Lögberg - 21.02.1957, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 21. FEBRÚAR 1957
Lögberg
Gefið út hvem fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitob^
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjðri: INSIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Dögberg” is published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa
PHONE »3-9931
Ræða forseta, Valdimars J. Eylands,
við setningu 38. ársþings Þjóðræknisfélags íslendinga
í Vesturheimi, Winnipeg, Man., 18. febrúar 1957.
Góðir áheyrendur:
Á sólbjörtum sumardegi getur naumast fegurra útsýni á
landi feðra vorra, íslandi, en það er blasir við augum á
Kambabrún í Árnessýslu. Þar eru menn bókstaflega talað,
staddir á ofurháu fjalli, og sjá þaðan mikla dýrð. Þar breiða
sig fram undan, í austri og suðri hinar blómlegustu sveitir
íslands. Grænar grundir og hæðadrög liggja eins og landa-
bréf fyrir fótum vegfaranda, og það er sett rauðum og hvítum
deplum hér og þar. Eru þetta reisulegir sveitabæir, oftast
mjallhvít steinhús með rauðum þökum. Hvítá, sem er eitt
mesta vaatnsfall á íslandi, fellur í mjúkum bugðum um þessar
litríku og fögru sveitir, og leggur leið sína til sjávar í breiðum
ósi, sem einnig sést í fjarlægðinni eins og fagurt fjarðar
mynni. En Hvítá er ekki öíl þar sem hún er séð, og ekki ávalt
eins hægfara eða lygn eins og hún er á þessum slóðum. Hún
kemur undan risa háum jöklum inn á hálendinu, og á leiðinni
gleypir hún í sig ýmsar stórár, svo að þær hætta að vera til.
í Hvítá er Gullfoss, eitthvert hið mesta náttúru-undur Evrópu.
Fyrir neðan Gullfoss fellur áin í djúpum stokkum með stríðu
og þungu straumfalli og miklum hávaða. En að lokum fer
fyrir Hvítá eins og systrum hennar, sem hún sogar í* sig
hér og hvar á leið sinrii. Áður en leiðin er öll breytir hún
bæði stefnu og nafni, og fellur loks til sjávar undir öðru nafni
en því er hún bar lengst, og um allt rólegri og spakari í förum.
Það eru aðeins nokkrir síðustu áfangar árinnar, sem sjást
af Kambabrún.
Menn kunna nú að spyrja: Hvaða erindi á þessi landa-
fræðis-lexía inn á þjóðræknisþing hér vestur í Winnipeg?
Ég svara því og segi að hér sé ekki aðeins um lexíu að ræða
úr landafræði Islands, heldur dæmisögu, sem hljóðar upp á
félag vort. Ég hugsa mér, að vér, sem hér erum staddir til
að halda þjóðræknisþing í 38. sinn hér vestan hafs, nemum
staðar á eins konar Kambabrún í annarlegri merkingu. Þj'óð-
ræknisfélagið er eins konar Hvítá, sem hefir veitt frjómagni
íslenzkra erfða yfir byggðir og bú Vestur-íslendinga í hart
nær 40 ár. Eins og Hvítá á sér uppsprettur undir háfjöllum
Islands, svo getur og félag vort rakið sögu sína — sýnt fram
á aðrennslið — allt frá upphafi landnámssögu vorrar. Eins og
Hvítá er mjög mismunandi að útliti og straumþunga á ýmsum
stöðum á hinum langa farvegi sínum, fellur stundum fram
með fossadin og flúðahjali, en stundum mjög hægt og hávaða-
laust, einkum þegar nær ósum dregur, svo er það og um félag
vort. Ýmsir þættir sögu þess eru litríkir eins og Gullfoss í
sólskini, stundum eru iðuföll og mikill hávaði, en svo er aftur
logn og ládeyða. Hinar mörgu ár, sem Hvítá dregur til sín á
leiðinni til sjávar, eru lífgjafar hennar. Svo er það og um
deildirnar mörgu, sem mynda þetta félag vort; þær eru
félagið. Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi, er ekki í
Winnipeg, það er í öllum byggðum vorum þar sem deildir eru
starfandi. Ef aðrennslið þrýtur að Hvítá, verður hún næsta
lítil. Ef að deildir Þjóðræknisfélagsins tærast upp, þá eru
dagar félagsins taldir. Þess vegna er oss hollt að nema staðar
á þessari Kambabrún og litast um. Áin er sem einn samfelldur
þráður, og ekki hægt að afmarka neinn sérstakan spöl. Þannig
er saga þessa félags eins og elfan, sem að ósi streymir. Það
er ekki nýtt vatn í ánni á neinum tilteknum stað, og ekki
heldur neitt nýtt efni í sögu þessa félags, heldur er það
framhaldssaga.
