Lögberg - 18.10.1951, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. OKTÓBER, 1951
Jöklarnir búa yfir ógnarkrafti
Þessi líff þekkfu svæði landsins skuiu nú könnuð
ViSíal við Jón Eyþórsson
um Jöklarannsóknafél.
22 NÓVEMBER síðastliðinn var
stofnað hér svokallað. jöklarann
sóknafélag, sem hefur það verk-
efni að vinna að rannsóknum á
islenzkum jöklum. En jöklarnir
taka sem kunnugt er yfir mik-
inn hluta landsins og hafa fram
til þessa verið lítt kannaðir.
Rannsóknir á jöklum eru mikils
verðar bæði vegna þess að þeir
eru vatnsforðabúr fyrir fljót,
sem ef til vill verða síðar virkj-
uð, af þeim má sjá verðurfars-
breytingar og þá má nefna ekki
hvað síst, að reynzlan hefur
sýnt að slys geta orðið uppi á
jöklum og er þá nauðsynlegt að
þekkja jöklanna og kunna að
ferðast á þ^im.
Félagið hefur unnið vel fyrsta
starfsárið. Meðlimir í því munu
vera talsvert á annað hundrað
manns, en þó félagið sé ungt og
hafi enn lítið fjárhagslegt bol-
magn, hefur því tekist á ótrú-
lega skömmum tíma að reisa tvo
rannsóknaskála, annan í Esju-
fjöllum og hinn á sandinum fyr-
ir framan Breiðamerkurjökul.
Jöklarannsóknir eru fjölþættar
Fréttamaður Mbl. sneri sér
fyrir nokkru til Jóns Eyþórsson-
ar, sem er í stjórnarnefnd félags
ins og spurði hann í hverju jökl-
arannsóknir væru fólgnar.
— Það er erfitt að svara því í
stuttu máli, því að jöklarann-
sóknir eru mjög fjölþættar. —
— T.d. eru jöklarannsóknir
fólgnar í því að fylgjast með
breytingum, sem verða á út-
breiðslu skriðjökla, en eins og
kunnugt er, ganga skriðjöklar
fram og styttast til skiptis og er
enginn vafi á, að þessar breyt-
ingar endurspegla veðurfarið all
nákvæmlega.
— Hafa skriðjöklar þá yfir-
leitt dregist saman á hitaskeiði
síðustu ára?
— Já, yfirleitt hafa þeir tals-
vert minnkað á síðustu 20 árum.
Annars vitum við með vissu, að
á því tímabili, sem hefur verið
okkur einna erfiðast, á 18. öld
gengu jöklar stórlega fram alls-
staðar hér á landi.
Skriðjöklar lögðu bæi í eyði
á 18. öld.
— Getið þér nefnt nokkur
dæmi þess?
— T. d. lukti Breiðamerkur-
jökull og Fjallsárjökull þá um
Breiðamerkurfjall og lögðu bæi
þar í eyði svo sem Breiðá og
Fjöll. Sennilega hefur Hagavatn
og myndast um 1700 með því að
jökullinn gekk fram og stíflaði
fyrir útrásina. Stóð svo þar til
jökullinn var orðinn svo þunnur
1929 að Hagavatn braust fram í
stórkostlegu hlaupi og þeyttist
fram af fjallsbrúninni í mikil-
úðlegum fossi, sem kallaðist
Leynifoss. Nú hefur jölpillinn
enn þynnst og vatnið brotið sér
leið gegnum lægra skarð. Leyni-
foss er því þurr, en meðan hann
var við líði, var hann eitt glögg-
asta dæmið upp á það, að óvíða
finnast aðrar eins hamfarir í
náttúrunni eins og við jöklana.
í jöklum og eldgosum greinum
við best þann ógnarkraft, sem
landið okkar geymir og því hlýt
ur áhugi okkar að beinast að
þeim, enda þótt rannsóknirnar
séu bundnar erfiðleikum og
hættum.
— Er hugsanlegt að þeir bæir,
sem jöklar hafa lagt í eyði kom-
ist aftur í byggð?
