Lögberg - 01.03.1951, Síða 8

Lögberg - 01.03.1951, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. MARZ, 1951 Or borg og bygð Gjaíir lil Elliheimilisins „HÖFN" í Vancouver: Prince Rupert Icelandic Com- mitte $ 23.00. Proceeds from Dance — Prince Rupert 72.23 Icelandic Ladies Aid — Leslie, Sask. 10.00 Vancouver, BC. Mr. O. Sigurdson 25.00 Mr. F. Lyngdal 5.00 Dr. B. T. H. Marteinsson 100.00 Osland. B.C. Mr. & Mrs. Gísli Jónsson 10.00 Mr. & Mrs. W. Jónsson 10.00 Mr. & Mrs. K. Einarsson 10.00 Walter Johannson, Pine Falls Man. 10.00 Other Gifts Large vínarterta; Mrs. S. Pálson Large Xmas Cake; Mr. Bald- winson. Large Ham; The Lutheran W.A. Society. Large Ham; Mr. and Mrs. Jón Sigurdson. Large Turkey; George Ólafson 2 doz. each, cups, saucers and plates; Strondin. 50 pounds Sugar; Sunnyside Market. Dishes for Staff use; Mrs. B. M. Ruddell. Also gifts for each person in the Home, _d o n a t e d by the Ladies Aid Socitey, Sólskín. Innilegt þakklæti fyrir allar þessar gjafir. Vinsamlegast, Dr. B. T. H. Marteinsson, Treas. Medical Dental Bldg. Vancouver, B.C. ☆ Fundur í Stúkunni HEKLU I. O. G. T. næsta mánudagskvöld 5. marz á venjulegum stað og tíma. ☆ Þann 22. febrúar síðastliðinn, lézt á Almenna sjúkrahúsinu í Vancouver Mrs. Áslaug Ólafs- son, ekkja Guðlaugs Ólafssonar smiðs, en þau áttu um langt skeið heima í Winnipeg; hún var 84 ára að aldri; útförin fór fram á mánudaginn var frá út- fararstofu Harold Edwards í Vancouver. Séra Kolbeinn Sæ- mundsson frá Seattle jarðsöng. Ársþing (Frh. af bls. 1) aða rödd; hrifningu mikla vakti einsöngur séra Erics H. Sigmars, enda er rödd hans hrein og karlmannleg; við hljóð- færið var Miss Sigrid Bardal, sem er ágætur píanóleikari á hröðu framfaraskeiði. Hinn snöfurmannlegi, ný- kjörni fjármálaráðherra Min- nesota-ríkis, Valdimar Björns- son, flutti af mikilli mælsku kyngimagnaða ræðu, er kom víða við og gott var á að*hlusta; verður ræðan birt í blaðinu í næstu viku; hún á brýnt erindi til almennings, enda er höfund- ur hennar kunnur áhugamaður um mannfélagsmál. Frumort kvæði fluttu þeir Dr. Richard Beck og Einar P. Jóns- son. Samkoman fór um alt hið virðulegasta fram, og var öllum þeim, er að henni stóðu til hinn- ar mestu sæmdar. Ágætar veit- ingar voru seldar í kjallarasal hússins og fjörugur dans stiginn fram eftir nóttu. Mrs. Ólafsson lætur eftir sig tvo sonu, George í Vancouver og Björn í Chicago; einnig fimm dætur: Mrs. K. Skordal og Mrs. Olive Cribbs í Vancouver, Mrs. B. E. Edison, Dofve, Sask.; Mrs. E. Richardson, Winnipeg, og Mrs. E. Kolbeins, Whitehorse; barnabörn eru 15 og 10 barna- barnabörn. ☆ Á mánudaginn, 26. febrúar, var til jarðar borin frá Útfarar- stofu Bardals, ekkjan Sigríður Bergman, 1444 Wellington Cres., hér í borginni. Maður hennar, Jónas Bergman, ættaður úr Mið- firði í Húnavatnssýslu, lézt 1945. Síðan hefir hún mest verið á vegum sonar síns, Walters, byggingameistara. Hún hafði verið heilsuveil lengi, enda orð- in 84 ára að aldri. Sigríður var eyfirsk að ætt, sómakona- hin mesta. — Jarðarförin var mjög fjölmenn. Séra Valdimar J. Ey- lands flutti kveðjumálin. ☆ Gustave Anderson, 80 ára að aldri, af sænskum ættum, and- aðist á Winnipeg Beach þann 16. febrúar að heimili sínu þar. — Konu sína misti hann fyrir 2 árum síðan. Börn hans á lífi eru: George, er heima dvelur; Roy í Selkirk; Mrs. Thor. Klenn, Nelson, B.C.; og Beatrice, er heima dvelur með bróður sín- um. Hinn látni var lengi í þjón- ustu C.P.R.