Lögberg - 19.04.1951, Síða 1
64. ÁRGANGUR
PHONE 21 374
u-s?e
„T.m — clett',lC
A Complele
Cleaning
Instilulion
NÚMER 16
Lögberg árnar íslenzka mannfélaginu beggja vegna hafs góðs og gleðilegs sumars
Fjárlagafrumvarp sambands-
stjórnar lagt fram
Á þriðjudagskvöldið þann 10.
Þ- m., lagði fjármálaráðherra
sambandsstjórnarinnar, Douglas
C. Abbott, fram í þinginu
fjárlagafrumvarp sitt yfir fjár-
hagsárið 1951—1952 að mann-
fjölda miklum viðstöddum;
munu víst flestir hafa vænst
aukinna útgjalda og hækkaðra
skatta, enda varð sú raunin á; að
slíkt yrði í rauninni óhjákvæmi-
legt, mun fæstum hafa komið á
óvart, er tekið er tillit til hinna
risavöxnu hervarna þjóðarinnar
heima fyrir, þátttöku hennar í
sókn sameinuðu þjóðanna í
Kóreu, ásamt skuldbindingum
hennar vegna Atlantshafsbanda-
!agsins; það liggur þar af leið-
andi í augum uppi, að þjóðin
verði að spara við sig, og sætta
sig við nokkuð þyngri álögur frá
því sem var; henni er það líka
að fullu ljóst hve mikið sé á sig
leggjandi vegna frelsismála
mannkynsins.
Að því er Mr. Abbott telst til
eru tekjurnar yfir áminst fjár-
hagstímabil áætlaðar $3,730,000,-
000, en útgjöldin $3,700,000,000.
Gert er ráð fyrir að tekjuafgang-
ur nemi $30,000,000,
Einkatekjuskattur hækkar um
20 af hundraði frá 1. júlí næst-
komandi að telja; söluskattur
hækkar um 2 af hundraði;
hækkaður skattur á vindlingum
verður 3cents á 20 stykkja pakka;
skattur á reyktóbaki hækkar að
verulegum mun, en skattur á öli
°g sterkum víntegundum helzt
obreyttur; undanþegnir per-
sónulegum tekjuskatti verða ein-
hleypingar með $1,000 árslaun
°g heimilisfeður, er eigi hafa
yfir $2,000 í árstekjur.
Tollur á kæliskápum,
þvottavélum og rafeldavélum,
hækkar um 15 af hundraði, en
eldavélar, sem brenna við og
holum, v e r ð a undanþegnar
skatti; skattur á bílum, hjólbörð-
um og viðtækjum, hækkar um
!6 af hundraði; skattur stórfyr-
ktækja, er hafa yfir $10.000
reksturshagnað á ári, hækkar úr
upp í 45.6 af hundraði.
fnnflutningstollur á ýmissum
landbúnaðarvélum og áhöldum
fellur niður.
Sjötugur
Aíbert P. Hermanson
Síðastliðinn fimtudag átti Al-
ert P. Hermanson ræðismaður
via hér í borginni sjötíu ára
a mæli, og var honum þá haldið
úolment 0g ánægjulegt sam-
agnaðarmót á Empire-hótelinu.
^r; Kermanson er um alt hinn
naesti sæmdarmaður, drengur
Krýningarsteinninn
fundinn
Frá því var á sínum tíma ýtar-
lega skýrt hér í blaðinu, er hin-
um sögufræga krýningarsteini,
Stone of Scone, var stolið úr
Westminster Abbey síðastliðinn
jóladagsmorgun; þótti sá atburð-
ur, sem vænta mátti, hinn furðu-
legasti, og voru valdir til rann-
sóknar í málinu þeir slyngustu
menn hinnar brezku rannsókn-
arlögreglu; nú fanst steinninn í
fyrri viku í klaustri einu skamt
frá bænum Dundee á Skotlandi,
og hefir þegar verið fluttur til
London og komið fyrir á sínum
gamla stað; ekkert hefir enn ver-
ið látið uppi um það, hverjir
valdir hafi verið að verknaðin-
um, þó nokkurn veginn þyki ein-
sætt, að það hafi verið skozkir
sjálfstæðismenn, er þóttust eiga
sögulegt tilkall til steinsins, og
vilja að Skotar verði aðnjótandi
aukins sjálfsforræðis frá því,
sem nú gengst við.
