Lögberg - 02.08.1951, Blaðsíða 3
LOGBERG, FIMTUDAGINN 2. ÁGÚST, 1951
3
í vinnumensku hjá Grími Thomsen
háttum þar, hygg ég muni rétt í manna ég væri, og er ég sagði
| honum það var sem hýrnaði yfir
í HAUST eru liðin 55 ár síðan
Grímur Thomsen skáld andaðist.
Fækkar nú óðum þeim, sem
muna hann, eða einhver kynni
höfðu af honum. Ég hitti þó
hérna um daginn mann, sem var
vinnumaður hjá Grími á Bessa-
stöðum .Það er Valdimar Lofts-
son rakari. Hann er nú áttræður
að aldri, en var á Bessastöðum
þegar hann var á bezta aldri,
árin 1894 og 1895. Það máttu
heita seinustu búskaparár Gríms,
því að hann dó árið eftir að
Valdimar fór frá honum.
Grímur reisti bú á Bessastöð-
um 1868, þá tæplega fimmtugur.
Nú var hann orðinn nær hálf
áttræður og hefir því margt ver-
ið breytt frá fyrstu búskapar-
árunum, og húsbóndinn ef til
vill verið orðinn breyttur sjálf-
ur. En þa'ð sem Valdimar hefir
af honum að segja og heimilis-
vera, því að hann er stálminn-
ugur, enda eru þær endurminn-
ingar frá þeim árum ævinnar,
er flestir muna bezt allt að
hinztu stund.
Meðmælin bundin við
minningu Sóta.
— Hvernig stóð á því að þú
réðist til Gríms? spurði ég.
— Ég hafði verið hingað og
þangað hjá vandalausum frá því
að ég var 8 ára, því að þá missti
ég foreldra mína. Um þessar
mundir átti ég heima hjá Einari
Þorgilssyni, sem þá bjó í Hlíð,
og gerði Grímur mér þá boð að
finna sig. — Erindið var að fá
mig fyrir vinnumann, en ekk-
ert þekkti hann mig og mun ein-
hver hafa bent honum á mig.
Fyrsta spurningin var því hverra
honum og hann mælti:
— Já, þú ert af góðum ættum,
faðir þinn járnaði alltaf hann
Sóta fyrir mig.
Þetta voru ærin meðmæli með
mér og svo réðist ég til hans.
Sóti var hinn nafntogaði reið-
hestur Gríms, en hann var þá
fallinn frá fyrir löngu, var felld-
ur 27 vetra gamall haustið 1882.
En vel man ég eftir Sóta. Desja-
mýri heitir fyrir austan Pálshús
og þegar Grímur reið þar yfir,
þusti allt heimilisfólkið út og
horfði hugfangið á hest og
mann. Grímur reið ekki hart, en
hann lét Sóta fara á rífandi tölti
og var unun að sjá hvað þessi
stóri og föngulegi hestur bar sig
vel, lyfti höfðinu upp í fang
reiðmanninum og hristi hið
mikla fax. Hann bar af öllum
öðrum hestum í samreið þótt
gæðingar væru kallaðir.
Húsbændurnir á Bessastöðum.
— Segðu mer nú af heimilis-
háttum á Bessastöðum. Hvað
var margt fólk þar?
— Átta manns var í heimili
þau árin, sem ég var þar. En
annars mátti svo segja að heim-
ilið væri tvískipt og lítill sam-
gangur milli húsbænda og hjúa.
Við vorum tveir vinnumenn og
tvær vinnukonur og voru vistar-
verur okkar uppi á lofti og
þangað gengið um bakdyr húss-
ins. En niðri í stofunum var að-
setur húsbændanna og þeirra
fólks og það gekk alltaf um aðal
dyrnar. Þau hjónin skiptu sér
ekkert af fólkinu nema sögðu
því fyrir verkum. Það þótti
Grími nóg. Hann ætlaðist til
þess og treysti því að menn
inntu samvizkusamlega af hönd-
um það, sem þeim var ætlað að
gera. En áður hafði þetta verið
öðruvísi um frú Jakobínu, það
heyrði ég á fólkinu, sem hafði
verið þar á undan mér. Þegar við
vorum í mógröfum sagði það
sem svo:
— Nú er sú gamla sjálfsagt
úti við einhvers staðar með kík-
irinn til þess að sjá hvort við
svíkjumst ekki um.
Og einu sinni, er við vorum
að heya á túninu í hvarfi frá
bænum, þá sagði fólkið:
— Nú er það leitt fyrir þá
gömlu að geta ekki notað kíkir-
inn til að njósna um okkur.
