Lögberg - 07.10.1943, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines . , A
\ \ \&XV
haVaQ\f& atl For Beiler
Qo*- Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Seven Lines
. * v^vc
,l\
Cot'
nderets
*»4
Service
and
Satisfaction
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. OKTÓBER 1943.
NÚMER 40
Canadadiski tundurspillirinn St. Croix
sprengdur upp í Norður-Atlantshafi—
146 sjóliðar týna lífi
Flotamálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Hon. A. L. Mac-
donald, tilkynnti á föstudaginn
var að canadiski tundurspillirinn
St. Croix, hefði þá fyrir skömmu
verið sprengdur upp í Atlants-
hafi af óvinavöldum. Skip þetta
hafði 147 manna áhöfn, og komst
aðeins einn maður lífs af, W. A.
ÍTALÍA.
Sameinuðu þjóðirnar hafa náð
fullu haldi á hafnarborginni
Neapel, og komið miklum liðs-
auka á land við Termoli á aust-
urströnd ítalíu; er það einkum
hinn 8. her Breta, ásamt Canada-
mönnum, sem þar hefir verið
harðast að verki. Á hinn bóginn
hefir 5. her Bandaríkjanna tekið
Bonevento og bæinn Montesar-
chio, sem liggur þaðan eitthvað
um sjö mílur í suðvestur. Út-
varpsfregnir frá Vichy á þriðju-
dagsmorguninn staðhæfa, að
Albert Kesselring marskálkur,
yfirharshöfðingi Þjóðverja á
þessum slóðum sjái sér ekki leng
ur fært að veita viðnám við
Volturno fljót, heldur sé hann
í óða önn að koma megin herskör
um sínum til Rómaborgar, og
búist þar tij varnar.
Hinn nýi forsætisráðherra
ítalíu, Badoglio marskálkur, hef-
ir í útvarpsræðu lýst því yfir,
að hið endurskipaða ráðuneyti
sitt sé að öllu samsett af einlæg-
um lýðræðissinnum, er staðráðn-
ir séu í því, að hreinsa Italíu af
Fasisma um aldur og æfi. Stjórn-
arsetur ítala er til bráðabirgða
í Neapel og þangað er konungur
kominn, ásamt krónprinsinum,
eftir riokkura útivist á Sikiley.
♦ ♦ ♦
HERFLUTNINGABÖRÐUM
SÖKT.
Aðfaranótt þess 2. þ. m., söktu
amerísk herskip 40 japönskum
herflutningabörðum skamt und-
an Kolombangaraeyjunum í
Vella flóanum í suðvestur Kyrra
hafi; höfðu Japanir barða þessa
í notkun til þess að reyna að
koma undan liði, sem var í þann
veginn að verða króað inni á
þessum vettvangi stríðssóknar-
innar.
♦ -f ♦
CORSICA í HÖNDUM
SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA.
Samkvæmt fregnum' frá her-
stöðvum sameinuðu þjóðanna í
Algiers, hafa hersveitir hinna
frjálsu Frakka tekið hafnarbæ-
inn Bastia á norðausturströnd
Corsicu, og þar með náð í raun
og veru fullu haldi á eynni. Út-
varpið í Berlín skýrði frá því á
mánudaginn, að Þjóðverjar hefðu
komið undan megininu af liði
þeirra á Corsicu yfir á meginland
ítalíu.
■f -f f
JAPANIR HEFJA MAGNAÐA
SÓKN í KÍNA.
Um síðustu helgi hófu Japanir
grimmilega sókn í suðaustur
fylkjum Kína, og unnu þar svo
mikið á, að Kínverjar urðu meðal
annars, að gefa upp járnbrautar-
borgina Suancheng, sem liggur
um 80 mílur suður af Nanking.
Mrs. J. Preece jan
867 Winnipeg Ave.
Fisher, kyndari frá Black Dia-
mond, Alberta. St. Croix var í
gæzlufylgd með skipalest all
mikilli, sem var á vesturleið um
Atlantshaf, sem fylking þýzkra
kafbáta veitti eftirför. Harðvítug
viðureign stóð yfir milli beggja
aðilja, er lauk með því, að átta
skipum úr skipalestinni var sökt.
LÝKUR PRÓFI í HJÚKRUNAR-
FRÆÐI.
