Lögberg - 29.11.1951, Blaðsíða 1
Nálega einhliða
úrslit
Síðastliðinn laugardag fór
fram að tilhlutan fylkisstjórnar-
innar í Manitoba, almenn at-
kvæðagreiðsla meðal kornrækt-
arbænda í Manitoba um það,
hvort framleiðsla byggs og hafra
skyldi framvegis verða í hönd-
um hveitiráðsins, eða seld eins
og bændum sýndist á opnum
markaði; atkvæðagreiðslan féll
á þann veg, að svo að segja átta-
tíu af hundraði greiddu atkvæði
með því, að núverandi söluað-
ferð um hendur hveitiráðsins
skyldi haldast óbreytt.
Forsætisráðherra fylkisins,
Mr. Campbell, lýsti yfir ánægju
sinni vegna úrslita atkvæða-
greiðslunnar og komst meðai
annars þannig að orði:
„Það fær mér mikillar ánægju
hversu atkvæði bænda í þessu
þýðingarmikla máli voru ein
dregin; stjórnin hafði vænst þess
að atkvæðin féllu á þeftnan veg,
og hún þakkar bændum fyrir
þeirra ákveðnu ábyrgðartilfinn-
ingu gagnvart þessu mikilvæga
máli, sem allan almenning
varðar“.
Einar prófastur Sturlaugsson
Sæmir háskólann í Manifoba fágæfri bókagjöf
Hér veitist almenningi kostur
á að sjá mynd Einars prófasts
Sturlaugssonas á Patreksfirði,
er sæmdi háskóla Manitobafylk-
is þeirri óverðleggjanlegu bóka-
og tímaritagjöf, sem áður hefir
verið gaumgæfilega lýst hér í
blaðinu; og nú er þessi höfðing-
lega gjöf nýkomin í vörzlu há-
skólans; það var ánægjuleg og
eftirminnileg tilviljun, að Finn-
bogi prófessor og hin mikla
bókagjöf Einars prófasts kæmi
samdægurs hingað til borgar-
innar.
Frétfir af íslenzka kenslustólsmálinu
Samkomulag nær
en áður
Að því er nýjustu fregnir frá
Kóreu herma, hefir nú náðst
samkomulag milli málsaðilja
sameinuðu þjóðanna og komm-
únista um hlutleysissvæðið er
væntanlegt vopnahfé innan þrjá-
tíu daga skuli grundvallað á;
áður en öll kurl koma til grafar,
þarf vitanlega að gera út um
mörg vandamál, svo sem um
skiptingu stríðsfanga og margt
fleira; en eins og nú horfir við,
sýnist nokkur von um skynsam-
leg lok Kóreudeilunnar.
Þing sameinuðu
þjóðanna
Af ársþingi sameinuðu þjóð-
anna í París, er það síðast að
frétta, að Bandaríkin hafa fall-
ist á að eiga lokaðan fund með
ráðamönnum Rússlands, Bret-
lands og Frakklands varðandi
hugsanlega lausn kalda stríðsins,
þótt sendiherra Ameríku, Mr.
Jessop, væri af fyrri reynslu,
lítt trúaður á heilindi af hálfu
hinna rússnesku ráðstjórnar-
ríkja.
Rúmlega 30 togarar stunda nú
ísfiskveiðar og hafa nokkrir
þeirra selt afla sinn í þessari
viku. Tveir togarar eru enn á
saltfiskveiðum við Grænland, 5
af togurunum, sem veitt hafa
við Grænland eru um þessar
mundir í söluferðum eða að
landa hérlendis, og einn togari,
Bjarni Ólafsson, er á veiðum
fyrir frystihús og fiskivinnslu-
stöðvar á Akranesi.
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk í gær hjá LÍÚ, hafa
þessir togarar selt afla sinn í
þessari viku: í Bretlandi: Ing-
ólfur Árnason, 3540 kits fyrir 10,
551 sterlingsjund, ísólfur 2,800
kits fyrir 7,730 pund, Hvalfell
3,320 kits fyrir 8,320 pund, og
Svalbakur 3,648 kits fyrir 9,278
pund. Togarinn Bjarnarey seldi
Það voru góðir gestir á ferð
hér í Glenboro sunnudaginn 4.
nóv. s.l. hr. W. J. Líndal héraðs-
dómari, hr. Heimir Thorgrímsson
frá Winnipeg og frúi4 þeirra;
kom Líndal dómari vestur til að
sitja fund með fólki hér, sem
ráðstafað hafði verið í samráði
við bygðarfólk, og var sá fundur
haldinn í Glenboro síðari hluta
dags, og fundarefni var að kjósa
nefnd til að standa fyrir fjár-
söfnun til styrktar stofnsjóðs
stóls í íslenzkum fræðum við
Manitoba háskólann; eftirgreint
fólk var kosið í nefndina. G. J.
