Lögberg - 21.02.1957, Síða 3

Lögberg - 21.02.1957, Síða 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 21. FEBRÚAR 1957 3 Nýr forsætisráðherra í Japan Hann boðar breyíta og óháða stefnu í utanríkismálum Fáum dögum fyrir jólin, gerðist sá atburður á þingi Sameinuðu þjóðanna, að þátt- taka Japans í þeim var sam- þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Áður hafði Ör- yggisráðið samþykkt inn- göngu Japans með öllum greiddum atkvæðum. Japanir tóku síðan sæti á þingi Sam- einuðu þjóðanna. Við þann atburð, lýstu þeir yfir því, að þeir myndu hafa þar samstarf við aðrar Asíu- og Afríku- þjóðir, en þó fylgja óháðri og sjálfstæðri stefnu í utanríkis- málum yfirleitt. Það kom strax í ljós á þing- inu, að Japanir ætla sér að láta þar mikið til sín taka, eins og þeir gerðu líka í þjóða- bandalaginu gamla. Strax á öðrum degi, komu þeir til veg- ar þrátefli um kosningu Al- þjóðadómstólsins. Kínverjinn, sem átti sæti í dómnum, hafði fallið frá, og var ráðgert að kjósa annan Kínverja í sæti hans það sem eftir var af kjör- tímabilinu. Til þess að hljóta sæti í dómnum, þarf viðkom- andi maður að fá meirihluta atkvæða bæði í öryggisráð- inu og á allsherjarþinginu. í öryggisráðinu hlaut Kínverj- inn tilskilinn meirihluta, en á allsherjarþinginu hlaut jap- anskur maður fleiri atkvæði en Kínverjinn og hélzt það, þrátt fyrir endurteknar at- kvæðagreiðslur. Afleiðingin varð sú að fresta varð málinu fram yfir áramót, þar sem allsherjarþingið og öryggis- ráðið gátu ekki komið sér saman. Kom þetta allmikið á óvænt, en ástæðan var, að Japanir höfðu rekið mjög klóklegan áróður fyrir fram- bjóðanda sinn og orðið meira ágengt en búist hafði verið við. Þykir þetta sýna, að Japanir séu ákveðnir í því að láta til sín taka á alþjóðlegum vett- vangi í vaxandi mæli hér eftir. Ástæðan til þess, að Japanir fengu ekki fyrr inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar var sú, að Rússar beittu neitunarvaldi í öryggisráðinu til að hindra inngöngu þeirra. Fyrst byggðu Rússar þessa synjun á því, að þeir hefðu ekki gert friðar- samning við Japani, en síðar gerðu þeir það að skilyrði, að Ytri-Mongólía yrði jafnhliða tekin í S. Þ. og Japan. Frá þessu skilyrði sínu féllu Rúss- ar á síðastliðnu sumri, þegar samkomulag náðist milli þeirra og Japana um friðar- samninga. Stjórnmálasam- band hefir nú verið tekið upp á milli landanna og er búist við auknum samskiptum milli þeirra í framtíðinni. Um líkt leyti og Japanir fengu inngöngu í S. Þ., gerðist annar atburður heima í Japan, sem er líklegur til að hafa það í för með sér, að talsverð breyting verði á utanríkis- stefnu Japana. Formanns- skipti urðu þá í íhaldsflokkn- um japanska, sem hefir meiri- hluta á þingi og fer því með stjórn landsins. Hatoyama forsætisráðherra lét þá af for- mennskunni' sökum heilsu- leysis, en það þýddi jafnframt, að hann léti af stjórnarforustu, er þing kæmi saman, og að hinn nýi flokksformaður tæki þá við. Af þessum ástæðum var for- mannskosningunni talsverð athygli veitt. Tveir menn kepptu aðallega um for- mennskuna, Nobusuke Kishi, sem vildi fylgja óbreyttri stjórnarstefnu, og Tanzan Ishibashi, ,er lýsti sig fylgj- andi breyttri utanríkisstefnu. Kishi þótti lengi vel sigurvæn- legri, en úrslitin urðu þau, að Ishibashi bar sigur úr býtum með sjö atkvæða meirihluta. í framhaldi af sigrinum í formannskosningunni, hefur Ishibashi nú