Lögberg


Lögberg - 14.03.1957, Qupperneq 3

Lögberg - 14.03.1957, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. MARZ 1957 S Opið bréf t-il deilda Þjóðræknisfélagsins Kæru félagssystkin! Eins og skýrt hefir verið frá í íslenzku vikublöðunum, var ég undirritaður á nýafstöðnu þjóðræknisþingi kosinn for- seti Þjóðræknisfélagsins fyrir næsta kjörtímabil í stað dr. Valdimars J. Eylands, er baðst undan endurkosningu. Áður en lengra líður fram á starfs-' árið þykir mér þess vegna fara vel á því að senda deild- Urn félagsins, og þá um leið félagsfólki í heild sinni, nokk- ur kveðju- og hvatningarorð. Auk fráfarandi forseta, óaðst ritari félagsins, frú Ingi- ^jörg Jónsson, einnig undan endurkosningu. Er mikil eftir- sjá að þeim báðum úr stjórn- arnefndinni, og þakka ég þeim, í félagsins nafni, margra ara starf í þágu þess; má ég óhætt treysta því, að trúnað- Ur" þeirra við málstað félags- ms er óbreyttur sem og fús- leiki þeirra til að leggja mál- um þess lið. Ritari var kjörinn Haraldur Ressason prófessor, en vara- ritari W. J. Lindal dómari; eru Þeir nýliðar í stjórnarnefnd- Jnni og býð ég þá velkomna til samstarfs á þeim vettvangi, en báðir eru þeir að góðu kunnir fyrir áhuga sinn á íslenzkum menningarmálum. — Gegnir Sama máli um a'ðra embættis- menn félagsins, er allir voru endurkosnir. Veit ég því, að eg má vænta góðrar samvinnu af þeirra hálfu. ^jóðræknisþingið var mjög særnilega sótt eftir atvikum °g þar ríkti góður félagsandi. ^fargar deildir áttu fulltrúa á þinginu, og var þeirra lengst að kominn fulltrúi deildarinn- ar »Ströndin“ í Vancouver, og er það mjög til fyrirmyndar að senda fulltrúa svo langa leið, enda hefir þess að verð- leikum verið sérstaklega getið bæði í skýrslu forseta og ann- ars staðar. En allar eiga deild- lranr þakkir skilið fyrir að Senda fulltrúa á þingið, og tekur það einnig til fulltrú- auna sjálfra og annars félags- ólks, er þingið sótti, sumt um angan veg. Það sýnir í verki ^uga á málum félagsins. eta ber einnig að verðleik- ^ góðar skýrslur frá þeim eildum, er eigi sáu sér fært, JSrlægðar vegna, að senda fullt rua, en halda eigi að síður ^erki starfsins á lofti Frá hinum opinberu sam- °mum í sambandi við þingið , efir einnig verið sagt ítarlega ! blöðum, en þær voru hinar agætustu og prýðisvel sóttar. g sannarlega eru þessar ár- egu samkomur hvorki minnsti Ue lítilvægasti þáttur þings rns. Þær sameina fólk um mál- félagsins, varðveizlu ís enzks máls og menningar- frfða; láta okkur halda betur ls enzka hópinn; eru, í fáum j um sagt, sumarauki í and- egum skilningi mitt í vetrar- borkunum. Þingið fjallaði, eins og ávalt að undanförnu, um þau málin, sem fyrir löngu eru orðin fastur liður í starfsskrá þess, svo sem fræðslumál, út- breiðslumál, samvinnumál við Island og útgáfumál. Allmikl- ar umræður urðu einnig um nauðsyn sameiginlegs heimilis í Winnipeg fyrir íslenzk fé- lagsleg samtök, og var það mál sett í milliþinganefnd, á- samt öðrum málum, t. d. minja safnsmálinu og skógræktar- málinu. Stjórnarnefndinni voru einnig venju samkvæmt falin ýms mál til frekari athugunar og fyrirgreiðslu, er hún mun leitast við að leysa af hendi eftir því sem fjárhagur félags- ins og aðrar ástæður leyfa. Veit ég, að stjórnarnefndin muni vera mér sammála mn Dað, að sérstaka áherzlu beri að leggja á það að efla sam- oandið við deildir félagsins og styðja þær í starfi, bæði