Miss Helga Erica Dalman
Þessi glæsilega og gáfaða
stúlka, Miss Helga Erica Dalman
hefir nýlega lokið prófi í hjúkr-
unarfræði með fyrstu ágætiseink
unn, við St. Pauls sjúkrahúsið
í Saskatoon; hún er dóttir J. B.
Dalmans og konu hans Guðrúnar
Jakobsdóttur, nú látin, frá Dala-
bæ við Siglufjörð. Miss Dalman
er alin upp af þeim Mr. og Mrs.
E. Helgason í Kandahar, Sask.
♦ f
ÁRÁS Á EYNA COS
Skömmu eftir miðjan septem-
ber síðastliðinn, náðu herir sam-
einuðu þjóðanna fótfestu á eynni
Cos, sem telst til Dodecanese
eyjaklasans, og bjuggu þar, að
því er í fyrstu virtist, all ramm-
byggilega um sig. En í lok fyrri
viku, sendu Þjóðverjar öflugan
flokk fallhlífarliðs til eyjarinnar,
og náðu brátt haldi á megin flug
völlunum á staðnum. Cos-eyjan
er 23 mílur á lengd. Harðir bar-
dagar standa enn yfir á eynni,
og hafa Þjóðverjar fram að þessu
haft þar yfirhönd.
f f f
SKIPAÐUR í HÁA
ÁBYRGÐARSTÖÐU.
íslendingurinn Dr. Edward
Johnson, hefir verið skipaður
yfirlæknir og yfirumsjónarmað-
ur geðveikraspítalans í Selkirk,
í stað Dr. E. C. Barnes, sem ný-
lega hefir fengið lausn frá em-
bætti. Dr. Johnson hefir gegnt
aðstoðar umsjónarmannsembætti
við áminstan spítala í síðastliðin
13 ár.
Dr. Edward Johnson er fædd-
ur í Winnipeg, sonur Guðmund-
ar Johnson, sem um langt skeið
rak álnavöruverzlun hér í borg-1
inni, og Katrínar konu hans, sem
bæði eru látin.
Dr. Johnson er útskrifaður í
læknisfræði af Manitoba-háskóla
með hinum lofsamlegasta vitnis-
burði, en stundaði framhalds-
nám í Boston og við Johns
Hopkins spítalann í Baltimore,
lútandi að sérgrein sinni á sviði
læknisfræðinnar.
i i
“Opin er feigs vök”, segir hið
fornkveðna, og koip það1 hér sem
oftar á daginn. Brezk hersnekkja,
sem viðstödd var viðureign þessa
bjargaði áttatíu og einum manni
af St. Croix, en slíkt varð skamm
góður vermir, því fáum mínút*
um seinna var hersnekkjunni
með allri áhöfn, einnig sökt í
saltan mar.
Dr. Johnson er kvæntur maður
og á þrjú börn. Hann hefir tekið
mikinn og gifturíkan þátt í vel-
ferðarmálum Selkirkbæjar.
Fimm senatorar á ferð
heimsækja ísland
“Markmið okkar er að skapa
heim, þar sem hver einasta þjóð
hefir það stjórnarfyrirkomulag,
sem hún kýs sér helst og þar
sem engin þjóð líður vegna smæð
ar sinnar og engin þjóð hagnast
vegna veldis síns”. Með þessum
orðum lýsti Richard B. Russell,
þingmaður frá Georgia, mark-
miði Bandaríkjamanna með styrj
öldinni. Russell er formaður 5
manna þingnefndar, sem kom
hingað til þess að heimsækja
amerísku hersveitirnar,
dveljast hér.
Þessi þingnefnd Bandaríkj-
anna, sem hefir það hlutverk
að fylgjast með starfi og að-
búnaði amerísku hersveitanna
utan Ameríku, var hér um kyrt
í tvo daga.
Af þossum nefndiarmönnum,
sem komu hingað til landsins
síðastliðið miðvikudagskvöld, eru
3 demokratar og 2 republikanar.
Auk Russells, sem er demokrati,
eru í nefndinni þetssir mdnn:
James M. Mead, demokrati frá
New York, Albert B. Chandler,
demokrati frá Kentucky, Henry
Cobot Lodge yngri, republikani
frá Massachusetts og Ralph O.
Brewster, republikani frá Maine.
