Lögberg - 16.08.1945, Blaðsíða 8

Lögberg - 16.08.1945, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. ÁGÚST, 1945 Or borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E W. Perry, 723 Warsaw Ave., Mrs. E. S. Felsted, 525 Dominion Street. Verð $1.00. Burðargjald 5c. • Á föstudaginn 10. ágúst voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju, þau John William Norberg í Winnipeg og Jórunn Andrey Johnson, frá Oak View, Man. Brúðurin er dóttir Jóhannesar Ágústs John- son bónda í Oak View, og Berg- þóru konu hans, er hún bráð- myndarleg og vel gefin stúlka. Að afstaðinni hjónavígslunni fór fram fjölsetin veizla í Picardy samkvæmissalnum, og var veitt þar af hinni mestu rausn. Framtíðarheimili ungu hjónanna verður í Montreal. • Ungfrú Svava Brand, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Thor Brand, sem vinmörg eru hér vestra, og dvelja á Islandi, hefir dvalíð í borginni um hálfsmánaðar tíma; hún var nokkra daga norður á Lundar hjá ömmu sinni, Mrs. Helgi Bjarnason. Ungfrú Svava lagði af stað suður til Bandaríkjanna á föstu- daginn, og ráðgerði að dvelja í Oregon-ríkinu í haust og kom- andi vetur við nám í ljósmynda- gerð. Mr. og Mrs. Paul Ásgeirsson frá Fort William, hafa dvalið í borg- inni um hríð í heimsókn til ætt- menna og vina. • Mr. og Mrs. Vigfús Baldwin- son, sem lengi voru búsett í Wynyard, eru nú flutt hingað til borgar, og er heimili þeirra áð 715 Goulding St. • Séra Rúnólfur Marteinsson og frú, eru nú búsett að 800 Lipton Street hér í borginni, eft- ir nokkurra ára dvöl í Vanvouver Símanúmer séra Rúnólfs er 28 168. Ungfrú Gerða Ásvalds frá Reykjavík, er nýlega komin hing að til borgar, og gengur í þjón- ustu þeirra Dr. og Mrs. P. H. T. Thorlákson. • Herra Ólafur Pálsson skóla- stjóri, er nýkominn til borgar- innar frá íslandi, og hyggst að dvelja hér árlangt til þess að kynna sér barnafræðslu og skóla mál; hann er ættaður'úr Arnar- fjarðardölum. • Líknamefndin norska, í félagi við norsku Rauða kross samtök- in, efnir til útiskemtunar á laug- ardaginn þann 18. þ. m., við hið fagra heimili Ernest Parkers, 185 Oakdean Bouleward, Sturg- eon Creek; skemtunin stendur yfir frá kl. 2.30' e. h. til 9 e. h. Ágóðanum verður varið til styrktar norsku þjóðinni. Þess er að vænta, að fjölmennt verði á þessari útiskemtun, því gott og nytsamt málefni á í hlut. I síðasta Lögbergi er getið um giftingu í Concordia kirkju þ. 27. júlí, nafn brúðgumans sett: William Frederic Rupert, á að vera Frederic Rupert Kirkham. S. S. C. • Merkis og sæmdarkonan Guð- rún Hjörleifsdóttir, kona skálds- ins víðkunna Jóhanns Magnúsar Bjamasonar, lézt að heimili þeirra hjóna í Elfros, Sask., s. 1. föstudagskvöld; hún hafði átt við langvarandi vanheilsu að búa; þessar ágætu konu verður vafa- laust nánar minst hér í blaðinu áður en langt um líður. Lögberg tjáir hinu eftirlifandi skáldi inni legustu samúð sína. Messuboð Fyrsta luterska kirkja Hátíðaguðsþjónustur fara fram í Fyrstu lútersku kirkju næstkomandi sunnudag 19. ágúst í tilefni af stríðslokum. Kl. 11 f. h. verður messað á ensku en kl. 7 e. h. á íslenzku, eins og venjulega. Allir