Lögberg - 07.06.1951, Síða 1
64. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 7. JÚNI, 1951
NÚMER 23
Aukakosningar til sambandsþings
Tólf manna
nefnd skipuð
Forsætisráðherra Manitoba-
fylkis, D. L. Campbell, hefir
skipað tólf manna nefnd, er það
hlutverk hafi með höndum, að
gerkynna sér hina fjárhagslegu
hlið bæja- og sveitahéraða gagn-
vart fylkisstjórninni, og bera
fram á sínum tíma tillögur í úr-
bótaátt; mun það einkum verða
kostnaðurinn við skólahald, er
tekinn skuli til yfirvegunar.
Á nýlega afstöðnu fylkisþingi
var fjárveiting til mentamála
aukin um $400,000, en þetta þyk-
ir mörgum, sem við skólahald
eru riðnir, engan veginn full-
nægjandi.
Leita sér
eiginmanna
Þrjár þýzkar stúlkur, sem all-
ar eiga heima í Hamborg, hafa
skrifað borgarstjóranum í Win-
nipeg þeirra erinda, að hann
verði þeim hjálplegur við útveg-
un canadískra eiginmanna; um
afstöðu borgarstjóra til áminstra
málaleitana, er ekki vitað að
öðru leyti en því, sem haft er
eftir honum, að ráðhús borgar-
innar gefi sig lítt að hjúskapar-
miðlun.
Hawaiíbúar og
íslendingar mól-
gefnir í síma
Við Islendingar erum á einu
sviði að minsta kosti í fremstu
röð meðal þjóðanna. Við erum
meðal hinna símaglöðustu þjóða
heimsins. Engin Norðurálfu-
þjóð notar símann hlutfallslega
eins mikið og við, en Hawaii-
búar, sem eiga heimsmetið, eru
okkur fjórðungi fremri í þessu
efni.
Hawaii og ísland.
Það er bandaríska símafélagið,
sem látið hefir gera skýrslur
um þetta. Samkvæmt skýrslum
þess koma flest símtöl á íbúa
Hawaii — 437 á ári. Á hvern ís-
lending koma að meðaltali 316
símtöl. Fimmta landið er Sví-
þjóð með 296 símtöl og Danmörk
sjötta með 245. 1 öðru og þriðja
sæti eru Bandaríkjamenn og
Kanadamenn með 355 og 337 sím
töl á mann.
Símaiækjafjöldi.
Alls eru 70,3 miljónir sítækja
í heiminum, og langflest í Vest-
urheimi og Norðurálfu. Aðeins
1,1% af þessum fjölda er í
Ástralíu.
Við höfum ekki hlutfallslega
jafnmörg símtæki og símtöl, svo
að annaðhvort nota þeir, sem
símann hafa, þetta tæki mjög
svo rækilega eða við erum öðr-
um þjóðum greiðviknari um
símlán við nágrannann.
—TÍMINN, 26. maí
Bráðabirgðalög um
ófengt öl, loftvarnamól
og auknar lóntökur
Ríkisstjórnin hefir gefið út ný
braðabirgðalög, sem staðfest
hafa verið á ríkisráðsfundi. Voru
bráðabirgðalög þessi meðal ann-
ars um heimild á framleiðslu á
sterku öli handa hinum erlendu
liðssveitum, sem hingað koma,
um breytta skipan loftvarna-
uiála og heimild fyrir ríkisstjórn
ina að auka lántöku í alþjóða-
bankanum í Washington vegna
Sogs- og Laxárvirkjana úr 26
niiljónum í 40 miljónir króna.
—TÍMINN, 30. maí
Póststofnun á
GUÐMUNDUR HLÍÐDAL
póst- og símamálastjóri
Hr. Sigurður Baldvinsson póst
meistari í Reykjavík, sem er
samsýslungur og fornvinur rit-
stjóra Lögbergs, sendi honum ný
verið einkar snyrtilegan og vel
saminn bækling, helgaðan 175
Tún í Borgarfirði
eystra enn
undir snjó
Geldfé frá Bakkagerði rekið
út í víkur.