En ekki varð ég var við það,
að hún fylgdist þannig með
. innuorögðum fólks síns. Og al-
Jrei heyrði ég til húsbændanna
stygðaryrði né ávítur.
Einn þótti þó ókostur á hús-
freyjunni, að hún var matsár.
Þóttist fólkið aldrei fá nægju
sína. Kæmi það þá fyrir að ein-
hver hvartaði um þetta við
Grím, fór hann til konu sinnar
og sagði við hana að ekki mætti
fólkið svelta. Batnaði þá við-
gerningur næstu daga, en svo
sótti í sama horfið aftur.
Sííeldar kaupsiaðarferðir.
Annars var það einkennilegur
búskaparsiður á Bessastöðum,
að aldrei var keyptur neinn
forði til heimilisins. Þar var
sami háttur á og í kaupstöðum,
þar sem menn geta farið í búð
á hverjum degi, að varla var
keypt meira í einu en svo sem
til næsta máls. Af þessu leiddi
það, að alltaf var verið að senda
okkur vinnumennina til Reykja-
víkur, aldrei sjaldnar en þrisvar
í viku og stundum oftar. Fórum
við þá á báti yfir Skerjafjörð
þegar fæi’t var, og lentum annað
hvort í Skildinganesi eða Görð-
unum. Ekki máttum við hafa
segl á bátnum. Það harðbannaði
Grímur. Hefir hann líklega ver-
ið hræddur um að við myndum
kollsigla okkur.
Þetta voru erfiðar og leiðin-
legar ferðir. Oft fengum við
versta barning og ágjöf. Og þeg-
ar yfir Skerjafjörð kom, urðum
við að fara til Jóns í Hólabrekku
og fá léðan hjá honum hand-
vagn inn í Reykjavík og aka
svo farangrinum á sjálfum okk-
ur suður í Skerjafjörð. Að því
loknu urðum við að skila vagn-
inum. Voru þessar ferðir hinn
versti tímaþjófur, en ekki var
horft í það.
Víða urðum við að koma í
Reykjavík, því auk verzlunar-
erinda vorum við venjulega með
bréf og sendingar til hinna og
annara heldri manna, svo sem
Þórhalls lektors Bjarnasonar,
Sighvats Bjarnasonar s í ð a r
bankastjóra, Jónassens land-
læknis, Magnúss Stephensen
landshöfðingja og fleiri. Þau er-
indi var okkur kærkomið að
rækja, því að alls staðar fengum
við góðgerðir, kaffi og mat, og
hvoru tveggja urðum við fegnir.
Frúin skrifaði á miða allt sem
við áttum að kaupa, og svo voru
Framhald á bls. 6
♦♦♦ ♦♦♦♦♦*♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦♦♦ ♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦♦*♦ ♦*♦ «$♦♦$►
HAMINGJUÓSKIR
til íslendinga \ tilefni af 61.
þjóðminningardegi þeirra
ó Gimli, Man., 6. ógúst 1951
Vér höfum einn hinn allra fullkomnasta
útbúnað til þess að veita móttöku öllum
tegundum korns um uppskerutímann.
Ábyggileg og skjót afgreiðsla
Parrish & Heimbecker Ltd.
661 GRAIN EXCHANGE BLDG.
Sími 922 247
WINNIPEG
jTa ArA i, ♦ jTa jta ♦▼♦ ♦fW ♦♦♦ 4
♦y ♦y ♦y ♦y
GOVKRNMKNT of CANADA
SÉUÐ ÞÉR 70 NÚ I AR
SÆKIÐ NÚ ÞEGAR UM YÐAR
ALDURS LÍFEYRI
AUir menn og konur, sem verða 70 ára eða yfir
1. janúar 1952, og sem ekki njóta aldurslífeyris
sem stendur, eiga að sækja nú þegar um slíka
greiðslu, er stjórn Canada greiðir samkvæmt
fyrirmælum Old Age Security laganna 1951.
Ef þér njótiS lífeyris nú. þarf enga umsókn.í
heldur gilda þar um fyrri ákvæði.
Nafn yðar og heimilisfang verður flutt af
núgildandi lífeyrislista og þér fáið upphæðina
fyrir lok janúar 1952 án frekari athafna af
yðar hálfu.
Njótið þér ekki lífeyris nú. skuluð þér senda
umsókn yðar tafarlaust. Dragið ekkert á
langinn.
Aðferð við umsókn. Umsóknareyðublöð bíða
yðar á næsta pósthúsi. Getið þér ekki per-
sónulega sótt þau, þá sendið einhvern eftir
þeim. Fyllið það út heima og sendið í póst
við fyrstu hentugleika.