ævinlega velkomnir. V. J. E. • Prestakall Norður Nýja íslends 19. ágúst—Geysir, ferming og altarisganga kl. 2 e. h. B. A. Bjarnason. • Áætlaðar messur í Vatnabygðurn Sunnudaginn 19. ágúst: Leislie, kl. 1 e. h. Wynyard, kl. 7 e. h. Allir velkommr. S. Ólajsson. • Messað á Vogar kl. 2 e. h. sunnudaginn 26. ágúst n. k. H. E. Johnson. Special Service. Hecla — August 19, at 2 p.m., the “Honor Roll”, containing the names og those that served in His Majesties forces and, who are members and arherents of the Lutheran Church of Hecla, will be unveiled. The guest speaker will be Mr. Paul Bardal, M.L.A. The sermon will be preached by arh Parish minister. Both languages will be used. Skúli Sigurgeirson. Mr. og Mrs. Hermann Björns- son frá Chicago, hafa dvalið í borginni undanfarna daga. • Þeir feðgarnir Jónas Helgason frá Baldur, Man., og Helgi J. Helgason frá D’arcy, Sask., eru nýlega komnir heim úr skemti- ferð vestan af Kyrrahafsströnd, dvöldu þeir lengst af tímans í Vancouver, hittu þar fjölda ís- lendinga, og höfðu yfir höfum að tala ósegjanlegt yndi af ferða- laginu. Jónas Helgason er "nú maður all-mjög hniginn að aldri, en heldur sér mæta vel og leik- ur við hvern sinn fingur. • Gjafir til Betel Mr. S. Swanson, Edmonton $5.00. Mr. Víglundur Vigfússon, Wpg $2.00. Mr. og Mrs. G. J. Oleson, Glenboro “To honor the memory of Mr. Oleson’s brother Gudmundur Olson who died at Winnipeg July lst 1945” $5.00. Kvenfélag Herðubreiðarsafnaðar Langruth $15.00. Mr. og Mrs. Th. I. Hallgrímson, Cypress River, Man. In memory of J. B. Jónsson Kandahar, Sask. $5.00. A. V. H. Baldwin, Campbell River, B.C. Kassi með íslenzkum bókum. Kærar þakkir fyrir þessar gjaf- ir. i J. J. Swanson, féhirðir. • Vinarkveðja og þökk. Þegar við nú eftir fjótrán ára dvöl í Wynyard, erum flutt það- an og komin til Winnipeg, hvarfl ar hugurinn að sjálfsögðu oft vestur til hinna mörgu vina, sem við bárum gæfu til að eign- ast þar um slóðir; endurminn- ingarnar um þá verða okkur jafnan dýrmætar, og fylgja okk- ur alla leið á brautarenda. Við þökkum innilega hið fjöl- menna og virðulega samsæti, sem okkur var haldið í íslenzku kirkjunni í Wynyard þann 27. júní s. 1., ásamt gjöfum og þeim góðhug, sem hvarvetna kom fram í okkar garð og fjölskyld- unnar, svo og hið fagra úlnliðs- úr, sem hljómsveitin í Elfros, gaf fjölskylduföðurnum til minn ingar um ánægjulegt samstarf. Með endurteknum þökkum. Mr. og Mrs. Vigfús Baldvirinson, Wpg, Man. Gefið til að stofna íslen'zkt elli- heimili í Vancouver, B.C. Mr. Jónas Pálsson $2.00. Mrs. Jóhanna Melsted $25.00. Mrs. Jónína Johnson $2.00. Mrs. G. Grímsson $2.00. Mrs. W. Mooney $2.00.Miss Gerða Christopherson $2.00. Mrs. St. Arngrímsson $2.00. Mr. og Mrs. Eyjólfur Gunnarson $5.00. Mr. og Mrs. E. G. Gunnar- son $5.00. Mr. Carl Eiríksson $20.00. Mr. T. Eiriksson $20.00. Samtals $87.00 Áður auglýst Donald Hjálmar- son, en á að vera Benidikt Hjálmarson $5.00. Hefi eg þá í sjóði $496.47. Með innilegu þakklæti. S. Eymundson, *070 Pender St. Vancouver, B.C. Þakkarorð. Hjartanlega viljum við undir- rituð þakka þann mikla sóma, er börn okkar, tengdafólk og barnabörn