Miss Marion Johnson
Krýnd ti!
drottningar
Á æskulýðsþingi V e s t u r -
Canada, sem haldið var að High
River, Alberta um síðastliðin
mánaðamót, var Miss Marion
Johnson, sem búsett er þar í
bænum, krýnd sem drottning
þingsins. Miss Johnson er af ís-
lenzkum ættum; faðir hennar er
Clifford Johnson, sonur Thord-
ar heitins Johnson gullsmiðs og
eftirlifandi ekkju hans, frú Guð-
nýjar, sem á heima í Winnipeg.
Merkur stjórnmóla-
maður lótinn
Síðastliðinn sunnudag lézt í
London Ernest Bevin, sá er
gegndi utanríkisráðherraemætti
í Attlee-stjórninni á Bretlandi
síðan hún kom til valda og þang-
að til fyrir mánuði, er hann lét
af því embætti vegna heilsubil-
unar og tókst á hendur embætti
innsiglisvarðar, sem var miklu
auðveldara viðfangs.
Mr. Bevin var um langt skeið
formaður námumannasamtak-
anna brezku, en lét af þeirri
sýslan, er hann tókst á hendur
forustu utanríkismálaráðuneyt-
isins, en í þeim verkahring á-
vann hann sér alþjóðatraust;
hann var rúmlega sjötugur að
aldri.
Ráðstöfun, sem vakið hefir
heimsathygli
Um miðja fyrri viku vék
Truman forseti MacArthur frá
herstjórnarforustu í Asíu, og gaf
það að ástæðu, að hinn víðkunni
hershöfðingi hefði hvað eftir
annað gefið út á eigin ábyrgð
yfirlýsingar um viðhorf Kóreu-
stríðsins, er brotið hefði í bág
við yfirlýsta stefnu Bandaríkja-
stjórnar á vettvangi utanríkis-
málanna og valdið sameinuðu
þjóðunum margs konar erfið-
leikum varðandi tilraunir þeirra
um öryggi alheimsfriðar.
Daginn eftir frávikningu Mac-
Arthurs, flutti Truman forseti
útvarpsræðu, þar sem hann lýsti
yfir þeirri skoðun sinni, að uppá-
stungur hins fráfarandi hers-
höfðingja og hernámsstjóra, er
í þá átt hnigu, að það væri eigi
einungis réttlætanlegt, að hefja
loftsprengjuárásir á hernaðar-
legar bækistöðvar í Manchuríu
og á meginlandi Kína og ennfrem
ur, að hinum kínversku National-
istum á Formosa, skyldi heimil-
uð innrás á meginlandið, væru
í ósamræmi við stefnu Banda-
ríkjanna.
Mr. Truman kvað það vilja
linn og hinna sameinuðu þjóða,
að gera alt, sem hugsanlegt væri
í því augnamiði, að einangra
Kóreustríðið svo sem framast
mætti verða, og koma með því
í veg fyrir, að þriðja heimsstyrj-
öldin brytist út, en á því, að til
slíkt gæti komið, hefði getað orð-
ið alvarleg hætta, ef MacArthur
góður
°g vinfastur.
Sykurskömmtun
hætt hér á landi
Árdegis í gær var ákveðið að
hætt skyldi sykurskömmtun hér
á landi, en sykur hefir verið
skammtaður hér frá árinu 1939.
Vakti frétt þessi að vonum mikla
ánægju meðal landsmanna.
Þá var og ákveðið, að fólki
skyldi gefinn kostur á að kaupa
smjörlíki óskammtað, en það
smjörlíki sem þannig er selt er
ekki „greitt niður“ af ríkissjóði
og þar af leiðandi dýrara í verði,
en það smjörlíki, sem út á
skömmtunarmiðana fæst.
—Mbl. 14. marz
hefði fengið vilja sínum fram
gengt.
Mac Arthur telst til Republi- nu
canaflokksins, og hafa flokks-
bræður hans í báðum deildum
þings fylzt fítonsanda og hafa í
hótunum við Mr. Truman.
General Ridgway hefir tekið
við herforustu af MacArthur í
Asíu. í flestum höfuðborgun
sameinuðu þjóðanna hefir a-
minstri ráðstöfun Mr. Trumans
verið vel fagnað.
Kapellan í Sólvalla-
kirkjugarði rifin
STJÓRN kirkjugarðanna í
Reykjavík hefir ákveðið að láta
rífa kapelluna, eða líkhúsið svo-
nefnda í Sólvallakirkjugarði,
enda er húsið komið að falli og
löngu hætt að nota það sem
kapellu. Hefir það verið geymsla
fyrir allskonar drasl hin síðari ár.
Kapellan er um 100 ára göm-
ul og var á sínum tíma allmikið
notuð. Voru þar stundum guðs-
þjónustur fyrr á árum t. d. með-
an Dómkirkjan var í viðgerð.
