Lögberg - 14.02.1957, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. FEBRÚAR 1957
Árbók Hóskóla íslands
Eftir prófessor RICHARD BECK
Eigi allfáir íslendingar vestan
hafs hafa sýnt í verki góðhug
sinn til Háskóla íslands og þá
um leið fagra ræktarsemi til
ættjarðarinnar; ætla ég einn-
ig, að íslendingar hér í Vest-
urheimi, sem á annað borð
láta sig skipta heill og hag
heimaþjóðarinnar — og þeir
eru enn, góðu heilli, æði
margir — vilji gjarnan fylgj-
ast með störfum og fram-
gangi æðstu menntastofnunar
hennar.
Nýlega er komin út í
Reykjavík Árbók Háskóla ís-
lands fyrir háskólaárið 1954—
1955, allmikið rit, 142 bls. í
stóru broti, og fróðleg að sama
skapi, því að þar er að finna
yfirlit yfir starfsemi háskóla-
ans á< umræddu tímabili og
þróyn hans á síðari árum.
Rektor háskólans á því
starfsári, er hér um ræðir, var
prófessor dr. phil. Þorkell
Jóhannesson, kosinn til
þriggja ára á fundi kennara
14. maí 1954. Varaforseti há-
skólaráðs var prófessor Níels
Dungal, en ritari próf. dr. phil.
Einar Ólafur Sveinsson. Deild-
arforsetar voru þessir: Pró-
fessor Björn Magnússon í guð-
fræðideild; próf. Níels Dungal
í læknadeild; próf. Ólafur
Björnsson í lagadeild og hag-
fræðideild; próf. Einar Ól.
Sveinsson í heimspekideild; og
próf. dr. Trausti Einarsson í
verkfræðideild.
Öndvegi skipar annars í
Árbókinni ræða sú, er Þorkell
rektor flutti á háskólahátíð-
inni 1. vetrardag, 23. okt. 1954,
og er hún bæði skilmerkileg
og fróðleg, og um allt hin
athyglisverðasta.
Rekur réktor meðal annars
í byrjun máls síns þær breyt-
ing&r, sem orðið höfðu á stjórn
og starfsliði háskólanS, og fer
að verðleikum miklum lofs-
og þakkarorðum um hin marg-
Hamingjuóskir . . .
til íslendinga í tilefni af 38. árþingi' Þjóðræknis-
félagsins, sem haldið verður í Winnipeg, 18.—20.
febrúar 1957.
A. S. BARDAL
L I M I T E D
843 SHERBROOK ST. WINNIPEG
Phone 74-7474
Established 1894
Hamingjuóskir . . .
til íslendinga í tilefni af 38. ársþingi Þjóðræknis-
' félagsins, sem haldið verður í Winnipeg,
18.—20. febrúar Í957.
Sargent Electric & Radio Co. Ltd.
ESTABLISHED 1927
609 SARGENT AVENUE PH. SPruce 4-3518
COMMERCIAL FISHING AND
MARINE SUPPLIES
Nylon Cotton and Linen
Gill Netting
The Fisherman's Choice
FIBERGLAS YOUR BOAT HULL
THIS YEAR
Ask for our Fiberglas Booklet giving
complete information.
Marine Hardware of All Kinds - Hand Pumps
Gear Pumps
PARK-HANNESSON LTD.
55 Arthur St.
WINNIPEG, MAN.
10228-98th St.
EDMONTON, ALTA.
þættu og mikilvægu störf í
háskólans þágu af hálfu fyrir-
rennára síns í embættinu, dr.
phil. Alexanders Jóhannesson-
ar prófessors. „Góðvild, bjart-
sýni, dugnaður og óbilandi á-
ræði hafa einkennt öll hans
störf fyrir háskólann,“ segir
Þorkell rektor um hann, og
bætir við: „Og það er ósk mín,
að starf háskólans á komandi
árum megi bera svip þeirrar
afstöðu til aðkallandi vanda-
mála, sem dr. Alexander hefir
markað á þeim tíma, er hann
veitti málum hans forstöðu.