Er vér nú nemum staðar á Kambabrún þessa 38. þjóð-
ræknisþings, og horfum á þann spöl árinnar, sem við augum
blasir, hvað sjáum vér þá? Jú, vér sjáum ofurlitla kvísl, sem
rennur næsta hljóðlaust og feimnislega um fremur hrjóstrugt
land. Stundum virðist engu líkara en að frumskógarnir hafi
gert samning með sér um að fela og gleypa þessa litlu þjóð-
ræknissprænu íslendinga í Ameríku. Menn spyrja: Er ekki
tími til kominn að Þjóðræknisfélagið fari að eins og Hvítá, og
breyti um stefnu og nafn? Eða er það of seint? Erum vér
þegar komnir út undir ósa, og um það bil að hverfa í ómælis-
haf hinnar verðandi heimsmenningar vestan hafs? Það er
sagt að sjór sé ósaltur langt á
haf út, þar sem Hvítá fellur til
ósa. Hvaða áhrif skyldi Þjóð-
ræknisfélagið hafa haft þegar
saga þess er öll, eða íslenzka
þjóðarbrotið vestan hafs? Það
er önnur saga, sem ekki verð-
ur rakin hér, enda yrði það
ekki saga heldur spádómur
enn sem komið er.
Ýmsum mun finnast að
æskufjörið sé horfið úr þessu
félagi voru. Þessi Hvítá ryðst
ekki fram með dunum og
dynkjum, eins og í gamla
daga, þegar risarnir voru uppi.
Hið umliðna ár hefir verið
tímabil lítilla átaka og lítilla
framkvæmda, sem hægt sé að
hrósa sér af. En engu að síður
hefir verið haldið í horfinu, og
er það í sjálfu sér góðra gjalda
vert.
Áður en lengra er haldið, er
rétt og maklegt að geta þeirra
meðlima félagsins, sem látizt
hafa á árinu: Hinn háæru-
verðugi fyrrv. landstjóri
Canada: Jarlinn af Athlone;
heiðursverndari félagsins; Dr.
Sigurður Júlíus Jóhannesson,
heiðursfélagi; Jón M. Gísla-
son, Morden; Oddur Swanson;
Bjarni Árnason; Jóhann Pét-
ursson; Bjarni Skagfjörð, allir
frá Selkirk; Friðrik P. Sig-
urðsson, Árborg; Hjörtur
Bergsteinsson, Craik, Sask.;
séra Guttormur Guttormsson;
Chris Halldórsson, þingmaður;
Ófeigur Sigurðsson, Red Deer;
Mrs. Margaret J. Benedictson,
Anacortes, Wash.; Mrs. J. E.
Gailbrath; Mrs. Anna Ólafson;
Oddur Brandson, Ludvig
Hólm; Jónas Þorvarðsson,
Winnipeg; Friðfinnur Einars-
son, Gimli.
Stjórnarnefndin hefir hald-
ið allmarga fundi á árinu; hafa
þeir flestir verið haldnir á
bækistöð nefndarinnar í skóla
húsinu gamla á Home Street.
Hefir nefndin fjallað um hin
venjulegu starfsmál, og þau
sérmál sem til hafa fallið, á
milli þinga. Hin venjulegu
starfsmál hafa, eins og að
undanförnu, verið útbreiðslu-
málin, fræðslumálin og sam-
vinnwmálin við 1 s 1 a n d.
Hefir nefndin leitast við
eð efla þessar starfsgreinar
eftir mætti, en orðið minna
ágengt en æskilegt hefði verið,
einkum að því er snertir út-
breiðslumálin. En auk nefnd-
arinnar hafa einstakir menn,
sumir meðlimir stjórnar-
nefndarinnar, og aðrir, látið
r.okkuð til sín taka á þessum
sviðum, og orðið töluvert
ágengt. Þess skal getið, að
heimför varaskrifara, Finn-
boga Guðmundssonar pró-
fessors til íslands á árinu, var
mikill skaði fyrir félagið hér
vestra. Finnbogi hafði dvalizt
hér vestra rúmlega hálft
fimmta ár og reynzt ötull
starfsmaður félagsins. En með
heimför harís höfum vér eign-
ast góðan talsmann á ættjörð-
inni. Undanfarna mánuði hef-
ir hann starfað að því að sýna
kvikmynd þá hina miklu, sem
'iann og Kjartan Ó. Bjarnason,
myndatökumaður frá Kaup-
mannahöfn, tóku víðsvegar
hér vestan hafs. Hefir Finn-
bogi ferðast með mynd þessa
víða um landið, talað fyrir
henni og skýrt hana fyrir á-
horfendum. Hefir myndinni
verið vel tekið um land allt og
hún aukið mjög þekkingu
heimaþjóðarinnar á oss hér
vestra. Þá hefir Finnbogi gefið
út bók, sem hann nefnir:
Foreldrar mínir. Er þar um að
ræða safn nokkurra ritgjörða
eftir Vestur-íslendinga um
þetta hugþekka efni. Er bókin
öll hin prýðilegasta að frá-
gangi, og útgefanda til hins
mesta sóma. — 1 erindi, -sem
forseti þessa félags flutti í
Ríkisútvarp Islands í sumar
sem leið, þakkaði hann Finn-
boga í nafni félagsins fyrir
störf hans hér vestra, og ósk-
aði honum allra heilla. Veit ég
að þingheimur tekur undir
þær árnaðaróskir heilum
huga.