í fylgd með Key hershöfðingja
og yfirmanni flotans og undir-
mönnum þeirra, skoðuðu nefnd-
armennirnir herstöðvar hér. Þar
sem þeir höfðu ekki nein erindi
við íslenzk stjórnarvöld, þá komu
þeir ekki til fundar við neina
íslenzka embættismenn.
Þeir áttu stutt viðtal við ís-
lenzka blaðamenn og aðra frétta-
ritara í skrifstofu Leland B.
Morris sendiherra.
Viðlal við blaðamenn.
Richard B. Russel, formaður
nefndarinnar, hafði orð fyrir
nefndarmönnum og fórust hon-
um svo orð:
“Okkur er, sem fultrúum
Bandaríkjaþings, sérstök ánægja
að koma hingað til íslands, vöggu
þingræðisins. — Þjóð okkar neyt-
ir allrar orku til að yfirbuga
óvinina, sem við eigum í höggi
við, og við munum gera það,
hversu langan tíma, sem það
mun taka. Jafnvel áður en þjóð
okkar fór í stríðið, sýndu Is-
lendingar mikinn skilning á mál
stað okkar, og þeir báðu um
vernd hersveitanna, sem nú eru
Hér. Við erum mjög þakklátir
fyrir gestrisni íslenzku þjóðar-
innar og afstöðu hennar og
stjórnar hennar til okkar verð-
ur ekki feld úr minni.
“Eg harma það að við skyldum
verða að hafa hér svo stutta við-
dvöl, að við gætum ekki átt form
legan fund með fulltrúum ís-
lenzku stjórnarinnar, en við
biðjum ykkur, fulltrúa blaðanna,
að færa þeim og íslenzku þjóð-
inni allri dýpstu þakkir vorar.
ísland er fyrsti aðalviðkomu-
staðurinn á ferð okkar, og mig
langar til þess að segja það, að
mér finst Island vera fagurt
land. Eg harma það að geta ekki
verið hér lengur, til þess að reyna
veiðiárnar ykkar, sem eg hefi
heyrt mikið látið af. Mér myndi
þykja gaman, ef eg gæti ein-
hverntíma seinna skroppið hing-
að, þegar eg hefi frí frá störfum,
og rent í árnar”.
Þingmennirnir drápu á ýmis-
legt, sem þeim hafði komið í
hug, þegar þeir voru að skoða
sig um hér. “Eg hefi mikinn á-
huga á kartöflurækt ykkar,”
sagði Brewster þingmaður frá
Maine. “Eins og þið vitið, þá er
mikil kartöflurækt í Maine. Og
mér hefir verið sagt, að veturnir
hér séu mildari en í Maine”.
“Mér leist líka vel á hestana
ykkar,” sagði Chandler, þing-
maður frá Kentucky. “Eins og
ykkur mun kunnugt, er Kentucky
heimsfrægt fyrir góða hesta. Eg
sá skeiðvöllinn, þar sem nýlega
voru haldnar kappreiðar, og mér
hefir litist mjög vel á þá íslenzku
hesta, sem eg hefi séð.”
Aðslaða íslendinga eflir slríð.
Einn íslenzku blaðamannanna
spurði: “Hvernig verður aðstaða
íslendinga, sem einnar smáþjóð-
anrva að stríðinu loknu.
■ Um svör Russells voru allir
nefndarmennirnir sammála, en
það var svona: “Markmið okkar
er heimur, þar sem hver þjóð
hefir þá stjórn, er hún kýs, og
þar sem engin þjóð líður tjón af
smæð sinni, og engin þjóð hagn-
ast vegna þess hve voldug hún
er.
Þingmennirnir voru sérstak-
lega ánægðir með heilsufar her-
sveitanna hér á landi, og bentu
á það, að veikindi væru minni
meðal hersveitanna á íslandi en
jafnvel í Bandaríkjunum.
Þingmennirnir skoðuðu helstu"
herstöðvar hér nærlendis, könn-
uðu liðið á stöðvum landhersins,
flughers og flota. Auk þess var
þingmönnum gefin skýrsla af
mönnum þeim, sem stjórna stjórn
arskrifstofum Bandaríkjanna hér
á landi, upplýsingaskrifstofunni,
vöruflutninganefndinn og láns-
og leigulagaskrifstofunni, en
fyrir milligöngu hennar hafa
þegar vérið keyptar fyrir 52 milj.
dollara íslenzkar vörur til þess
að senda til Englands samkvæmt
láns- og leigulögunum.
