Lögberg - 19.02.1948, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. FEBRÚAR, 1948
--------logfaers--------------------
G«n( ttt hv«n> Qmtudac **
THI COLUMBIA PRESS, LIMITED
005 Sargent Ave., Winnipeg, Manttoba
Ut&oáakrlít rltstjftrana:
HDITOR LÖGBERG
Mi Barswnt Ar»„ Wlnnipe*, Uu
Rltatjóri: EINAR P. JÓNSSON
V«rO $3.00 um árið—Borgist fyrirfrarr.
Th« "Löttberí" la printed and pubiiahed by
The Oolumbla Preaa, Limlted, 695 Sargwnt
irvnua, Wlnnipe*. Manitoba, Canada.
Authorized aa.Sxiond Class Mail,
Post Offlce Dept., Ottawa.
PHONE 21 204
Gœtum kjarnans —
hismið má missa sig
í formálsorðum að bókinni “Ungur
var ég”, eftir barnabóka höfundinn
þjóðrækna og vinsæla, Sigurbjörn
Sveinsson, er holl leiðbeining um, hvern
ig meta beri andleg verðmæti fortíðar-
innar og hvað við taki séu þau afrækt,
en þar er á þessa leið mælt:
“Hver kynslóð á djúplægar rætur í
lífskjörum, háttum og siðum og allri
menningu þeirra tíma, sem hún á að
baki sér, og bili þær, sannast orð skálds-
ins, að
-----rótarslitinn visnar vísir
þótt vökvist hlýrri morgundögg”.
Eitt af megin viðfangsefnum Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vesturheimi
hefir jafnan verið það, að reyna að
koma í veg fyrir, að svo miklu leyti, sem
auðið mætti verða, að afkomendur
íslenzkra frumherja í þessari álfu yrði
rótarslitnir og visnuðu af þeirri á-
stæðu um aldur fram; með þessu er
vitaskuld átt við hinar menningarlegu
rætur, Sem liggja í jarðvegi þúsund ára
þróunarsögu íslands, tungu íslensku
þjóðarinnar og bókmentum, því hinar
ræturnar, sem fæðingarréttinum á þess
um slóðum eru samfara, ná þegar af-
eðlilegum ástæðum það djúpt, að við
þeim verður eigi haggað; svo á það líka
að vera og má til að vera; um hitt eru
þeir þó sannfærðir, er að þjóðræknis-
málum vorum vinna, að æskulýð vorum
hér í landi sé í því nokkur styrkur, að
njóta andlegrar frjódaggar úr fleiri en
einni átt; að norrænir eðliskostir búi
yfir hollum verðmætum, er styrki æsk-
una og veiti henni gleggri heildarsýn yf-
ir lífið og hinu mikla tilgang þess; að
það sé hverjum manni fremur gróði en
tap, að tala og lesa hina óumræðilega
fögru tungu vora; að það sé menningar-
legur gróði að skilja Alt eins og blómstr-
ið eina og Ó, Guð vors lands, og njóta
hvorstveggja í sínum upprunalega bún-
ingi; að enginn þurfi að biðja afsökunar
á því, þótt hann kunni fleira en eitt
tungumál, og þá ekki sízt það málið, sem
svo er auðugt að það á orð “yfir alt, sem
er hugsað á jörðu”-----
Þessi dollars þjóðrækni, sem vinur
vor B. J. Lifman mintist á hérna um
árið, er auðsjáanlega að verða tvíeggj-
að sverð. Hvað ætli þjóðræknissamtök-
in haldist lengi við með dollars tillagi á
ári? Það væri ekki ófróðlegt að fá ein-
hverja lítilsháttar vitneskju um það.
Fyrir alt, sem mennirnir unna á þess-
ari jörð, fórna þeir einhverju af sjálf-
um sér með glöðu geði, og telja það ekki
til fórna, heldur sem Ijúfa og sjálfsagða
skyldu; sé íslenzk þjóðrækni á annað
borð verð nokkurs ómaks, sem vér í
alvöru trúum að hún sé, hlýtur hún að
vera eitthvað annað og meira en dollars
virði um árið; smásmugulegur hugsunar
háttur varðandi viðhald og vernd hinna
þjóðræknislegu verðmæta vorra, verður
að vikja úr vegi fyrir djarfari hugsjónum
og æðri markmiðum; þúsund dollara
þjóðrækni er vitaskuld miklum meiri
hluta fólks vors ofvaxin; en þá er líka
þar, sem annarsstaðar, gild ástæða til
að leita að hinum gullna meðalvegi og
þræða hann.
Lang merkasta málið, sem nú er á
dagskrá með Vestur-íslendingum er
það, um stofnun kenslustóls í íslenzkri
tungu og bókvísi við Manitoba háskól-
ann; grundvöllinn að þessari stofnun
lagði Ásmundur P. Jóhannesson með
sinni rausnarlegu 50 þúsund dollara
gjöf, og nú eru fleiri álitlegar gjafir
farnar að bætast í hópinn; að minsta
kosti í þessu tilfelli, er vonandi að þús-
und dollara þjóðrækninni vaxi væng-
ir; seinna standa almenningi opnar
leiðir um tillög sín, smá eða stór, eftir
efnum og ástæðum, því um góðhug al-
mennings verður eigi efast.
Nú fer þjógræknisþingið í hönd, og er
þess að vænta, að störf þess auðkennist
fremur af öðru en dollars þjóðrækni.
