Lögberg - 06.09.1951, Qupperneq 1
MINNINGARORÐ:
ÓLAFUR S. FREEMAN
Þess var getið á sínum tíma
er Ólafur S. Freeman, banka-
stjóri í Souris, N. D., lézt. Dauða
hans bar að skyndilega og næsta
óvænt, 20. marz s.l., er hann var
á skemmtiferð, ásamt Sigríði
konu sinni, vestur í Long
Beach, CaL
Það fyrnist oft fljótt yfir
minningu mætustu manna;
mörgum góðum manni virðast
þau örlög sköpuð að gleymast að
mestu, jafnvel áður en gröfin
grær. Hraði nútímans og hin
miskunnarlausa samkeppni á öll-
um sviðum knýr menn til að
horfa stöðugt fram á við, en líta
ei til baka. En andspænis minn-
ingunni um Ólaf Freeman, í
hjörtum ástvina hans og þeirra
samferðamanna sem þektu hann
bezt, stendur tíminn kyr. Mynd
hans máist ekki, og vinir hans
geta ekki að sér gert að hugsa
oft um hann. Um hann, og til
hans munu margir hugsa:
„Þú vissir það varla
hve vænt um þig oss þótti,
þann harm er heim oss sótti
er hlaustu að falla“.
Ólafur var «iikill gæfumaður.
Einhver spekingur hefir sagt að
sá sem vill verða gæfumaður
skuli vera varkár, fyrst og
fremst, í vali foreldra sinna.
Með þeim einkennilegu ijmmæl-
um er áherzla lögð á gildi kyn-
stofnsins eða ættarinnar. í sam-
bræðslu þjóðflokkanna hér
vestra, og skyndigiftingum æsk-
unnar er þessi speki oft að litlu
höfð. En þótt Ólafur ætti þess
ekki kost fremur en aðrir menn
áð velja foreldra sína, þá valdi
forsjónin þá fyrir hann, og bless-
aði hann strax í vöggunni. Hann
var sonur Jóns Jónssonar,
bónda 1 Köldukinn, hreppstjóra
í Haukadal í Dölujn. Var sú ætt
talin merk í því héraði og þeir
langafar Ólafs búsýslumenn
miklir, fjáraflamenn og hagsýn-
ir mjög. í þessum eiginleikum
líktist Ólafur feðrum sínum.
Móðir Ólafs var Helga Ólafs-
dóttir, fædd að Staðarbakka í
Húnavatnssýslu. Voru foreldrar
hennar þau Ólafur Einarsson frá
Bjarmastöðum í Hvítársíðu í
Mýrasýslu, og Ragnheiður Ólafs-
dóttir. Móðir Ragnheiðar, en
amma Helgu, var Helga Jóns-
dóttir, prests Þorvarðssonar á
Breiðabólstað í Vesturhópi, syst-
ir þeirra prestanna, séra Friðriks
á Stað á Reykjanesi, séra Jóns
Reykjalín á Ríp, séra Ingjaldar
í Reynistaðaklaustri, og séra
Þorvarðar í Holti undir Eyja-
fjöllum. '
Ólafur var þannig af góðu
fólki kominn í báðar ættir, og
komu bvorutveggja ættarein-
kennin, praktísk hagsýni og far-
sælar gáfur fram í persónu hans
og öllu hátterni.
Að ytra hætti var hann fríður
maður og föngulegur á velli.
Rósemi, gætni og góðvild mótuðu
yfirbragð hans. Skapmaður var
hann mikill að eðlisfari, en menn
urðu þess sjaldan varir. Hann
bjó yfir ríkri kýmnigáfu, var
jafnan glaður og reifur, og hló
hjartanlega er honum virtist til-
efni til fallg. Það fer ekki hjá
því að slíkir menn skapi sér virð-
ingu og traust samferðamann-
anna, enda naut hann hvoru-
tveggja í ríkum mæli.
Hann var fæddur að Akra,
Ólafur S. Freeman
N. Dak., árið 1888, en mun hafa
flutzt meíj móður sinni skömmu
eftir andlát f ö ð u r síns til
Upham, N. D., laust eftir alda-
mótin. Ekki leið á löngu að hon-
um væri fengin trúnaðarstaða í
þessu nýja heimkynni. Banki
var bráðlega stofnaður í bænum,
og gerðist Ólafur starfsmaður
hans.
