Lögberg - 29.03.1951, Side 1
PHONE 21374
líol*
Un>«e
Clett^eT
A Complele
PUanínn
Cleaning
InstUulion
PHONE 21 374
LoTd V.wjr
R«sáSs«=-:_
Cleanlng
ínsiitutior
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 29. MARZ, 1951
NÚMER 13
Minningarorð um merkan mann:
Halldór Halldórsson
F. 27. janúar 1875 — D. 18. febrúar 1951
Vinur okkar, Halldór Hall-
dórsson, var kallaður héðan við-
vörunarlaust, án þess að honum
veittist tími til þess að kveðja —
það var að morgni hins 18.
febrúar þessa árs.
Við söknum nans öll, sem
höfðum þekt hann eða kynst
honum.
Hann hlaut hinn síðasta hvílu-
stað í hinum dásamlega og fagra
grafreit, sem nefndur er „Royal
Oak“, og fór jarðarförin fram
23. íebrúar að viðstöddum ætt-
mennum, börnum, barnabörn-
um og systrum, ásamt nánustu
vinum hans og starfsfólki hans
frá Winnipeg skrifstofunni. Má
þar telja Andrés Björnsson um-
sjónarmann eigna hans og Mrs.
Gilchrist forstöðukonu skrif-
stofunnar. Hann lifa tvær dæt-
ur, þrír synir og fjórar systur.
Halldór Halldórsson h a f ð i
marga þá kosti til að bera, sem
einkenna sannan og góðan ís-
lending: Hann var trúr og
tryggur vinur, hjálpsamur þeim,
sem hann hélt að ættu við bág-
indi að búa, og höfðingi í lund.
Kom það bezt fram þegar menn
heimsóttu hann; sannaðist þá á
honum hið fornkveðna, að „Til
þess að þekkja manninn, þarftu
að sækja hann heim“.
Halldór var gæddur ágætum
og fjölbreyttum gáfum bæði í
verklega átt og bókmentalega;
hann var verulega bókhneigður
maður að eðlisfari — fjöllesinn
og fróður; fékst talsvert við rit-
störf og ljóðagerð, enda þótt
hann birti það sjaldan á prenti.
Það sem einkendi hann frem-
ur öllu öðru var hinn óbilandi
kjarkur og hið mikla bjartsýni.
Hann var flestum mönnum
glöggskygnari á hagsmuna lík-
indi hvort heldur var fyrir hann
sjálfan persónulega eða fyrir
þjóðfélagið í heild sinni.
Við sem kyntumst honum og
lærðum að þekkja hann eins og
hann var í raun og veru, sjáum
öll eftir honum og finnum til
þess að nú er skarð fyrir skildi
og autt sæti, sem örðugt verður
að fylla. Við segjum öll ein-
huga: „Vertu sæll, vinur, þang-
að til við sjáumst aftur, þá mun-
Vaskleg björgun
Q Halamiðum
Þegar v.b. Elliðaey frá Vest-
mannaeyjum var að veiðum
á Halamiðum nýlega, féll
einn háseta fyrir borð.
um við endurnýja vináttuna. -
En nánustu ættingjarnir og
börnin sakna hans auðvitað
mest; þau leiddi hann og þeim
liðsinti hann í öllum efnum með
mildi sinni og hjálpsemi. —
Halldór Halldórsson var fædd-
ur í Önundarfirði á íslandi 27.
janúar 1875. Hann fluttist ung-
ur til Danmerkur og þaðan til
Ástralíu. Kom til Manitoba 1908
og stundaði fasteignasölu og
byggingar í Winnipeg. Kom það
þá fljótt í ljós hversu hagsýnh
hann var og atorkusamur; enda
græddist honum fljótt fé; varð
hann þar með þeim fremstu í
þeirri grein.
Hann flutti til Victoria í
British Columbia fyrir nálægt
fimm árum og naut þar ávaxta
iðju sinnar og framsýni.
Soffonías Thorkelsson
Frú María Markan Östlund
Syngur einsöng
við guðsþjónustu
Frú María Markan Östlund,
hefir góðfúslega auðsýnt Fyrsta
lúterska söfnuði og presti hans
þá sæmd, að syngja einsöng við
morgunguðsþjónustuna í kirkj-
unni á sunnudaginn kemur, kl.
11 f. h.