— Þessu er ekki hægt að
svara ákveðið, því að fleiri at-
riði en jöklarnir koma þar til
greina. En það má t. d. benda á,
að staðurinn, sem Breiða hefur
staðið á er á ný kominn undan
jökli, en lítill jarðvegur er þar
eftir. Annars er landareignin
ennþá til og á Breiðarfjörum er
góður reki. Sama gildir um ým-
sar jarðir sem fóru í eyði fyrir
1 7 0 0 í N - ísafjarðarsýslu o g
Strandasýslu fyrir ágang
Drangajökuls.
Skriðjökiar hafa minkað síðuslu
luttugu ár.
— Hefur gefist tækifæri til að
rannsaka, hve mikið skriðjöklar
hafa gengið saman síðustu ár?
, — Um síðustu 20 ár hefur ver-
ið fylgst árlega með breytingum
margra skriðjökla hér á landi
og hafa þeir yfirleitt farið ört
minnkandi og er nú svo komið
að jöklarnir eru áreiðanlegg
minni en þe'ir hafa nokkru sinni
verið um 250-300 ára skeið.
Þetta sýnir glöggar, en flest ann
að, að hlýviðrisskeið hefur verið
hér undanfarin ár. Síðustu tvö
ár hefur þess hinsvegar orðið
vart á stöku stað að skriðjöklar
gangi aftur fram. T. d. gekk
austurhorn Breiðamerkurjökuls
fram um 40 metra 1949 - 1950._
Eftir er að sjá, hvort sú þróun
heldur áfram.
„Búskapur" Jöklanna
— Þá er eitt þýðingarmesta
svið jöklarannsóknanna að at-
huga hlutfallið milli snjókom-
unnar að vetrinum og leysing-
anna á sumrum. Hefur þetta
stundum verið kallað „búskap-
ur“ jöklanna. Til þess að fylgj-
ast með snjókomu sumarsins
eru reknar niður snjóstikur frá
jökuljaðri og upp á hájökul. Á
stikunum er mælikvarði sem
sýnir, hvað mikill snjór safnast
að þeim að vetrinum og hve'
mikið hann sjatnar að sumrinu.
1 nánu sambandi við „búskap“
jöklanna er vatnsmagnið sem
frá þeim kemur að sumrinu.
Rannsóknir þessar hafa því mik
la þýðinu hvað við kemur virkj-
unum fallvatna. Flestar stórár
hér á landi eru komnar frá jökl-
um. Sum þessara fljóta verða
vissulega virkjuð í framtíðinni
og væri þegar þar að kemur
mikilsvirði að hafa í höndunum
skýrslur um „búskap“ jöklanna
á undanförnum árum.
Slíkar rannsóknar hafa lengi
haft mikla þýðingu fyrir vatns-
virkjanir í Alpafjöllum. Þar eru
fallvötn flest fullvirkjuð og ekki
sist þau fljót, sem koma úr skrið
jöklum. Enda hefur þar verið
vagga jökulfræðinnar, nauðsyn
veldur þvi að ákaflega mikil
ÞETTA ER YÐAR LAND
V
Verið viðbúin að veita viðtöku
tækifærunum, sem nú bjóðast.
• Canada spariveðbréf eru trygg, og leiðin auðveld til sparnaðar.
• Þér getið greitt þau út í hönd eða gegn afborgunum.
• Þér getið keypt þau í bðnkum, hjá veðbréfasaja, eða gegn frádrætti
af launum yðar.
• Þau eru eins trygg og Canada í heild, og þér getið fengið þau endurgreidd
með vöxtum nær sem vera vill.
AUKIÐ SPARIFÉ YÐAR MEÐ
CANADA SAVINGS BONDS
6. útboð — betri kjör — Verðbréf nú til sölu
ÓSKAR J. ÞORLÁKSSON: ------
Trúaruppeldi og kristindómsfræðsla
FÁAR MYNDIR úr lífi Jesú eru
okkur minnisstæðari en sú
mynd, þar sem hann er í hópi
barnanna og leggur hendur yfir
þau og blessar þau, og um fá
ummæli þykir okkur vænna en
einmitt um ummæli hans um
börnin, þar sem hann segir:
„Leyfið börnunum að koma til
mín og bannið þeim það ekki,
því að slíkra er guðsríkið“.