-félagsins, eftirlits- maður á járnbrautum í grend við Winnipeg Beach. Áður á ár- um stundaði hann búskap hér í fylki. Hann var maður er ávann sér virðingu samborgara sinna. Útförin fór fram frá United Church, Winnipeg Beach, þann 21. febrúa>. Séra Sigurður Ól- afsson jarðsöng. ☆ LÝÐUR JOHNSON, vistmaður á Betel, lést þar þann 12. febrúar. Hafði hann komið á heimilið 17. ágúst síðast- liðinn, þá allmjög þrotinn að heilsu. Hann var fæddur í Hrafnadal í Strandasýslu 15. marz 1866, sonur Jóns Lýðsson- ar og Sigríðar Bjarnadóttur, er bæði voru ættuð úr Stranda- sýslu. Lýður fluttist vestur um haf um aldamótin; hann giftist Helgu Sveinsdóttur ættaðri úr Borgarfjarðarsýslu, góðri konu og gáfaðri, systur Ingibjargar konu Magnúsar heitins á Eyjólfs stöðum, og Gróu, konu Sveins Pálmasonar byggingameistara í Winnipeg Beach, og Jóhannesar, er dvelur í California. Lýður bjó á Lundi í Hnausabygð. Kona hans leið mikil veikindi á efri árum og var rúmliggjandi um fimm ára bil. Hún andaðist að heimili sínu í sept. 1931. — Börn þeirra á lífi eru: Helgi, forstjóri, í þjónustu North American stór-félagsins, búsett- ur í Flin Flon, Man., kvæntur Tryggveigu Tryggvadóttur Ara- sonar frá Kjalvík við Húsavick, Man. og Þorgerður Sigríður, kona W. L. Finnsson, bónda á Lundi. Tvö börn þeirra Jórunn og Stefán dóu í bernsku. Þrett- án barnabörn eru á lífi. Eftir lát konu sinnar dvaldi Lýður aðal- lega hjá dóttur sinni og tengda- syni og naut sín vel. Árið 1934 fór hann snögga ferð til íslands. Hann hafði sæmilega heilsu fram á síðustu æviár. Lýður var maður fáorður og grandvar, hinn ábyggilegasti maður, aðsjáll, hygginn og sam- haldssamur. Börn hans eru vel gefin og efnilegt fólk, og barna- börn hans mannvænleg og hon- um kær. Þótt þrotinn væri að heilsu er hann kom á Betel, eignaðist hann þar marga vini, og vildi af ítrasta megni vera þar hjálplegur og gleðjandi. Þar naut hann umhyggju Þórunnar dóttur sinnar, er vinnur á Betel, og einnig þjónustu og umönnun- ar hjúkrunar- og þjónustu- kvenna þar. Vil ég fyrir hönd ástvina hans túlka þakklæti for- stöðukonunni og þjónustufólk- inu fyrir kærleika og umönnun, er hann varð þar aðnjótandi. — Útför hans fór fram þann 19. febrúar með kveðjuathöfn á Betel, og í kirkju Breiðuvíkur- safnaðar á Hnausum. Börn hans, afkomendur og margir sveitungar kvöddu hann með virðingu og þökk. S. Ólafsson ☆ Úr Dakotabygðunum varð Lögberg vart við eftirgreinda erindreka og gesti á þjóðræknis þingi, Dr. Richard Beck, Harald Ólafsson, Björn Stefánsson, G. J. Jónasson, T. A. Björnsson, Jósep Anderson, Rögnvald Hall- dórsson, Stefán Indriðason, Soffíu Bernhöft, Kristján Guð- mundsson, Joe Peterson, frú og dóttur, Miss Laugu Geir og frænku hennar Miss Kristínu Davíðsson. ír Frá Morden sóttu þjóðræknis- þing Mr. og Mrs. T. J. Gíslason og Mrs. Árni Thomasson og dóttir. ☆ Kvenfélag Sambandssafnaðar efnir til „Bridge“-kvölds í sam- komusal safnaðarins á þriðju- daginn þann 6. þ. m. kl. 8.15. — Einnig verða kaffiveitingar á boðstólum. ☆ A meeting of The Jon Sigurd- son Chapter I O D E will be held at the home of Mrs. P. J. Sivertson 497 Telfer St. on Fri- day Evening March 2nd at 8 o’clock. 