Risaflugvél týnist
yfir Atlantshafi
Síðastliðinn föstudag gerðust
þau tíðindi, að risaflugvél ame-
rísk, er taldist til loftflotans,
týndist yfir Atlantshafi, eitt-
hvað um fjögur hundruð mílur
undan ströndum írlands og hef-
ir ekkert síðan til hennar
spurst; flugvélin hafði farið um
Keflavíkurflugvöll og var alt þá
í góðu lagi; vélin hafði 52 manns
innanborðs; hennar hefir stöð-
ugt verið leitað árangurslaust.
Samkomart í
Playhouse Theatre
Um nokkrar undanfarnar vik-
ur hefir jafnt og þétt verið vikið
að menningarlegu gildi hljóm-
leikahátíðarinnar, sem þær frú
María Markan Östlund og ung-
frú Helga Sigurdson efna til í
Playhouse Theatre hér í borg-
inni á föstudagskvöldið kemur
þann 30. þ. m. Jafnframt hefir
athygli verið leidd að því, hve
mikið Islendingar eigi áminst-
um hljómlistarsnillingum að
þakka, er komið hafa hingað um
óraveg og lagt á sig mikið erfiði
vegna órofatrygðar við íslenzk
menningarverðmæti; lesendum
er einnig kunnugt um það, að
þetta áminsta kvöld geri forseti
Manitobaháskólans, Dr. Gillson,
mikilvæga yfirlýsingu varðandi
stofnun hinnar íslenzku deildar
við háskólann, og verður slíkri
Kunnur athafna
maður lótinn
HEITIR MAÐUR sá, sem fyrir
borg féll, Gunnar Aanes. Þegar
bátsmaðurinn, Sigurgeir Ólafs-
son, varð þess var, stakk hann
Ser þegar fyrir borð og synti til
Gunnars, er þá var að því kom-
að sökkva. Gat hann haldið
bonum uppi, unz björgunarhring
var varpað til þeirra.
í’ykir afrek Sigurgeirs báts-
manns hið vasklegasta.
—Vísir 19. marz
Mesti snjór síðan 1910
Hréttaritari Tímans sagði í
®*r> að á Fljótsdalshéraði væri
kominn mesti snjór, sem þar
efir sézt í fjörutíu ár. — Hvað
annkyngi snertir er veturinn
1910, helzt til samjafnaðar, en þá
voru snjóalög gífurleg á Héraði.
—Tíminn, 18. marz
Ólafur S. Freeman
Á þriðjudaginn í fyrri viku
lézt í Los Angeles, Cal., Ólafur
S. Freeman bankastjóri í Bot-
tineau, North Dakota, kunnur
athafnamaður og valmenni að
sama skapi; var hann á ferðalagi
syðra ásamt frú sinni, er dauða
hans bar að; auk ekkju sinnar,
frú Sigríðar, lætur Ólafur eftir
sig stóran hóp mentaðra og
mannvænlegra barna.
Útför Ólafs bankastjóra fór
fram í Bottineau síðastliðinn
þriðjudag, og var hann jarð-
sunginn af séra Valdimar J. Ey-
lands, en þeir voru aldavinir;
þau séra Valdimar og frú Lilja,
fóru suður vegna jarðarfararinn-
ar á mánudaginn; þessa látria
merkismanns verður nánar
minst við fyrstu hentugleika.
ráðstöfun alment fagnað; nokk-
ur inngangsorð flytur Dr. P. H.
T. Thorlakson, hinn sívökuli for-
maður framkvæmdanenfndar-
innar í kenslustólsmálinu.
Að undirbúningi samkomunn-
ar hefir verið unnið vel, og mun
það mála sannast, að í þeim efn-
um hafi enginn, er hlut átti að
máli, legíð á liði sínu, og skyldi
slíkt að makleikum metið.
Fram hjá því skal ekki gengið,
að Lindal dómari, formaður
fræðslu- og auglýsinganefndar-
innar, hefir int af hendi mikið
starf, og meðal annars komið því
til leiðar, að Canadian Press og
Canadian Broadcasting Corpora-
tion, flytji ýtarlegar upplýsing-
ar frá strönd til strandar um
kenslustólsmálið.
Fagnaðarefni er það hið
mesta, hve margir forustumenn
og konur utan vébanda hins ís-
lenzka þjóðarbrots hafa með
samúð sinni lifað sig inn í gildi
kenslustólshugmyndarinnar og
með því blásið henni byr í segl.
