Lögberg - 10.01.1957, Qupperneq 1
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y4 Lb. Tins
Makes the Finest Bread
Avallable at Tonr Favorlte
Grocer
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In % Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Available at Your Favoritc
Grocer
70. ARGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 10. JANÚAR 1957
NÚMER 2
Alvarlegt- verkfall
A miðvikudaginn hinn 2.
þ. m., hófst verkfall hjá
Canadian Pacific járnbrautar-
félaginu, er valdið hefir þegar,
$vo sem vænta mátti, alvar-
legum truflunum á vettvangi
viðskiptalífsins; verkfalls-
menn fara fram á kauphækk-
un, sem nemur 25 af hundraði
og mótmæla jafnframt kröft-
uglega þeirri staðhæfingu fé-
lagsstjórnarinnar, að kyndara
sé ekki lengur þörf á vöru-
flutningalestum, sem knúðar
séu með dieselorku; þeir halda
því fram, að öryggis vegna,
hvað svo sem kostnaðinum
líði, sé það óumflýjanlegt, að
kyndarar verði framvegis í
þjónustu áminstra flutnings-
tækja.
Líkur þykja á, að lausn
ágreiningsins náist ihnan
tveggja daga eða svo.
Fimm fylkiskosningar
Á árinu, sem leið, fóru fram
fimm fylkiskosningar í þessu
landi; lauk þeim á þann veg,
að í Quebec gekk flokkur
Duplessis forsætisráðherra,
Union Nationale, sigrandi af
hólmi í þriðja sinn með auknu
kjörfylgi. Kjósendur Saskat-
chewanfylkis endurkusu C. C.
F.-flokkinn með miklu afli
atkvæða; í New Brunswick
náði íhaldsflokkurinn endur-
kosningu, á Newfoundland
unnu Liberalar frægan sigur,
en í Nova Scotia komust
íhaldsmenn til valda undir
forustu Roberts L. Stanfields
eftir tuttugu og þriggja ára
útlegð í hinni pólitísku eyði-
mörk.
Vel til verks gengið
Framlög canadískra þegna í
líknarsjóð ungverskra flótta-
manna námu fram á annan í
jólum $253,376, auk $200,000
fjárveitingu frá sambands-
stjórn og þingi; síðan hafa
sjóðnum bæzt allmiklar fjár-
hæðir þó fullnaðartölur þeirra
séu enn eigi við hendi.
Leitar endurkosningar
Rev. Dan Mclvor, sambands
þingmaður fyrir Fort William
síðan 1935, hefir lýst yfir því,
að hann sé staðráðinn í að
bjóða sig fram af hálfu
Liberala við kosningarnar,
sem talið er víst að fram fari
seinnipart næstkomandi júní-
niánaðar. Klerkur þessi, sem
er 83ja ára að aldri, nýtur frá-
bærra vinsælda jafnt utan
þings sem innan.
Stórfyrirtæki í
uppsiglingu
Nýlega hefir verið formlega
tilkynt, að Campbell Soup
Company Limited, sem býr til
hinar frægu súputegundir,
hafi keypt 385 ekrur lands í
norðvesturhluta Portage la
PraiViebæjar með það fyrir
augum að reisa þar verk-
smiðju, er kosta muni um
þrjár miljónir dollara; áætlað
er að verksmiðjan, þegar hún
verður fullger, muni taka hátt
á þriðja hundrað manns í
þjónustu sína.
Lónveiting, sem
um munar
Fregnir frá Washington,
D.C. á laugadaginn var láta
þess getið, að stjórn Banda-
ríkjanna hafi þá nýverið veitt
íslandi fjögra miljóna dollara
lán, sennilega óafturkræft til
styrktar vöruútflutningi úr
landinu og eins til knýjandi
framkvæmda heima fyrir.
íbúatala Islands er sögð að
vera 160 þúsundir og nemur
lánið þar af leiðandi 25
dollurum á hvert mannsbarn.
Hækkar í tign
Hon. Guðmundur Grímson
Þau ánægjulegu tíðindi hafa
borist Lögbergi, að Hon. Guð-
mundur Grímsson dómari í
hæztarétti North Dakotaríkis,
hafi verið skipaður háyfir-
dómari, og að lokinni eiðtöku
á mánudaginn var, tekið við
hinu virðulega dómsforseta-
embætti.
Guðmundur háyfirdómari
er sakir víðmentar sinnar á
vettvangi lögvísinnar, dreng-
skapar og fjölþættra mann-
kosta, vel að þeirri sæmd
kominn, sem honum nú hefir
•fallið í skaut. Lögberg flytur
honum hugheilar árnaðarósk-
ir í tilefni af þessum merka
áfanga í starfssögu hans.
Efnilegur nómsmaður
Nýr íslenzkur ræðismaður>í Yancouver, B.C.
