Lögberg - 02.12.1943, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
VVUV'
SYÍO*.
i \ Vvw^cA
*SSS>
o°r-
For Belier
Dry Cleaning
and Laundrv
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. DESEMBER 1943.
NÚMER 48
Félag Islendinga í Madison
STÓRMERKUR VIÐBURÐUR
í HLJÓMLISTARÞRÓUN
WINNIPEGBÚA.
Sitjandi frá vinstri: Júlíus Guðmundsson, Dr. H. Þórðarson,
Sigurður Siguðsson. Sitjandi í miðju: Jón Ragnar Guðjóns-
son. Standandi frá vinstri: Þórhallur Halldórsson, Águst
Sveinbjörnsson, Unnsteinn Stefánsson.
Þann 30. október 1943 stofnuðu íslendingar þeir sem stunda
nám við The University of Winsconsin, með sér féiag.
Dr. Hjörtur Þórðarson frá Chicago, sem dvaldist í Madison
um þetta leyti, hélt boð í Madison Club í tilefni þess. Voru þar
samankomnir íslenzku stúdentarnir, auk doktorsins.
Stjórn félagsins skipa: Ágúst Sveinbjörnsson, formaður, Þór-
hallur Hdlldórsson, upplýsingastjóri og Unnsteinn Stefánsson
ritari.
Helztu markmið félagsins eru: .
1. Auka þekkingu á*lslandi og íslenzkri menningu.
2. Auka samstarf meðal íslenzkra námsmanna annarstaðar
í Ameríku.
3. Gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart háskólanum.
4. Fundir skulu haldnir tvisvar í mánuði. Skemta þá félags-
menn með söng og upplestri á íslenzkri tungu.
Enn sem komið er, er félagsskapurinn fámennur, en væntan-
iegir eru hingað fleiri stúdentar á þessu ári og bætast vonandi
enn fleiri í hópinn á næstu árum.
Núverandi meðlimir eru: Sigurður Sigurðsson, 312 N. Mills St.,
íitskrifaður úr Viðskiptadeild Háskóla Islands. Leggur stund á
endurskoðun og skattamál. Ágúst Sveinbjörnsson, 621 N. Lake St.,
senior stúdent. Leggur stund á efnafræði. Þórhallur Halldórsson
sophomore stúdent. Leggur stund á mjólkuriðnfræði. Heimilis-
íang: 1012 W. Dayton St. Unnsteinn Stefánsson, junior stúdent,
314 N. Park St. Leggur stund á bakteríufræði. Júlíus Guðmunds-
son, sophomore stúdent. Leggur stund á efnafræði. Heimilisfang:
316 N. Park St. Jón Ragnar Guðjónsson, sophomere stúdent.
Leggur stund á viðskiptafræði. Heimilisfang: 1027 W. Johnson St.
Félaginu veittist sá heiður að hafa Dr. Hjört Þórðarsón við-
staddan, er það var stofnað, og var hann einróma kjörinn fyrsti
heiðursmeðlimur þess. Doktorinn er þegar heimsfrægur fyrir upp-
götvanir sínar og nú að undanförnu hefir hann unnið að nýrri
mjög þýðingarmikilli uppgötvun, sem vafalaust mun vekja mikla
athygli. öllum íslenzku stúdentunum í Madison* líður vel og
una hag sínum hið bezta.
HELZTU FRÉTTIR
SKÁLDIÐ HÁLFNÍRÆÐA.
Magnús Markússon, skáld, varð
hálfníræður á laugardaginn var,
og býr hann nú með Jónínu
dóttur sinni að Ste 24 Dorothy
Apts., Charlotte Street, hér í
borginni; hann nýtur enn góðr-
ar heilsu, gengur teinréttur, og
er hvergi nærri hvítur fyrir
hærum; hitt er þó meira um
vert, hve ungur hann er í anda,
og fylgist vel með í straumum
og stefnum hins nýja tíma. Magn
ús hefir ort mikið um dagana,
og honum hefir altaf verið að
fara fram í þeim efnum; og það
er síður en svo, að nýjustu kvæð-
in hans beri á sér nokkur elli-
mörk.
Eftirfarandi erindi lét lyiagnús
skáld Lögbergi í té til birtingar,
í tilefni af áminstum afmælis-
degi:
Gegnum heimsins glaum og tár,
gekk eg sinni fríu,
flughröð yfir farin ár
fimm og áttatíu.
Lof sé þeim, sem lífið gaf,
ljós cfé húm á vegi:
bráðum næ eg heim um haf
höfn að liðnum degi.