Ungir öldungar.
Það var skemtilegt fyrir ís-
lenzka blaðamenn að fá tækifæri
til að eiga tal við þessa öldunga-
deildarþingmenn, þótt ekki væri
nema stutt stund. “öldunga
deild” þýðir auðvitað “deild gam
alla manna”. En það voru engin
gamalmenni, sem komu hingað.
Formaður nefndarinnar, Russell,
er tæpra 46 ára gamall. Mead
er elstur, hann verður 58 ára í
desember. Brewster er 55 ára að
aldri, Chandler 45 ára og Lodge,
sem er yngstur þeirra, er 41 árs.
Það var afi hans, Henry Cabot
Lodge, þigmaður, sem var í
broddi fylkingar þeirra manna,
sem voru á móti því, að Banda-
ríkin gengju í Þjóðabandalagið
eftir síðustu styrjöld. Lodge þekk
ir hermálin, meira en af afspurn.
Hann er majór í skriðdrekasveit
hersins, og í fyrra, þegar hann
átti frí frá þingstörfum, fór hann
til Norður-Afríku og barðist þar.
Við það að tala við þessa menn
varð mönnum ljóst, að ríkjatil-
finningin í Bandaríkjunum er
mjög sterk. — Einn talaði um
kartöflur, aðalframleiðsluvöruna
í sínu ríki. Annar talaði um
hrossarækt, af því að ríki hans
var frægt á því sviði. Allir voru
þeir kumpánlegir og voru auð-
sjáanlega van;r að koma fram
sem stjórnmálamenn. Við her-
könnunina, þar sem þeir voru í
virðulegri fylgd hershöfðingja,
stönsuðu þeir oft fyrir framan
óbreyfta liðsmenn, röbbuðu við
þá og rifjuðu upp sameiginlegar
endurminningar, ef þeir hittu
mann frá sama ríki og þeir voru
sjálfir.
Mbl. 1. ágústA
í ÞÁGU FISKIVEIÐANNA.
Náttúrufríðinda ráðherra fylk-
isstjórnarinnar í Manitoba, Hon.
J. S. Mc Diarmid, og aðstoðar-
ráðherra hans, Mr. Stephens,
fóru suður til Chicago í fyrri
viku í þágu fiskiveiðanna, til þess
íð reyna að koma í veg fyrir
það, að Bandaríkjastjórn setti
slíkt ákvæðisverð á fisk úr Sléttu
fylkjunum, er framleiðendur og
fiskkaupmenn stæðu sig ekki
við. Um fullan árangur af ferð
þessari, er enn ekki vitað með
fullu, þó líklegt sé að hann verði
nokkur. Af hálfu íslendinga tóku
þátt í för þessari, Mr. G. F. Jóns-
son, forstjóri Keystone Fisheries
Ltd. og Mr. S. V. Sigurðsson, for-
stjóri Sigurðsson Fisheries Ltd.
í Riverton.
♦ ♦ ♦
RÚSSLAND.
Frá sókn Rússa við Kiev hafa
engar fregnir borist síðustu dag-
ana, hvorki frá Berlín né Moskva,
þó víst sé, að harðar atrennur
eigi sér þar stað; á flestum víg-
stöðvum Rússlands eru haustrign
ingar komnar í algleyming, og
hafa þær hamlað sókn og vörn
á báðar hliðar.
♦ ♦ ♦
MANNFAGNAÐUR.
Á laugardagskvöldið var, komu
saman eitthvað um fjörutíu
manns á heimili þeirra Mr. og
Mrs. Ágúst Sædal, 696 Simcoe
Street hér í borginni, til þess að
samfagna þeim á hinu þrítugasta
og fimta hjónabandsafmæli
þeirra, og jafnframt í tilefni af
því, að þetta kvöld voru öll hm
mannvænlégu börn þeirra heima
sonur þeirra, Bob, sem er* í sjó-
hernum, var þá nýkominn heim
í viku heimsókn til foreldra sinna
og systkina.
