÞRÍVELDAFUNDUR í UPPSIGLINGU. Antony Eden, utanríkisráð- herra Breta, hefir nýlega látið það í ljós, að nokkurn veginn megi víst telja, að innan tiltölu- lega skamms tíma verði boðað til fundar milli brezkra, rúss- neskra og amérískra stjórnar- valda, bæði vegna stríðssóknar- innar og þeirra sameiginlegu vandamála, sem ráða verði fram úr að loknu stríðinu. V ♦ * RÁÐUNEYTISBREYTING. Mr. Churchill tilkynnti á laug ardaginn var, að sú breyting hefði orðið á ráðuneytinu brezka, að Sir John Anderson tæki að sér forustu fjármálaráðuneytis- ins í stað Kingsley Wood, sem er nýlátinn. Beaverbrook lávarð- ur hefir verið tekinn inn í ráðu- neytið á ný sem innsiglisvörð- ur, jafnframt því sem R. K. Law, sonur Andrew Bonar Law, sem um eitt skeið var forsætisráð- herra Breta, hefði verið valinn til þess að gegna ríkisritara embáetti. Cranborne lávarður hefir verið skipaður ráðherra hinna brezku sj álfstjórnarþj óða. Þeir Beaverbrook og Mr. Law eru báðir fæddir í Canada. ♦ ♦ 4- JÁRNBRAUTARÞJÓNAR KREFJAST LAUNAHÆKKUN- AR. Málsvarar járnbrautarþjóna samtakanna í Canada, hafa far- ið fram á það við hina alþjóð- legu stríðstíma verkamálanefnd í Ottawa, að hún hlutist til um það, að laun járnbrautamanna í landinu verði hækkuð til jafns við það kaup, sem greitt er fyrir samskonar vinnu í austurríkjum Bandaríkjanna. Tala þeirra cana- disku járnbrautarþjóna, sem fram á launahækkunina fara, nemur hundrað og fjörutíu þús- undum. Hvaða undirtektir mál þetta fær, er enn eigi vitað, þó líklegt þyki að einhver miðlun- arvegur verði fundinn, þannig, að verkfalli verði afstýrt. RANNSÓKN VEGNA BROTTREKSTURS ÚR VINNU. Meðal þeirra erindreka, er sátu nýlega afstaðið ársþing Canadian Congress of Labor í Montreal, var Mr. A. Nelson Alles, nýkjör- inn C.C.F. þingmaður fyrir Essbx fíorth fylkiskjördæmið í Ontario; hann var starfsmaður hjá Ford bifreiðaverksmiðjunni í Windsor. Mr. Alles kvaðst hafa sótt um leyfi hjá forstjóra verksmiðjunn- ar til þess að sækja áminst þing, en því hefði verið synjað; en með því að hann var löglega kjörinn erindreki, ákvað hann að sækja þingið þrátt fyrir synjun- ina um fararleyfi. En er Mr. Alles kom til vinnu sinnar að verkamannaþinginu loknu, var honum þegar sagt upp stöðunni. Nú hefir hinn nýi forsætisráð- herra Ojitario-fylkis, Col. Drew, fyrirskipað opinbera rannsókn FRÉTTIR í þessu brottvikningarmáli til þess að ganga úr skugga um það, hvort Ford verksmiðjan hafi brot ið lög á hinum nýkjörna fylkis- þingmanni, eða ekki. ♦ ♦ ♦ PRENTARA VERKFALL. Fjóra daga í vikunni sem leið stóð yfir verkfall meðal prentara í prentsmiðju dagblaðsins Winni- peg Free Press, og var blaðið þá dagana prentað hjá Winnipeg Tribune. Orsakirnar, sem til verk falls þessa leiddu voru þær, að forráðendur prentsmiðjunnar vildu ríghalda sér við samning, sem gerður var fyrir átta árum milli hlutaðeigandi prentara, og samtaka blaðaútgefenda; prent- arar töldu slíkt ástæðulaust, þar sem vitað væri að þeir, fyrir hálfu öðru ári, hefðu sameinast alþjóða prentarasambandinu. Eftir þjark nokkuð, sem stóð yf- ir í fjórða dag, náðist fult sam- komulag um það, að prentara- sambandið skyldi vera sá eini, löglegi milliliður, sem blaðaút- gefendum bæri að semja við. Forseti Winnipeg deildar prent arasambandsins, er Victor B. Anderson, var það ekki sízt samn ingslipurð hans að þakka, hve skjót og góð lausn náðist í þessu á'greiningsmáli. ♦ -f ♦ STJÓRNIN LEGGUR HÖMLUR Á WINNIPEG EXCHANGE. Samkvæmt tilkynningu frá verzlunarráðherra sambands- / stjórnar, Mac Kimmon, hefir