Frá fréttaritara Tímans
í Borgarfirði eystra.
Það er víðar en í Fljótum, að
ekki er vorlegra en svo, að
hvergi sést bóla á hólkolli í tún-
inu. Fréttaritari Tímans í Borg-
arfirði eystra skýrði blaðinu frá
því í gær, að enn sæist ekki á
blett í túninu að Hólalandi í
Borgarfirði, og túngirðingin
væri meira að segja enn víðast
á kafi.
Lítill sem enginn gróður.
Niðri við ströndina er að vísu
orðið autt að mestu, en inni í
sveitinni er enn geysimikill
snjór, þó senn líði að maílokum.
Snjóinn leysir hægt, og gróður
er lítill sem enginn, því að kalt
hefir verið, svo að gróðurnálin
hefir visnað jafnóðum og hún
kom upp úr jörðinni.
Vorverk eru enn ekki hafin
þótt autt sé orðið, því að allt er
svo forblautt, að því verður ekki
viðkomið enn.
Féð rekið út í víkur.
Frá Bakkagerði er nú búið að
reka geldfé og síðbærar ær út í
víkur. Þar er nú byggð fallin
niður, en landið nytjað sem af-
rétt. Er gróður þar fljótari til.
—TÍMINN, 26. maí
Fer til Oslóar, þar sem hann
tekur við sendiherraembætti,
seint í júnímánuði
Bjarni Ásgeirsson, þing-
maður Mýramanna, mun í
dag segja af sér þing-
mennsku, svo sem ákveðið
hafði verið, þar sem hann
tekur nú senn við sendi-
herraembætti í Osló. Auka-
kosningar í Mýrasýslu munu
væntanlega fara fram um
miðjan júnímánuð.
Nú í þessari viku mun Bjarni
Ásgeirsson fara upp í Mýrasýslu
til þess að kveðja hina mörgu
vini sína, samherja og fylgis-
menn þar um langt skeið. En
eftir tæpan mánuð mun hann
fara -til Oslóar og taka þar við
embætti.
Með þessum kaflaskiptum í
starfssögu Bjarna Ásgeirssonar
á Framsóknarflokkurinn á bak
íslandi 175 óra
ára afmæli póststofnunar á ís-
landi, eftir póst- og símamála-
stjóra, hr. Guðmund Hlíðdal,
sem óhikað má telja í brjóst-
fylkingu hinna framtakssömustu
athafnamanna íslenzku þjóðar-
innar um þessar mundir; þá
sendi Sigurður póstmeistari og
blaðinu myndamót af Guð-
mundi, og útvarpserindi, er
skýrir sig sjálft, um þróunar-
feril póstmálanna á íslandi á
minstu tímabili, og birt er á öðr-
um stað hér í blaðinu; skal þetta
hvorttveggja að makleikum
þakkað.
Fær skemtiferð
fil Toronfo
Miss Luida Hallson, dóttir
Mr. og Mrs. Paul Hallson, 714
Ellice Ave. bar sigur úr býtum
í samkepni sem fór fram í Can-
ada í uppdrætti “display
booths” fyrir sýninguna í To-
ronto Canadian Internatíonal
Trade Fair. Hún fékk að laun-
um flugferð á sýninguna auk
$50 í verðlaun.
Miss Hallson hefir stundað
nám í þrjú ár við Manitoba-
háskólann, og sérgrein hennar er
“Interior design”.
Séra Óskar Þorlóksson
hlaut lögmæta kosningu
Prestskosningunum í dóm-
kirkjusöfnuðinum lauk svo, að
séra Óskar J. Þorláksson frá
Siglufirði hlaut lögmæta kosn-
ingu með 2519 atkvæðum, en
séra Þorgrímur Sigurðsson á
Staðarstað hlaut 1844 atkvæði.
46 atkvæðaseðlar voru auðir, en
sjö ógildir. Alls voru 7441 á kjör-
skrá.
