Lögberg - 19.07.1951, Blaðsíða 1
\
PHONE 21 374
\ V.\n"'e
.tvcts
A Complele
Cleaning
Inslilulion
PHONE 21 374
X \jxc*}*
t,ttUTVdefXj^ Sn A
,TlCTS
A Complele
Cleaning
Insiiiulion
64. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 19. JÚLÍ, 1951
NÚMER 29
Risatjónaf völdumyatnovaxta í Bandaríkjunum
Kansas og Missouriríkin
harðast leikin; milli þrjálíu
og fjöruiíu manns iýna lífi;
nálega hundrað þúsundir
karla, kvenna og barna án
skýlis yfir höfuðið; eigna-
ijón meiið á 750 miljónir
dollara, eða jafnvel þar yfir.
Tvær samnefndar b o r g i r,
Kansas City í Kansas og Kansas
City í Missouri, hafa sætt þyngst-
um búsifjum af völdum Kansas-
og Missouriánna, sem slíkur
hamagangur hefir komist í, að
til einsdæma má telja í sögu
hinnar amerísku þjóðar, og
minnir þetta mjög á flóðin
miklu í Winnipeg 1 fyrra vor;
styrkir flóðgarðar, er nálega
voru taldir með öllu óbilandi,
rofnuðu svo að segja á svip-
stundu, og hótel, íbúðarhús,
verzlanir og vörugeymslur fóru
á bólakaf; auk lögreglunnar var
herlið þegar kvatt á vettvang,
og hver sem vettlingi gat valdið,
vann að björgunartilraunum
jafnt nótt sem nýtan dag.
Þjóðþing Bandaríkjanna, sem
Ófremdarástand
í lok fyrri viku lenti alt í upp-
nám í bænum Cicero í Illinis-
ríkinu; kvað svo ramt að óspekt-
unum, að lögreglan stóð uppi
ráðþrota, og ríkisstjórnin sá
þann kost vænstan, að kveðja
herlið á vettvang til þess að
skakka leikinn.
óspektir þessar' stöfuðu auð-
sjáanlega af kynþáttahatri, sem
aetla mætti að væri fyrir löngu
úr sögunni. En svo hagaði til, að
Negrafjölskylda hafði komist
yfir húseign í bænum og var í
þann veginn að flytja inn í hana;
urðu þá hinir hvítu, eða ljósleitu
„yfirburðamenn“ óðir og upp-
vægir, og kváðust ekki mega við
því, að láta skugga falla á bæjar-
félagið. Negrafjölskyldan, að
sögn, hætti við að setjast að í
bænum; nokkrir lögregluþjónar
borgarinnar sættu all-alvarleg-
meiðslum, en fjöldi manna gekk
með glóðaraugu dagana á eftir
SláHur ekki hafinn
að marki í Flóa
Frá fréttaritara Tímans
á Eyrarbakka.
Sláttur er ekki hafinn að kalla
hér um slóðir, aðeins tveir eða
þrír menn byrjaðir að marki,
en sláttur mun hefjast alfnennt
næstu daga, þótt spretta sé enn
mjög léleg og tún skemmd af
kali. Er útlit fyrir, að þetta sum-
ar verði langt fyrir neðan meðal-
lag hvað sprettu snertir.
Garðar eru enn lítið sprottnir
°g framfarir í þeim litlar enn.
Stafar þetta af klaka í jörðu
lengi fram eftir sumri og of
miklum þurrkum síðustu vik-
urnar.
—TÍMINN, 12. júlí
sat á rökstólum í Washington,
veitti þegar til bráðabirgða 25
milljónir dollara til að ráða bót
á mest aðkallandi fjárhagsleg-
um vandamálum, en Rauði
Krossinn annaðist um útbýtingu
rúmfatnaðar og vista þar, sem
þörfin var mest.
Truman forseti flaug yfir flóð-
svæðin á þriðjudaginn var til
þess að kynnast með eigin aug-
um ástandinu, eins og því raun-
verulega væri háttað, og heim-
sótti um leið fæðingarbæ sinn,
Independence í Missouriríkinu.
Rauði Krossinn í Canada hef-
ir boðið flóðríkjunum syðra alla
hugsanlega aðstoð, og Winnipeg
borg hefir sent suður fjóra flóð-
sérfræðinga undir forustu W. D.
Hurst, yfirverkfræðings borgar-
innar, sem gat sér í fyrra víð-
tækt frægðarorð vegna árvekni
sinnar og sérkunnáttu.
Þegar síðast fréttist, var nokk-
uð farið að lækka í ánum syðra,
og nokkuð af fólki tekið að
flytja til sinna fyrri bústaða.