Eins og áður hefir dr.
Richard Beck, fyrrverandi for-
seti félagsins, stutt starf þess
með ýmsum hætti,- og haldið
áfram þjóðræknis- og land-
kynningarstarfsemi sinni á
Öðrum sviðum. Hann flutti
kveðjur félagsins og forseta
þess á lýðveldishátíðinni á
Mountain, N. Dak., er hann
stýrði. Ennfremur átti hann
samvinnu við stjórnarnefnd
félagsins um heimsóknir og
ræðuhöld þeirra Tómasar
Guðmundssonar skálds, séra
Jóns Þorvarðssonar, og Stein-
dórs Steindórssonar yfirkenn-
ara, og ráðstafaði ferðum
þeirra og ræðuhöldum í
Norður-Dakota í samráði við
forráðamenn þjóðræknisdeild-
arinnar „Bárunnar,“ og aðra
byggðarbúa. Hann hefir einn-
ig á starfsárinu haldið fjölda
af ræðum um norræn og ís-
lenzk efni, meðal annars flutti
hann fyrirlestra um íslenzkar
bókmenntir á ríkisháskólan-
um í Kansas, Lawrence,
Kansas, og á ríkisháskólanum
í Utah í Salt Lake City, erindi
um norræna menningu í árs-
veizlu Félags norrænna
manna í Kansas City, Mis-
souri, og ávarp um varðveizlu
íslenzkra erfða á samkomu ís-
lendinga í Los Angeles. Núna
um hátíðaleytið var útvarpað
eftir hann af segulbandi yfir
íslenzka Ríkisútvarpið er-
indum um þá skáldin Þorstein
Þ. Þorsteinsson, og dr. Sigurð
Júlíus Jóhanneesson. Má í því
sambandi geta þess að hann
flutti nýlega eiit þúsundustu
ræðu sína eða erindi á sam-
komum í Bandaríkjunum,
Canada og á Norðurlöndum
síðan hann kom til ríkishá-
skólans í Norður-Dakota,
haustið 1929, og hefir allur
þorri af þeim ræðum fjallað
um íslenzk og norræn efni. Og
fjölmargar eru þær ræðurnar,
sem hann hefir á því tímabili
flutt á vegum Þjóðræknisfé-
lagsins, beint og óbeint. Hann
hefir einnig, á umræddu ári
ritað mikið um íslenzk efni
beggja megin hafsins. í haust
kom út í Reykjavík ljósprent-
uð önnur útgáfa af þýðinga-
safninu Icelandic Lyrics, er
hann safnaði til og út kom
1930, en sú bók, sem selst hefir
1 þúsundum eintaka og borið
hróður íslenzkra skálda víða
um lönd, hefir lengi verið
uppseld. Af nýjum ritgerðum
hans á ensku um íslenzk efni
má nefna allítarlega grein um
Stephan G. Stephansson, er
kom í sumar í tímaritinu
American Scandinavian
Review í New York, og yfir-
litsgrein um Islands í alfræði-
ritinu The World Book En-
cyclopedia, sem notuð er í
skólum um öll Bandaríkin og
víðar um lönd.
Niðurlag í næsta blaði
ADDITIONS
to Betel Building Fund
Frá Winnipeg, Manitoba
Dr. & Mrs. R. M. Marteinsson,
Ste. 6,
260 Toronto Street, $50.00
Mr. & Mrs. G. Levy,
185 Lindsay Street, $56.90
Mr. & Mrs. H. S. Bjarnason,
1010 Garfield Street, $50.00
Mr. & Mrs. Ingi Bjornson,
1077 Spruce Street, $30.00
-----------0----
Kristján T. Magnússon,
Víðir, Manitoba, $20.00
Kaupið Lögberg
VÍÐLESNASTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
"Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
---—180
—160
—140
Make your donatlons to the
"Betel" Campaign Fund,
123 Prlncees Street.
Wlnnlpeg 2.