1 Sólvallakirkjugarði verður
stað kapellunnar reist
klukknaport og verður sama
klukkan 1 portinu, sem áður var
í kapellunni. Altari og aðrir
munir úr Sólvallakirkjugarðs-
kapellu hafa verið fluttir í kap-
elluna í Fossvogi og verða not-
aðir þar í sérstöku herbergi, þar
sem kistulagningin mun fara
fram.
—Mbl. 14. marz
Seinustu bækurnar
Eftir ALFRED NOYES
Hvort finst þér það, vinur minn, fjarstæða ein,
er finnast á jörðinni’ ei lífsmerki nein,
en hnötturinn snýst kring um hálfmyrkva sól
og hinsta mark lífsins til steindauða kól;
úr holgryfjum ólyfjan hnötturinn gýs
með helgusti, rignandi grjóti og ís?
Já, finst þér það þá vera fjarstæða ein:
í fylgsnum, sem náði’ ekki gjöreyðing nein,
með stormtryggum veggjum, sem ekkert vann á,
sé ennþá til bókasafn mannheimi frá
með sögum og skýrslum af andlegri ætt,
sem æska og vor höfðu getið og fætt.
Um þúsundir ára með þessari hlíf
sem þögulir vottar um útkulnað líf,
þær varðveittust eilífðar aldrinum nær
en augnabliks duftið, sem framleiddi þær:
Þær fann engin lifandi, leitandi sál. —
Þar lifðu samt jarðneskir söngvar og mál.
í hálfmáðu smáletri hepnaðist þeim
gegn helógn og myrkri um eilífðar geim
að varðveita þekking og verðleika þann,
sem varpaði tign á hinn jarðneska mann,
er blómylminn teygaði þjóðsálin þyrst. —
Og þá var á jarðríki elskað og kyzt.
Og fyr en það glatist, sem geymt er svo vel
í gegn um hið eilífa myrkur og hel-
frá voldugri plánetu fljúgandi fley
með farmenn sem gufuhvolf þurfa sér ei,
að jörðinni stefna og staðnæmast þar,
og stíga á land, þar sem bókhlaðan var.
Og kynlegar raddir þar bergmála björg,
og blys sjást á loftinu kynleg og mörg.
Með kynlegum verkfærum kynlegir menn
þar klettana sprengja og bækurnar senn
þeir upphefja’ í ljósið — það unun þeim fær —
til eilífðar hnatta þeir kunngjöra þær.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi
26 hesf'burðum af heyi kastað úr
flugvél ó túnið í Húsey í gær
För heyflugvélarinnar
gekk að óskum.
í gær var bjart veður og
stillt austan lands, og flaug
heyflutningaflugvélin Gló-
faxi austur með heyið, sem
látið var í hana síðastliðinn
sunnudag, og kastaði því
niður í Húsey í Hróars-
tungu. Gekk ferðin ágætlega.
Þetta er í annað skipti, að
slíkir heyflutningar f a r a
fram hér á landi.
Flugmenn í þessari ferð voru
Sigurður Ólafsson og Aðalbjörn
Kristbjarnarson, en auk þeirra
voru með í förinni þrír starfs-
menn Flugfélags íslands til þess
að kasta út heyinu. Það voru
2600 kílógrömm af heyi, sem í
flugvélinni var, og var það í vél-
bundnum böggum, en stólar
höfðu verið teknir úr farþega-
rúmi vélarinnar og hurð að aftur
dyrum höfð opin. Eigandi heys-
ins er Skjöldur Eiríksson, sem á
bú í Húsey.
Frásögn flugmannsins.
Sigurður Ólafsson flugmaður
átti tal við tíðindamann Tímans
í gærkvöldi, er hann kom heim
úr þessari sérstæðu flugferð.
— Okkur gekk ágætlega, sagði
Sigurður. Þegar austur kom
lækkuðum við flugið og hring-
sóluðum í um það bil tíu metra
hæð yfir túninu í Húsey. Við
munum hafa flogið þannig eitt-
hvað fimmtán til tuttugu hringi,
og var heyböggunum velt út um
afturdyrnar, svo til niður á bæj-
arhlaðið, oftast svo sem fjórum
við hvern hring.
Þetta tókst vel, nema hvað fá-
einir baggar röknuðu úr bönd-
um og dreifðist heyið úr þeim
nokkuð um fönnina. En heyið
var aðeins bundið með troll-
tvinna. Samt vona ég, að þetta
Höfðakaupstaður
kaupir togarann
Belgaum
Kostar 1250 þúsund. krónur,
klassdður og með olíukyndingu
75% ríkisábyrgð
Höfðakaupstaður hefir fest
kaup á einum af gömlu tog-
aranna, Belgaum, og var um
boð til þess að undirrita
samninga gefið í fyrradag.