Hér fer á eftir skrá yfir það
fólk, sem tekið hefir að sér að
gerast heiðursverndarar á-
minstrar samkomu, en í þeim
hópi eru tveir íslendingar í
þjónustu utanríkisráðuneytis Is-
lands, þeir Thor Thors sendi-
herra íslands í Bandaríkjunum
og Canada, og G. L. Jóhannsson,
ræðismaður Islands í Sléttu-
fylkjunum þremur, ásamt frúm
sínum:
Honorable R. F. McWilliams,
Lieutenant-Governor of Mani-
toba, and Mrs. McWilliams.
Honorable Douglas L. Campbell,
Premier of Manitoba, and Mrs.
Campbell.
Honorable Thor Thors, Iceland’s
Minister to Canada and the
United States, and Mrs. Thors.
Justice A. K. Dysart, Chancellor
of The Universtiy of Manitoba.
Dr. A. H. S. Gillson, President
and Vice-Chancellor of The Uni-
verstiy of Manitoba, and Mrs.
Gillson.
Victor Sifton, Chairman of the
Board of Governors, The Uni-
versity of Manitoba, and Mrs.
Sifton.
Honorable W. C. Miller, Minister
of Education, and Mrs. Miller.
Garnet Coulter, Mayor of Winni-
peg, and Mrs. Coulter.
Laurence C. Frank, American
Consul General, and Mrs. Frank.
Grettir L. Johannson, Consul for
Iceland and Denmark, and Mrs.
Johannson.
Fró Minneapolis
Vorsamkoma Hekluklúbbsins
í Minneapolis verður haldin á
föstudagskvöldið þann 30. þ. m.,
samkvæmt tilkynningu, sem
Lögbergi hefir nýverið borist;
verður samkoman að þessu
sinni haldin í Legion Hall, Cchi-
cago Avenue og 35th Street í
Minneapolis og hefst með kvöld-
verði kl. 8. Ræðu flytur Sidney
Gíslason dómari frá New Ulm,
Óli Kardal og Stefán Guttorms-
son skemta með tvísöngvum,
Matthías Thorfinnsson kennari
við landbúnaðardeild Minnesota
háskólans skipar forsæti, og að
lokinni skemtiskrá verða born-
ar fram fjölbreyttar veitingar.
Mrs. F. C. Leuthen, er forseti
Hekluklúbbsins í ár, og biður
hún Lögberg að minna á, að
allir þeir Vestur-Islendingar,
sem kynni að vera staddir í
Minneapolis um þetta leyti, séu
boðnir og velkomnir á samkom-
una.
Dr. P. H. T. Thorlakson
Flytur
inngangsorð
Á hljómleikahátíðinni miklu,
sem fram fer í Playhouse
Theatre hér í borg á föstudags-
kvöldið kemur, flytur Dr. P. H.
T. Thorlakson, formaður fram-
kvæmdarnefndarinnar í kenslu-
stólsmálinu við Manitobaháskól-
ann, nokkur inngangsorð.
Samkoma
laugardagsskólans
Hin árlega samkoma Laugar-
dagsskóla Þjóðræknisfélagsins
verður haldin á laugardags-
kveldið 7. apríl, í Sambands-
kirkjunni á Banning Str. Börnin
og kennararnir hafa æft góða
skemtun — s m á 1 e i k r i t og
söngva, — og vænta góðrar að-
sóknar eins og endranær.
Samkomunni í fyrravor varð
að fresta vegna flóðsins, en að-
göngumiðarnir, sem seldir voru
að henni, gilda á þessar sam-
komu.
Skemtiskráin verður auglýst
í næstu viku.
Hafið þetta kveld í huga!
Bjarni Ásgeirsson
verður sendiherra í Olso
Við kjör stjórnar Búnaðarfé-
lags Islands, á lokafundi Búnað-
arþings í gær, gaf Bjarni Ásgeirs
son eigi kost á sér til endurkjörs.