stjórnin gert þá ráðstöfun, að hveitiverzlun á Winnipeg Grain Exchange, (Trading in futures), skuli samstundis stöðvuð, og er því borið við, að slík verzlun sé farin að hafa raskandi áhrif á verðfestingarkerfi stjórnarinn- ar. Samtímis þessu lýsti Mr. Mac Kinnon yfir því, að stjórn- in hafi ákveðið að greiða fram- leiðendum $1,25 á hveitimælinn, No. 1 Northern í Fort William, í stað 90 centa, eins og áður var fvrir mælt. ♦ ♦ ♦ HJÓNAEFNI Lögbergi barst nýverið fregn um það, að þann 3. október næst- komandi, verði gefin saman í hjónaband í Brooklyn, ungfrú Lilly Knudsen og Þórhallur Ás- geirsson, Attaché við íslenzku sendisveitina í Washington. At- höfnin mun fara fram í Bethany Lutheran Church og að henni lokinni halda foreldrar brúðar- innar veizlu í húsakynnum Nor- wegan Club, 117 Columbia Heights í Brooklyn. Ungfrú Knudsen er dóttir norsku hjónanna Rögnu og Sverris, byggingarmeistara; hún hefir átt heima í Noregi í nokk- ur ár og hefir undanfarin ár unn ið við tryggingarskrifstofu norska ríkisins í New York. Þórhallur er sonur Ásgeirs Ás- geirssonar fyrrum forsætisráð- herra og frú Dóru Ásgeirsson, dóttur Þórhalls Bjarnasonar biskups. í herþjónustu Lance-Corporal Ingibjörg M. Sigurdson, gekk í herþjónustu í síðastliðnum febrúarmánuði, og hefir nú nýverið, samkvæmt yfir lýsingu hernaðarvaldanna full- nægt þeim kaöfum, sem til þess eru gerðar, að verða “movement control Clerk”. Þessi unga stúlka, er fædd í Keevatin, Ont., og þar á faðir hennar Magnús Sigurdson heima. Stríðssóknin Af viðureigninni milli Rú.ssa og 1'jóSverja, er nú i raun og veru ávalt hið sama að segja, með því að Rússar lialda uppi látlausri sigursókn nctt sem nýtan dag; þeir liafa nú tekið Smol- ensk, sem A’azistar liöfðu haldið i heljar greipum í freklega tvö ár; og eins og viðhorfið nú er. má nokkurn veginn vist telja. að Kiev falli þá og begar. Rauðu sveitirnar eru á ntörg- u:n stöðum komnar vestur yfir Dnieper fljót, og er ekki annað fyrir sjáanlegt, en þar verði einnig alt undan að láta. Staðhæft er, að einn daginn í vik- unni sem leið,.hefðu' Þjcðverjar tnist 8,000 manns á þessum vettvangi striðs- sóknarinnar. — Viðnánt Xazista á ítaliu sýnist fara þverrandi með hverjunt degin- um. Herir santeinuðu þjóðanna hafa nú náð fullu haldi á járnbrautaborg- inni Foggia á Suður-ítaliu, auk þess sem sóknin um X'eapel af þeirra hálfu harðnar og bendir til skjótra, sigur- sæ'la úrslita. í baráttunni um yfirráðin á Nevv Guineu fara Japanir halloka jafnt og þétt fyrir fylkingum Bandaríkjanna og Ástralíumanna; er Japönum auð- sjáanlega ekki farið að litast á blik- una, því uú hafa þeir gert róttækar breytingar á ráðuneytinu, og lækkað ýmissa herforíngja í tign. Sameínuðu þjóðirnar halda uppi látlausum loftárásum á nteginland XTorðurálfunnar, og mánudagskveldið var það iðnaðarborgin Hannover. sem varð fyrir þyngsta skakkafallinu. ♦ ♦ ♦ ORÐASVEIMUR UM UPPÞOT Á HERSKIPUM. Sænska útvarpið flytur þá fregn á sunnudagskvöldið var, óstaðfesta að vísu, að þýzkir sjóliðar á þremur þýzkum her- skipum, sem lágu inni á höfn í Noregi, hefðu stofnað til upp- þots eða samsæris með það fyrir augum, að gera herskip þessi ó- fær til orustu; skipin voru sögð að vera Tirpitz, 40.000 smálestir, Scharnhorst, 26,000 smálestir og Luetzow, sem er um 10.000 smá- lestir að stærð. Nokkru fyrir lok fyrra verald- arstríðs, gerðu þýzkir sjóliðar uppreisn á þeim hluta þýzka flotans, sem var staddur í Keel, og flýtti slíkt eigi alllítið fyrir falli Þjóðverja. Vel má vera, að í þessu