Árið 1932 varð hann gjaldkeri
The Siale Bank í Souris, og
skömmu síðar var honum fengið
bankastjóraembættið í hendur
Þeirri stöðu hélt hann til dauða-
dags, en átti þó heima í Bot-
tineau, N. D., skamt frá Souris,
tíu síðustu ár ævinnar.
En gæfa ólafs kom ekki að-
eins fram í ætterni hans, dáðum
hans, drenglyndi og opinberum
störfum, heldur einnig, og ekki
hvað sízt í hjúskap hans og
heimilislífi. 1. nóvember 1910
giftist hann Sigríði Stefánsdótt-
ur Jónssonar, Magnússonar,
vestanpósts, frá Hrófá í Stein-
grímsfirði. En Sigríður, amma
Jóns pósts, var systir Níelsar
Sveinssonar, bónda á Kleifum í
Gilsfirði í Dalasýslu, föður séra
Sveins Níelssonar, prófasts á
Staðarstað; en séra Sveinn var
faðir frú El^zabetar, konu
Björns Jónssonar ráðherra, og
Hallgríms biskups, og varð hún
móðir herra Sveins Björnssonar,
forseta Islands.
Móðir Sigríðar, konu Ólafs, var
Hólmfríður Hansdóttir Hjaltalín,
en Jón prestur Hjaltalín á Breiða
bólstað á Skógarströnd var lang-
afi hennar. Er Sigríður sízt síðri
um mannkosti en maður hennar
var, enda voru þau hjón mjög
samvalin, hjónaband þeirra ást-
ríkt, og heimilislífið fyrirmynd.
Þau hófu búskap að segja má
með tvær hendur tómar; réttara
væri þó að segja fjórar hendur,
því að hendur þeirra og hugir
störfuðu sem á einum líkama
væri. En þótt efnin væru smá,
áttu þau sterkan vilja, og hjörtu
full af þrá og helgum vonum.
Þau eignuðust tíu börn, og virt-
ist bókstaflega sannast á þeim
hið forna spakmæli að „blessun
fylgir barni hverju“. Hagur
þeirra blómgaðist ár frá ári þrátt
fyrir þessa miklu ómegð, og
börnin níu, sem upp komust, eru
öll mjög myndarleg, vel gefin og
menntuð; öll virðast þau gefa
fyrirheit um að halda uppi heiðri
ætta sinna og hins íslenzka þjóð-
ernis. Eru þau: Olive og Norma,
námsmeyjarí heimahúsum;
Helen, Mrs. Jack Franke, í Min-
neapolis, og Laurel Ann, Mrs. S.
Sigurdson í Bottineau, N. D.;
Willard og Kjartan, er fást við
banka- og tryggingarstörf í
Morris, Minn.; Stefán, verk-
fræðingur og verksmiðjueigandi
í Minneapolis; Donald, læknir í
Minneapolis, og Erlingur, starfs-
maður bankans í Souris, N. D.
Auk ekkjunnar og barnanna
sem hér eru talin, lætur Ólafur
eftir sig eina systir, Mrs. S. G.
Árnason í Portland, Oregon, og
seytján barnabörn.
Jarðarför Ólafs fór fram frá
lútersku kirkjunni í Bottineau,
27. marz, og var afar fjölmenn.
Sóknarpresturinn, séra E. R.
Estrem, stýrði athöfinni, og vott-
aði hinum látna þakkir fyrir
langa og dygga þjónustu í þágu
kirkjunnar og safnaðarins. En
hann hafði verið meðlimur safn-
aðarráðs um margra ára skeið,
og unnið ósleitilega að bygg-
ingu hinnar nýju kirkju, sem
reyndar var ekki enn fullgjör
er jarðarförin fór fram, og var
hann sá fyrsti sem vígður var
til moldar á þessum stað. Aðrir
prestar sem tóku þátt í athöfn-
inni voru þeir séra Egill H.
