Lögberg - 05.07.1951, Side 1

Lögberg - 05.07.1951, Side 1
PHONE 21 374 A \V"ed jr^^eTs Complete Cleaning Instilution PHONE 21 374 ÁO'í& Cleaw **»*££ *#* IjO-VT' ® A Complete Cleaning Institution 64. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 5. JÚLÍ, 1951 NÚMER 27 Fjölsótt og glæsileg hótíð að Iðavelli Landnámshátíð sú, er íslend- ingar í Norður-Nýja-íslandi efndu til að Iðavelli við Hnausa síðastliðinn mánudag, var vel sótt og tókst að öllu hið bezta; einmuna blíða faðmaði umhverf- ið frá morgni til kvölds og yfir hátíðinni hvíldi unaðslegur blær eindrægni og góðvildar; fjöl- breyttar íþróttir fóru fram að morgni, og raunar annað veifið allan daginn, en hin reglubundna skemtiskrá hófst kl. 2 síðdegis undir forustu Gunnars Sæmunds sonar, er stjórnaði henni af góðri háttvísi og rögg; er bland- aður kór undir forustu Jóhann- esar Pálssonar hafði sungið þjóðsöngva Canada og íslands, flutti Fjallkonan, frú Þuríður Ólafsson, ávarp sitt, og er það birt á öðrum stað hér í blaðinu; frú Elma Gíslason skemti með hrífandi einsöngvum, en Gutt- ormur J. Guttormsson mintist landnámsins í langri og sér- kennilegri ræðu; féll mörg smell in setning af vörum hans, auk margháttaðs sögulegs fróðleiks, er ræðan hafði til brunns að bera; birtir Lögberg ræðuna í næstu viku. Jón Pálsson bóndi að Geysi, las kvæði Guttorms Sandy Bar í enskum ljóðbúningi Páls Bjarnasonar, og tókst hon- um vel til um meðferð. Miss Margaret Sigvaldason mintist Canada, og er erindi hennar birt í blaðinu þessa viku. Hr. Indriði Indriðason, gestur frá íslandi, flutti hlýyrtar kveðjur frá landi og þjóð, en Ólafur Hallsson ann- aðist um að leikin voru af hljóm- plötum lög, er hann hafði sjálfur samið. Hinn mikilhæfi íslendinga- vinur, forseti Manitobaháskól- ans, Dr. A. H. S. Gillson, flutti stutta, en djúphugsaða ræðu, er ábærilega féll í frjóan jarðveg hjá hlustendum. W. J. Lindal dómari kynti Dr. Gillson með hlýjum og viðeigandi orðum, en hinn ágæti og vel þjálfaði söng- flokkur skar ekki við nögl sér tónverkin; við hljóðfærið var systir söngstjórans, frú Lilja Martin; eitt lagið á söngskránni var eftir söngstjórann við kvæði eftir Dr. Svein E. Björnsson, og lét lagið hið fegursta í eyra. Aukning skipakosts og efling iðnaðar brýnustu verkefnin í dag verða aðalfundir trygg ingafélaga samvinnumanna og stofnfundur vinnumála- sambandsins. Frá fréttaritara Tímans á aðalfundinum. Aðalfundi Sambands ísl. sam- vinnufélaga lauk um kl. 5 síð- degis í gær í hinum nýjú heim- kynnum samvinnumanna í Borg arfirði. í gærkveldi sátu fundar- menn lokahóf í boði sambandsins þar. Nokkrir fulltrúar lögðu af stað heim í gærkveldi, en flestir gistu þar í nótt. S tj órnarkosning. Þrír menn áttu að ganga úr stjórn sambandsins en voru allir endurkosnir. Voru það þeir Sig- urður Kristinsson formaður, Þórður Pálmason kaupfélags- stjóri og Skúli Guðmundsson al- þingismaður. í varastjórn voru einnig endurkjörnir Bjarni Bjarnason, skólastjóri, Eiríkur Þorsteinsson, kaupfélagsstjóri, og Þórhallur Sigtryggsson, kaup félagsstjóri. Annar endurskoð- andi var kjörinn Páll Hallgríms- son, sýslumaður. Skipakosturinn verði aukinn. Aðaluræðuefni fundarins í gær voru siglingar sambandsins. Úilhjálmur