Búi Thorlacius
Þessi efnilegi námsmaðúr,
Búi Thorlacius, sem er 21 árs
að aldri, og stundar annars árs
nám í viðskiptafræði við há-
skólann í British Columbia,
hefir hlotið $150.00 námsstyrk,
en að veitingunni stendur
Board of Governors & Senate
of the University of British
Columbia.
Hinn ungi maður er sonur
Búa heitins Thorlacius, fyrr-
um að Ashern, Man. og eftir-
lifandi konu hans, Jónu Sig-
urdson—Thorlacius.
Forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson, útnefndi 2.
nóv. síðastliðinn hr. Jón F.
Sigurðsson íslenzkan ræðis-
mann í Vancouvor, B.C. Tekur
hann við því embætti af hr.
L. H. Thorláksson, .sem um
tólf ára skeið hefir verið
ræðismaður Islands í Van-
couver en óskaði eftir að vera
leystur frá ræðismanns-
embættinu vegna anna við
hina ábyrgðarmiklu stöðu,
sem hann gegnir hjá Hudson
Bay félaginu. L. H. Thorláks-
son aflaði sér frábærra vin-
sælda sem ræðismaður og
voru þau hjón alls staðar ís-
landi til heiðurs og sóma.
Jón F. Sigurðsson er, eins
og mörgum er kunnugt, eig-
andi og forstjóri fyrirtækis,
sem rekur verksmiðju í bygg-
ingariðnaði. Hefir það fyrir-
tæki verkefni frá hafi til hafs
og er nú stærst í sinni grein í
Vestur-Canada. Starfa þar
daglega um hálft annað
hundrað manns og nýtur
íyrirtækið almenns trausts.
í íslenzka lúterska söfnuð-
inum hafa þau hjónin, frú
Ingiríður og Jón F. Sigurðsson
unnið mikið og gott starf. Frú
Jón F. Sigurðsson
Ingiríður hefir verið í safnað;
ar-kvenfélaginu frá stofnun
þess og um skeið forseti. Jón
var formaður kirkjubygging-
arnefndarinnar og vann þar
ágætt verk. Er altari, pré-
dikunarstóll, lesborð, skírnar-
fontu^og kirkjubekkir unnið
í verksdjiðju Jóns og gjöf frá
þeim hjónum í minningar og
virðingarskyni við foreldra
þeirra. '
Ennfremur eru hurðir, ‘
gluggar og þilþorð úr dýrum
viði í kirkjunni unnið í verk-
smiðju Jóns.
Jón F. Sigurðsson er fæddur
á íslandi og Borgfirðingur að
ætt og uppruna, en kom til
þessa lands á bernskualdri
með foreldrum sínum og ung-
um systkinum. Er Guðríður
móðir hans enn á lífi, háöldruð
en prýðilega ern.
Jón og frú Ingiríður eiga
mjög fallegt og smekklegt
heimili, og munu fleiri og
dýrmætari viðartegundir vera
í húsi þeirra en í nokkru öðru
húsi hér á landi og þótt víðar
væri leitað. Eru þau hjónin
mjög gestrisin og góð heim
aðysækja.
Er þeim óskað til hamingju
með þann heiður, sem íslenzka
ríkisstjórnin hefir sýnt þeim,
og allir, sem þau þekkja, víta
að þau eru ágætir fulltrúar og
eru fullkomlega verðug þess
trausts og virðingar, sem þeim
hefir verið sýnd.
Heimili þeirra hjóna er að
1305 West — 48th Avenue,
Vancouver, B.C.
E. S. Brynjólfsson
EINAR P. JÓNSSON:
Eitt lítið Ijóð úr vestri
helgað biskupi íslands, Ásmundi Guðmundssyni
Bjart var yfir æsku þinni
íturhygni vinur minn;
yl frá þínum innra^manni
um mig tíðum leggja finn.
Fyrst er leiðir lágu saman
landið brann í frelsisglóð.
Vökulúðrar þori þeyttir,
þjóðin fylt af hetjumóð.
Ungum þér í brjóst var borin
bjargföst trú á helgiment.
Framkvæmd æðstu fræðslumála
fáum mönnum betur hent.
Þú varst snemma morgunmaður —
Mínerva þér fylgispök.
Fagurt málfar feldi í ramma
frumleik þinn og snillir;ök.
Frummynd þinnar fræðimensku
fanstu í sjálfri lífsins bók,
víðskygn, heillynd, heilög kirkja
huga þinn á vald sitt tók.
Skráð þú hefir ljósum litum
lindarpenna sannleikans
unga jafnt sem aldagamla
ævisögu Guðs og manns.
Æðsti prestui* okkar þjóðar,
út frá þínum biskupsstól
* breiðist yfir bygðir allar
bjarmi af nýrri morgunsól.
Bjarmi dags, er boðar lýði
blessun Drottins ást og frið,
þar sem allar •eyktir benda
inn á glæst og hærri mið.