Lögberg árnar skáldinu allra
heilla í tilefni af hálfníræðisaf-
mælinu.
♦ ♦ ♦
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
VINNA Á í ÍTALÍU.
Samkvæmt nýjustu fregnum,
hefir 8. herinn unnið allmikið á
í ítalíu undanfarna daga, og rof-
ið varnarlínu þjóðverja á mörg-
um stöðum meðfram Sangro
fljótinu, þrátt fyrir illviðri og
hálfófæra vegi.
♦ ♦ ♦
NÝR UTANRÍKISRÁÐHERRA.
Símfregn frá Ankara á Tyrk-
landi á miðvikudagsmorguninn,
lætur þess getið, að víst megi
telja að Franz von Papen, sem
þar hefir verið sendiherra Þjóð-
verja frá því í stríðsbyrjun, tak-
ist þá og þegar á hönd forustu
utanríkismálanna íyrir hönd
Nazista, með því að Joachim von
Ribbentrop sé í þann veginn að
láta af embætti vegna ágreinings
við þýzku stjórnina, út af stefnu
hennar viðvíkjandti suðaustur
Evrópu ríkjunum.
Miss Agnes Sigurðson efndi til
píanóhljómleika í Winnipeg
Auditorium síðastliðið mánu-
dagskvöld, við ágæta aðsókn og
svo mikla hrifningu af hálfu
áheyrenda, að með fágætum telst
viðfangsefni þessa unga, og Cim
margt sérstæða píanóleikara,
voru eftir Back, Mendelssohn,
Liszt, Debussy, Rachmaninoff og
fleiri; um meðferð Agnesar á við
fangsefnum sínum, er það eitt að
segja, að hún túlkaði þau, hvert
út af fyrir sig, eins og sá einn
gerir, sem vald hefir, án hiks eða
efa; hún þótt enn sé.ung, ræður
yfir slíkri tækni, að hrifningu
hlýtur almennt að vekja, þótt hitt
sé vitanlega meira um vert, hve
tjáning hennar er næm, og í
ýmissum tilfellum mótuð sjald-
gæfum, dramatiskum þunga.
Þeim, sem á leik Agnesar hlýddu,
mun seint úr minni líða tjáning
hennar á sónötu Liszts, þessu há-
dramatiska listaverki, sem stend-
ur eins og klettur úr hafinu, ein-
stakt í sinni röð; annað veifið
minti leikur ungfrúarinnar á
þrumur og eldingar, en á hina
hliðina líktist hann mildum grát-
^kúrum.
Agnes Sigurðson er ekki efni í
píanósnilling, hún er þegar orðin
vængjaður snillingur, sem ef alt
skeikar að sköpuðu, þúsundir eiga
eftir að lúta.
Komin
Frá því var skýrt síðast ac
“Landnámssaga íslendinga í
Vesturheimi,” II. bindi, mundi
koma á bókamarkaðinn um þessi
mánaðamót. Þetta voru engar
ýkjur; bókin er komin og salan
•byrjuð. Það voru heldur engar
ýkjur að þetta yrði myndarleg
bók og vel úr garði gerð. Hún er
hin prýðilegasta að öllum frá-
gangi: prentun, pappír og band
hið ágætasta; auk þess flytur
þetta bindi myndir og landabréf,
sem stórkostlega eykur gildi bók-
arinnar; ennfremur má taka það
fram að hún er meira en fjórða
parti stærri en fyrsta bindið. I
Fyrsta eintak af þessari bók
sem seldist, var keypt í brúðar-
gjöf. Var það vel til fallið, oi
lýsti því hversu sannur íslend]-
ingur gefandinn er. Bókin eí'
einmitt ágætlega til þess fallin
að kaupa hana til hátíða- og
tækifærisgjafa, svo sem afmælis-
gjafa, brúðargjafa, jólagjafa,
nýársgjafa og sumargjafa. Með
því að kaupa hana til tækifæris-
gjafa er tvent unnið í senn:
þiggjandinn fær hlut, sem bæði
flytur fróðleik, skemtun og gagn,
en gefandinn styður gott og nyt-
samt málefnLmeð því að kaupa
bókina.
Verðið er aðeins $4.00 og er
það afar ódýrt samanborið við
verð annara íslenzkra bóka nú.
Sendið pantanir til Mr. J. J.
Swansons, Avenue Block.
Sig. Júl. Jóhannesson.
KUNNUR RITHÖFUNDUR
LÁTINN.