Þór, forstjóri, kvaddi ser hljóðs á fundinum í gærmorg un og ræddi þessi mál ýtarlega. Vék hann að hinni ágætu af- komu í rekstri sambandsskip- anna og sýndi fram á með ljós- um rökum, að samvinnumönn- um væri þörf á mjög auknum skipakosti. Sérstaklega kvað hann þörfina brýna fyrir 600—800 smálesta grunnskreitt skip er siglt geti a hinar smærri hafnir landsins. Ennfremur hefði verið athugað um kaup á stærra skipi, helzt stærra en þau skip, sem samband ið á nú. Slíkt skip væri heppi- ^egt til langsiglinga til fjarlæg- ari heimshluta. Mikill áhugi fyrir siglingunum. Miklar og fjörugar umræður urðu um þetta mál eftir ræðu Vilhjálms og kom fram mikill áhugi um að efla sem mest sigl- ingar samvinnumanna. Var sam- þykkt eftirfarandi tillaga um þessi mál í einu hljóði „Aðalfundur Sambands ísl. samvinnufélaga lýsir ánægju sinni yfir skipakaupum Sam- bandsins og þakkar það sem unn izt hefir. Jafnframt óskar fund- urinn þess, að stjórn og forstjóri Sambandsins gjöri allt, er í þeir- ra valdi stendur, til að auka svo skipastólinn, að hann fullnægi sem mest flutningaþörf sam- vinnufélaganna.“ Aukning iðnaðarins brýn. Forstjórinn ræddi einnig nokk uð um iðnað samvinnumanna í landinu og kvað hina mestu nauðsyn að auka hann. Vexti hans hefði mjög hamlað, hve erf- itt hefði reynzt að útvega vélar til iðnaðar og leyfi til kaupa á þeim. Mundi nú verða gert allt, sem hægt væri til að bæta úr þessu og stæðu nokkrar vonir til að úr rættist. Væri nú völ á góð- um tilboðum um vélakaup. —Tíminn, 23. júní Skipa Frú Björg Isfeld r forsæfri Ársfundur hljómlistarkennara sambands ’Manitobafylkis hófst í gær hér í borginni og stendur yfir í fjóra daga; frú Björg Is- feld, forseti þessara mikilvægu menningarsamtaka skipar for- sæti á fundinum. Miss Sella Johnson mintist Canada í frumsömdu ljóði, sem nú er hér birt. Fjallkonunni til aðstoðar voru ungfrúrnar Sybil Bergman og Fredricka Peterson, en Miss Canada aðstoðuðu þær ung- frúrnar Kay Sigvaldason og Lorraine Sigvaldason. ' Að kvöldi var dans stiginn í samkomuhúsi Hnausaþorps. Aðalræðumaður á ársþingi félags Guðbrandsdæla Dr. Richard Beck prófessor var aðalræðumaður á ársþingi félags norsk-amerískra Guð- brandsdæla (Det Nordvestre Gudbrandsdalslag) í Williston, N. Dakota, föstudaginn og laug- ardaginn 29. og 30. júní síðast- liðinn. Flutti hann fyrri daginn ræðu Noreg samtíðarinnar, um en seinni daginn erindi um norræn- ar menningarerfðir; báðar voru ræðurnar haldnar á norsku. Enn fremur var hann einn ræðu- manna í veizlu þeirri, er haldin var í sambandi við ársþingið á laugardagskvöldið, og samdæg- urs útvarpaði útvarpsstöðin í Williston viðtali við hann. Þinggestir voru um 500 tals- ins, frá Minnesota, N. Dakota, Montana, Manitoba, Saskat- chwan, og enn víðar að. Meðal ræðumanna var herra Carl T. Kummen, ræðismaður Norð- manna í Winnipeg, er flutti k v e ð j u r ríkisstjórnarinnar norsku. Góður gestur Undanfarna nokkra daga hef- ir dvalið hér í borginni góður gestur frá íslandi, Indriði Ind- riðason, fulltrúi á skattstofu Reykjavíkur; hann er sonur Indriða skálds Þorkelssopar frá Fjalli í Reykjadal, og er maður margfróður, ritfær vel, og hefir einkum lagt mikla alúð við ætt- fræði. Indriði