(Mark. 10.14.).
Þessi orð Frelsarans sjálfs
hafa orðið kristnum mönnum
sterk hvöt, til þess að ala börn-
in upp í kristilegum anda, svo
að þau gætu orðið fyrir sem
mestum áhrifum frá honum.
Þetta byggist á þeirri sann-
færingu, að, í fagnaðarerindi
Jesú felist lykillinn að lífsgæfu
mannanna og það guðstraust og
sú kærleiksþjónusta, sem ein-
kenndi líf Jesú, sé grundvöllur
lífsins.
í augum Jesú var hver manns-
sál óendanlega dýrmæt, svo dýr-
mæt, að hún var meira virði en
allur heimurinn, og sjálfur dó
hann á krossi, til þess að vér
skyldum erfa lífið.
Trúaruppeldi og kristindóms-
fræðsla eru því veigamiklir
þættir hins kristna félagslífs. En
hvernig fáum við bezt leitt æsk-
una til Krists? Það er hið mikla
og vandasama verkefni, sem bíð-
ur hverrar kynslóðar.
Öll þráum við að æskan verði
aðnjótandi blessunar og ham-
ingju lífsins, en menn greinir
oft á um leiðirnar að þessu
marki. „Jesús Kristur er vegur-
inn, sannleikurinn og lífið“.
(Jóh. 14.6). Og því ætti æskunni
hvergi að vera betur borgið en
undir áhrifum hans og í sam-
félaginu við hann.
Þegar við tilheyrum kristinni
kirkju, þá er það fákn þess, að
við viljum efla kristileg áhrif í
þjóðlífinu. Foreldrar, sem láta
skíra börn sín, hafa um leið tek-
ið á sig þær skyldur að ala þau
upp í kristilegum anda og fræða
þau um meginatriði kristindóms
ins eftir beztu getu.
Til þess að kristilegt uppeldi
þjóðarinnar megi vel takast, þá
þurfa heimili, skóli og kirkja að
hafa sem bezta samvinnu í þess-
um efnum.
Heimilin hafa merkilegt hlut-
verk að rælcja í sambandi við
trúaruppeldi barnanna meðan
þau eru ung, og það má sízt af
öllu vanrækja. Foreldrar og ást-
vinir barnanna eiga traust þeirra
óskipt og þá er mikilsvert að
reynt sé að glæða trúareinlægni
þeirra, leiða þau til Jesú og
skapa hjá þeim lotningu og virð-
ingu fyrir helgiathöfnum trúar-
innar.
Það er gömul og góð venja að
kenna börnunum vers og bænir .
þegar þau eru ung, kenna þeim
stund hefur verið lögð þar á þá
fræðigrein.
Einn þáttur jöklarannsókn-
anna er athugun á hreyfingu
jöklanna. íslendingar hafa
snemma áttað sig á því að jökl-
arnir síga stöðugt og renna til
og er því orðið „skriðjökull“ í
málinu. En í engu öðru tungu-
mál er greint orðfræðilega á
milli skriðjökuls og hájökuls.
Jöklar geta stundum hlaupið
mjög skyndilega fram. T. d.
hljóp jökull í Leirufirði í Jökul-
fjörðum fram um mörg hundr-
uð m. 1939. Slíkar snöggar breyt
ingar hafa löngum vakið athygli
manna og eitthvert elsta rit sem
til er um hreyfingu jökla er rit-
að á 17. öld af Þórði Vídalín sem
var bóndi austur í Lóni.
Hvernig hreyfisi gaddharður
ísinn.
— Hvernig er þessari -hreyf-
ingu jökla varið? Brotnar ísinn
ekki í mjel, þegar hann færist
áfram með svo miklum hraða?
— Nei, og hér er komið að
einu erfiðasta viðfangsefni jökla
fræðinnar, sem engin lausn hef-
ur enn fengist á. Gaddharður
jökulísinn getur liðast og skriðið
áfram án þess að brotna veru-
lega. Margir skriðjöklar hér á
landi munu hreyfast um allt að
600 m. á ári. Um eðli jökulsins
eru enn ákaflega skiptar skoð-
anir. Sveinn Pálsson læknir var
meðal þeirra fyrstu sem settu
fram kenninguna um að ísinn
sé seigfljótandi efni. Aðrir á-
líta að hreyfingin verði í innri
gerð íssins og að ískrystallarnir
eigi mestan þátt í hreyfingunni.
