Lögberg


Lögberg - 04.06.1953, Qupperneq 1

Lögberg - 04.06.1953, Qupperneq 1
66 ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 4. JJNf, 1953 NÚMER 23 Loks um hópferðina til íslands Hljótt hefur verið alllengi um hópferðina til íslands, svo að einhverjir munu farnir að halda, að ekkert verði af henni. En svo er þó ekki, því að ákveðið er, að 38 Vestur-íslendingar fljúgi saman mánudagskvöldið 8. júní með Loftleiðum frá New York til Reykjavíkur. Var það til bragðs tekið að snúa ferðinni þá leiðina, þegar sýnt þótti, að hún mundi ekki takast beint frá Winnipeg. Hafa fáeinir bætzt við síðan sú ákvörðun var tekin, svo að úr er orðinn dágóður hópur. Af þessum 38 munu 28 fara fljúgandi frá Winnipeg til New York sunnudaginn 7. júní. Dvalizt verður á íslandi 7 vikna tíma, svo sem upphaflega var ráð fyrir gert, og menn því væntanlegir heim aftur í júlílok. Verður nú birt skrá um þá, sem fara, og sagt, hvaðan þeir eru: Winnipeg Aðalbjörg Helgason Jóhanna Jónasson Lovísa Bergman Rósa Jóhannsson Lýkur embættisprófi Geslur Kristjánsson Við háskólaprófin í Manitoba, sem nýverið eru um garð gengin, lauk embættisprófi í læknis- fræði með fyrstu einkunn Gestur Kristjánsson; hann er sonur Lúðvíks Kristjánssonar skálds og frú Gestnýjar Krist- jánsson. Lýkur embættisprófi John Donald Thordarson Við nýlega afstaðin vorpróf Manitobaháskólans lauk em- bætttisprófi í læknisfræði með fyrstu einkunn John Donald Thordarson; hann er sonur Johns Thordarsonar forstjóra og frú Auroru Thordarson. Rósbjörg Jónasson Sigrún Thorgrímsson Sigrún A. Thorgrímsson Sigríður Bjerring Þorbjörg Sigurðsson Steini Jakobsson Finnbogi Guðmundsson Árborg, Man. Aðalbjörg Sigvaldason Emma v. Renesse Guðrún Magnússon Riverton. Man. Columbine Baldvinsson Lundar, Man. Guðrún Eyjólfsson Guðrún Sigfússon Eriksdale, Man. Guðrún og Ólafur Hallsson Hayland, Man. Sigríður og Gísli Emilsson Baldur, Man. Halldóra Pétursson Glenboro, Man. Helga S. Johnson Leslie, Sask. Oscar Gíslason Elfros. Sask. Rósmundur Árnason Warman, Sask. Egill Johnson Markerville, Alberta Rósa Benediktsson Vancouver, B.C. Anna Matthieson Hensel, N. Dakota William Sigurðsson Ingibjörg Soards Mountain, N. Dakota Haraldur Ólafsson Cavalier, N. Dakota Sophia Bernhoft Santa Monica, Calif. Wilhelm Bernhoft Seattle, Washington Anna Scheving Sigrid Scheving Point Roberts, Washington Ásta og Jóhann Norman Wheatland, Wyoming Maggie Needham. Krýningarhótíðin Kalsaveður var í London á þriðjudaginn, er krýning Elíza- betar drottningar fór fram og stundum gerði helliskúrir; en veðrið sýndist engin minstu áhrif hafa haft á þær miljónir manna, kvenna og barna, er í hátíðahöldunum tóku þátt, því geisilegur mannf jöldi hafði beðið á strætum og gangstéttum eftir þeim tíma, er drottningin og fylgdarlið hennar kæmi út úr Buckingham Palace á leið til Westminster Abbey, en á þeim fornfræga stað var drottningin krýnd; stjórnaði þeirri athöfn erkibiskupinn af Kantaraborg á- samt öðrum kirkjuhöfðingjum; krýningarathöfninni var út- varpað vítt um heim og seinna um daginn flutti Hennar hátign þegnum sínum fagurt og drengi- legt útvarpserindi. I höfuðborgum allra hinna brezku samveldiSþjóða