myndað nýja stjórn. Til þess að jafna þær viðsjár, sem urðu í sambandi við formannskjörið, gerði Ishibashi hinn fallna keppi- naut sinn, Kishi, að utanríkis- ráðherra. Líklegt þykir, að það verði til þess, að Kishi sýni honum fulla hollustu. Fyrir formannskjörið lýsti Ishibashi yfir því, að hann vildi gera tvær veigamiklar breytingar á utanríkisstefn- unni. önnur var sú, að tekin yrði upp stóraukin verzlunar- viðskipti við Kína, og helzt komið á stjórnmálasambandi milli landanna, en það hefur ekki verið síðan kommúnistar tóku völdin í Kína. Hin breyt- ingin var sú, að teknir yrðu upp samningar við Banda- ríkjamenn um herstöðvar þeirra í Japan, og yrði m. a. samið unj brottflutning amer- íska hersins þaðan fyrir á- kveðinn tíma. Bandaríkin hafa nú leyfi til að hafa her- stöðvar í Japan í ótiltekinn tíma. Hinn sameinaði Jafnaðar- mannaflokkur, sem er lang- stærsti stjórnarandstöðuflokk- ur landsins, hefur lengi barizt fyrir báðum þessum málum, en stjórnin ekki viljað taka kröfur hans til greina. Að öðru leyti hefur Ishi- bashi lýst því sem utanríkis- stefnu sinni, að Japanir kapp- kosti góða samvinnu við lýð- ræðisríkin, en standi þó utan allra hernaðarsamtaka. Mikil áherzla verði lögð á aukin verzlunarviðskipti við önnur lönd. 1 innanlandsmálum hefur Ishibashi lýst yfir sem stefnu sinni, að hann vilji aukna kaupgetu almennings og örfa sem mesta hreyfingu fjár- magnsins. Það muni kalla á aukið framtak og framleiðslu. Andstæðingar hans í íhalds- flokknum telja þessa stefnu hættulega, því að hún muni hafa verðbólgu í för með sér. Tanzan Ishibashi er 72 ára gamall, þegar hann tekur við stjórnarforustunni. Hann ber aldurinn vel og virðist því enn í fullu starfsfjöri. Faðir hans var Buddha-prestur. Ishibashi lagði stund á heims- speki við þekktasta háskólann í Tokíó og þótti frábær náms- maður. Að háskólanámi loknu gerðist hann blaðamaður og vann sér mikinn orðstír á því sviði. Nokkru fyrir síðari heimsstyrjöldina varð hann ritstjóri þekktasta fjármála- blaðs Japana. Ishibashi varð fyrst ráð- h^rra, er Yoshita gerði hann að fjármálaráðherra. Hann varð að láta af ráðherrastörf- um á næsta ári, því að her- námsstjórn Bandaríkjanna taldi hann hafa haft of náin skipti við þá menn, sem báru ábyrgð á styrjöldinni. Mál var þó ekki höfðað gegn honum. Síðan hefur verið kalt'milli hans og Bandaríkjamanna og fóru þeir áðurnefndu ekki dult með, er formannskjörið í Ihaldsflokknum stóð yfir, að þeir töldu hann sér andstæð- astan af þeim, er tóku þátt í þeirri keppni. Á árunum 1947—1951 fékk Ishibashi ekki að taka þátt í stjórnmálum vegna banns Bandaríkjamanna. Árið 1951 fékk hann leyfi til að hefja afskipti af stjórnmálum að nýju, en lenti þá strax í deil- um við Yoshita forsætisráð- herra, er lét reka hann úr liberala flokknum. Þegar Yoshita missti stjórnarforust- una 1954, hækkaði stjarna Ishibashi að nýju. Hann var þá gerður að ráðherra yfir utanríkisverzluninni og hefur hann gegnt því starfi síðan. Ishibashi er sagður vel efnaður. Hann er sagður skemmtilegur samkvæmis- maður og hafa góðan smekk fyrir mat og vín. Hann málar í tómstundum sínum líkt og Eisenhower og Churchill. Ishibashi hefur, eins og rak- ið hefur verið hér að framan, boðað, að ýmsu leyti breytta stjórnarstefnu, bæði út á við og inn á við. Kunnugir telja, að hann sé maður líklegur til að láta ekki sitja við orðin tóm. Stjórnarforusta hans er