En víst er að þarna gefst mikil-
vægt rannsóknarefni fyrir jökla-
fræðinga.
Nauðsyn farartækis til jökla-
ferða.
— Eru nú ekki sköpuð dágóð
skilyrði til jöklarannsókna með-
rannsóknarskálum þeim, sem
komið hefur verið upp við Breið
merkurjökul?
— Það er stórt spor fram á
við, svarar Jón. Þannig hefur
fyrsta verkefni jöklarannsókna-
félagsins tekist. En viðáttur
Vatnajökuls eru geysimiklar og
því er tæplega hægt að segja að
vinnuskilyrðin séu viðunandi
fyrr en félagið hefur umráð yfir
einhverjum farartækjum, t.. d
beltisbílum til ferðalaga á jökl-
inum.
Rannsóknirnar verða mjög
erfiðar og árangurinn lítill, ef
leiðangrarnir verða að fara um
fótgangandi, á skíðum og t. d.
að bera sjálfir öll matvæli. Má
nefna sem dæmi, að þegar síð-
asta Grímsvatnagos var, fóru
menn á skiðum þangað norður
eftir, en urðu að hverfa til baka
eftir örskamma dvöl, við Gríms-
vötn vegna þess að þeir gátu
ekki flutt með sér mat til marg-
ra daga. Sé beltisbíll hinsvegar
við hendina, þá breytast dag-
leiðirnar 1 klukkustundaleiðir
og hægt er að flytja nægar vist-
ir hvert sem er á jökulinn.
Það er því næsta verkefni fé-
lagsins að reyna að eignast slíkt
faratæki. Þá fyrst eru fengin
svo góð starfsskilyrði að jökla-
rannsóknirnar geti orðið skipu-
legar og nákvæmar. Þá gætu
bæði erlendir og innlendir vís-
indrmenn haft bækistöðvar í
skálum félagsins og verkefni
eru nóg um allan Vatnajökul.
Áhugi útlendinga á íslenzkum
jöklum.
— Hafa útlendingar mikinn á-
huga á rannsóknum íslenzkra
jökla?
— Það má hiklaust segja að
svo sé. Hingað hefur komið hver
leiðangurinn af fætur öðum til
að rannsaka íslenzka jökla. Fyr-
ir stríð voru hér árlega þýzkir
leiðangrar. Sænsk-íslenzkur leið
angur, sem prófessor Ahlman
var í var hér á árunum 1936 —
39. Danskur leiðangur kom hér
í sambandi við Grímsvatnagosið
o. s. frv. Vísindamenn þessir
rannsökuðu auk Vatnajökuls,
Hofsjökul. Langjökul og Drang-
jökul.
Sömu sögu er að segja eftir
styrjöld, að hingað hefur komið
fjöldi erlendra vísindamanna. Á
hugi þeirra gæti samt aukist enn
verulega, hugsum okkur t. d. ef
gos yrði í Kötlu eða Grímsvötn-
um. En ísland er eini staðurinn,
sem hefur eldfjöll undir jökli,
svo gos í Kötlu og Grímsvötnum
eru alveg einstæður viðburður
og beinast augu fræðimanna
viðsvegar í heiminum að okkur,
ef slíkt verður.
En íslendingar eiga aS hafa
forusiuna.
Jöklarannsóknafélagið lítur
með fullri velvild á störf er-
lendra fræðimanna að jökla-
rannspknum, segir Jón Eyþórs-
son að lokum. En okkur finnst
það metnaðarmál, að íslending-
ar geti ekki aðeins tekið þátt í
rannsóknum þ e s s u m, heldur
hafi þeir og forustuna í þeim.
Félagið vill því búa sér og öðr-
um sem best vinnuskilyrði.
— Mbl. 6. sept. Þ. Th.
að biðja kvölds og morgna. Ég
veit að þessi aðferð er enn í
fullu gildi, ef rétt er á haldið.