með íeimsóknum af hálfu nefnd- arinnar, eftir því, sem fært reynist, og með öðrum hætti. Hefi ég í huga að heimsækja á árinu eins margar deildanna og mér er unnt, og hefi þegar gert nokkrar ráðstafanir í þá átt. En það liggur í augum uppi, hver megin grundvöllur deildirnar og starfsemi þeirra eru félaginu og viðleitni þess, án þess að lítið sé gert úr fram lagi og liðstyrk einstakra fé- lagsmanna- og kvenna, en þeim ber að fjölga eigi síður en deildafólki. Innan vébanda Þjóðræknisfélagsins er, sam kvæmt stefnuskrá þess, svo „hátt til lofts og vítt til veggja“, að þar eiga allir þjóð- ræknissinnaðir Islendingar að geta fundið sig heima. En svo að vikið sé aftur að stjórnarnefndinni, þá er ó- þarft að fjölyrða um það, að allir, sem þar eiga sáeti, vinna þau félagsstörf sín í hjáverk- um frá ýmsum og löngum æði tímafrekum skyldustörfum. Má hið sama vitanlega segja um embættismenn deilda og félagsfólkið í heild, er lætur sig mál félagsins verulega skipta. En hins er þá jafn- framt að minnast, að það eru ekki síztu eða lítilsverðustu verkin í lífinu, sem menn vinna af ást á málefninu eða viðfangsefninu, og óhætt má segja, að engin störf þroska mann meir eða eru fremur mannbætandi. Klettafjalla- skáldið vissi undur vel hvað hann söng, er hann orti þessar ódauðlegu ljóðlínur: Að hugsa ekki í árum, en öldum, að alheimta ei daglaun að kvöldum! —því svo lengist mannsævin mest. 1 því sambandi vil ég einnig á það minna, að þessi félags skapur oðcar, sem helgaður er hugsjónalegri menningarlegri starfsemi, á sér senn 40 ár að baki, því að fertugsafmæli fé- agsins stendur fyrir dyrum innan tveggja ára. í því felst bæði áminning og eggjan til dáða. En að afmælinulnun ég víkja oftar og ítarlegar síðar. Ég sendi ykkur, félagssyst- kini góð, þessi ávarpsorð mín um eina íslenzka farveginn á opinberUm vettvangi, er nær til ykkar sem flestra í dreif- ingunni í þessari víðlendu álfu, — í dálkum vestur- íslenzku vikublaðanna. Jafn- framt er einnig dregin athygl- in að því, hver tengitaug, já, líflaug, þau eru í allri okkar Djóðræknislegu viðleitni og félagslegu starfi. Það skyldi alltaf munað og metið, og sæmir okkur öllum, félagsleg- um samtökum og einstakling- um, að styðja þau og hlúa að framhaldandi útgáfu þeirra af fremsta megni, því að slitni sú taugin, mun fleiru fljótlega lætt. Það, sem ég vildi síðan segja við ykkur að málslokum, er aezt sagt í tveim erindum úr „lslandsminni“ séra Matthías- ar Jochumssonar „Eitt er andið ægi girt“. Fyrra erind- ið, en þau eru bæði alkunn, er á þessa leið: Eitt er landið, ein vor þjóð, auðnan sama beggja; eina tungu, anda, blóð, aldir spunnu tveggja: Saga þín er saga vor, sómi þinn vor æra, tár þín, líka tárin vor, tignar landið kæra! \ Þannig dregur hið andríka skáld fagurlega athyglina að menningararfinum mikla og dýrmæta, sem við viljum varð veita og ávaxta í lengstu lög hér á vestrænni grund. Og skáldið segir ennfremur: Græðum saman mein við mein, metumst ei við grannann, fellum saman stein við stein, styðjum hverjir annan; plöntum, vökvum rein við rein, ræktin skapar framan. Hvað má höndin ein og ein? Allir leggi saman! Mér, sem öðrum, er vinna að þjóðræknismálum okkar er það fyllilega ljóst, hverja örðugleika við. eigum við að glíma í þeim efnum. Þar er óneitanlega um margt á bratt- ann að sækja. En látum okkur fara að dæmi fjallklifrenda, er bók- staflega