Oleson, formaður; B. S. Johnson,
skrifari; Qskar Jósephson, fé-
hirðir; Margaret Jósephson og
B. K. Johnson, Brú; J. K. Sigurd-
son, Grund; Dr. Björn Jónsson
og J. C. Skardal, Baldur; og P.
A. Anderson, Glenboro.
Tilgangurinn er að safna fé í
bygðinni, og verða þegnar upp-
hæðir, smáar sem stórar, sem
ganga í sameiginlegan sjóð stóln-
um til styrkar, og með því móti
gjörist bygðin stofnandi, en gjöf
hvers einstaklings verður skrá-
sett í skýrslu háskólasjóðsins;
verður þessu öllu ráðstafað af
nefndinni í samráði við gefend-
í Þýzkalandi á mánudaginn 228
tonn fyrir 136,813 mörk eða 11,
624 sterlingspund. í dag eiga tog
ararnir Jón Baldvinsson og Jón
forseti að selja í Bretlandi.
Af 41 nýsköpunartogara eru
rúmir 30 á ísfiskveiðum. Tveir
stunda enn þá veiðar við Græn-
land, Sólborg og Austfirðingur,
og fimm eru nýlega komnir það-
an. ólafur Jóhannsson, sem er
í söluferð, Marz, sem selur í Es-
bjerg, Uranus, sem landar á
Siglufirði, Pétur Halldórsson,
sem landar í Reykjavík, og Þor-
steinn Ingólfsson, sem er á leið
til Esbjerg. Enginn af þessum
togurum munfe,ra á Grænlands
með meira í haust. Akranestog-
arinn Bjarni Ólafsson stundar
nú veiðar fyrir frystihús og fisk-
vinnslustöðvar á Akranesi, en
allir aðrir togarar, en hér hafa
verið nefndir, eru á ísfiskveið-
um, að undanteknum tveim sem
eru í hreinsun.
— ALÞBL. 25. okt.
ur. Vonandi bregst fólk vel við
þessari köllun, of eftir vilja og
getu leggur lítinn eða stóran
stein í vegginn, þeir sem ekki
hafa þegar gjört sinn hlut, en
það hafa nokkrir gjört.
Argyle-bygðin var á sinni tíð
fremst íslenzkra bygða, og stend-
ur enn í fremstu röð þó sumar
aðrar séu stærri. Frumherjarnir,
feður og mæður bygðarinnar,
eiga það skilið, að þeim sé reistur
minnisvarði, sem ekki hrapar í
roki aldanna; kennaraembættið
í íslenzkum fræðum við Mani-
toba háskólann er sá minnis-
varði. Vona ég að Argylebygðin
verði sér til sæmdar í þessu
máli, og ég veit hún verður það.
Hver sem nú þegar er reiðu-
búinn að gefa getur snúið sér til
einhvers í nefndinni með sitt til-
lag. Vér skulum reyna sem fyrst
að gefa málinu byr undir vængi.
Hr. Ásmundur P. Jóhannsson
átti frumþáttinn í því að hrinda
þessu stórmerka máli af stokk-
unum og á heiður skilið fyrir.
Forstöðunefndin, sem unnið hef-
ir að framgangi málsins, hefir
lagt mikið á sig; en nú er sigur-
inn vís, þó mikið sé eftir enn,
ef hver og einn leggur hönd á
plóginn, drengilega.
G. J. Oleson
Kjörinn að
heiðursfélaga
Á velsóttum og ánægjuleg-
um fundi, sem Icelandic Can-
adian Club efndi til í fundarsal
Fyrstu lútersku kirkju síðast-s
liðið föstudagskvöld, var Dr.
Rúnólfur Márteinsson kjörinn
heiðursfélagi klúbbsins; var Dr.
Marteinsson þessarar viðurkenn-
ingar að fullu maklegur, því
hann hefir um langa og nytsama
æýi jafnan tekið mikinn og
giftudrjúgan þátt í íslenzkum
menningarmálum.
Þingkosningar
1 lok fyrri viku fóru fram
kosningar til fylkisþingsins í
Newfoundland, en sakir illviðra
og samgönguteppu, eru úrslit
hvergi nærri að fullu kunn; en
af þeim óljósu fregnum, sem eru
fyrir hendi, má nokkurn veginn
víst telja, að Liberalflokkurinn,
sem Smallwood veitir forustu,
fari framvegis með völd.
