Lögberg - 11.10.1945, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. OKTÓBER, 1945
í
HugbErg-----
Gefiö út hvefn fimtudtte af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Man
Editor: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyriríram
The “Lögberg" is printed and published by
The Columbla Press, Limited, 695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
PHONE 21 804
Letrið á veggnum
Þegar hinn lögskipaði framboðsfrestur þing-
mannaefna við næstu fylkiskosningar í Mani-
toba rann út síðastliðinn föstudag, kom það í
ljós, að sjö frambjóðend'ur samvinnustjórnarinn-
ar, hlutu kosningu gagnsóknarlaust; þar á meðal
þrír ráðherranna, þeir Morton, Willis og Camp-
bell; ætti þetta, eitt út af fyrir sig, að skýra
svo letrið á veggnum, að nægjandi sé til þess,
að kjósendur gangi þess eigi duldir, hvert í
raun og veru stefni; þessi fyrsta atrenna, gagn-
sóknarlaus sigur sjömenninganna, gefur það að
minsta kosti ótvírætt í skyn, að C.C.F.-liða hafi
er til fullnaðarátaka kom, skort hugrekki til að
horfast í augu við þá ábyrgð, sem valdatöku
jafnan er samfara, og þá ekki sízt á þeim al-
vörutímum, sem óhjákvæmilega bíða framund-
an; enginn stjórnmálaflokkur, sem trú hefir
á stefnuskrá sinni, og hennar vegna leitar valda,
hefði látið það viðgangast, að stórhópur and-
stæðinga sinna yrði kosinn gagnsóknarlaust, án
þess að hólmgöngu væri freistað, hvort sem
sigurvænlega horfist á eða ekki; að berjast til
þrautar, er karlmannlegt; að hopa af hólmi, er
ómannlegt.
Að C.C.F.-liðar hafi þjást, og þjáist enn, af
ískyggilegri vanmáttarkennd, er í raun og veru
ofur skiljanlegt, þegar allar aðstæður eru sund-
urliðaðar og teknar til greina; fylking þeirra
er, vægast sagt, sem höfuðlaus her; nafnforingi
þeirra, Mr. Farmer, hefir aldrei verið neinn
sérlegur skörungur á vettvómgi stjórnmálanna,
og það eru hásetar hans upp og ofan ekki held-
ur, þó eitthvað fyrirfinnist þar að vísu af
skriftlærðum mönnum, sem rás viðburðanna
hefir stjakað inn í pólitískar herbúðir; enda
naumast mikils mannvals að vænta á slíkum
stöðum, þar sem flokkurinn tók þá afstöðu, að
vísa sínum vitrustu og beztu mönnum á dyr,
ef þeir sáu ekki auga til auga við höfuðpaur-
ana; nægir í því efni, að vitna til brottreksturs
þeirra Dr. Johnson, Richards og Herridge úr
flokknum fyrir þá sök eina, að þeir víttu það,
sem steinrunnið var og úrelt í stefnuskrá flokks-
ins, kröfðust frjálsmannlegra útsýnis, og neit-
uðu að kyssa á vöndinn; slík aðferð spáir ekki
góðu um framtíðarþróun lýðræðisins í land-
inu, og kemur enda úr hörðustu átt, eða af
vörum þeirra manna, sem þykjast hafa einka-
leyfi á hugsjónum mannúðar og mannréttinda.
Þeir menn einir, sem raunsæir eru og fram-
takssamir, eru líklegir til þess að standast
með heiðri próf í þeirri eldraun, sem við-
reisnar- og nýsköpunartímabilið í þessu, fylki,
eins og í rauninni alls staðar annars staðar,
óhjákvæmilega hefir í för með sér; til þess að
koma í vég fyrir atvinnuleysi og efnahagslegt
hrim, þurfum vér á forsjá djarflyndra og vit-
urra forustumanna að halda; manna, sem á
hinum alvarlegustu tímum hafa sannað í verki,
eins og Mr. Garson hefir gert, hæfileika til
skipulagningar og dyggrar málaforustu; manna,
sem þora að horfast í augu við framtíðina, og
eru viðbúnir þeim átökum, sem til þess þarf,
að leysa þau flóknu og margþættu vandamál,
sem að kalla frá degi til dags; það yrði þýngra
en tárum tæki, eins og Brynjólfur biskup forð-
um komst að orði, ef forusta viðreisnartíma-
bilsins, lang örlagaríkasta tímabilsins í sögu
þessa fylkis, lenti í höndum nokkurra pólitískra
ævintýramanna eða veimiltítna, sem þegar á
reyndi, vissu hvorki til hægri né vinstri, og
rendu svo stjórnarskútunni 1 strand á blind-
skeri óraunhæfs kenningakerfis; það er á valdi
kjósenda í Manitoba, að fyrirbyggja ^líkan ó-
vinafagnað, og þeir gera það líka alveg vafa-
laust, er að kjörborðinu kemur á mánudaginn
þann 15. yfirstandandi mánaðar; alt annað væri
óhugsanlegt.