'A Mr. G. A. Williams kaupmað- ur frá Hecla hefir dvalið í borg- inni tvo undanfarna daga. ☆ Samkoma Icelandic Canadian Club í Fyrstu lútersku kirkju á þriðjudagskvöldið var afarfjöl- menn og þótti takast hið bezta; nánari umsögn í næsta blaði. ☆ Úr Algylebygð sátu þjóð- ræknisþing G. J. Oleson og frú, séra Eric H. Sigmar og B. S. Johnson. Ársskýrsla . . . Framhald af bls. 4 að til þess að vinna samskonar starf þar og getum við talið okk- ur það mikinn heiður að hafa verið fyrirmyndin í því máli. Gestakoman hingað byrjaði með þinginu fyrir ári síðan, er þing- gestur okkar var Gunnar Páls- son, söngvari, frá New York. Svo liðu nokkrir mánuðir þar til að Pálmi Hannesson rektor Menta- skólans í Reykjavík kom til Winnipeg til að hitta íslendinga hér og kynnast þeim, og tala á íslendingadeginum á Gimli. Nefndin efndi til samsætis fyrir hann og gladdi það okkur að geta gert það. Næst kom mikilsmetinn mentafrömuður til Winnipeg, á fund forseta Manitoba-háskóla til að ræða nokkur mál í sam- bandi við hinn fyrirhugaða kenslustól í íslenzkum fræðum, Dr. Alexander Jóhannesson, for- seti Háskóla íslands. Þjóðræknis nefndin efndi til almenns sam- sætis á Royal Alexandra Hotel, í heiðursskyni við hann og þar veittist íslendingum sá heiður og ánægja að hlusta á forsetann, sem er einn af hinum fremstu í þekkingu á tilveru og myndun nútíma tungumála. Næst á ferð voru aðalsræðis- maður Hannes Kjartansson og frú, sem ég hefi áður minst. Og einum mánuði seinna kom hing- að maður í heimsókn til skyld- fólks síns en sem Þjóðræknis- félagið, tímaleysis vegna, tók ekki á móti, þó við hjónin hefð- um þá ánægju af að bjóða hon- um heim til okkar, og mér gafst tækifæri til að endurnýja gaml- an kunningsskap. Þessi maður var Einar Sæmundsson, aðstoðar skógræktarstjóri á Islandi. Hann er bróðursonur Mrs. Sigríðar Árnason, ekkju séra Guðmund- ar heitins Árnasonar.. Hann var á leið heim aftur úr ferð til Alaska, þar sem hann safnaði fræi af ýmsum trjátegundum til gróðursetningar á íslandi. Næsti gesturinn hér á ferð var Páll Kolka læknir frá Blöndu- ósi, sem flest öllum hefir gef- ist tækifæri að hitta og kynnast. Og geri ég grein fyrir komu hans, ferðum og dvöl hér undir öðrum lið. Og síðastur á ferð hér var góður og vinsæll maður, sem heimsótti okkur fyrir sjö árum, er haldið var upp á 25 ára af- mæli félagsins, sem fulltrúi Is- lands-stjórnar, séra Sigurgeir Sigurðsson, biskup yfir íslandi. Það er varla þörf á að minnast hve öllum þótti vænt um komu hans nú aftur, og fögnuðu hon- um er hingað var komið, og ekki sízt vegna þess að frú Guðrún kona hans var með í förinni. Eins og menn muna, messaði biskupinn í báðum kirkjum á jólunum, og gladdi fólk hér vestra með nærveru sinni á þeim tíma. Þau hjónin stóðu ekki við nema aðeins eina viku, og hurfu svo suður til Banda- ríkjanna, þar sem þau voru um tíma gestir Árna Helgasonar, hins góðkunna atorkumanns og ferðuðust með h o n u m suður í ríki og eftir því sem ég hefi frétt alla leið suður í Mexico. Það var ósk biskupsins, á meðan að hann stóð hér við, að engin fjölmenn samsæti yrðu haldin honum. Hann var að leita sér heilsu- bótar og vildi geta hvílst eftir því sem tækifæri gæfist. En