talað binda sig saman til trausts og öryggis á fjall- göngunni, og ná með þeim hætti, með sameiginlegum á tökum, ósjaldan settu marki upp á tindinn. Treystum fé- lagsböndin, þjöppum okkur saman um merki félagsins, en með trú á málstaðinn, sam stilltum kröftum, vilja og fórnarlund má miklu til vegar koma í hvaða máli sem er. I þeim anda ávarpa ég ykk Business and Professional Cards Minnist BETEL • í erfðaskrám yðar SELKIRK HETAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvöm, og ávalt hrelnlr. Hitaeinlngar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá aB rjúka út metS reyknum.—Skrifiö, simiÖ tll KELLY SVEINSSON 625 Wall St. Winnlpeg Just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431 $3.00 per House Call EXPERT TECHNICIAN 24-HOUR PHONE SERVICE B.E.M. Television & Radio Service PHONE SPruce 5-2875 S. O. BJERRING Canadian Stamp Co. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & COJIPÖRATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smilh St. Winnipeg PHONE 92-4624 G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Dlstributors of FRESH AND FROZEN FISH 60 Loulse Street Sími 92-6227 A. S. BARDAL LTD. FUNERAL HOME 843 Sherbrook Street Selur likkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá beztl. Stofnaö 1894 SPruce 4-7474 Van's Electric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized. Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnset 3-4890 eggertson FUNERAL HOME Dauphin, Manitoba Eigandi ARNI EGGERTSON, Jr. Dr. P. H T. Thorlakson WINNIPEG CLINIC St. Mary’s and Vaughan, Winnipeg Phone 32-6441 SPruce 4-7855 ES1TMATFS J. M. Ingimundson Re-Roofing — Asphalt Shinglez Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipeg, Man. Office Phone Res. 92-4762 SPruce 2-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appóintment. Muir's Drug Slore Ltd. J. CLUBB FAMILY DRUGGIST SERVING THE WEST END FOR 27 YEARS SPruce 4-4422 Ellice & Home PARKER. TALLIN, KRIST- JANSSON, PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker, Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5th fl. Canadian Bank of Commerce Building, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. Phone 92-3561 Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical Bldg. SPruce 4-0222 Weston Office: Logan & Quelch SPruce 4-5818 Res.: SPruce 4-0118 Thorvaldson, Eggertson. Bastin & Stringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg. Portage and Garry St. PHONE 92-8291 S. A. Thorarinson Barrister and Bolicitor 2nd Floor Crown Trust BUlg. 364 MAIN ST. Office Phone 92-7051 Heimasimi 40-6488 J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgS, bifreiCaábyrgð o.s. frv. Phone 92-7538 Dunwoody Saul Smiih & Company Chartered Accountants Phone 92-2468 100 Princess St. Winnlpeg, Man. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Offlce: Res.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Arlington Pharmacy Prescripticm Specialist Cor. Arlington and Sargeni SUnset 3-5550 We collect light, water and phone bills. Post Office ur í félagsins nafni og segi að málslokum í orðum okkar fögru íslenzku kveðju: Verið þið öll blessuð og sæl Ykkar einlægur, RICHARD BECK The Business Clinic Anna Larusson — Florence Kellett 1410 Erin Street Phone SPruce 5-6676 Bookkeeplng - Income Tax Insurance

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.