En þó vænlega horfist á fyrir samvinnu-
stjóminni, eins og gagnsóknarlaus endurkosn-
ing sjömenninganna óneitanlega bendir til, þá
verða þó allir þeir, er ant láta sér um sigur
hennar vegna velferðar fylkisbúa í heild, að
ganga hreint til verks og liggja ekki á liði sínu;
þeir verða að fylkja sér einhuga um hina form-
legu frambjóðendur samvinnustjórnarinnar í
hvaða kjördæmi, sem er, og þá ekki sízt í þeim
kjördæmum, sem flugumenn um elleftu stundu
hafa boðið sig fram til þess að skapa glundr-
oða, og skipta atkvæðamagni hinna formlegu
frambjóðenda, sem valdir hafa verið með á-
kveðnum meiri hluta á löglega skipulögðum,
opinberum framboðsfundum.
Fylkjum liði um Mr. Garson; hann er ekki
einasta einn hinn allra hæfasti stjórnarfor-
maður, sem Manitoba fylki nokkru sinni hefir
átt á að skipa, heldur jafnframt einn allra
víðsýnasti stjórnmálamaðurinn, sem uppi er í
Canada um þessar mundir. •
Jll!llllllllllllllll!lllllll!illllll!IIIUillllilllllllll!!!lllllllllllllllllllllll!llll!!lllll!llllll!illlllUIIIIII!llllllllllllll|lllllllllll>í!llllllllllllllllllllllllllllllllllll!l!lill
Samrœmdir kraftar
sigra
Lögberg vék að því í fyrri viku, hvert fagn-
aðarefni það væri, hve áhugi meðal íslendinga
varðandi afskipti af opinberum málum, væri
auðsjáanlega að faraú vöxt; bygði blaðið þetta
á því, að hvorki meira né minna en átta Is-
. lendingar leituðu kosninga til fylkisþingsins í
Manitoba þann 15. yfirstandandi mánaðar, og
hafa þeir með þessu sett raunverulegt met; af
hálfu samvinnustjórnarinnar bjóða sig fram
fjórir Islendingar, þeir Paul Bardal og G. S.
Thorvaldson í Winnipeg, Chris Halldórsson í
St. George, og Dr. S. O. Thompson í Gimli; auk
þeirra erú tveir aðrir, er einnig tjást hlyntir
stjórinni, þeir Oddur Ólafsson, fyrrum fylkis-
þingmaður, er býður sig fram í Ruperts Land og
J. A. Hávarðsson, er brennimerkir sig óháðan
Liberal frambjóðanda í St. George kjördæmi.
Fyrir hönd C.C.F. flokksins verða í kjöri þeir
Snæbjörn S. Johnson sveitaroddviti, er leitar
kosningar í Gimli, og Eiríkur Stefánsson bóndi
við Oak Point, er býður sig fram í St. George;
alt eru þetta gjaldgengir menn, er láta mikið
til sín taka í héraði. Lögberg mælir ekki fram
með nokkrum íslendingi til þingmensku eða
opinberra sýslana fyrir þá sök eina, að hann sé
íslendingur, þótt það á hinn bóginn, að öðru
jöfnu, telji sér skylt, að veita þeim fulltingi.
Nú hagar svo til, að þeir Islendingar, sem í
kjöri verða við áminstar fylkiskosningar, standa
í fremstu röð þeirra manna, sem úr er að velja,
og þess vegna er blaðinu ant um, að þeir allir
fái að njóta sannmælis, þótt eitt og annað beri
á milli um stefnuskrár atriði og skoðanir.