Tíminn býður séra Óskar vel-
kominn 1 kennimannssess við
dómkirkjuna í höfuðstað lands-
ins.
—TÍMINN, 25. maí
Engin smóræðis
umsetning
Að því, er ráða má af nýjustu
skýrslum, nam smásölu-umsetn-
ing í Canada á árinu, sem leið
nálega 9 biljónum dollara, og
varð svo að segja 6 af hundraði
hærri en á árinu 1949. Þess er
vænst, að í ár verði aukningin
enn meiri eins og ráða má af því,
að í janúarmánuði hljóp smá-
sölu-umsetningin upp á $675,000,
000. Ber þetta órækan vott um
hagstætt árferði í landinu.
að sjá éinum ástsælasta þing-
manni sínum og bændastétt
landsins einum þeim manni,
sem hefir flestum öðrum frem-
ur helgað henni krafta sína við
margvísleg trúnaðarstörf.
Gísli Sveinsson, sem gegnt
hefir sendiherraembætti í Osló
síðustu ár, mun taka sér fyrir
hendur ferð suður til Rómar, er
hann lætur af embætti sínu.
—TÍMINN, 29. maí
Sendinefnd til
Ottawa
Bændasamtökin í Sléttufylkj-
unum þremur, eru í þann veg-
inn að senda nefnd manna á
fund sambandsstjórnar í því
augnamiði, að knýja fram, ef
unt yrði, hækkað verð fyrir
þessa árs uppskeru og ennfrem-
ur hærri greiðslur vegna hveiti-
samninganna margumræddu við
Bretand.
Erindreki stórstúku
íslands
Stórstúka ísiands hefir valið
dr. Richard Beck prófessor í
Grand Forks, N. Dak., til þess
að mæta sem fulltrúa sinn á
Hástúkuþinginu og hátíðinni í
tilefni af aldarafmæli Good
Templara Reglunnar, sem hald-
in verða í Chicago þ. 13.—15.
júní. Verður hann jafnframt
einn ræðumanna.
Stórstúka Bandaríkjanna
stendur að þinghaldirtu og há-
tíðahöldunum, en þátt í þeim
taka forustu menn og fulltrúar
Templara frá mörgum löndum;
meðal þeirra æðsti yfirmaður
Reglunnar, Ruben Wagnsson
hátemplar, landshöfðingi frá
Svíþjóð, og alþjóðaritarinn Lar-
sen-Ledet ritstjóri, frá Dan-
mörku, auk fjölda annarra.
Dr. Beck gekk í stúkuna
„Framtíðina“ í Reykjavík á
menntaskólaárum sínum og tók
þá þegar mikinn þátt í bindindis
starfinu. Síðan hann kom vestur
um haf (haustið 1921) hefir hann
verið félagi í stúkunni „Heklu“
í Winnipeg og er fyrrverandi
æðsti templar hennar. Hann
hefir flutt fjölda af ræðum um
bindindismál, nú síðast aðal-
ræðuna á aldarafmælishátíð-
inni, sem íslenzku stúkurnar í
Winnipeg efndu til fyrir stuttu
síðan. Hann tók stórstúkustigið
í Reykjavík 1930 og var fulltrúi
vestur-íslenzku stúknanna á
stórstúkuþinginu á Akureyri
1944.
Alf í grænum sjó
Að því er ráða má af fregnum
nú um mánaðamótin, er svo að
segja alt í grænum sjó í Indo-
China; nálega fimtíu þúsundir
kommúnista hófu grimmilega
sókn gegn hersveitum Frakka
suður af Honoi og veittu þeim
þungar búsifjar, sem heldur var
ekki mót von, þar sem að lið-
styrkur þeirra nam ekki nema
liðugum fjórum þúsundum; er
mælt að yfirforingi Frakka á
þessum vígstöóvum, hafi skorað
á frönsku stjórnina að bregðast
skjótt við, og senda sér marg-
aukinn herafla.