Frá Kóreu
Tilraunir um undirbúning að
vopnahlé í Kóreu standa enn
yfir, en hvernig þeim miðar á-
fram, er lítt kunnugt, því eng-
ar opinberar yfirlýsingar hafa
verið birtar af hálfu samnings-
aðilj a; er þess getið til, að það
geti enn tekið langan tíma, að
semja um dagskráratriði, ef það
þá á annað borð lánast.
Katalínabótur bætist í íslenzka
flugflotann
Ný farþegaflugvél bættist í
gær í íslenzka flugflotann.
er það hin nýja Katalína-
flugvél Loftleiða, sem nefnd
hefir verið „Dynjandi“, og
fór í gær í fyrstu för sína til
Grænlands með leiðangurs-
menn dr. Lauge Koch.
„Dynjanda“ var upphaflega
ætlað að annast björgunar- og
gæzlustörf á vegum bandaríska
flotans og þess vegna var vélin
sérstaklega styrkt til þess að
geta lent í úfnari sjó en eldri
gerðir flugvéla af þessari teg-
und, en þegar Loftleiðir keyptu
vélina var ekki búið að fljúga
henni nema 650 klst. Vélin var
í eigu Aero Corporation í At-
lanta í Bandaríkjunum þegar
Loftleiðir keyptu hana 17. marz
s.l. og var hún keypt í skiptum
fyrir Grummanflugvél. Skömmu
síðar fór Jóhannes Markússon
flugstjóri til Bandaríkjanna til
þess að sækja flugvélina og voru
með honum til aðstoðar þeir
Smári Karlsson flugstjóri, Hall-
Skógareldar í
British Columbia
Undanfarnar þrjár vikur hafa
skógareldar í British Columbia
veitt fylkinu þungar búsifjar og
valdið geisilegu tjóni; svo má
segja að vestur þar hafi naumast
komið deigur dropi úr lofti í
háa herrans tíð, en nú hefir að
sögn, kólnað snögglega í veðri,
og við það hafa eldarnir orðið
viðráðanlegri.
í fyrri viku hlektist olíu-
hleðsluskipi á í höfninni í Van-
couver, og við það lentu í sjó-
inn 140 gallónur af olíu; stafaði
af þessu hin mesta hætta, og stóð
lögreglan vörð um höfnina, unz
sýnt þótti, að háskanum væri
afstýrt.
Þingrof og nýjar
kosningar
Forsætisráðherra New Zea-
lands, Mr. Sidney Holland, hefir
lýst yfir því, að hann hafi á-
kveðið að rjúfa þing og efna til
nýrra kosninga eins fljótt og
framast verði við komið; að svo
stöddu kvaðst hamf ekkert geta
látið uppi um kosningadaginn,
en líklegt þætti, að atkvæða-
greiðslan færi fram í öndverð-
um ágústmánuði næstkomandi.
Það var síður en svo, aÖ kjör-
tímabil stjórnarinnar væri runn-
ið út, því síðustu kosningar á
New Zealand fóru fram 1949. En
tvö síðustu árin má svo segja,
að alt landið hafi logað í verk-
föllum, einkum uppskipunar- og
hafnarverkföllum, er mjög hafa
þröngvað að atvinnulífi þjóðar-
innar; og með það fyrir augum,
að herða á verkamálalöggjöf-
inni, tók Mr. Holland þann kost,
að rjúfa þing og spyrjast með
því fyrir um vilja kjósenda varð-
andi lausn þessa mikla vanda-
máls.
dór Guðmundsson vélamaður og
Ólafur Jónsson loftskeytamað-
ur.. Heim til íslands komu þeir
16. maí og höfðu þá flogið síð
asta spölinn frá Goose Bay til
Reykjavíkur
10 klst.
í einum áfanga á
Vélinni breyil.
Strax eftir að vélin kom hing-
að var hafizt handa um að gera
hana að farþegaflugvél, en byssu
stæði, skotturna og annað þurfti
að fjarlægja en breyta öðru og
bæta margt. Unnið var af kappi
við vélina og var keppt að því
marki að verkinu yrði lokið áður
en á vélinni þyrfti að halda
vegna Grænlandsflugsins. Fram
kvæmd breytinga á rafmagns-
kerfi annaðist Jón Guðjónsson
rafvirkjameistari, loftskeyta-
kerfið endurbætti Ólafur Jóns-
son, yfirloftskeytamaður Loft
leiða, stólar voru fengnir frá
Stálhúsgögnum, en aðrar breyt-
ingar voru framkvæmdar í við-
gerðarverkstæði Loftleiða, und-
ir stjórn Halldórs Sigurjónsson-
ar, sem veitir viðgerðarverk-
stæðinu forstöðu.
Tekur 20 farþega.
Vélin getur nú flutt 20 far-
þega. Einkennisstafir hennar eru
TF—RVR.