Vil ég með þessum orðum
færa honum beztu þakkir
fyrir unnin störf.“
Þá minnist Þorkell rektor
mjög hlýlega dr. Sigurgeirs
Sigurðssonar biskups, er var
sérstaklega vinveittur háskól-
anum, og fer fögrum og mak-
legum viðurkenningarorðum
um eftirmann hans í biskups-
'embættinu, Ásmund prófessor
Guðmundsson, er starfað hafði
við ágætan orðstír sem kenn-
ari við guðfræðideild. háskól-
ans í fjórðung aldar, þegar
hann var kjörinn biskup, enda
krýndi guðfræðideildin hánn
sínum hæsta heiðri með því að
gera hann heiðursdoktor í
guðfræði, er hann lét þar af
kennslustörfum.
Einnig getur rektor ýmissa
erlendra háskólakennara, sem
heimsótt höfðu háskólann á
starfsárinu og flutt þar fyrir-
lestra, og dregur athygli að
gildi slíkra heimsókna bæði
fyrir heimsækjendur sjálfa og
háskólann, og landi og þjóð
jafnframt, beint og óbeint, til
gagnsemdar. Hann víkur einn-
ig að bókaútgáfu háskólans og
að sýningu hans á bókum, sem
út hafa komið og varða íslehzk
fræði á árunum 1911—1954;
en háskólinn gekkst fyrir sýn-
ingu þessari í tilefni af 10 ára
afmæli hin íslenzka lýðveldis,
og þótti hún hin merkasta.
Umrætt háskólaár voru inn-
ritaðir stúdentar í öllum deild-
um háskólans 744, þar af í
guðfræðideild 42, í læknadeild
234, í lagadeild 120, í við-
skiptadeild 89, í heimspeki-
deild 221, í verkfræðideild 37.
Er háskólinn, eins og rektor
bendir á, orðinn einn stærsti
skóli landsins að nemenda-
fjölda.
í síðari hluta ræðu sinnar
snýr Þorkell rektor máli sínu
til hinna nýju stúdenta; hvet-
ur þá til að hagnýta sér sem
bezt þá fræðslu og önnur
tækifæri til aukins menning-
arþroska, sem háskólinn hefir
þeim upp á að bjóða, og minn-
ir þá á skyldur þeirra gagn-
vart þjóðfélaginu. Lýkur hann
máli sínu með þessum eftir-
tektarverðu orðum:
„Ég nefni háar kröfur nú-
tímaþjóðfélags til þegna sinna
um hæfni og menntun. í okkar
litla þjóðfélagi eru þessar
kröfur sérstaklega knýjandi.
Það leiðir af sjálfu sér, að í
þegnfélagi 150 þús. manna
varðar sérstaklega miklu, að
hver einstaklingur reynist
fullkomlega gagnsmaður. í
rauninni þyrfti hann að vera
ígildi margra manna. Við ís-
lendingar höfum færzt það
stórvirki í fang, að hefja sjálfa
okkur og land okkar frá er-
HAMINGJUÓSKIR . . .
til íslendinga í tilefni af 38. ásrþingi
þjóðræknisfélagsins, sem haldið
verður í Winnipeg, 18-20 feb. 1957.
ROBERTS & WHYTE
DRUGGISTS
SARGENT at SHERBROOK 1 WINNIPEG
%
Congrafulations . . .
to the lc^landic People on the occasion of the
thirty-eighth annual gathering of the lcelandic
National League in Winnipeg, February 1 8th
to 20th, 1957.
"It's Super in Every Respect"
SKY CHIEF SERVICE
Texaco Products - Marfak Lubrication
SARGENT and BANNING WINNIPEG
J. DERRICK, Prop. SUnset 3-1142
Weiller & Williams Co., (Man.) Ltd.
UNION STOCK YARDS Sl. Boniface, Man.
Vér grípum þetta tækifæri til að flytja hinum íslenzku
viðskiptamönnum vorum hugheilar kveðjur. Við
þökkum viðskiptin á undangengnum árum og væntum
þess að geta veitt ykkur greiða og góða afgreiðslu í
framtíð. Hafið hugfast, að vér veitum smáum gripa-
sendingum nákvæmlega sömu skil og þeim, sem
stærri eru.
CHARLEY LADIN President
WILIAM J. McGOUGAN Manager
Congratulations to . . .
the lcelandic People on the Occasion of
the Thirty-Eighth Annual Gathering of the
lcelandic National League in Winnipeg,
1957.
The British American Oil Co. Itd.
(REST ROOMS CLEAR ACROSS CANADA)