Sendið umsókn strax til að koma í veg fyrir drátt á greiðslu!
Issued by the authoriíy of Hon. Paul Martin.
Minisler of National Health and Welfare,
OTTAWA, CANADA
Business and Pri jfessional 1 Cards
•
PHONE 724 944 Dr. S. J. Jóhannesson SUITE 6—652 HOME ST. ViStalstími 3—5 eítir hádegi S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPORATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smith St. Winnipeg PHONE 924 624
J. J. SWANSON & CO. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Ut. vega peningalán og eldsábyrgfi. bifreiCaábyrgð 0 s. frv. Phone 927 538 Phone 21 101 ESTIMA TES FREE J. M. 1NGIMUNDSON Asphalt Roofs and Insulated Siding — Repairs Country Orders Attended To «32 Slmcoe St. Winnlpeg, Man.
SARGENT TAXI PHONE 722 401 FOR QUICK, RELIABLE SERVICE DR. A. V. JOHNSON Dentist 506 SOMERSET BUILDING Telephone 97 932 Home Telephonpe 202 398
DR. E. JOHNSON 304 EVELINE STREET Selkirk, Man. Ofíice Hours 2.30 - 6 p.m. Phones: Oífice 26 — Res. 230 Talsími 925 826 Heimilis 404 630 DR. K. J. AUSTMANN Sérfrœðingur í augna, eyma, nef og kverka sjúkdómum 209 Medical Arts Bldg. Stofutfmi: 2.00 til 5.00 e. h.
Andrews, Andrews, Thorvaldson and Eggertson Lögfrœðingar 209 BANK OF NOVA SCOTIA BG. Portage og Garry St. Phone 928 291 DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur í augna, egrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLDG. Graham and Kennedy St. Skrifstofusfmi 923 815 Heimaafmi 403 794
CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish. Branch
r-/ammmí-
Store at
íIeidsi™1 1 JEWELLERS J 123 TENTH ST. BRANDON
311 CHAMBERS STREET Offlce Ph. 26 328 Res. Ph. 73 917 447 Portage Ave. Ph. 926 885
GUNDRY PYMORE Limited British Quality Fish Nettino 58 VICTORIA ST. WINNIPEG Phone 928 211 Manager T. R. THORVALDSON Your patronage wiil be appreclated
tfV HAGBOHG fUll/?wl ^|T FNONI MUt . 1 |
Office Phone Res. Phone 924 762 726 115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m. - 6 p.m. and by appointment.
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar.
A. S. BARDAL 843 SHERBROOK STREET Selur líkkiatur og annast um út- farir. Ailur útbúnaöur sá bezti Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talslmi 27 324 Heimilis talsíml 26 444 Dr. P. H. T. Thorlakson WINNIPEO CLINIC St. Mary's and Vaughan, Wlnnlpeg PHONE 926 441
Phone 23 996 761 Notre Dame Ave. Just West of New Matemlty Hospital Nell’s Flower Shop Weddtng Bouquets, Cut Flowers. Funeral Designs, Corsages, Beddlng Plants Nell Johnson Ruth Rowland 27 482 88 790 PHONE 927 025 H. J. H. Palmason, C.A. H. 1. PALMASON * CO. Chartered Acconntanta 505 Confederatlon Llfe Bldg. WTNNIPEG MANTTOBA
Office 933 58T Res. 444 389 THORARINSON & APPLEBY BARRISTERS and SOLICITORS 4th Floor — Crown Trust Bldg. 364 Maln Street WINNIPEG CANADA PARKER, PARKER & KRISTJANSSON Barrisíers • Solicitor* Ben C. Parker, K.C. B. Stuart Parker, A. F. Kristjanaaon 506 Canadlan Bank of ConoutM Chambera Wlnnlpeg, Man. Phone K1K1
SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn. og ávalt hrelnir. Hltaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vi8, heldur hita frá a8 rjúka út meB reyknum.—SkrifiB. simlS tll KELI.Y SVEINSSON 625 Wail Street Winnipeg Just North of Portage Ave. Símar: 33 744 — 34 431 JOHN A. HILLSMAN, M.D.. Ch. M. 332 MEDICAL ARTS BLDG. Offlce 929 349 Res. 463 381
DR. H. W. TWEED Tannlœknir 508 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smlth St. Phone 928 952 WINNIPEG G F. Jonasson, Pi-es. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distrihutors of FRESH AND FROZEN ÍTSH 404 SCOTT BLK, Sími 925 227