og víða annars staðar, var einnig mikið um dýrðir, svo sem í Ottawa og Winnipeg. Meiri mannfjöldi var við- staddur krýningu Elízabetar drottningar, en dæmi voru áður til um aðrar hliðstæðar hátíðir. Lýkur prófi í iögfræði Leifur Júlíus Hallgrímsson Þessi ungi maður, Leifur Júlíus Hallgrímsson, lauk við nýafstaðin háskólapróf embættis prófi í lögum með fyrstu ágætis einkunn og hlaut auk þess náms- verðlaun; hann er sonur T. L. Hallgrímssonar fiskkaupmanns og frú Elínborgar Hallgrímsson. Lýkur prófi í lögfræði .... Gunnar Eggertson Við nýafstaðin vorpróf við Manitobaháskólann, lauk Gunn- ar Eggertson embættisprófi í lögum með hárri fyrstu einkunn; hann er sonur Árna heitins Eggertssonar fasteignakaup- manns og seinni konu hans frú Þóreyjar Eggertsson. Ræða, sem veldur ógreiningi Senator Robert A. Taft flutti í fyrri viku ræðu í Cincinati, Ohio, um stefnu Bandaríkjanna í utanríkismálunum, sem valdið hefir alvarlegum ágreiningi innan vébanda Republicana- flokksins vegna þess hve hún braut í bága við yfirlýsta skoð- un Eisenhowers forseta í þeim efnum. Senator Taft er fram- sögumaður Republicana í þing- deild sinni, og mætti því ætla, að hann yrði nokkru varkárari í orði, en raun ber vitni um; ræða hans var hvorki meira né minna en blákalt vantraust á hendur sameinuðu þjóðunum vegna Kóreumálanna. „Eins og nú horfir við,“ sagði Senator Taft, „liggur beinast fyrir að við reynum sjálfir að komast að samningum um vopnahlé í Kóreu; en í því falli að okkur mistakist, er ekki um annað að ræða, en láta Englend- inga og aðra aðilja sameinuðu þjóðanna vita, að frekari sam- komulagstilraunir af okkar hálfu séu tilgangslausar og við viljum hafa óbundnar hendur varðandi afstöðu okkar til hinna ýmsu Austurlandaþjóða, sem við þurf- um að eiga mök við.“ Senator Taft er enn auðsjáan- lega þungt haldinn af sömu einangrunarsýkinni, sem ein- kent hefir jafnan hinn langa stjórnmálaferil hans. Vestur-fslendingur opnar mólverkasýningu Sigrasf ó erfiðleikum Um síðustu helgi lánaðist b r e z k u m leiðangursmönum, þrátt fyrir hættur og margs konar erfiðleika að ná hátindi Everettsfjalls, sem er hæzta fjall í heimi, og er það í fyrsta skiptið, sem dauðlegir menn hafa stigið þar fæti; margar tilraunir hafa áður verið gerðar til að ná þessu marki, er allar fóru út um þúfur; nánari fregnir verða ekki fáanlegar fyr en leiðangurs- menn koma til mannabygða, sem búist er við að verði innan tólf til fjórtán daga. Fregnin vakti geisifögnuð í London og samdi Elízabet drottning þegar heillaóskaskeyti til leiðangursmanna. Ungmenni fermd í Selkirk- söínuði á Hvítasunnudag: Ingveldur Mae Henry Beverley Joan Fiebelkorn Marín Mae Einarson Margaret Anne Einarson James Edward Oliver Wilbert Malcolm Sopher Leonard Dehu Thorbergur Gerald Jones Robert Thor 'Walterson Garry Martin Ingimundarson Thomas Thorsteinn Oliver. ☆ i í fyrri viku voru stödd hér í borginni Mr. og Mrs. A. J. Trommberg frá Hay River, North West Territories; þau komu hingað flugleiðis og heim- sóttu ættingja og vini hér um slóðir. Mrs. Trommberg er dóttir Guðlaugs Sigurðssonar á Lund- ar. Mr. Trommberg er sænskur í föðurætt, en fæddur og upp- alinn í Vestmannaeyjum; hann skipar ábyrgðarmikla stöðu fyrir sambandsstjórn að Hay River. ☆ Graduates of Icelandic extrac- tion at the University of Saskat- chewan, May 8th, 1953: Bachelor of Arts, Mildred Gudmundson, Mozart; Bachelor of Commerce, Geraldine Janet Steinson, Saska- toon; Bachelor of Science in Agriculture, Kenneth Leo Mel- sted, Wynyard; Master of Sc. in Agriculture, Conrad Gislason, B.S.A., Leslie (Nov:. 