P'lugvélinni var gefið nafnið
„Dynjandi“.
—TIMINN, 12. júlí
Api fremur
sjálfsmmorð
Dönsku blöðin segja um þess-
ar mundir mjög frá sjálfsmorði,
sem framið var í skemmtistað
í Velje í Danmörku. Aðal
skemmtikrafturinn var karlapi
er nefndur var Gústaf, og hann
hengdi sig.
Apinn kom ekki alls fyrir
löngu beina leið frá Afríku, á-
samt kvendýri, sem nefnt var
Lísa. Fyrst í stað gekk allt vel
Aparnir drógu að sér athygli
fólksins, sem þótti gaman að
hátterni þeirra. En smátt og
smátt fór samkomulag apanna
versnandi, unz um þverbak
keyrði. Um svipað leyti hætti
apinn að vilja nærast. Nú einn
morguninn fannst hann hengd
ur í kaðli í apabúrinu. Það er
talið mjög ósennilegt, að um
slys hafi verið að ræða, heldur
hafi apinn hengt sig viljandi
leiður á lífinu, umhverfinu og
sjálfri Lísu sinni.
—TIMINN, 7. júlí
Stórfenglegt
áveitufyrirtæki
Nýlega var tekið til afnota í
suðurhluta Albertafylkis eitt hið
stórfenglegasta áveitufyrirtæki í
Vestur-Canada og jafnvel í öllu
landinu; hátíðahöld mikil fóru
fram í þessu sambandi, og flutti
landbúnaðarráðherra sambands-
stjórnarinnar aðalræðuna; áætl-
að er að þessi nýja áveita breyti
um fjögur hundruð þúsundum
ekra af eyðimörkum og sand-
auðnum í frjósama akra og arð-
vænleg beiti- og heyskaparlönd.
Konungaskipti
Leopold III. Belgíukonungur
lét formlega af völdum síðast-
liðinn mánudag og afsalaði kon-
ungdómi í hendur Boudouin
syni sínum; hafði Leopold þá
ríkt yfir Belgíu í seytján ár;
andstæðingar hans fundu hon-
um það til foráttu, að hann
hefði verið um of stimamjúkur
við Hitler og fylgifiska hans
meðan á stríðinu stóð, og í raun
og veru selt Nazistum land sitt
í hendur, hver svo sem dómur
sögunnar kann að verða um það,
er öll kurl koma til grafar.
Rl. Hon. Louis St. Laurenl forsælisráðherra Canada
Heimsækir Gimli þann 3. ágúst
Eins og þegar er vitað, eru nú liðin sextíu ár síðan fólk frá
Úkraníu tók sér bólfestu í þessu landi, og verður afmælisins minst
með viðtækum hátíðahöldum; í þessu tilefni heimsækir forsætis-
ráðherra canadísku þjóðarinnar, Rt. Hon. Louis St. Laurent, Gimli
þann 3. ágúst næstkomandi, en þar býr margt fólk af áminstum
kynstofni, sem vel hefir komið ár sinni fyrir borð.
Nýtízku kosningaóróður meðal
Grænlendinga
Almcnnar kosningar síðaslliðinn
laugardag
Kosningar til sveitarstjórna
og í landsráð fóru fram í
Grænlancj á laugardaginn,
og er þetta í fyrsta skipti,
að kosið er í landsráð við
beinar kosningar.
Kosningaspjöll og áróður.
Á kosningadaginn var víða
sólskin og gott veður í Græn-
landi og voru fánar dregnir á
stöng í kaupstöðunum. I fyrsta
skipti í sögu Grænlands sáust unni
vörubifreiðir með kosninga-
spjöld, og á götunum í Góðvon
spígsporuðu menn, sem báru á-
letruð spjöld, þar sem skorað var
á fólk að kjósa vissa frambjóð-
endur. Var hvarvetna uppi fót-
ur og fit og hinn mesti hátíðis-
dagur hjá Grænlendingum-.
50—100% þáitiaka.
Kosningaþátttakan var 50—
100%, og að meðal tali mun hún
hafa orðið á milli 60—70%. Voru
bátar sendir til staða, þar sem
talstöðvar eru, til þess að koma
á framfæri kosningatölum og
úrslitum.
Fjölmenn minning-
arathöfn á Akureyri
Lík mannanna tveggja, sem
fórust í Óshlíðinni um helgina,
komu með skipi til Akureyrar 1
gær. Ferðafélagar þeirra komu
einnig með skipinu. Skipið lagð-
ist að bryggju kl. 2 í gær. Var
þá mikill mannfjöldi þar saman
kominn og fánar blöktu hvar-
vetna í hálfa stöng í bænum.
