Lögberg - 19.02.1948, Síða 8
u
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 19. FEBRÚAR, 1948
Tvö rit um Landsbókasafn íslands
Eítir prófessor Richard Beck.
I.
Vel var það ráðið af Finni Sig-
mundssyni landsbókaverði, er
hann hóf útgáfu Árbókar safns-
ins, svo að þeir, sem áhuga hafa
á íslenzkum bókmentum og bók
fræði, geta greiðlega fylgst með
starfi safnsins og vexti þess.
Annað bindi Árbókarinnar, fyr
ir árið 1945 — Reykjavík, 1946,
— sem greinarhöfundi barst ný-
lega, skýrir frá því, að á um-
ræddu ári hafi Landsbókasafnið
aukist um rúm 4600 bindi, og var
í ársbyrjun 1946 talið, að safnið
ætti um 162 þúsund bindi prent
aðra bóka.
Á árinu barst safninu margt
góðra bóka frá Norðurlöndum,
og var stærst bókagjöfin frá dr.
Einari Munksgaard, forlags-
bóksala í Kaupmannahöfn, sem
gefið hefir safninu um 650 bindi
bóka, þar á meðal margra dýrra
og verðmætra, síðan samgöngur
við Danmörku hófust að nýju,
sumarið 1945. Sýndi dr. Munks-
gaard með þeim hætti fagurlega
í verki, eins og svo margsinnis
áður, ást sína á íslenzkum fræð-
um og djúpstæðan góðhug sinn
til íslands. Má íslendingum vera
það mikið harmsefni, að þessi
heilhuga hollvinur fræða vorba
og frömuður þeirra erlendis er
rétt nýlega látinn á bezta aldri.
Handritasafn Landsbókasafns-
ins hafði og drjúgum aukist á ár-
inu eða um 210 bindi, og voru
skráð handrit safnsins í árslok
1945 alls 9520 bindi. Merkasta
viðbót við handritasafnið á árinu
voru rúmlega 80 handrit, er því
bættust úr hinni miklu og merki
legu bókagjöf frú Hólmfríðar
Pétursson í Winnipeg, úr bóka-
safni manns hennar, dr. Rögn-
valdar Pétursson. Er þeirrar á-
gætu gjafar, að verðugu, drengi-
lega minnst í sérstakri grein í
Árbókinni, “Höfðingleg gjöf vest
an um haf”, og hefir sú grein ver
ið endurprentuð hér vestra.
Árið 1945 töldust gestir í lestr-
arsal Landsbókasafnsins 10511;
lánuð voru í lestrarsal 18930
bindi prentaðra bóka og 4620
handrit, eða samtals 23550 bindi;
notkun handbóka, sem standa í
1 •
Hugheilar Árnaðaróskir
flytjum vér hér með öllum vorum mörgu
íslenzku viðskiftavinum, í tilefni af 29. árs-
þingi Þjóðræknisfélags Islendinga í Vestur-
heimi. Vér höfum enn sem fyr við hendina
byrgðir af ágætásta byggingarefni og getum
því fullnægt þörfum Islendinga í þeirri grein.
The Winnipeg Paint & Glass
Company, Limited
KOL, KOL, HITI!
Hrein hitamikil og vel úti látin.
Pantanir afgreiddar fljótt og skilvíslega.
Windatt Coal Co. Ltd.
“The Old Reliable”
506 Paris Bldg., Winnipeg Sími 97 404
Kallið í Jón Ólafsson umboðsmann félagsins í sima, til þess
að vera viss. Síma númer heima hjá honum er 37 340.
Stjórn og verkafólk
SAFEWAY BÚÐANNA
býður erindreka, sem mættir eru á 29
Þingi Þjóðræknisfelags íslendinga í
Vesturheimi velkomna til Winnipeg
SAFEWAY
CANADIAN SAFEWAY LIMITED
lestrarsal, er þó eigi talin þar
með, en slíkar bækur skipta
hundruðum og eru sumarhverj-
ar mikið notaðar. Um lestur
bókasafrisgesta almennt hefir
landsbókavörður þetta að segja:
“Lestur skemmtibóka 1 lestrar-
sal fer minnkandi og veldur því
án efa, að atvinna er næg og ráð
almennings til kaupa á slíkum
bókum betri en áður. Lestrarsal-
inn sækja nú einkum fræðimenn,
eins og sjá má af hinni tiltölu-
legu miklu notkun handrita-
safnsins”.
Þá hefir safnið tekið upp þann
ágæta sið, að minnast merkisaf-
mæla íslenzkra rithöfunda með
sýningu bóka þeirra og handrita,
og er gott til þess að vita, að slík-
ar sýningar hafa verið vel sóttar,
því að þær eiga bæði fræðslu- og
menningargildi.