nefndinni fanst hún ekki mega sleppa biskupshjónunum héðan án þess að sýna þeim virðingu á einhvern hátt og tók það ráð að bjóða þeim á miðdagsverð með örfáum öðrum mönnum, sem tókst vel. Og er þau hjónin fóru héðan, hljómuðu heilla- óskir og blessun allra Vestur- íslendinga í eyru þeirra. Og nú þegar ég er að telja upp samsæti, sem haldin voru á árinu, má ekki gleyma sam- sæti, sem nefndin hélt skrifara sínum, Jóni J. Bíldfell á áttug- asta afmæli hans í sumar sem leið. Maður ætti bágt með að trúa því að jafn fjörugur og vel útlítandi maður sem hann er, gæti verið það gamall. En það er tilfellið. Og samnefndarmenn hans, allir miklu yngri en hann, vildu heiðra hann á afmælinu, og gerðu það, og afhentu honum dálítinn grip til minningar um daginn. MESSUBOÐ Fyrsta Lúterska Kirkja Séra Valdimar J. Eyland*. Heimili 776 Virtor Street. Sími 29017. — Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h. Allir ævinlega velkomnir. ☆ Lúierska kirkjan í Selkirk Sunnud. 4. marz. Ensk messa kl. 11 árd. Sunnudagsskóli kl. 1 . íslenzk messa kl. 7 síðd. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson ☆ — Argyle Presiakall — Guðþjónustur, sunnudaginn 4. marz: Grund kl. 2:30 e. h. Baldur kl. 7 e. h. Séra Eric H. Sigmar HERBERGI með húsgögnum fæst til leigu nú þegar að 277 Toronto Street. Sími 33 920. KAUPENDUR LÖGBERGS Á ÍSLANDI Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 75.00. Dragið ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna. Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir að snúa sér til mín. BJÖRN GUÐMU N DSSON BÁRUGATA 22 REYKJAVÍK H.R.H. THE DUKE OF EDINBURGH This Royal Command study by Baron is the latest portrait of H.R.H. the Duke of Edinburgh, in the uni- form of Lieutenant-Commander of the Royal Navy. This recent portrait of the Duke of Edinburgh was taken at his London home, Clarence House. The Duke is at present with the Fleet in the Mediterranean. He was joined by his wife, H.R.H. Princess Elizabeth, for some weeks over Christmas, and Princess Margaret also flew to Malta for a short holiday with them. (FRAMHALD) s •' I Á r ONK OF EATONf OWN RANDf J eaton's “Solar” Watches Dependable and Accurate! Your finest watch buy today! — Anywhere! “Solar”, one of EATON’S own B r a n d e d Lines backed unconditionally by EATON’S policy of “Goods Satisfactory or Money Refunded”. You’re sure of the finest watch for your money when you choose a “Solar” watch, either men’s or women’s model. Jewellery Section, Main Floor, Portage AT. EATON C O LIMITKO ‘Y0UR BEST BUY IS AN EATON BRAND’ TIL BÚNAÐARUMBÓTA Búnaðarbótalán má nota til að raflýsa bæi yðar, hlöður og önnur útihús. Upphæðir, sem nema alt að $3,000 eru fáanlegar samkvæmt þar að lútandi ákvæðum, og um afborganir má semja til eins, tveggja eða fleiri ár, og vextir nema aðeins 5%. Upplýsingar hjá næsta útibúi. BÚNAÐARLÁNI má einnift verja til Nýrra véla og búáhalda. Nýrra kjallara ei5a til kaupa hreinræktaSs búpenings. Nýrra bygginga eSa viSgerBa við eldri hús á býlinu. Raflagna 4 býlinu. GirSinga, afrenslis eSa ann- ara umbóta. Biðjið um eintak af þessum bœkliniH, er skýrir frá öllu varðandi búbótalán. THE ROYAL BANK OF CANADA Þér megið treysta ''Royal"

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.