Ástæðan til þessa er sú, að búist
er við því að hann muni taka
við sendiherraembættinu í Osló,
þegar Gísli Sveinsson lætur af
því starfi. —Vísir, 20. marz
Fylkingar sameinuðu þjóðanna
frelsa Suður-Kóreu
Nú er svo komið, að fylkingar
sameinuðu þjóðanna hafa náð
að öllu leyti Suður-Kóreu úr
þrælaviðjum kommúnista, og
hafa tekið sér stöðu við 38.
breiddarbaug; í einstöku tilfell-
um er mælt, að Suður-Kóreu-
menn séu komnir norður fyrir
landamærin, þótt ekki séu stað-
Lætur af
þingmensku
Fjórlög
Manitobafylkis
Mr. Campbell forsætisráð-
herra í Manitoba, sem jafnframt
er fylkisféhirðir, lagði fram í
þinginu á fimtudaginn fjár-
hagsáætlun sína fyrir fjárhags-
árið 1951—1952, og ber hún það
með sér, að stjórnin gerir ráð
fyrir þeim hæztu tekjum, sem
um getur í sögu fylkisins, eða
hvorki meira né minna en $43.7
miljónum; þó mun þess ekki
vænst, að við lok fjárhagsárs-
ins nemi tekjuafgangurinn mik-
ið yfir einni miljón dollara;
hæztu útgjöldin eru til menta-
málanna, en næst koma svo út-
gjöld til vegabóta, sem áætluð
eru 7 miljónir dollara.
festar fregnir um það við hendi;
líta ýmsir svo á, að þessi mikli
sigur sameinuðu herjanna geti
leitt til þess, að viðræður kunni
brátt að hefjast um vopnahlé og
væntanlegar samningsgerðir, þó
slíkt sé vitaskuld enn á huldu,
því þar verða það sameinuðu
þjóðirnar, sem koma til sögunn-
ar og taka sínar ákvarðanir.
MacArthur yfirhershöfðingi
hefir lýst yfir því, að hann sé
fús til að ræða frið við komm-
únista ef þeir gefist skilyrðis-
laust upp, en hefir jafnframt lát-
ið 1 veðri vaka, að verði slíku
ekki sint, geti komið til mála á-
rás á meginland Kína; hefir
þessi yfirlýsing hershöfðingjans
sætt misjöfnum undirtektum, og
eru ýmsir þeirrar skoðunar, að
hann hafi stígið feti framar en
æskilegt var, eða hann hafði um-
boð til.
J. Ragnar Johnson, K.C.
Stundar málafærslu
í Toronto
Mr. Johnson, sem rekur mála-
flutningsstörf í Toronto, var
sæmdur K.C. nafnbót af dóms-
málaráðuneyti Ontario-fylkis
um síðastliðin áramót; hann er
útskrifaður í lögum af háskóla
Manitobafylkis, og er sonur Mr.
og Mrs. Finnur Johnson; er fað-
ir hans á lífi hér í borg, en móð-
irin, frú Guðrún Johnson, látin
fyrir fáum árum.
VOR
Ralph Maybank
Síðastliðið mánudagskvöld var
Mr. Ralph Maybank, sambands-
þingmanni fyrir Mið-Winnipeg-
kjördæmið syðra og frú, haldið
fjölment og veglegt heiðurssam-
sæti; að því stóðu kjósendur
hans, en forsæti skipaði Árni G.
Eggertson, K.C., sem er formað-
ur Liberalsamtakanna í á-
minstu kjördæmi.
Það hafði um hríð legið í loft-
inu, að áður en langt um liði
myndi Mr. Maybank láta af
þingmensku eftir að hafa setið
samfleytt á þingi í nálega sextán
ár, og nú er þetta komið á dag-
inn; mun hann tilkynna þing-
forseta afsal sitt, er þing kemur
saman í Ottawa eftir páska
hléið.
Fljúgðu vor á vængjum þínum norðúr
vermdu hina þreytufölu kinn;
enn er frosinn allur jarðarsporður
uggur kaldur smýgur huga minn.
Vektu alla viði þínum hljómum
vængjum mjúkum strjúktu loftin blá.
Láttu rjóðrin brosa til vor blómum
byrla lífi nýja von og þrá.
Klæddu vötn úr klakastakki gráum,
kembdu hærur hlýjum þýðum blæ,
vefðu jörðu heiðum himni og bláum
hressilofti fyltu sérhvern bæ.
/
Láttu heim af friði þínum fyllast
farðu um hjörtun þinni mjúku hönd.
Leiddu á réttar leiðir þá sem villast,
láttu þjóðir knýta vinabönd.
Páll Guðmundsson