Um 30 togarar á ísfiskveiðum; 2 eru við
GrænlancJ; 5 nýkomnir þaðan
Margir togarar hafa selt í þessari viku.
Fiskaflinn í ágúst 55440
smálestir, þar af voru
37464 smálestir síld
Heildaraflinn fyrstu 8 mánuði
þessa árs 307.150 smálestir.
Fiskaflinn í ágúst 1951 varð
55.440 smálestir, þar af síld
37.464 smálestir, en til saman
burðar má geta þess, að í
ágúst 1950 var fiskaflinn
37.694 smálestar, þar af síld
18.861 smálest.
Fiskaflinn frá 1. janúar til 31.
ágúst 1951 varð alls 307.150
smálestir, þar af síld 71.589 smá-
lestir, en á sama tíma 1950 var
fiskaflinn 237,260 smálestir, þar
af síld 34,508 smálestir, og 1949
var aflinn 25.750 smálestir, þar
af síld 51.294 smálestir.
Hagnýting þessa afla var sem
hér segir (til samanburðar éru
settar í sviga tölur frá sama tíma
1950):
ísvarinn fiskur 27.085 (26.802),
til frystingar 80.415 (46.136), til
söltunar 52.373 (93.315), til herzlu
6.235 (475), í fiskimjölsverk-
smiðjur 67.092 (34.489), annað
2.361 (1535).
Síld til söltunar 15.693 (7.781),
síld til frystingar 700 (2.812), síld
til bræðslu 55.196 (23.915).
Þungi fisksins er miðaður við
slægðan fisk með haus að undan
skilinni síld og þeim fiski, sem
fór til fiskimjölsvinnslu, en
hann er óslægður.
—Alþbl., 10. okt.
Fyrirmyndarbýlið í heiðinni:
Próf. Finnbogi Guðmundsson
Nýkominn til
borgarinnar
Síðastliðið föstudagskvöld,
laust fyrir miðnætti, kom hing-
að til borgarinnar hr. Finnbogi
Guðmundsson, hinn nýskipaði
prófessor við hina íslenzku
fræðsludeild, sem fyrir samstilt
átök Islendinga, er nú í uppsigl-
ingu við Manitobaháskólann; á
flugvellinum mættu honum Dr.
Áskell Löve, Grettir L. Jóhanns-
son ræðismaður og Einar P. Jóns
son ritstjóri Lögbergs. Sjá frek-
ari umsögn á fjórðu blaðsíðu.
Islenzka mannfélagið hér um
slóðir býður prófessor Finnboga
hjartanlega velkominn og vænt-
ir þess að hann finni sig brátt
heima í okkar hópi.
Úr borg og bygð
Mrs. Helgi K. Tómasson frá
Hecla var í borginni síðastliðna
viku ásamt börnum sínum fjór-
um.
*
Á þriðjudagsmorguninn Kgm
hingað til borgarinnar hr. Guð-
mundur Þorsteinsson listmálari,
er dvelja mun hér um hríð;
hann korfi með Tröllafossi til
New York, og hefir í hyggju að
efna til málverkasýningar hér í
borginni. Guðmundur er borinn
og barnfæddur í Reykjavík.
☆
28. julí s.l. voru gefin saman
þau Lloyd Herold Gunnlaugs-
sön, 511 Agnes St. hér í borginni
og Jeanette Selina Collins, 345
Edmonton St. Hjónavígslan fór
fram á heimili foreldra brúð-
gumans, Magnúsar og Matthild-
ar Gunnlaugsson, 511 Agnes St.
Séra Valdimar J. Eylands fram-
kvæmdi vígsluna. 9
☆
Fundur var haldinn í Sam-
bandskirkj unni hér í borg .á
þriðjudagskvöldið undir forustu
séra Philips M. Péturssonar í því
augnamiði, að ræða um væntan-
legan móttökufagnað fyrir Finn-
boga prófessor Guðmundsson,
sem nú er nýkominn til að taka
við hinu veglega embætti sínu:
að fundinum stóðu öll þau fé-
lög, sem forgöngu hafa haft um
framkvæmdir í íslenzka kenslu-
stólsmálinu; ákveðið var að mót-
tökufagnaðurinn fari fram í
Fyrstu lútersku kirkju á mánu-
dagskvöldið þann 10. desember
næstkomandi, svo sem frá er
nánar skýrt á öðrum stað hér í
blaðinu.
☆
Mr. Carl Tómasson starfsmað-
ur Canadian National Railways
hér í borginni, fór vnorður til
Mikleyjar á þriðjudaginn til að
vera við útför Jóns Sigurgeirs-
sonar.