Vegna þess trausts, sem vér berum til núver-
andi samvinnustjórnar í Manitoba, er oss það
brennandi metnaðarmál, að þeir íslendingar,
er sækja fram undir merkjum hennar nái kosn-
ingu; ekki aðeins að þeir merji sig í gegn eins
og kallað var, heldur verði þeir kosnir með
yfirgnæfandi afli atkvæða; þessir menn eru
þeir Paul Bardal, G. S. Thorvaldson, Dr. S. O.
Thompson og Chris Halldórsson. Allir þessir
menn, hver á sínu sviði, hafa aflað sér hins
ágætasta orðstírs sakir atorku, skyldurækni og
ábyggilegs trúnaðar við þær hugsjónir og þau
störf, sem þeir hafa helgað starfskrafta sína.
Mr. Bardal er stefnufastur hugsjónamaður, sem
aldrei hvikar hársbreidd frá neinu því'máli, er
hann tekur sér fyrir hendur að fylgja fram;
hann er ekki eitt í dag og annað á morgun; en
á slíkum mönnum er jafnan brýn þýrf, og þá
ekki hvað sízt á vettvangi hinna opinberu
mála; um Mr. Thorvaldson er í rauninni hið
sama að segja; hann kom drengilega fram á
síðasta þingi, og barðist djarflega fyrir fram-
gangi margra nytjamála; hann er eindreginn
stuðningsmaður samvinnustjórnarinnar, og það
út af fyrir sig, væri nægilegt til að mæla með
endurkosningu hans. Winnipeg þarf að fá þá
Bardal og Thorvaldson báða endurkosna á þing,
en til þess að slíkt verði tryggt, þurfa íslenzkir
kjósendur í borginni að skera upp herör, og ljá
þeim óskipt lið.
Chris Halldórsson, sem býður sig fram í St.
George, og vafalaust verður eftirmaður Skúla
Sigfússonar, er enn maður á bezta skeiði, og
þrunginn af eldmóð og starfsgleði; hann er
málafylgjumaður hinn mesti, og líklegur til
dáða og athafna á fylkisþingi; hann er barn-
fæddur sonur St. George kjördæmis, og þekkir
aðstæður íbúa þess út í æsar; kjördæmið var
lánsamt að eiga völ á slíkum manni, sem Chris
Halldórsson er.
Gimli kjördæmi, vagga landnámsins vest-
ræna, kýs íslending á þing í þetta sinn, og það
kýs, alveg vafalaust með glæsilegum meiri hluta,
frambjóðanda Liberal-Progressive flokksins, Dr.
S. O. Thompson; það er ekki á hverjum degi,
sem völ eru á slíkum afburða og ágætismanni
sem Dr. Thompson er; hann er djúpgáfaður og
víðmenntur maður, sem hvarvetna, sakir prúð-
mensku, gáfna og mannkosta, nýtur virðingar
og trausts; að fá jafn skygnan hugsjónamann
á þing, verður eigi aðeins kjördæmi hans til
ómetanlegrar nytsemdar, og íslenzka þjóðar-
brotinu til vegsauka, heldur veitir slíkt jafn-
framt hollum straumum inn í rekstur þing-
málanna í heild.
Vér þurfum nú, jafnvel frekar en nokkru
sinni fyr, að fá kosna á þing áræðna og stefnu-
fasta menn; hugdeigir menn, sem hræðast
skuggann sinn, fá þar litlu góðu til vegar kom-
ið.
Göngum hreint til verks á mánudaginn kem-
ur, og sigrum með Garson!
Til kjósenda í
St. George kjördæmi
Kjósið
Eg hefi verið útnefndur, sem
merkisberi C.C.F. flokksins í St.
George í fylkiskosningunum, 15.