sýndu okkur, með elskulegri heimsókn í tilefni af 50 ára giftingarafmæli 'okkar, færandi hinar yndislegustu gjaf- ir, auk hins ágætasta veizlukosts, sem það bar fram með rausn og prýði, á blómum skreytt borð; hvar hin stóra og fagurlega skreytta afmæliskaka stóð í miðju. Einning er okkur skylt og ljúft að þakka allra vinsamlegast öllu því góða fólki er á ýmsan hátt gjörðust þátttakendur í því að gjöra þennan ógleymanlega dag, sem ánægjulegastan, að unt var, því að Valdi okkar er í hern- um ennþá, og of langt í burtu til þess að geta verið hér viðstadd- ur. Að endingu biðjum við guð að blessa ykkur öll og varðveita frá öllu illu í Jesú nafni. Þóra og Daníel Péturson, Gimli Man. • Fimtudaginn 26. þ. m. lézt í grend við Bredenbury, Sask., öldungurinn Björn Þorbergsson frá Dúki í Sæmundarhlíð í Skagafirði, fæddur 28. marz 1852. Foreldrar hans voru þau Þor- bergur Jónsson og kona hans Helga Jónsdóttir. Björn var einn af stofnendum Concordia-safnaðar, sem var stofnaður 1901, var hann skrifari safnaðarins um langt skeið. Tók Björn virkan þátt í félagsmál- um innan bygðar. Jarðneskar leyfar hans voru lagðar til hinztu kvíldar í graf- reit safnaðarins þ. 29. s. m.að viðstöddu mörgu fólki. Sera S. S. Christopherson stýrði athöfn- inni. Björn skilur eftir börn sín tvö: Sigríði Gíslason, gifta G. F. Gíslason og Þorberg; barnabörn tvö, Helgu og Björn, og einn bróður, Einar að nafni til heim- ilis í Nýja íslandi. Gamanvísur úr Þingeyjarsýslu. Gamaliel Halldórsson, skáld i Haganesi við Mývatn kvað til Erlendar á Rauðá í Bárðardal: Erlendur er ærukarl, illu hjá hann sneiða vill, fellur mér hans fræðaspjall, fyllir það með ment og snill. Við fráfall Gamalíels kvað Er- lendur: Lík Gamalíels geymir, gróðrarrík fósturmóðir, valmennið velsæmd unni; vin dygðar frí af lygðum; notaði gáfur gætinn, Guðs virti orðabirtu. hvetji hans minning mæta, mann hvern að breyta þanninn.” • Auglýsing frá Dr. A. Ingimund arsyni, tannlækni á Gimli, í síð- asta blaði Lögbergs, átti ekki að birtast í blaðinu í því formi, sem hún birt var. Var það vangá minni að kenna, að aðgæta ekki í tíma að það er gegn viðteknum reglum lækna að auglýsa opin- berlega á þennan hátt. J. J. Bíldfell. Ambassador Beauty Salon Nýtízku snyrtistofa Allar tegundir af Permanents íslenzka töluð á st. 257 Kennedy St. sunnan Portage Sími 92 7X6 S. H. JOHNSON, eigandi The Swr.an Mawfactwing Co. Manufacturera of SWAN WNATMBR-tTRir Winnipeg. Halldér Motkuaalema Iwat Bigandi 281 Jamee Street Phene *í »41 Minniát BETEL í erfðaskrám yðar Verzlunarskólanám! Ungmenni, hvort heldur piltar eða stúlkur, geta raumast aflað sér tryggari undirstöðu undir framtíðina, en með námi við reynda og viðurkenda verzlunarskóla; slík mennt- un verður engu síður nytsöm og nauðsynleg eftir að friður komst á, en meðan á stríðinu stóð. s Það getur orðið yður til mikils sparnaðar, að spyrjast fyrir hjá oss um væntanlegt verzlunarskólanám, og gera það nú þegar. THE COLUMBIA PRESS LIMITED TORONTO & SARGENT - WINNIPEG Innköllunarmenn LÖG8ERGS Amaranth, Man. Akra, N. Dak. Árborg, Man .......... Árnes, Man............ Baldur, Man........... Bantry, N. Dak. ...... Bellingham, Wash. Blaine, Wash. ........ Cavalier, N. Dak...... Cypress River, Man.... Dafoe,- Sask.......... Edinburg, N. Dak Elfros, Sask. Garðaf. N. Dak........ Gerald, Sask. Geysir, Man. ......... Gimli, Man. Glenboro, Man Hallson, N. Dak....... Hnausa, Man. Husavick, Man. Ivanhoe, Minn. Langruth, Man. Leslie, Sask.......... Kandahar, Sask. Lundar, Man. Minneota, Minn. Mountain, N. Dak. Mozart, Sask.......... Otto, Man. Point Roberts, Wash. Reykjavík, Man........ Riverton, Man. Seattle, Wash. Selkirk, Man. Tantallon, Sask....... Upham, N. Dak. Víðir, Man. Westbourne, Man. Winnipeg Beach, Man. Wynyard, Sask. .. B. G. Kjartanson B. S. Thorvarðson K. N. S. Fridfinnson ..... M. Einarsson O. Anderson Einar J. Breiðfjörð Árni Símonarson Árni Símonarson B. S. Thorvarðson O. Anderson .... Páll B. Olafson Mrs.' J. H. Goodman Páll B. Olafson C. Paulson K. N. S. Friðfinnson O. N. Kárdal O. Anderson Páll B. Olafson K. N. S. Fridfinnson O. N. Kárdal Miss P. Bárdal . John Valdimarson Jón Ólafsson Dan. Lindal Miss P. Bárdal Páll B. Olafson Dan. Lindal S. J. Mýrdal Árni Paulson K. N. S. Friðfinnson J. J. Middal S. W. Nordal J. Kr. Johnson Einar J. Breiðfjörð K. N. S. Friðfinnson Jón Valdimarson O. N. Kárdal í skóla á íslandi, sem hefir ágætan kennara í íslenzkum bókmentum, gerðist eftirfarandi saga: Nefndur kennari hafði þann sið, er hann hafði látið nemend- ur lesa kvæði, að spyrja þá um, hver væri meining höfundar og komst þá venjulega svo að orði: — Hvar er sálin í kvæðinu. Nú bar svo til, að einn ném- andi var tekinn upp í Skúla- skeiði Gríms Thomsen og er hann hafði lokið síðustu vísunni nýjum — kom hin venjulega spurning: — Hvar er sálin í kvæðinu, lagsi minn, en nem- andinn svaraði: — O, ætli skáld- ið hafi ekki verið að agitera fyr- ir vegagerð. MOST SUITS - COATS DRESSES sem allir kunna og endar á orð- unum — bíður eftir vegum fjalla “CELLOTONE” CLEANED »c 72 CASH AND CARRY FOR DRIVER PHONE 37 261 PERTH’S 888 SARGENT AVE. HOME CARPET CLEANERS 603 WALL ST., WINNIPEG Við hreinsum gðlfteppi yðar svo þau llta flt eins og þegar þau voru ný. — Ná aftur tétt- leika slnum og áferCarprýði. — Við gerum við Austurlanda- gðlfteppl á fullkomnasta hátt. Vörur viðsldptamanna trygð- ar að fullu. — Abyggilegt verk. Greið viðskipti. PHONE 33 955 This series of advertisements is taken from the booklet “Back to Civil Life.” published by and available on request to the Department of Veterans’ Affairs, Commercial Building, Winnipeg. Clip and file for reference. NO. 3 — REHABILITATION GRANT A rehabilitation grant will normally be paid, subject to the regulations, to a Service man who has completed 183 days of service and receives an honourable discharge. This grant provides for payment of 30 days’ extra pay and payment to dependents of one month’s extra dependents’ allow- ance. The purpose of this rehabilitation grant is tb provide the Service man and his dependents with some ready money while he is getting started in civilian life. This space contributed by THE DREWRYS LIMITED MD126

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.