1952). ☆ All delegates going to the an- nual convention of the Lutheran Women’s League at Riverton, June 12, 13 and 14, and wishing to travel by bus, please note: An extra bus will leave the Winnipeg Bus D e p o t Friday morning, June 12, at 10 o’clock, Standard Time—11 o’clock Day- light Saving Time. It will stop at Selkirk, Husa- vick, Gimli and Arnes a little earlier than scheduled time be- cause of no other stops. The return fare from Winni- peg $3.75, from Selkirk $2.80, and from Gimli $1.15. Please be at the bus depot early and buy tickets before boarding the bus. ☆ Páll S. Pálsson skáld og frú frá Gimli voru stödd í borginni á mánudaginn. ☆ Guttormur J. Guttormsson skáld og frú Jensína komu til borgarinnar í fyrri viku; sat frú Jensína endurfund fermingar- systkina sinna við kveldverð á Fort Garry hótelinu; voru þar samankomin níu fermingarbörn séra Jóns Bjarnasonar frá 1898. Ennfremur sátu þau hjónin mót Daníelsson systkinanna, er hald- ið var á heimili Mr. og Mrs. W. Kristjánson, 499 Camden Place. 1 dag opnar ung kona sjálf- stæða málverkasýningun í Listvinasalnum. Þessi ungi listmálari, sem hér sýnir í fyrsta sinni sjálfstætt, er frú Gail Magnússon. Af íslenzku bergi brolin Gail er 24 ára, fædd í Banda- ríkjunum, en er af íslenzku bergi brotin þar í báðar ættir. Hún er gift Braga Magnússyni skólastjóra að Jaðri og kom hingað til lands með manni sínum fyrir þremur árum. * Þegar blaðamaður frá Tíman- um hitti þau hjónin í Listvina- salnum í gær var frúin búin að í tilefni krýningarinnar fóru fram hátíðahöld í skólum borg- armnar á mánudaginn; flutti W. J. Lindal, dómari, aðalræðuna á hátíð Daniel Mclntyre mið- skólans. ☆ Á föstudaginn 29. maí fór fram fjölmenn og vegleg hjónavígsla að heimili Mrs. W. Finney, við Bay End, P.O., vestan Manitoba- vatns. Voru þá gefin saman þau Þórdís Friðfinna Finney, dóttir þeirra Wilhelms og Guðnýjar Finney, og Kristján Jónasson, sonur Björns og Kristjönu Jónas- son að Silver Bay. Að afstaðinni hjónavígslunni fór fram veizla fyrir byggðarfólk í samkomu- húsi sveitarinnar. Dr. Valdimar J. Eylands framkvæmdi hjóna- vígsluathöfnina, og skírði um leið fjórtán börn. Ungu hjónin lögðu síðan af stað í skemmti- ferð vestur að Kyrrahafi. Fram- tíðarheimili þeirra verður við Silver Bay. ☆ Kvenfélag Sambandssafnaðar heldur Spring Tea í samkomusal kirkjunnar á Laugardaginn 6. júní; þar verður til sölu úrvals heimatilbúinn matur, og þar verður einnig fyrir að finna Parcel Post Table með dular- fullum pökkum á; pakkinn selst á 25 cents. Kaffi og te verður á boðstólum frá kl. 2—5.30 e. h. ☆ Mr. Sigurður Sigurðsson frá Lundar kom til borgarinnar í stutta heimsókn síðastliðinn mánudag. ☆ A meeting of the Jon Sigurd- son Chapter, I.O.D.E., will be held at the home