kom hingað vestur sem erindreki Stórstúku íslands á hundrað ára afmælisfagnað Goodtemplarareglunnar í Banda ríkjunum; þann tíma, sem hann var í borginni, naut hann gisti- vináttu þeirra Mr. og Mrs. A. S. Bardal. Indriði lagði af stað á- leiðis til íslands síðastliðinn þriðjudag. Mr. og Mrs. Donald MacLachlan Smith Virðuleg og fjölmenn brúðkaupsathöfn Síðastliðið laugardagskvöld, 30. júní, voru gefin saman í hjónaband að viðstöddu fjöl- menni í Fyrstu lútersku kirkju þau Elene Helga Eylands og Donald MacLachlan Smith; brúðurin er dóttir hinna mikil- hæfu hjóna, séra Valdimars J. Eylands og frú Lilju Eylands, en brúðguminn er ættaður frá Skotlandi, nýlega kominn til þessa lands og skipar ágæta stöðu hér í borginni. Faðir brúð- arinnar framkvæmdi hjóna- vígsluathöfnina, Mrs. Lincoln Johnson söng yndislega ein- söngva, en við hljóðfærið var frú Björg ísfeld. Móðurbróðir brúðarinnar, Dr. O. W. Johnson frá North Dakota, leiddi brúðurina í kór, en Jón Eylands aðstoðaði brúðgumann; brúðmeyjar voru ungfrúrnar Dolores Eylands, Lilja Eylands og Jóhanna Nielsen; til sæta vís- uðu Alan Johnson, Gunnar Eggértson, Cecil Anderson og Paul Sigurdson. Að aflokinni vígsluathöfn safn- aðist saman fjölmennur hópur boðsgesta í samkomusal kirkj- unnar til ánægjulegrar veizlu, þar sem hvorki skorti gleði né góðan fagnað; hafði Jón Eylands véizlustjórn með höndum og tókst hið bezta til; fyrir minni brúðarinnar mælti móðurbróðir hennar, Einar Johnson lögfræð- ingur frá Lacota, N. Dak., en brúðguminn þakkaði fyrir hönd sípa og konu sinnar með ágætri og íturhugsaðri ræðu; með söng skemti enn Mrs. Lincoln John- son með aðstoð frú Bjargar ísfeld. Brúðhjónin fóru í skemtiferð til Detroit Lakes, en framtíðar- heimili þeirra verður hér í borg- inni. Lögberg flytur þessum mann- vænlegu hjónum innilegar ham- ingjuóskir. Kosinn forseti Lífsþráin (Eftir RAYMOND SOUSTER) Vorið stefnir öllum út á stræti. Allir hlýða — knúðir sömu þrá. Þrá, sem enginn þeirra túlkað gæti. — þó, ef til vill, mætti gizka á hver ’hún væri — þeim er þungt um andann, þeirra hugsun stundum lesa má. — Hér sé tilraun til að leysa vandann, tilraun þess að reyna’ að skilja þá. Allir þrá að heyra nýjar nótur, nýja rödd í lífsins mikla söng; því er vaknað — uppi fit og fótur; fögnuð boða sumardægrin löng. Þráin vekur volduga og auma: Von þeim skapar eitthvað nýtt að sjá: Nýja vini, nýja vökudrauma, nýja sorg — hún aldrei kveður þá. Vorið kallar fátæka og fjáða, fatlaða og blinda’ á sama torg, ungmeyjar og æskuvini þráða — öllum heilsar bæði gleði’ og sorg. Allir stöðugt út í loftið fálma, einhvers leita, sem þeim glatað var; — Göturusl og reykur heppni tálma. — Ráðning lífsins drauma finst ei þar. Sig. JúL Jóhannesson þýddi. Magnús Elíasson Á nýlega afstöðnu ársþingi Canadian Federation for the Blind, sem haldið var í Montreal, var Magnús Elíasson frá Van- couver kosinn forseti þessara alþjóðarsamtaka. Magnús hefir lengi átt við nokkra sjóndepru að stríða, þó eigi hái það honum mikillega; hann er gáfumaður mikill og kunnur að mælsku. Úr borg og bygð Tilkynning Hér með tilkynnist þeim, sem kynnu að þurfa að vita mína nýju utanáskrift, er nú sem stendur og verður um tíma, Seattle, 