Fáfnis frá Mountain, N. D., og
séra Valdimar J. Eylands frá
Winnipeg. E k k j u n n i bárust
samúðarskeyti úr ýmsum áttum,
frá bankastjórum, iðjuhöldum,
og nokkrum embættismönnum
ríkisins, og fjölda annara vina.
Útfararathöfnin var um allt
mjög hátíðleg. Meginmál þess
sem flutt var í söng og ræðum
var: þakklætið og vonin. Þakk-
læti til Guðs fyrir ástkæran
eiginmann, föður, samferða-
mann og vin, sem nú hafði lokið
göngu sinni, og horfið heim með
hreinan skjöld; og vonin um
sigur yfir dauða og gröf, því að
„í ókunna landið liggur, leiðin
um hennar dyr“.
„Gráti því hér enginn
göfugan föður,
harmi því hér enginn
höfðingja liðinn.
Fagur var hans lífsdagur,
en fegri er upp runninn
dýrðardagur hans
hjá drottni lifanda“.
V. J. E.
Mæfrur maður
láfrinn
Síðastliðinn þriðjudag varð
bráðkvaddur í Toronto, þar sem
hann var staddur í verzlunar-
erindum, Mr. J. G. Johnson, 682
Alverstone, er um langt skeið
hafði með höndum við ágætan
orðstír deildarstjórastöðu hjá
T. E A T O N verzlunarfélaginu
mikla; hann var um alt hinn
mesti sæmdarmaður, félagslynd-
ur og hjálpfús; er hann harm-
dauði öllum sem honum kynt-
ust; hann lætur eftir sig ekkju
ásamt fjórum mannvænlegum
börnum, og er þeirra á meðal
George læknir á Gimli. Útför
þessa mæta manns var enn eigi
ráðstafað, er Lögberg fór í press-
una.
Frá Kóreu
Tilraunir um vopnahlé í Kóreu
hafa strandað með öllu undan-
farinn hálfsmánaðartíma, og
ekki unt að segja nokkuð ábyggi
legt um það hvort þær kunni að
hefjast á ný; en um hitt er ekki
að villast, að orustur á flestum
vígstöðvum landsins, einkum þó
á austurvígstöðvunum, hafa
færst svo í auka upp á síðkastið,
að barist er þar nótt sem nýtan
dag; sfðustu fréttir herma, að
herjum Sameinuðu þjóðanna
hafi í flestum tilfellum veitt all-
miklu betur en kommúnistum.
VornarréSstafanir fyrir
canadískan
Kemur ferja
við Narrows?
Eins og kunnugt er hafa
byggðirnar vestan og austan
Manitobavatns í fjölda mörg ár
vonast til að þær yrðu tengdar
saman með ferju eða brú yfir
mjóa sundið við Narrows.
Á miðvikudaginn, 8. ágúst,
heimsótti forsætisráðherra
Manitoba, Hon. D. L. Campbell,
þetta svæði til þess að athuga
aðstæður til þess að þetta mætti
koma til framkvæmda. í fylgd
með honum voru ráðherra opin-
berra mannvirkja, Hon. W. Mor-
ton, og fyrrverandi ráðherra
þeirra mála, Hon. W. Clubb.
Fundur, er Chris Halldorson
fylkisþingmaður hafði efnt til,
var haldinn á staðnum til að
ræða málið. Auk þeirra, sem
nefndir hafa verið, voru þessir
viðstaddir: James F. Anderson,
fylkisþingmaður frá Fairford;
B. Jónasson, oddviti Siglunes-
sveitar, og sveitarráðsmennirnir
T. Webster, G. Markwart, D.
Eggertson, G. Sigfússon og D. J.
Líndal, sveitarráðsmaður frá
Coldwell-sveit; Ragnar Johnson
frá Reykjavík; Barney Eggert-
son frá Vogar; John Gunnlaugs-
son frá Gunnlaugsson Island og
Alli Freeman frá The Narrows.
Mrs. Campbell lofaðist til að
komast í samband við sambands-
stjórnina í Ottawa til þess að
vita hvern þátt hún myndi taka
í þessu fyrirtæki.
Flufrfr fril Vancouver
Mr. J. K. Johnson, sem um all-
mörg ár hefir starfað að prent-
verki hjá The Columbia Press
Limited, lagði af stað vestur til
Vancouver síðastliðinn fimtudag
ásamt frú sinni, þar sem þau hafa
ákveðið að setjast að.