þ. m. C.C.F. stefnan er meir en
eins dægurs pólitísk loforð; hún
er lífs og mannréttinda stefna er
miðar að meira jafnræði og
fullkomnara mannfélags fyrir-
komulagi. Hún berst á móti þeim
órétti að 5 prósent af fólkinu
hafi tangarhald á auð og valdi
landsins og 95 prósent verði að
lúta þeim lögum og lofum, sem
ófyrirleitnir einstaklingar setja
landi og þjóð, sjálfum sér og
fyrirtækjum sínum í hag. Auð-
legð Canada er meiri en nóg til
að forsorga hvern íbúa landsins
á heiðarlegan hátt ef réttindi og
velmegun einstaklingsins eru
virt meira en gróðafýsn og vald.
Eg treysti á skynsemi og dóm-
greind kjósenda í St. George
að ljá þessari stefnu fylgi sitt.
Þetta er barátta hvers einstakl-
ings fyrir fullkomnara lífi, og
ef eg næ kosningu, mun eg helga
starf mitt takmarki C.C.F. stefn-
unnaj- að styrkja og fylgja hverju
því málefni er miðar að meiri
jöfnuði og fullkomnari vélmeg-
un fyrir alla.
Oak Point, Man., 6. okt. 1945.
Eiríkur Stefánsson.
Þegar George Dewey, amer-
íski flotaforinginn, sigldi inn í
Manifla-flóann árið 1898 og
sökkti spánska flotanum, fórst
ekki neinn maður í flota hans.
Þrjár stúlk ur
óskast í vist
Elliheimilið Betel á Gimli,
þarf að fá þrjár íslenzkar
stúlkur nú þegar i vist;
gott kaup í boði, og fyrsta
flokks aðbúð.
Umsóknum veitir viðtöku
forstöðukonan á Betel Miss
Sveinsson.
Social Credit þingmann
Styðjið hina sönnu framsóknar- og
mannúðarstefnu með því að kjósa
Social Credit þingmann á fylkisþing,
og látið hann mæla þar máli yðar.
MERKIÐ KJÖRSEÐILINN ÞANNIG:
TAYLOR, T. H.
Re-Elect
C. RHODES SMITH
Liberal Candidate
HIS ABILITY
and
EXPfcRlENCE
Warrant Your
Support
Vice-Pres. and Trusiee
Pairiotic Salvage Corps.
Vice-Chairman Dependents'
Advisory Committee.
Pres. Canadian Legion—Man. and North Western Ontario
Command.
Veteran Great V7ar 1914-18.
Vice-Pres. ’Greater Winni-
peg Co-ordinating Board
for War Services.
VOTE
SMITH, C. Rhodes
*
1
Vote 2, 3, 4, 5 for other LIBERAL candidates in order of your pre-
ference and subsequent choices for other Government candidates.
Commitee Rooms: 801 SOMERSET BLDG. PHONE 92 155
Issued by C. RHODES SMITH ELECTION COMMITTEE
SKIPIÐ YÐUR I FYLKINGU
UM BARDAL!
H
PAUL BARDAL
IVER sá íslendingur, sem
vegna þroskaðra hæfileika sinna ryður sér
braut til vegs og virðingar, varpar jafn-
framt ljóma á íslenzka þjóðarbrotið í heild;
um alla slíka menn ber oss að skipuleggja
trausta fylkingu, eigi aðeins þeirra vegna,
heldur og engu síður vor sjálfra vegna.
Mr. Paul Bardal, sem nú leitar endur-
kosningar til fylkisþings, er einn þeirra
manna af þjóðflokki vorum, sem vegna
hygginda sinna, drengskapar og stefnu-
festu, hefir rutt sér glæsilega braut, bæði sem fulltrúi í bæjarráði um tíu
ára skeið, og sem einn af þingmönnum Winnipegborgar í fylkisþinginu síð-
astliðið kjörtímabil.
Islendingar gætu margt lært af samheldni Skotans; hann, sem þjóð-
flokkur, kann að starfa í sameiningu og sigra í sameiningu; þetta hvort-
tveggja þurfum vér að læra, ef tryggl á að verða um hag vorn í framtíðinni.
Mr. Bardal hefir um langt skeið tekið mikinn og giftudrjúgan þátt í
íslenzku félagslífi, og fyrir það stöndum vér við hann í mikilli þakkarskuld.
Sýnum einlægni vora og þakkarhug í verki, með því að greiða Mr. Bardal
forgangsatkvæði þann 15. október.
Pliblished by BARDAL’S ELECTION COMMITTEE