Hörmulegt
nómuslys
1 kolanámu, sem starfrækt er
skamt frá bænum Easington á
Englandi, vildi það hörmulega
slys til um miðja fyrri viku, að
sprenging í kolanámu varð þess
valdandi, að 82 námumenn kró-
uðust inni og létu allir líf sitt.
Sextán -lík hafa fundist, en að
hinum er verið að leita nótt sem
nýtan dag; menn þessir voru
um 900 fet neðan við yfirborð
jarðar, er sprengingin átti sér
stað; er þetta eitt hið átakan-
legasta slys, er skeð hefir á Eng-
landi í háa herrans tíð.
Hækkun burðar-
gjalds mótmælt
Foringi íhaldsflokksins,
George Drew, hefir í sambands-
þinginu stranglega mótmælt
þeirri hækkun á burðargjaldi
blaða og tímarita, sem stjórnin
hefir á prjónunum og vill fá
hrundið í framkvæmd; telur
Mr. Drew, að með þessu verði
að ástæðulausu þröngvað að
fréttaflutningi, sem þegnar lands
ins þurfi að eiga sem greiðastan
aðgang að, og geti til þess leitt,
að útgáfur ýmsra blaða og tíma-
rita leggist niður, og sé þá ver
farið en heima setið.
Þann 25. yfirstandandi mán-
aðar fara fram í fjórum kjör-
dærnum aukakosningar til sam-
bandsþings, en kjöræmin eru
þessi: Queens, í Prince Edward
Island, South Waterloo, í On-
tario, Brondon og Winnipeg
South Centre; líklegt þykir að
kosningarnar verði sóttar af all-
miklu kappi, einkum þó í hin-
um tveimur síðarnefndu kjör-
dæmum.
1 Winnipeg South Centre skal
kjósa eftirmann Ralphs May-
bank, er sat á þingi fyrir kjör-
CBW Broadcasting
Weather for Lake Wpg.
Fishing Fleets
Summer fishing is once more
in full swing on Lake Winnipeg
and, as always, the fresh water
fishermen are hoping for exactly
the right breaks from the
weather to make their jobs
easier.
With this in mind, the CBC
and the Dominion Meteorologic-
al Office at Stevenson Airport in
Winnipeg have co-operated to
arrange special weather reports
for Lake Winnipeg fishermen.
The Weather Office is providing
special marine forecasts cover-
ing the Lake Winnipeg area.
They will give wind conditions
expected, visibility, tempera-
tures and, of course, advance
notice of any unusual weather
coming up for the Lake region.
The special forecasts will be
broadcast twice daily over CBC
station CBW, Monday through
Saturday, in the periods 7:00 to
7:10 a.m. CDT (6:00 to 6:10 a.m.
CST), and 12:00 noon to 12:15
p.m. 11:00 to 11:15 a.m. CST).
On Sundays, there will be one
special marine forecast, between
8:45 and 9:00 a.m. CDT (7:45
and 8:00 a.m. CST). The times
vary slightly from day to day,
with the duration of the fore-
casts and of the message broad-
casts which precede the noon
marine forecast. Fishermen
should tune in early to be sure
of catching their forecasts.
Officials of the Weather Office
in Winnipeg have asked the CBC
to advise them of any comments
or suggestions that might be
received from fishermen served
by the new marine forecasts.
They point out that such com-
ments would be very helpful in
shaping the format of the fore-
casts, since this is a brand new
job for the weathermen of the
Manitoba region.
—From CBC Times.
Kantötukór Akureyrar legg-
ur af stað í söngför til Sví-
þjóðar á morgun, og mun
hann meðal annars syngja
á söngmóti í Stokkhólmi
12.—18. júní og síðar víðar í
Svíþjóð og í tveimur borg-
um í Noregi, Osló og Staf-
angri. Heim er kórinn vænt-
anlegur 12. júlí.
Það var á vegum Landssam-
bands blandaðra kóra, sem kan-
tötukórinn fer utan, og verða
söngstjórar Björgvin Guðmunds
son tónskáld og Áskell Jónsson.