talin boða, að Japanir muni láta stórum meira til sín taka á alþjóðlegum vettvangi en áður og að þeir muni aftur byrja að sækjast eftir áhrifum i Asíu. Bæði Kínverjar og Ind- verjar fái nú að finna, að þeir hafi eignast keppinaut, sem ekki vilji síður en þeir hafa forustu um mál Asíu. Japanir standa að því leyti betur að vígi, að þeir eru komnir miklu lengra á iðnaðarbraut- inni en bæði Kínverjar og Indverjar,, og geta því veitt hinum smærri Asíuþjóðum miklu meiri aðstoð og leiðsögn á því sviði en hinar stórþjóð- irnar tvær. Og því má heldur ekki gleyma, að Japanir hafa Business and Professional Cards Minnist .BETEL í erfðaskrám yðar SELKIRK METAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- vi8, heldur hita frá a8 rjúka út meö reyknum.—SkrifiS, simiB til KELLY SVEINSSON 625 Wall St. Winnipeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431 $3.00 per House Call EXPERT TECHNICIAN 24-HOUR PHONE SERVICE B.E.M. Television & Radio Service PHONE SPruce 5-2875 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPÖRATE SEALS CELLULOID buttons 324 Smilh Sl. Winnipeg PHÖNE 92-4624 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr. Keystone Fisheries Limited Wholesale Distrlbutors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Loulse Street Sími 92-5227 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá bezti. StofnaC 1894 SPruce 4-7474 Van's Electric Ltd. 636 Sargenl Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnsei 3-4890 EGGERTSON FUNERAL HOME Dauphin, Maniioba Eigandi ARNI EGGERTSON. Jr. Dr. P. H T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary's and Vaughan, Winnipeg Phone 92-6441 SPruce 4-7855 ESTIÍ^^ J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shingle* Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. Office Phone Res. 92-4762 SPruce 2-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 pm. and by appointment. Muir's Drug Slore Lld. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST * SERVTNG THE WEST END FOB 27 YEARS SPruce 4-4422 Ellice & Home PARKER, TALLIN. KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadlan Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnípeg 2, Man. Phone 92-3561 Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical Bldg. SPruce 4-0222 Weston Office: Logan&Quelch SPruce 4-5818 Res.: SPruce 4-0118 Thorvaldson, Eggerison, Basiin & Slringer ^ Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. PHONE 92-8291 S. A. Thorarinson Barrister and Bolicitor 2nd Floor Grown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office Phone 92-7051 Heimasími 40-6488 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leig.ia hús. Öt- vega peningal&n og eldsábyrgtS, bifreiCa&byrgð o.s. frv. Phone 92-7538 Dunwoody Saul Smilh & Company Chartered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnipeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Arlington Pharmacy Prescription Speciálist Cor. Arlington and Sargenl SUnset 3-5550 We collect light, water and phone bills. Posl Office stefnunnar í Asíu. Þeir geta enn átt eftir að hafa örlagarík áhrif á þróunina í þessari lagnsamlega mannflestu álfu heims. Þ. Þ. —TÍMINN, 4. jan. The Business Clinic Anna Larusson — Florence Kellett 1410 Erin Street Phone SPruce 5-6676 Bookkeeping - Income Taz Insurance

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.