Karlakór söng sálm á *bryggj-
unni og síðan voru kisturnar
bornar upp í Akureyrarkirkju,
en íþróttafólk gekk í fylkingu
á eftir.
Síðan hófst minningarathöfn
í kirkjunni. Séra Friðrik J.
Rafnar flutti ræðu en karlakór-
inn söng sálm á undan og eftir.
Mjög fjölmennt var í kirkjunni
og djúpur sorgarblær yfir at-
höfninni.
Mönnunum tveim, sem slösuð-
ust illa í slysinu og liggja nú á
Isafirði leið betur í gær og von
um bata talin meiri.
—TÍMINN, 11. júlí
C.C.F.-sinnar
vinna kosningu
Við nýlega afstaðna aukakosn-
ingu til fylkisþingsins í Saskat-
chewan, sem fram fór í Gravel-
borgkjördæminu, fóru leikar
þannig, að frambjóðandi C. C.
F.-flokksins, Edward Walker,
gekk sigrandi af hólmi; hlaut
hann 2,591 atkvæði til móts við
þingmannsefni Liberala, Ron
MacLean, er fékk 2,510 atkvæði.
Þingsæti þetta var áður í hönd-
um Liberala, en losnaði við það,
er þingmaður þess, H. M.
Culliton, fyrrum ráðherra, var
hafinn til dómaratignar í yfir-
rétti fylkisins. Líklegt þykir að
Mr. MacLean krefjist endur-
talningar vegna þess hve at-
kvæðamunurinn var í rauninni
smávægilegur.
Fyrir síðustu almennar kosn-
ingar í Saskatchewan 1948, átti
C.C.F.-flokkurinn fulltrúa á
þingi fyrir áminst kjördæmi.
Um innanfylkismál var lítið
rætt af hálfu C. C. F.-sinna í
undirbúningi áminstrar auka-
kosningar, heldur var aðaláherzl-
an á það lögð, að úthúða sam-
bandsstjórn vegna hveitisamn-
inganna við Bretland.
Iran og olían
Mr. Averell Harriman, sér-
stakur sendiherra Trumans for-
seta, er staddur í höfuðborg
íran þessa dagana með það fyrir
augum, að miðla málum, ef auð-
ið yrði, milli Breta og Iran-
stjórnar út af hinum auðugu
olíulindum þar eystra; fram að
þessu hefir Mr. Harriman, að því
er síðast fréttist, lítið orðið
ágengt.
Göml ulandsráðsmennirnir
féllu.
Fæstir þeirra, sem í landsráð-
ið voru kosnir, áttu þar sæti
áður. Munu aðeins þrír eða fjór-
ir hafa náð endurkosningu. Lík-
legt er talið, að tveir Danir hafi
náð kosningu, og er annar þeirra
yfirmaður krýólítnámanna í
Ivigtút.
Kona í sveilarsljórn.
Ein kona náði kosningu í
sveitarstjórn, og þykir það ekki
lítið nýmæli í Grænlandi, að
konu skuli þannig falin forsjá
mála við almennar kosningar.
—TÍMINN, 7. júlí
Sláttur hafinn um
allt Hérað
Frá fréttaritara Tímans
á Egilsstöðum á Völlum
Sláttur hér á Fljótsdalshéraði
hófst almennt kringum síðustu
helgi. Gróðri hefir mikið farið
fram síðastliðinn hálfan mánuð,
en þó hefir verið heldur þurrt
og kalt. Spretta á túnum er enn
léleg, en útjörð tiltölulega betur
sprottin.
Á Úthéraði byrja sumir hey-
skap á útjörð, þar sem vatn ligg-
ur á blám á vorin.
—TÍMINN, 11. júlí
Aukinn ferða-
mannastraumur
Að því er náttúrufríðinda-
ráðherranum J. S. McDiarmid
segist frá, er ferðamannastraum-
urinn til Manitobafylkis í ár
meiri, en dæmi voru áður til;
mikill meirihluti aðkomumanna
er úr Bandaríkjunum; áætlað er,
að viðskipti ferðamanna við
fylkisbúa á yfirstandandi árstíð,
nemi að minsta kosti 25 miljón-
um dollara.
Vafalaust má mikið meira
gera, en fram að þessu hefir
gengist við til að auka ferða-
mannastrauminn inn í fylkið;
vegir þurfa í mörgum tilfellum
endurbóta við, og kæmi það vita-
skuld eigi að sök, þó komið væri
upp nýjum hótelum, er þyldu að
öllu samanburð við hótelkost
Bandaríkjanna; skemtistaðir
mættu einnig vera fleiri og full-
komnari, og viðmót almennings
léttilegra og hlýrra.
Við þurfum að fá margfalt
fleira góðra gesta, og við þurfum
líka að kunna að taka á móti
þeim.