En formaður kantötukórsins er
Jón J. Þorsteinsson.
Meðal þeirra borga, sem kór-
inn syngur í í Svíþjóð eru Upp-
salir, Sigtún og Gautaborg, auk
Stokkhólms. Einnig verður far-
ið í Dalina og sungið þar.
Þetta er þriðja söngförin, sem
dæmið í nálega sextán ár, en lét
af þingmensku í vor. íhalds-
menn, C.C.F.-sinnar og Liberal-
ar hafa frambjóðendur í kjöri,
og er merkisberi hinna síðast-
nefndu Norman Wright, skóla-
kennari í Winnipeg. Hann er út-
skrifaður af háskóla Manitoba-
fylkis, 45 ára að aldri, vinsæll
maður og velmetinn, er veitt
hefir í mörg ár dyggilega frjáls-
lyndu stefnunni að málum;
hann er álitlegt þingmannsefni,
og er þess að vænta, að íslend-
ingar í South Centre vinni ó-
sleitilega að kosningu hans.
1 Brandon leiða hesta sína
saman garpar miklir, báðir
bornir og barnfæddir í þeim
bæ, McEwan, fyrrum prófessor
í landbúnaðarvísindum v i ð
Manitobaháskóla, er býður sig
fram af hálfu Liberala, og Mr.
Dinsdale, prófessor við Brandon
College.
Rússinn samur
viö sig
Dagskrárfundur aðstoðarutan-
ríkisráðherra stórveldanna fjög-
urra, sem nú hefir staðið yfir í
París á fjórtándu viku, hjakkar
svo að segja enn alveg í sama
farinu, að öðru leyti en því, að
nú tjást Rússar þess albúnir, að
sækja aðalráðherrafund í Wash-
ington ef þeir geti sjálfir sagt
fyrir verkum, og látið ræða þau
mál ein, er þeir helzt kjósi. Rúss-
ar standa ekki að Atlantshafs-
bandalaginu, og eiga því engin
sérréttindi til umræðu um það
mál.
______________ »
Frú vígstöðvum
Kóreu
Naumast verður annað sagt,
en þungt sækist róðurinn af
hálfu sameinuðu þjóðanna í
Kóreu, þó nokkuð ynnist að vísu
á í vikunni, sem leið, með því
að fylkingar þeirra komust þá
á ýmissum stöðum norður fyrir
38. breiddarbaug; en nú hefir,
að því er síðast fréttist, viðnám
kommúnista færst allmjög í
auka og hnekt framgangi hinna
sameinuðu herja, einkum á mið-
vestur orustustöðvunum.
FRÁ SAMBANDSÞINGI
Nú er upplýst, að sambands-
þinginu verði frestað fyrir lok
þessa mánaðar, en komi saman
á ný snemma í október, til að
ganga endanlega frá ellistyrks-
löggjöfinni nýju; hvort fleiri
mál koma þá til umræðu og úr-
slita, er enn eigi vitað, þó vel
megi vera að til slíks komi.
farin er út fyrir landsteinana á
vegum Landssambands bland-
aðra kóra.
Þessa daga, sem katötukórinn
dvelur í Reykjavík mun söngur
þeirra verða tekinn á plötur hjá
ríkisútvarpinu.
—TÍMINN, 29. maí
Miklar byggingar
í aðsigi
Sambandsstjórn hefir nýlega
kunngert, að í þessum mánuði
hefjist byggingar við Stevenson-
flugvöllinn hér í borginni, er
húsað fái yfir 800 flugmenn,
auk íbúða fyrir yfirforingja;
stjórnin hefir þegar keypt 180
ekrur lands af St. James í þessu
augnamiði og til stækkunar flug
vellinum; veita fyrirtæki þessi
miklum fjölda manna stöðuga
atvinnu um langt skeið.
Bjarni Ásgeirsson segir af sér
þingmensku
Kantötukór Akureyrar í
söngför til Svíþjóðar