Auk hinnar greinargóðu
skýrslu landsbókavarðar og fyrr-
nefndrar greinar um bókagjöf
frú Hólmfríðar, flytur Árbókin
minningarorð um Hallgrím Hall-
grímsson bókavörð; skrá um ís-
lenzk rit 1945, sem er hin fróð-
legasta öllum þeim, er fylgjast
vilja með íslenzkri bókaútgáfu,
og skrá um rit á erlendum tung-
um eftir íslenzka menn eða um
íslenzk efni.
Sérstaklega mikill fengur er að
hinni ítarlegu skrá Lárusar Sig-
urbjörnssonar rithöfundar um ís-
lenzk leikrit, frumsamin og þýdd,
prentuð og óprentuð, er varpar
hreint ekki litlu ljósi á íslenzka
leiksögu. Fylgir höfundur henni
úr hlaði með gagnorðum inn-
gangi, en hann er mann fróðast-
ur um þessi efni.
II.
Eins og tekið er fr-am í Árbók-
inni, þá var árið 1946 merkisár
í sögu handritasafns Landsbóka-
safnsins, því að grundvöllur var
lagður að handritasafninu rétt-
um 100 árum áður.
I tilefni af aldarafmælinu er
nýkomið út viðbótarbindi af
handritaskrá safnsins — Reykja-
vík, 1947, — og hefir dr. Páll
Eggert Ólason samið það eins og
hin fyrri bindi. Er hér um all-
mikið rit að ræða, nálega 200
blaðsíður í stóru broti, og gerir
höfundur svo fellda grein fyrir
því í formálsorðum sínum:
“Síðustu handrit, sem komust í
hina prentuðu skrá safnsins bár-
ust 1935. Hefir landsbókasafnið
aukizt svo síðan, að nauðsyn hef-
ir þótt til bera, vegna notenda
þess, að birta aukabindi. Gætir
þar einkum safns dr. Hannesar
þjóðskjalavarðar Þorsteinssonar,
sem afhent var safninu 1938 og
er einn hinn bezti fengur sem í
safnið hefir komið”.
Handritaskránni er skipt í tvo
aðalflokka og eru handrit í arkar
broti — tvíblöðungar — 1 fyrri
hlutanum, en handrit í áttablaða
broti — áttblöðungar — í hinum
síðari. Síðan fylgir nákvæm og
sundurliðuð efnisskrá, sem og
nafnaskrá, er báðar auka nota-
gildi ritsins, enda í rauninni ó-
hjákvæmilegar í slíku riti sem
þessu.
Ber efnisskráin það með sér,
að harla margra grasa kennir í
handritum þeim, sem safnið hef-
ir á umræddu tímabili. Fjalla
þau meðal annars um alfræði,
bókfræði og bókmenntasögu,
heimspeki, guðfræði, stjórnfræði,
hagfræði, lögfræði, alþýðleg
fræði, málfræði, stjörnufræði, at-
vinnugreinir, kveðskap, leikrit,
skáldsögur, sagnfræði og sögur
af ýmsu tagi. En langflest eru þó
rímnahandritin og þáu, er varða
mannfræði — ættfræði. —
Ýms mjög merkileg bréfasöfn
og handrit hafa safninu borist á
þeim árum, sem skráin tekur yf-
ir; meðal þeirra er mikið safn
handrita Stephans G. Stephans-
sonar úr safni dr. Rögnvaldar,
sem að ofan getur, en hann hafði
kostað kapps um að viða að sér
öllu, sem til varð náð frá skálds-
ins hendi.
Ýmislegt fleira hefir Lands-
bókasafninu borist af handrita
tagi héðan vestan um haf, og er
vel, að þesskonar verðmæti varð
veitist þar til frambúðar, en
lendi eigi á flæking eða glatist, ef
til vill, með öllu.
£íminn hringir:
— Halló!
— Er þetta Sigurður sýslumað-
ur sem ég tala við?
— Nei, ég heiti Guðmundur,
sýslumaður.
— Ó, ég bið yður að afsaka, ég
tala við vitlausan söslumann.
Með beztu óskum
til Islendinga
á 29 þjóðrœknisþingi þeirra
í Winnipeg, 1 948
Leland
McLaren
Clarendon
DANGERFIELD
HOTELS
RAFURMAGN
til allra yðar þarfa!
Til þess að fullnægja sívax-
andi eftirspurn um ódýra raforku,
er City Hydro (eign Winnipeg-
búa), að átækka orkuverið við
Slave Palls upp í 96,000 heátöfl.
Fjórum I 2,000 heátafla eín-
ingum hefir verið bætt við og
eru þrjár þeirra nú átarfrœktar
að fullu, sú fjórða tekur til
átarfa í vor.
Vegna ódýrrar raforku til
heimilisnota og eins fyir iðnað-
inn, skuluð þér koma að máli
við City Hydro.
CITY HYDRO
Yðar eign - Notfærið yður stofnunina!