Mun kaupstaðurinn selja
togarann aftur útgerðarfé-
lagi, sem stofnað verður í
Höfðakaupstað.
Fyrir skömmu voru þeir
Gunnar Grímsson kaupfélags-
stjóri, Elías Ingimarsson og Jón
Áskelsson í Reykjavík, og undir
bjuggu þeir kaupin.
Afhending eftir tvo mánuði.
Kaupverð togarans er 1250
þúsund krónur, og skal þá komin
í hann olíukynding og klössun
hafa farið fram. Er búizt við að
afhending geti farið fram eftir
I tvo mánuði. Ríkissjóður tekur
ábyrgð á þrem fjórðu verðsins.
Hlutafé safnað.
Hlutafjárloforðum hefir verið
safnað, og hefir verið heitið 100
þúsund krónum.
Togarinn verður gerður út frá
Höfðakaupstað, og mun fara á
veiðar þegar hann hefir verið
afhentur.
—Tíminn, 12. apríl
hafi ekki orðið að teljandi skaða,
sagði Sigurður að lokum.
1 annað skipti.
Þetta er í annað skipti, að hey
er flutt loftleiðis hér á landi og
varpað niður úr flugvél. í hitt
skiptið var nokkuð af heyi flutt
á þennan hátt úr Reykjavík
austur í Grafning og varpað þar
niður.
—Tíminn, 8. apríl
Fréttir frú Befrel
Það mun vistfólki á Betel og
viðstöddum gestum, lengi minn-
isstætt, hve heimsókn til stofn-
unarinnar á þriðjudaginn þann
3. þ. m., var yndisleg og mótuð
hlýleika, en þá kom þangað söng
konan víðfræga, frú María
Markan Östlund, er með sínu
aðlaðandi viðmóti og sinni
unaðslegu rödd, hreif hugi allra
viðstaddra; þetta var hennar
þriðja heimsókn til Betel, og
duldist heldur engum hve djúp
ítök hún átti í hjörtum hinna
öldruðu sólsetursbarna.
Á afmælissamkomu Betel, sem
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar efndi til í kirkjunni þann 1.
marz s.l., var lesin kveðja frá
forstöðukonu stofnunarinnar,
Mrs. Tallman, þar sem hún lýsti
ánægju sinni yfir heimsókn
góðra gesta, er að garði bæri, og
hve mikið gildi þær hefðu, að
því er snerti ánægju og vellíðan
vistfólksins; benti hún meðal
annars á heimsókn biskupsins
yfir Islandi, herra Sigurgeirs
Sigurðssonar, Páls Kolka lækn-
is, og síðast en ekki sízt, heim-
sókn frú Maríu Markan östlund.
Við áminsta heimsókn hófst
athöfnin með því, að séra Valdi-
mar J. Eylands las ritningar-
kafla, flutti bæn og stutta inn-
gangsræðu.
Mr. G. F. Jónasson forstjóri,
kynti söngkonuna vistfólki og
gestum með nokkrum velvöld-
I um orðum, en því næst hóf frú
María söngþátt sinn, er stóð yfir
í klukkustund og vakti fádæma
hrifningu. Séra Sigurður Ólafs-
son þakkaði því næst heimsókn-
ina af hálfu nefndarmanna, en
Mrs. Tallman fyrir hönd vist-
fólks og allra viðstaddra.
Auk vistfólks og þeirra við-
staddra, sem nú hafa nefndir
verið, tóku þátt í heimsókninni
Mrs. B. J. Brandson forseti Betel
nefndar, J. J. Swanson féhirðir,
Harold Bjarnason nefndarmaður
og Mrs. Bjarnason, Mrs. Fred
Stephenson, Mrs. Eylands, Mrs.
J. J. Swanson og Mrs. Schribner.
Betel þakkar frú Maríu hjart-
anlega komuna og bíður með
óþreyju næstu heimsóknar
hennar.
Viðstaddur
Hörmulegur
afrburður
Á laugardagskvöldið var gerð-
ist sá hörmulegi atburður, að
Harry Schmidt, 71 árs bóndi
skamt frá Carman hér í fylkinu,
kona hans 68 ára og þrjú full-
tíða börn, voru skotin til bana á
heimili sínu, án þess að nokkrar
skiljanlegar ástæður lægi til
grundvallar, því aldrei hafði orð-
ið vart innbyrðis ágreinings í
fjölskyldunni, sem naut virðing-
ar í héraði; einn sonur hinna
látnu hjóna hefir verið hand-
tekinn og sakaður um morðin.