33, Washington 501 — North 103 St. Með vinsemd, Guðm. P. Johnson ☆ Leiðrélling — Frá því var skýrt í síðasta blaði, að kona og börn G. M. Bjarnasonar málarameistara, hefðu ákveðið að heiðra hann með móttöku á heimili fjölskyld- unnar þann 5. þ. m., í tilefni af áttræðisafmæli hans; dagsetn- ingin ruglaðist því miður til 1 frásögninni; móttakan verður þann 6. þ. m., en ekki þann 5. eins og sagt var í blaðinu; þessu eru vinir afmælisbarnsins vin- samlegast beðnir að veita at- hygli. ☆ Mr. Gísli Einarsson fyrrum bóndi í Riverton, var staddur í borginni á þriðjudaginn. ☆ Mr. Swani Swanson fésýslu- maður frá Edmonton, Alta, hef- ir dvalið í borginni undanfarinn hálfsmánaðartíma, í heimsókn til bróður síns og tengdasystur, þeirra Mr. og Mrs. J. J. Swan- son. ☆ Mr. og Mrs. Halldór Johnson 1034 Dominion Street, lögðu af stað í fyrri viku austur til Kingston, Ont., þar sem sonur þeirra, Thor, skipar mikilvæga ábyrgðarstöðu; þau munu auk þess ferðast allmikið um eystra, og fara jafnvel til Nova Scotia; þau ráðgerðu að vera um tveggja mánaða tíma að heiman. ☆ Mr* Ólafur Gíslason, sem dvalið hefir undanfarið í Cal- gary, kom hingað í fyrri viku á leið vestur til Steep Rock þar sem hann býst við að dvelja nokkuð fram eftir sumri. ☆ Mr. Gísli Goodman frá Oak View, var staddur í borginni í fyrri viku. ☆ Mr. G. F. Gíslason kirkjuþings- fulltrúi frá Vancouver, lagði af stað heimleiðis í fyrri viku, og ætlaði á leiðinni að heimsækja fornar stöðvar í Saskatchewan, þar á meðal Elfros. Vopnhlé í aðsigi Eins og nú horfir við, eru nokkrar líkur á, að takast muni að koma á vopnahléi í Kóreu. General Ridgeway yfirforingi herja sameinuðu þjóðanna í Asíu kunngerði yfir útvarp fyrir at- beina þeirra lýðræðisþjóða, er halda uppi vörnum gegn komm- únistum í Kóreu, að sá væri vilji þeirra, að reynt yrði að koma á vopnahléi og fór fram á skjótt svar af hálfu yfirforingja komm- únista; nú er svo komið, að því er nýjustu fregnir herma, að samkomulagstilraunir milli hlut- aðeigandi hernaðarvalda, hefjist innan nokkurra daga; hefir General Ridgeway lagt ríka á- herzlu á það, að flýtt verði svo fyrir málamiðlunartilraunum, að spara megi með því mörg manns- líf. Olaf Olafson Convention Olaf Olafson of Old Wives, Sask., was honored last week at the 39th annual convention of the Saskatchewan Stock Grow- ers’ Association of which he was president for many years, with the presentation of a scroll signed by his many friends and acquaintances in the agricultural field. Mr. Olafson also received a quirt from Mat Morgan who is in Arizona and could not attend the gathering. The meeting, held this year in Moose Jaw, was call- ed the Olaf Olafson Convention” in his honor, and in appreciation of his contribution to the stock growers and to the livestock in- dustry in general. “Ole” as he is so affectionately called by his many friends, came to Canada from Iceland in 1887 and after doing farm work and working on the railroad for a time, took up his farming and ranching interests south-west of Mosse Jaw just before the turn of the century. He has lived there ever since where he has been prominent in community circles.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.