Mr. Johnson er ágætlega að
sér í iðn sinni og áhugasamur
um störf sín; samverkamenn
hans á prentsmiðju Lögbergs
þakka honum góða samvinnu og
óska honum og frú hans fram-
tíðarheilla.
Hlýfrur
námsverðlaun
Dorothy Mae Jónasson
Þessi mynd er af Dorothy Mae
13 ára, en þá hlaut hún I.O.D.E.
námsverðlaun fyrir fiðluleik,
síðan hefir hún sótt námið af
kappi. Einn af aðal kennurun-
um við Royal Conservatory df
Music í Toronto, Elie Spivak
heyrði hana leika á fiðlu, þegar
hann var hér staddur á Music-
kennara þinginu í sumar; honum
þótti svo mikið til hennar koma,
að hann bauð henni $250.00
námsstyrk til framhaldsnáms.
Dorothy Mae, sem nú er að-
eins 16 ára, fór austur til Toronto
síðastliðinn sunnudag, og mun
stunda nám við hljómlistarskól-
ann þar.
Foreldrar hennar eru Mr. og
Mrs. S. O. Jónasson, 370 Arling-
ton Str., Winnipeg.
Um þessar mundir er hér á
ferð Ake Sundelin; hann er for-
maður í því ráði, sem hefir
borgaralegar varnarráðstafanir
með höndum í Svíþjóð. Hann
kemur hingað í þeim tilgangi að
gefa upplýsingar um hvernig
samskonar vörnum mætti haga
til í Canada.
Svíþjóð býr í nágrenni við á-
rásarþjóðir og stjórnarvöldin og
allur almenningur skilur því
fullkomlega hve mikil hætta öll-
um borgurum landsins er búin
í því falli að styrjöld skelli á.
Undirbúningi almenningsvarna
hefir verið haldið stöðugt áfram
í 15 ár og stjórnin ver 15 milj-
ónum á ári til að byggja varnar-
skýli og þjálfa fólkið í því að
verjast. Allir frá 16 til 65 ára
aldurs eru skyldugir að taka
þátt í því. Landið telur 7 milj-
ónir íbúa — helming Canada-
þjóðar, en hefir 900,000 þjálfaða
menn í almennings-varnarliðinu.
Heilir á húfi
Tveir ævintýramenn frá Wis-
consin, er komu í einkaflugvél
til fiskiveiða í norðurhluta
Saskatchewan fylkis, týndust
þann 2. ágúst síðastliðinn og
fundust heilir á húfi eftir 29
daga útivist í Northwest Terri-
tories; sægur mikill amerískra
og canadískra flugvéla hafði
leitað þeirra nótt sem nýtan dag,
og voru víst flestir orðnir von-
daufir með árangurinn; að lok-
um var það amerísk flugvél, sem
kom auga á ævintýramennina
og flaug með þá til manna-
bygða.
Krefsfr skjófrrar
úrlausnar
Mr. Frank Gillies, samgöngu-
verkfræðingur Winnipegborgar,
krefst skjótra aðgerða af hálfu
bæjaryfirvaldanna varðandi
bílaumferð við fjölförnustu göt-
ur bæjarins; í aðal verzlunar-
hverfunum er tíðum svo áskipað,
að ekki er viðlit að fá pláss fyrir
I bíl, og vill Mr. Gillies að úr þessu
verði bætt með því að heimila
aukinn aðgang bíla við hliðar-
stræti.
Mr. Gillies, sem er hinn mesti
áhugamaður, er sonur þeirra
Mr. J. S. Gillies kaupmanns og
frú Ingunnar Gillies.
ÚrsSifr kosninga
Síðastliðinn laugardag fóru
fram almennar þingkosningar í
New Zealand og lauk þeim á
þann veg, að íhaldsflokkurinn
undir leiðsögn Hollands forsætis
ráðherra gekk sigrandi af hólmi,
hlaut 47 þingsæti til móts við 33,
er flokkur óháðra verkamanna
fékk í sinn hlut.