☆
— Gimli Parish —
H. S. Sigmar, Pastor
Sunday Dec. 2nd
9 a.m. Betel.
2 p.m. Husavik, Service in
English.
4 p.m. Confirmation Class at
Riverton Church.
7 p.m. English Service, Gimli.
8:30 p.m. Icelandic Service,
Árnes.
íhaldsmenn leggja
undir sig
Ontariofylki
Síðastliðinn fimtudag fóru
fram almennar kosningar til
fylkisþingsins í Ontario og lauk
þeim á þann veg, að íhaldsflokk-
urinn undir forustu Leslie Frosts
forsætisráðherra, vann þann
mesta sigur, sem um getur í
stjórnmálasögu fylkisins.
Ontariofylki telur 90 þingsæti
og af þeirri tölu hlaut stjórnar-
flokkurinn 79 sæti. Liberalar
fengu 7 þingmenn kjörna, en
C. C. F.-sinnar komu aðeins
tveimur mönnum á þing, en
höfðu áður en þing var rofið
21 þ i n g m a n n. Forustumaður
Liberal flokksins, Mr. Thomp-
son, beið ósigur og slíkt hið sama
henti leiðtoga C. C. F.-sinna, Mr.
Jolliffe.
Andstöðuflokkar stjórnarinn-
ar höfðu upp á lítið annað að
bjóða en úttroðnar loforðaskjóð-
ur, er kjósendur auðsjáanlega
höfðu ekki sérlega mikla trú á.
Mr. Frost hefir reynst nýtur
og hollráður stjórnmálamaður,
og hefir fylkið undir forustu
hans búið við ágæta stjórn, og
þurftu því kosningaúrslitin ekki
að koma neinum á óvart.
Gerðu sjólfir bílveg yfir fimm
kílómetra leið
Þessa dagana veita móttöku jeppa tveir bændur, sem sannar-
lega eru þess verðugir að hljóta slíkt tæki. Það eru bræðurnir í
Grafardal í Skorradalshreppi, Þorsteima og Jón Böðvarssynir, en
jeppann fá þeir fyrir meðalgöngu búnaðarfélagsins í Hvalfjarðar-
strandarhreppi, sem er í vegalegu jarðar þeirra.
Róðinn tií His
Master's Voice
Erlingur Blöndal Bengtsson
CELLOSNILLINGURINN Er-
ling Blöndal Bengtsson, hefir
nýlega undirritað mikinn samn-
ing við His Master Voice, þar
sem hann er ráðinn til þess að
leika mikinn fjölda tónverka inn
á grammófónplötur. — Nýlega
er hann floginn vestur um haf
til þess að taka þar við pröfessors
embætti við Curtis háskólann.
—Mbl. 4. nóv.
Aths. Þessi ungi snillingur,
sem nú er á leið til víðfrægðar,
er íslenzkur í móðurætt, og er
móðurbróðir hans, Mr. Charles
Nielsen póstfulltrúi, búsettur
hér í borg. —Ritstj.
Bærinn Grafardalur er í Botn-
heiði, talsvert á þriðja hundrað
metra yfir sjó. Þangað er fimm
kílómetra vegur eða rösklega
það, frá Draghálsi í Svínadal, og
um þessa leið hafa þeir bræður
sjálfir rutt bílveg, sem hinn nýi
jeppi þeirra getur nú ekið heim
í hlað.
Félagsbú tveggja fjölskyldna
í Grafardal reka þeir félagsbú
með fjölskyldum sínum, og er
mjög fjölmennt heimili þarna í
heiðinni, enda er búið að hýsa
vel, ræsa fram mikið land og
rækta. Og snyrtimennska er þar
öll svo mikil, að af ber. Með að-
stoð jeppans vænta þeir sér auð-
veldari aðdrátta, og greiðara
sambands við nágranna sína, er
búa í Svínadal og á Hvalfjarðar-
strönd.
Þegar nýja féð kemur
Grafardalur er fyrst og fremst
ágæt sauðjörð, og með mikilli
rækt má hafa þar stórt sauðfjúr-
bú. Hefir fé jafnan verið mjög
vænt í Grafardal.
Nú næsta daga fá þeir Grafar-
dalsbræður og hið fjölmenna
heimili þeirra einnig rýjan og
heilbrigðan sauðfjárstofn, eftir
langt erfiðleikatímabil, sem þó
fer fjarri að bugað hafi bjart-
sýni þeirra og framfarahug. Hill-
ir því undir nýja og ánægjulega
tíma í búskap þeirra.
— TÍMINN, 26. sept.