tilfelli sé sagamað end- urtaka sig. *_____________________ Nýr dansstaður fyrir Islendinga eina Nú er farið að dansa í Odd- fellow-húsinu á kvöldin frá kl. 9. Hljómsveit Aage Lorange leik- ur. Einungis íslendingum verð- ur leyfður aðgangur. Mun þetta ungum Reykvíking- um fagnaðarefni. Þeir hafa hvergi getað dansað undanfarið á kvöldin, ef ekki eru böll, án þess að þurfa að vera innan um setuliðsmenn. “Restaurationin í Oddfellow- húsinu”, sem Egill Benediktsson rak, hefir nú hætt starfrækslu, en við rekstri veitingasalanna í Öddfellow-húsinu hefir tekið “Tjarnarkaffi h.f.”. Egill Bene- diktsson verður framkvæmdar- stjóri félagsins. Ólíklegt er að sú ráðstöfun fél- agsins, að veita Islendingum ein- um aðgang að veitingasölunum á kvöldin, baki félaginu fjárhags legt tjón. Mbl. 15. júlí. Væntir þess, að kosn- ingar fari ekki fram fyr en í stríðslok í veizlu, sem King forsætisráðherra hélt í Ottawa á mánudagskvöldið þeirn erindrekum viðsvegar úr landinu, sem sóttu' Liberal Federation xingiö, lét hann þess getið, aÖ hann vonaðist til, aö eigi þyrfti að koma til sambanda- kosninga fyr en í striðslok; kjörtíma- bil núverandi þings rennur ekki út fyr en i marz 1945. Á hinn bóginn fór Mr. King ekki dult með það, að ef stríðið yrði ekki á enda í lok vfir- standandi kjörtímabils, færu kosning- ar að sjálfsögðu fram, svo sem lcg mælii fyrir. F.nnfremur lét Mr. King þess getið, að ef fullnægjandi sann- anir kæmu áður fram fyrir því, að kjósendum væri það ógeðfelt, að veita stjórninni stuðning í meginmálum, myndu kosningar verða skynsamleg- asta úrlausnin; þá gæti það og orðið fullgild ástæða til þingrofs og nýrra ltosninga, ef andstæðingaflokkarnir á X'orðurálfunnar, og á mánudagskveld- ið var það iðnaðarborgin Hannover, sem varð fyrir þyngsta skakkafallinu. ♦ ♦ ♦ GULLBRÚÐKAUP. í gær áttu þau Mr. og Mrs. Christian Johnson, 204 Maryland St., hér í borginni, hálfrar aldar hjónabands afmæli, og hafa þau allan þann tíma verið búsett í Winnipeg, þar sem Christián hef- ir gefið sig við húsgagnabólstrun. Mr. Johnson er ættaður frá Hjarð arfelli í Dölum, en frú hans úr Reykjavík. Mr. Johnson er sann færður um að talan 13 sé happa- tala; hann er fæddur 3. septem- ber 1873, kom til Canada 1883 og kvæntist 1893. Mr. Johnson heíir yndi af söng og hljóðfæraslætti og var um eitt skeið organisti við sunnudagsskóla Fyrsta lút- erska safnaðar. Mrs. Johnson er sérlega bókhneigð kona, og hefir mikla unun af lestri fagurra ljóða jafnt á ensku sem íslenzku; bæði njóta þau Mr. og Mrs. Johnson almennra vinsælda af hálfu sam- ferðamanna sinna. Fjórar af sex dætrum þeirra Johnson hjóna eru á lífi, þær Mrs. D. A. Swail, Mrs. T. S. Foulds, Mrs. J. G. Pattie og Mrs. H. M. Weir. Lögberg^ flytur þeim Mr. og Mrs. Johnson innilegar hamingju óskir í tilefni af gullbrúðkaupi þeirra. Nýtt rit Ársrit gefið út til styrktar fyr- ir bókasafn sjúklinga í Kristnes- hæli og félag þeirra þar, er ný- komið á markaðinn. Rit þetta nefnist “Helsingjar” og er útgefandinn “Sjálfsvörn” félag sjúklinga í Kristneshæli. Ritið er hið læsilegasta og mjög snoturt að ytri frágangi, flytur það stuttar smágreinar, ljóð og fleira. Á morgun og næstu daga verð- ur ritið fil sölu hér í bænum og ættu Reykvíkingar, ef að vanda lætur að bregðast vel við þessari málaleitun. Fátt er hinu sjúka fólki nauðSynlegra og velkomn ara til afþreyingar en lestur bóka. — En safn sjúklinganna í Kristneshæli hefir frá fyrstu tíð átt við mikla fátækt að stríða. Einu tekjur'þess hafa verið gjaf- ir hjálpfúsra og <velviljaðra ein- staklinga. Og með núverandi verðlagi á bókum og bókbandi hafa erfiðleikar þess margfald- ast. Það þarfnast því skjótrar og drengilegrar hjálpar. Mbl. 5. ágúst. Bræður vinna sér mikinn frama Kristján Kristjánsson, B.Sc. Baldur H. Kristjánsson, B.Sc. Þessir ungu og efnilegu menn, eiga hvor um sig óvenju glæsilegan menntaferil að baki; þeir hafa einn námsstyrkinn af öðrum hlotið, sem námu allstórum fjárhæðum, og vakið á sér athygli vegna þreks og viljafestu hvar sem leið þeirra hefir Tegið; þeir hafa báðir hlotið rífleg námsverðlaun við Virginia Polytechnic Institute. Kristján lauk prófi í búvísindum við há- r.kólann í Alberta í vor, sem leið, en Baldur utskrifaðist af Manitoba-háskólanum 1939, og sköruðu þeir báðir mjög fram úr skólabræðrum sínum við fullnaðarpróf hvors háskólans um sig. Þessir efnilegu bræður eru synir þeirra Mr. og Mrs. Hannes Kristjánsson á Gimli. Þrettán ný götunöfn á fundi bæjarráðs 29. júlí síðast- liðinn voru lagðar fram tillögur próf. Ólafs Lárussonar, háskólaritara Péturs Sigurðssonar og dr. Einars Ól. Sveins- sonar, um nöfn á nýjum götum á Rauðarárholti suðurhluta Norður- mýrar og í Langholti. Tillögurnar .eru þessar: Rau-ðarárholt: Gatan, sem liggur frá Stórholti að Kringlumýrarvegi samhliða Suður- landsbraut heiti SKIPHOLT. Gatan samhliða Skipholti mrtli hennar og Suðurlandsbrautar heiti BRAUTAR- HOLT. Göturnar frá Suðurlands- braut að Skipholti, talið frá vinstri heiti HÖRGSHOLT, VALLHOLT og STÚFHOLT. Gatan sent liggur til austurs frá Stúfholti heiti KOLS- HOLT. Swffur hluti Norðurmýrar: Gatan sem liggur hprnrétt af Miklubraut að Reykjanesbraut tnilli Miklubrautar og Engihlíðar heiti ESKIHLlD, en gatan milli Eskihlið- ar og Engihlíðar heiti MJÓAHLÍD. Gatan sem liggur frá Háteigsvegi að Rey.kjanesbraut, heiti REYKJA- HLID, og gatan sem liggur í fram- haldi af Nóatúni frá torgi við Há- teigsveg heiti LANGAHLÍD. Langholt: Gatan sent liggur næst fyrir vestan .Langholtsveg og samhliða honum, frá Kleppsvegi, heiti HJALLAVEGUR og næsta gata þar fyrir vestan sant- ltliða Hjallavegi heiti KAMBSVEG- UR. Tillögurnar voru samþyktar. —Mbl. 5. ágúst. Minningarherbergi séra Jóns Halldórssonar í Nýja-Garði Magnús Torfa^on sýslumaður hefir gefið andvirði eins her- bergis, kr. 10.000 til minningar um séra Jón lærða Halldórsson í HítardaL Skal herbergið nefnt “Hítardalur” og er forréttur ætl- aður reglusömum og efnilegum stúdent, er stundar íslenzk fræði, og skal þar um leita tillagna dr. Páls E. Ólafsonar sagnameistara meðan hans nýtur. Mbl. 15. júlí. Stúlka óskast í vist nú þegar; Góð aðbúð, gott kaup. Upplýsing- ar hjá N. Karnasick, 122 Ash St. Sími 403 166. Á heimilinu eru engin börn. María Björnsdóttir Baldvinsson fædd 12. ágúst 1875. — dáin 30. október 1941. Eg leit þig aldrei augum — ' en aðeins bréfin þín. Þar lýsti sér hugur þinn hreinn og góður. og hjartalag göfugrar móður. Eg fann þú varst því vaxin að vinna dagsverk stórt. — I kyrþey var afrek með kærleik unnið, . unz kertið þitt skæra var brunnið. Þér lifðu ljóð í hjarta * , sem lífsins norðurljós. Hver hending var dýrmæt sem hugrekkið treysti, og hugsjóna flugvængi léysti. Hver efar andinn lifi og eignist starfsvið nýtt? Hver efar að lifi þín insta þráin, og ódauðleiks rætist þar spáin? Við eigum endurfundi á æðra sviði lífs. Og systkina hópur er saknar þín hljóður, þar sameinast ástríkri móður. Jakobína Johnson. assssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssssss

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.