♦ ♦ 4-
«
Hin mikla nauðsyn
Að því var vikið í síðasta blaði, að nú
væri verið að hefja almenna fjársöfnun
vítt um heim í því augnamiði að bjarga
frá hungurdauða öllum þeim mörgu
miljónum munaðarlausra barna, sem
hvergi eiga trygt athvarf og horfast í
augu við óútmálanlegt volæði; það eru
sameinuðu þjóðirnar, sem nú beita sér
fyrir um lausn þessa mikla vandamáls,
og skora á allar þær þjóðir, sem eitt-
hvað geta látið af hendi rakna, að bregð
ast vel og drengilega við áður en það
verði um seinan. —
Vonandi er að íslenzka þjóðarbrotið
í þessu landi láti ekki sinn hlut eftir
liggja, er til áminstrar fjársöfnunar
kemur.
Skáldið JOHAN BOJER
talar um kristindóm, stjórnmál
og skáldskap
Eftir fréttaritara Morgunblaðsins
Bjarne Egeland, blaðamann
þjóðsaga. — Og Tegner biskup í
Veksjö sagði einu sinni í stól-
ræðu: “Hvers vegna trúi ég á
Guð? Hvers vegna er ég kristinn?
Það er vegna þess að ég trúi á
hið fagra, sanna og góða — og
það er guð”.
Þetta var viturlega mælt og
lýsir skynsamlega þeirri hugsjón
sem er grundvöllur kristindóms-
ins. —
Bojer hefir talað í sig hita og
Framhald á blaðsíðu 10.
I æsku varð Johan Bojer skáld
að vinna baki brotnu fyrir dag-
legu brauði. En á kvöldin og nótt
unni las hann og orkti. Hann var
eirðarlaus. Og þótt árin" hafi nú
færst yfir hann, og hann sé orð-
inn gamall maður, er eirðarleys-
ið hið sama. Þegar hann situr
ekki við skrifborð sitt, er hann
annað hvort úti í guðs grænni
náttúrunni, eða hann er á ferða-
lögum. Áhuginn og eirðarleysið
einkennir allt tal hans og fas. Og
meðan ég á tal við hann, gerir
hann ýmist að halla sér aftur á
bak í hægindastólnum, eða
stökkva á fætur og ganga um
gólf, og augu hans loga af áhuga.
— Hugur minn er í dag, eins
og svo oft áður, bundinn við trú-
arlífið, segir hann. Eg reyni að
brjóta það til mergjar, og ég verð
að segja, að mér fellur einna
best við sumar stefnur í sænsku
trúarlífi. Eg er kristinn, og það
er sjálfsagt vegna þess, að ég tel
nauðsynlegt að kenningum kirkj-
unnar sé breytt til samræmis við
þekkingu nútímans. Eg tel það
rangt, að prestarnir skuli enn
vera að troða upp á skynsama
menn kenningunni um uppris-
una. Eða þá kenningunni um fyr
irgefningu syndanna. Nú hefir
helmingurinn af sænskum prest
um stofnað sérstakt prestafélag í
þeim tilgangi að samræma kenn-
ingar kirkjunnar þekkingunni.
— En er þá ekki kollvarpað
þeim grunni, sem kristindómur-
inn byggist á? spyr ég. Mun ekki
slík breyting koma í bág við
biblíuna?
— Hvenær sagði Jesús að hann
væri kominn til að frelsa heim-
inn? Aldrei. Prestarnir hafa altaf
verið að breyta Jesú eftir sínu
höfði. — Menn hafa um aldir ver
ið að tileinka honum alt, sem
þeim fannst á skorta í fari sínu,
og þannig hafa þeir breytt Jesú
og gert hann annan en hann var.
Hve feginn sem ég vildi get ég
ekki skilið kenninguna um það
að guð hafi sent sinn eingetinn
son til að frelsa oss frá syndum.
Slík kenning hlýtur að lækka
guð í voru áliti, gera hann strang
an, grimman og fjarlægan.
Söderblom erkibiskup sagði
jafnvel einu sinni, að sagan um
upprisuna væri ekki annað en
Með beztu árnaðar óskum til íslendinga
á 29 þjóðræknisþingi þeirra í Winnipeg 1948.
C. Huebert Ltd.
Lumber - Hardwood - Flooring - Mouldings
are specialties. Building Materials.
Phone 97159—97174
Winnipeg
5 Poini Douglas Ave.
Wood - Wool
Heldur húsunum hlýjum í heljar kuldum.
Sparar stórum eldsneyti, og eykur á
þægindi. Heldur inni hitanum í vetrar
vindum og frosthörkum. Heldur úti
sjóðandi sólar hita sumarsins. Tryggir
hita jafnvægi húss þíns, vetur sumar vor
og haust. Ef þú hefir ekki þegar stoppað
veggi húss þíns með undra milli fóðri.
Þá talaðu sem fyrst við
ÞAÐ MARG BORGAR SIG.
I
THQRKELSSON LIMITED
i
1331 Spruce Street
SÍMI 21811 WINNIPEG
Hagsýnt fólk situr jafnan
við þann eldinn
sem bezt brennur
• Af þessum ástædum er það, að
viðskiftavinum vorum fjölgar
óðfluga dag frá degi. Það kaupir
enginn köttinn í sekknum, sem
gjörir sér að reglu að verzla í
Shop-Easy búðunum.
Innilegar
hamingjuóskir
Til íslendinga fjær og nær í til-
efni af tuttugasta og níunda
ársþingi Þjóðræknisfélags íslendinga
í Vesturheimi.
I
“íslendingar viljum vér allir vera”
Shop-Easy Stores
BÚÐ NR. 3 ER AÐ 611 SARGENT AVENUE
BÚÐ NR. 4 ER AÐ 894 SARGENT AVENUE
B A R D A L
FLAERAL SERVICE
843 SHERBROOK ST.
SÍMI 27 324