Síðastliðinn föstudag lézt í Tor
onto, Sir Charles Roberts, einn
hinna víðkunnustu rithöfunda í
Canada, 83 ára að aldri; eftir
Sir Charles liggja 67 bindi frum-
saminna ljóða, skáldsagna, æfi-
sagna og sögulegra ritverka. í
öndverðum októbermánuði síðast
liðnum, kvæntist Sir Charles í
annað sinn, og gekk þá að eigá
ungfrú Joan Montgomery, 33 ára
er starfaði við loftskeytastöð í
smábænum Maltofi skamt frá
Toronto. Hjartabilun varð Sir
Charles að bana.
Á LEIÐ TIL MOSKVA.
Bandaríkjaútvarpið lét þess
getið á þriðjudagskvöld, að þeir
Roosevelt forseti, Churchill for-
sætisráðherra og Chiang Kai-
Shek, forseti kínverska lýðveldis
ins, séu á leið til fundar við
Stalin; þess er ekki getið, hvar
fundurinn verði haldinn, þó lík-
legt þyki, að Moskva verði fyrir
valinu.
♦ ♦ ♦
KJÖRINN TIL
FLOKKSFORUSTU
Hon. Sluari S. Garson.
Á nýlega afstöðnu ársþingi
Liberalsamtakanna, serr). haldið
var hér í borginni, þar sem sú
ákvörðun var tekin, að þessi
fylkissamtök skyld'u framv^gis
ganga undir nafninu Liberai
Prögressive, var núverandi for-
sætisráðherra Manitobafylkis,
Hon. Stuart S. Garson. kosinn í
einu hljóði til flokksforustunnar;
ekki verður um það vilst, að
hann sé langhæfasti maðurinn,
sem völ var á í slíka ábyrgðar-
stöðu, því hann er, eins og þar
stendur, vaskur maður og batn-
andi.
Forseti hinna endurskírðu
stjórnmálasamtaka íyrir næsta
starfsár, yar kjörinn Mr. Veals
frá Darlingford.
Indíána sumarið
Seti saman í október 1943.
I gær mér virtist endað sumaryndi
og áin kvað mér sorgar ljóð.
Er skrúðlaus öspin skalf í nöprum vindi,
og skýjabólstrum norðrið hlóð.
Er laufin föllnu fuku um bleika haga,
og frostið hafði blómin deytt.
Á alt var ritað haustsins harma saga
og hjartans þrá í söknuð breytt.
Eg gekk um skóginn gripinn haustsins dróma,
og geigur þungur hug minn sló.
Eg þráði ljóð, og þýða sumar óma,
en þögnin ein í runnum bjó.
Þá fanst mér drjúpa feigð úr skýi hverju,
en foldin böndum dauðans háð.
-Sem skógarbjörn að eiga væna verju
í vetrarhýði, sýndist ráð.
1 dag er loftið dýðrarljóma vafið;
en dökku skýin horfin öll.
Og sólin breiðir gullna geisla trafið
um gisinn skóg og bleikan völl.
Það er sem haustið bjóða vilji bætur
og bera smyrsl í lífsins sár,
Og frostið hikar, hrímklædd jörðin grætur,
og hélan verður daggartár.
Þó fækkað hafi fögrum sumartónum,
og fallin hvíli blóm við mold.
Er kvakað dátt hjá lækjum, tjörn og lónum
og litir haustsins skreyta fold.
í fjarsýn litast landið blárri móðu,
þar leikur frjáls hin spaka hjörð.
Nú er sem haf og harður spái góðu,
og himinn fagur blessi jörð.
Kristján Pálsson.
TVENNSKONAR AFMÆLI.
Á þriðjudaginn þann 3Q. nóv.
átti Hon. James G. Gardiner,
landbúnaðarráðherra sambands-
stjórnarinnar sextugs afmæli, og
voru þá jafnframt liðin þrjátíu
ár frá þeim tíma, er hann fyrst
var kosinn á fylkisþing í Sask.
í tilefni af þessum eyktamörk-
um í lífi ráðherrans, var honum
þenna áminsta dag haldið fjöl-
mennt og veglegt samsæti í
Regina af flokksbræðrum hans
víðsvegar úr fylkinu.
Mr. Gardiner er einn hinn
harðsnúnasti bardagamaður, sem
nú er uppi á vettvangi stjórn-
málanna í þessu landi.
Nýkosnir bæjarfulltrúar í 2. kjördeild
Nýkosnir skólaráðsmenn í
2. kjördeild