Einar P. Jónsson, vinur þeirra
Sædalshjóna frá samverutímum
í Reykjavík, hafði orð fyrir gest-
um, og bar fram árnaðaróskir til
heiðursgestanna frá vinum og
vandamönnum, jafnframt því,
sem hann af þeirra hálfu, af-
henti þeim silfurborðbúnað að
gjöf til minja um atburðinn. Til
máls tóku einnig Hannes Péturs-
son, Bergþór Emil Johnson,
Sveinn Oddson og frú Ingibjöfg
Jónsson, er öll hyltu þessi mætu
hjón með hlýjum árnaðaróskum.
Nokkrir menn úr Karlakór ís-
lendinga í Winnipeg, voru við-
staddir þennan mannfagnað, og
sungu nokkur iög undir leiðsögn
Gunnars Erlendssonar, og þótti
það hin bezta skemtun. Þau Mr.
og Mrs. Sædal þökkuðu hvort um
sig með vel völdum orðum, þá
góðvild, er þessi óvænta heim-
sókn bæri vott um, og árnuðu
gestum framtíðarheilla.
Ágúst Sædal er ættaður af
Húsavík í Þingeyjarsýslu, en
kona hans, Mínerva, fædd og upp
alin í Reykjavík.
Islenzkur fremdarmaður
Sigurður W. Melsied. Ph.D.
Sigurður W. Melsted, sonur
hjónanna Benedikts og Geirfríð-
ar Melsted, sem búa skamt frá
Garðar, N.-Dak., var, 7. júní ’43,
sæmdur doktorsgráðu Ph.D. af
University of Illinois. Hann haíði
lagt fyrir sig jarðræktarfræði, og
hlaut doktorsgráðuna í þeirri
vísindagrein.
Sigurður fæddist 23. nóv. 1911,
að heimili foreldra sinna í Garð-
ar-bygð. Þar ólst hann upp.
Barnaskólanám stundaði hann í
heimabygðinni en miðskólanám
við búnaðar miðskólann í Park
River, N.-Dak. Þaðan útskrifað-
ist hann með lofsamlegum vitn-
isburði vorið 1930. Næstu fjögur
árin dvaldi hann í foreldrahús-
um, og stundaði búskap með
föður sínum. Þennan tíira tók
hann mikinn þátt í félags- og
velferðar-málum sveitarinnar.
Haustið 1934 innritaðist Sig-
urður til náms við búnaðarskól-
ann í Fargo, N.-Dak., og útskrif-
aðist þaðan vorið 1938, sem
Bachelor of Science í vísinda-
legri búfræði. Vegna framúr-
skarandi námfýsi, dugnaðar og
ágætis vitnisburðar, bauðst hon-
um tækifæri til framhaldsnáms
og til vísindalegra rannsókna á
jarðvegs efnafræði, við Rutgers
College, New Brunswick í New
Jersey. Þessu glæsilega boði tók
hann, og gaf sig við tilteknu
verköfni næstu tvö árii^, við
ágætan orðstír, og hlaut að þeim
tíma liðnum meistaragráðuna
Master of Science in Soil Chemis
try.
Haustið 1940 bauðst honum
staða við University of Illinois til
að aðstoða við rannsóknir þær,
sem sá skóli hefur með höndum.
Eftir tveggja ára veru við það
verk, var hann kjörinn til að
vera einn af þeim mönnum sem
reka þessar rannsóknir fyrir hönd
skólans.
Að námshæfileikar og dugn-
aður þessa unga manns hafi vakið
eftirtekt, sést meðal annars á
því að hann hefur verið kjörinn
meðlimur í Sigma Xi. Phi Kappa
Phi, Gamma Sigma Delta, og
Alpha Zeta, sem öll taka í með
lima tölu sína aðeins þá er sér-
staklega hafa skarað fram úr
námsmönnum skólanna. Auk
þess er Sigurður meðlimur i
American Chemical Society,
American Society of Agronomy,
og Soil Science Socitey of Aem-
rica. Það vita kunnugir að engir
aðrir en þeir allra færustu með-
al námsmanna, eiga kost á að
gjörast meðlimir í þessum fél-
ögum.
Vinir og nágrannar samgleðj-
ast þessum glæsilega unga
manni, foreldrum hans og syst-
kinum yfir sigri þeim er hann
hefir unnið yfir öllum erfiðleik-
um sem hafa mætt honum á
mentabraut hans. Og heillaóskir
þeirra fylgja honum út í lífið.
K. H. O.