Enginn veit hve mikið gildi eitt
bænavers eða ritningargrein get-
ur haft fyrir unglinginn eða hinn
fulltíða mann á freistinga- eða
úrslitastundu í lífi hans. Engin
móðir eða faðir má vanrækja að
leiða börnin sín til Krists á æsku
árum þeirra. Við getum að vísu
ekki ráðið því, hvaða lífsstefnu
börnin taka, þegar þau vaxa og
þroskast, en við reynum að gera
okkar bezta, til þess að leggja
sem traustastan grundvöll að
lífsgæfu þeirra og framtíð. Það
er líka staðreynd, að lengi muna
menn það, sem þeir hafa lært
við móður- eða föðurkné.
Merkur maður, sem hlotið
hafði mikinn frama og átt þess
kost að njóta margs þess bezta,
sem fjármunir og góð aðstaða í
lífinu fær veitt mönnum, sagði
frá því á gamals aldri, að engar
endurminningar væru sér eins
kærar frá liðnum dögum, eins
og þær, er hann var að kenna
börnunum sínum að biðja og
biðja með þeim í æsku.
Allir vilja veita börnum sín-
um sem bezt uppeldi, en trúar-
leg festa og siðferðileg ábyrgð-
artilfinning er áreiðanlega bezta
veganestið.
Barnaskólinn tekur við af
heimilunum og getur veitt börn-
unum mikilsverða fræðslu, en
getur aldrei komið í stað heim-
ilanna, hvað snerir trúarlegt
uppeldi. Hlutverk skólans í
kristindómsfræðslunni er að
mestu leyti fræðilegt. — Kennar
arnir fræða börnin um það sem
í biblíusögunum stendur og
tengja frásagnirnar við daglega
lífið og glæða tilfinningar barn-
anna fyrir trú og siðgæði. öll
verður þessi fræðsla að vera já-
kvæð og varast ber að vekja efa-
semdir barnanna eða rökræða
við þau um þau atriði, er skipt-
ar skoðanir kunna að vera um.
Börnin koma frá ólíkum heim-
ilum og trúarskoðanir foreldra
þeirra geta verið ólíkar og því
ber að varast það sem ágreiningi
veldur, en leggja áherzlu á það,
sem sameinar og byggir upp.
Skólarnir ættu að byrja fyrr á
kristindómsfræðslunni en nú er
gert og sérstök bok í kristnum
fræðum þyrfti að vera til fyrir
yngri börn.
Kristindómsfræðslan er vanda
verk. — Kristindómurinn hefir
sérstöðu miðað við aðrar náms-
greinar skólanna, hann er meira
en þekkingaratriði, hann á að
hafa áhrif á viljalíf manna,
móta lífsviðhorf þeirra og
breytni.
Þá kem ég að kristindóms-
fræðslu kirkjunnar, sem að
mestu hefir verið fólkin í undir-
búningi barna undir fermingu.
Þar er byggt á trúaruppeldi og
fræðslu heimila og skóla og.
reynt að gefa yfirlit yfir helztu
kenningar kristninnar frá
evangelisk-lútersku sjónarmiði
og hjálpa hinum ungu til þess
að öðlast festu í trú og siðgæði,
fræða þau um réttindi og skyld-
ur kristinna manna.
Hér hefir aðeins verið drepið
á nokkur atriði, er varða trúar-
uppeldi og kristindómsfræðslu
En takmarkið, sem öll kristin-
dómsfræðsla stefnir að, er að
persóna Jesú, líf hans og starf
fái að njóta sín sem allra bezt
í þeirri fræðslu og að hinir ungu
læri að skilja, að hann er bæði
vinur ftiannanna, frelsari þeirra
og drottinn.
Við lifum á miklum breytinga
og umbrotatímum og framtíðin
er öll í mikilli óvissu. Engum
dylst því, að í uppeldi hinna
ungu er þörf öruggrar trúarvissu
og siðferðilegrar ábyrgðartil-
finningar, til þess að mæta þeim
aðstæðum lífsins, er framtíðin
kann að bera í skauti sínu.
Óskar J. Þorláksson
—Mbl., 20. sept.