of Mrs. A. Fischer, 659 Simcoe St., at 8.00 o’clock on Friday evening, June 5th. ☆ Gefin saman í hjónaband 'í Selkirk Man., þann 23. maí, Edward Charles Chudd, Gimli,, Man., og Elsie Effie Franksr sama stað. Við giftinguna að- stoðuðu: Miss Alda Ingibjörg Narfason og Mr. Jack Thorkel- son. Séra Sigurður Ólafsson gifti. Fró Kóreu Kommúnistar hófu snarpa sókn í lok fyrri viku á mið- og austurvígstöðvunum og unnu nokkuð á, að því er nýjustu fregnir herma; mannfall af hálfu þeirra varð gífurlegt og Suður- Kóreuherinn sætti einnig í at- rennu þessari þungum búsifjum; nú hafa fylkingar sameinuðu þjóðanna hafið gagnsókn og hrakið kommúnista til baka úr mörgum varnarvirkjum. koma sýningunni fyrir á veggj- unum. Heilluð af íslenzku landslagi Hér er um að ræða sýningu, sem mörgum mun þykja nýstár- leg. Frú Gail er ekki í ætt við nemn af hinum íslenzku málur- um, svo áberandi sé og er auð- séð, að áhrif hennar eru aðflutt. En engu að síður hefir íslenzkt landslag heillað hana til að festa litina á léreftið. Málverk hennar eru í sterkum og skærum litum. Margar myndirnar eru lands- lagsmyndir. Segist frú Gail Magnússon hafa orðið heilluð af íslandi og átt þess kost að ferðast nokkuð um landið og farið um alla landsfjórðungana nema Vestfirði. Fyrsia sýningin Á þessum ferðum hefir hún gert mikið af uppdráttum og unnið síðan málverkin. Stund- um blandar hún saman landslagi á tveimur eða fleiri stöðum á eina mynd. Þannig er eitt mál- verkið í senn af Húsavík og Hjalteyri. Þetta er fyrsta sjálfstæða sýn- ing þessarar ungu listakonu og sýnir hún 16 olíumálverk og 13 vatnslitamyndir. Áður hefir hún sýnt myndir sínar á á nokkrum samsýningum vestan hafs. Verði myndanna er mjög stillt í hóf. Flest málverkin er verð- lögð á um og innan við 1000 krónur en vatnslitamyndir flest- ar 300—400 krónur. Þau hjónin eru búin að vera búsett hér á landi í þrjú ár, eins og áður er sagt, þar sem Bragi veitir Torstöðu unglingaskólan- um að Jaðri. En í sumar hugsa þau sér að flytja aftur vestur um haf með börn sín og gefst^ þ.ví ekki í bráð tækifæri til að sjá myndir frúarinnar. —TÍMINN, 8. maí Rósu Benediktsson boðið til íslands Rósu Benediktsson í Marker- ville, Alberta, dóttur Stephans G. Stephanssonar, hefur nýlega verið boðið til íslands í tilefni af 100 ára afmæli föður hennar næsta haust. Standa að boðinu nokkrir vinir hennar hér vestra, flugfélagið Loftleiðir og íslenzka ríkis- stjórnin. Mun Rósa dveljast 7 vikur á Islandi og verða með í hópferð- inni, er um getur á öðrum stað í blaðinu. Fylgja Rósu og öllum hópnum hugheilar óskir Vestur-íslend- inga. Kvöldvaka Þjóðræknisfélags íslendinga Hér er um að ræða dagskrá, sem útvarpað var á íslandi síðastliðinn vetur; var útvarpið tekið á segulband og sent Þjóð- ræknisfélagi okkar hér. Er hér um að ræða ágæta kórsöngva og úrvals ræðumenn. Þessari dagskrá verður út- varpað frá stöðinni C.K.Y., Winnipeg, á fimtudaginn 18. júní frá kl. 9.30 til 10.30 e. h. (Daylight Saving Time), 8.30 til 9.30 (Standard Time). — Fólk er beðið að athuga tímann og aug- lýsa útvarpið svo að sem allra flestir geti notið þess. ÚR BORG OG BYGÐ

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.