Mikilvæg ráðsfrefna
Á þriðjudaginn hófst í San
Francisco ráðstefna, sem boðað
var til í því augnamiði, að af-
greiða friðarsamninga við jap-
önsku þjóðina; að ráðstefnunni
stendur fimtíu og ein þjóð; gert
var ráð fyrir að Truman forseti
flytti aðalræðuna; stefna þessi
er haldin í hinum sömu salar-
kynnum, þar sem Sameinuðu
þjóðirnar fyrst litu dagsljósið
fyrir sex árum; þess er vænst,
að staðfesting friðarsamning-
anna fari fram á laugardaginn,
þrátt fyrir væntanlega and-
spyrnu af hálfu ráðstjórnarríkj-
anna rússnesku og leppríkja
| þ^irra.
almenning
Skýli gegn atomsprengjum
hafa verið grafin inn í hæðir og
hóla, sum svo stór að þau rúma
20,000 manns. Verksmiðjunum
er farið að dreifa um landið og
öll heimili, sem byggð hafa ver-
ið í Svíþjóð síðan 1945, hafa
varnarskýli í kjöllurunum.
Gen. F. F. Worthington, sem
hefir borgaralegar varnir Can-
ada með höndum kvartar und-
an því að stjórnarvöldin í
Ottawa séu sofandi á verðinum
hvað þessi mál snertir. „Annað
hvort verður að hraða þessu máli
eða hætta algerlega við það“,
segir hann.
Úr borg og bygð
Mr. Jóhann Jóhannsson frá
Árborg kom til borgarinnar á
þriðjudagsmorguninn á s a m t
Thoru dóttur sinni, sem ætlar að
ganga á Success Commercial
College næstkomandi vetur.
☆
Böðvar Johnson frá Langruth,
Man., lézt á Almenna sjúkrahús-
inu hér í borg á þriðjudaginn,
29. ágúst. Hann var 82 ára að
aldri og fluttist frá íslandi til
Canada fyrir 62 árum. Hann
lætur eftir sig þrjá sonu, Jónas,
Thomas og Archibald, sem allir
eru búsettir í Langruth, og þrjár
dætur, Mrs. William Líndal,
Chicago; Mrs. G. H. Sigurdson,
Winnipeg; Mrs. G. Magnússon,
Langruth.
Jarðarförin fór fram á föstu-
daginn, 31. ágúst, frá lútersku
kirkjunni í Langruth.
☆
Mr. Emil Gillies, sem stundað
hefir að undanförnu nám við
McGill háskólann, er nýlega
kominn, og gefur sig að skóla-
kenslu *hér í borginni í vetur;
hann er sonur Mr. J. S. Gillies
kaupmanns og frú Ingunnar
Gillies.
☆
Frú Kristjana Anderson frá
Vancouver, hefir dvalið í borg-
inni um hríð í heimsókn til
þeirra Mr. og Mrs. J. H. Norman,
sem nýlega eru flutt hingað frá
Gimli, og nú eru búsett að 784
Wolseley Avenue; auk þess heim
sótti hún margt annara vina,
sem fögnuðu komu hennar.
☆
Benella Guðrún Kjarntanson
Blessuð blómarósin,
bundin dauðans viðjum.
Lokuð brúnaljósin,
laus af nauðahryðjum
horfin heims af sviði,
hvílir blíð í friði.
Amma
☆
Stúkan SKULD
heldur næsta fund sinn á
mánudagskvöldið þann 10. þ. m.,
á venjulegum stað og tíma. —
Fjölmennið!
Deild 3 og 4 í Kvenfélagi
Fyrstu lútersku kirkju heldur
“SILVER TEA” að heimili Mrs.
F. Stephenson 292 Montrose St.,
á miðvikudaginn 19. sept. frá kl.
2.30 e. h.
☆
ÁRDÍS
Ársritið Árdís er nýkomið út,
fæst keypt hér í bænum hjá:
Mrs. B. S. Benson, Columbia
Press Ltd. og Mrs. J. S .Gillies,
680 Banning St.
Óskað er eftir að fá keypt eftir
farandi hefti af gömlum ritum,
ef einhver vill selja, frá árunum:
1933, 1934, 1942 og 1945.
☆
Mr. Magnús Sigurðsson frá
Keewaten, Ont., var staddur í
borginni fyrir helgina.