Lögberg - 14.03.1957, Side 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. MARZ 1957
Lögberg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNBDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street/Winnipeg 3, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið Borgist fyrirfram
The ‘‘Lögberg" ls published by The Columbia Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Printers Limited
Authorized as Second Class Mail, Poet Office Department, Ottawa
PHONE 03-9931 __________________
Tekur saeti meðal lýðfrjálsra þjóða
Gullstrandarnýlendan í Vestur-Afríku, sem Bretar hafa
fram að þessu ráðið yfir, öðlaðist hinn 6. þ. m. fullkomið
sjálfsforræði og hefir þegar gerzt meðlimur í bandalagi
Sameinuðu þjóðanna, og gengur undir nafninu Gahna; stærð
landsins, sem liggur að öllu í hitabeltinu, er eitthvað um
92 þúsundir fermílna, en íbúatalan rösklega hálf fimmta
miljón; þingið verður fyrst um sinn í einni deild og á því
eiga sæti Í04 fulltrúar; hér er um ómengaða blökkumanna
þjóð að ræða, og er það þar af leiðandi ekkert smáræðis
fagnaðarefni, að litarhátturinn skyldi ekki lengur verða
landslýðnum að farartálma, en raun er orðin á.
Landið er allauðugt að náttúrufríðindum, svo sem marg-
háttaðri málmtekju, og má þess því með fullum rétti vænta,
að hin unga þjóð komist vel í álnir áður en langt um líður
eftir því sem tækniþróun hennar vex.
Hver veit nema einmitt á þessum stöðvum sé að koma
fram á sjónarsviðið fyrirmyndar þjóð, er hvítu gortararnir í
Afríku og víðar, megi á sínum tíma margt þarflegt af læra;
og víst er um það, að kynþáttahatrið í Suður-Afríku er heilli
álfu til ósóma og hvíta þjóðflokknum' til hinnar mestu
háðungar.
Við fullveldistökuna bárust hinni ungu þjóð velfarnaðar-
óskir heimsskautanna á milli, þar á meðal frá Canada og
Bandaríkjunum.
Fyrir hönd brezku krúnunnar tók þátt í hátíðahöldunum
hertogainnan af Kent.
★ ★ ★
lllræmd löggjöf úrskurðuð ógild
Hengiláslöggjöfin > illræmda, er Duplessis forsætisráð-
herra í Quebec hratt í framkvæmd fyrir nokkrum árum fyrir
atbeina þingflokks síns, Union Nationale, hefir verið vegin og
léttvæg fundin; þetta gerðist í vikunni, sem leið, er hæzti-
réttur Canada, ellefu dómarar gegn einum, feldi þann úr-
skurð, að fylkisþingið hefði skort stjórnskipulegan myndug-
leika til að afgreiða slíka löggjöf og láta hana öðlast gildi;
þessi kúgunarlöggjöf mæltist hvarvetna illa fyrir, að minsta
kosti utan takmarka viðkomandi fylkis, þó það vissulega væri
síður en svo, að allir fylkisbúar hölluðust á sveif forsætis-
ráðherra.
Mönnum standa enn í fersku minni ofsóknir Duplessis-
stjórnarinnar gegn trúarbragðareglunni, Vottar Jave, og
hversu það gat orðið handhægt að beita hengilásnum til að
loka inni og hnýsast í skjöl þeirra manna, sem stjórnin af ein-
hverjum ástæðum að hennar skoðun, taldi líklega til að vera
hlynta kommúnistum, hvort sem svo var eða eigi; löggjöf þessi
varð Quebec-fylki til lítillar sæmdar, og mun því víðfagnað
verða að hún er úr sögunni.
★ ★ ★
Spor í rétta ótt
Fylkisþingið í Manitoba hefir í einu hljóði afgreitt tillögu
til þingsályktunar þess efnis, að stjórnin skipi umboðsmann,
er vinni með fiskimönnum að samtökum þeirra á meðal og
helgi starfsemi sína hagsmunum þeirra; stjórnin hefir fallist á
að þetta verði gert. Dr. Steinn O. Thompson þingmaður Gimli
kjördæmis mælti með tillögunni og kvaðst oftar en einu sinni
hafa mælt með hliðstæðri tillögu sem þessari, og væri það
þakkarvert, að nú væri nokkur skriður kominn á málið, því
þörfin til umbóta væri knýjandi og þyldi ekki bið.
★ ★ ★
Fréttir fró starfsemi S. Þ.
Framhald af bls. 1
arútflutningur var 83 mill-
jarðar dollara eða 9% hærri
en 1954-
Orsökin á mismuninum á
inn- og útflutning er sú, að
flutningskostnaður er talinn
með í innflutningnum og svo
aukinn flutningskostnaður.
Þrjár breylingar á verzlunar-
ástandinu frá því fyrir slríð
í árbókinni eru yfirlitstöflur
og nákvæm verzlunargreinar-
gerð fyrir 104 lönd, þar kemur
greinilega í ljós, að endur-
bygging og aukning heims-
verzlunarinnar, sem hefir átt
sér stað fyrstu 10 árin eftir
heimsstyrjöldina síðari, bygg-
ist á uppbyggingu og verzlun-
arháttum líkt og fyrir stríðið,
en þó með þremur mikils-
verðum undantekningum:
1. Hinn stóraukni hlutur
dollaralandanna í hinni sam-
einuðu heimsverzlun.
2. Hin mikla minnkun verzl-
unaryiðskipta milli Austur-
Evrópu (Sovétríkin meðtalin)
og Vestur-Evrópu miðað við
ástandið fyrir stríðið, þó hefir
verzlun milli Stóra-Bretlands,
Frakklands og Vestur-Þýzka-
lands annars vegar og A,ustur-
Evrópulandanna hins vegar
aukizt töluvert á árinu 1955.
3. Hlutur hinna fjarlægari
Austurlanda hefir minnkað
mikið, aðallega vegna þess að
Japan hefir ekki tekizt að ná
aftur verzlunaraðstöðu sinni
frá því fyrir stríðið.
Verzlunaraukningin 19 5 5
gildir fyrir heim allan, nema
suður-amerísku löndin, þar er
minnkun vegna lækkandi
kaffiverðs. Aukningin er mest
í Vestur-Evrópu (Stóra-Bret-
land undanskilið), þar var inn-
flutningur 15% hærri og .út-
flutningur 14% hærri en 1954.
Hlutur þessara landa jókst
um 1%. Hlutur Bandaríkj-
anna minnkaði úr 20% í 19%
árið 1955, vegna samdráttar á
hernaðarhjálp til annarra
þjóða.
Bandaríkin eru þó heimsins
mestu inn- og útflytjendur.
Bandaríkin fluttu inn fyrir
11,4 milljarða dollara og út
fyrir 15,4 milljarða dollara.
Næst á heimsmarkaðinum
er Stóra-Bretland með 10,6
milljarða dollara innflutning
og 8,1 milljarða dollara út-
flutning; þriðja í röðinni er
Vestur-Þýzkaland, sem að
hundraðstali jók mest utan-
ríkisverzlun sína af þessum
löndum. — Vestur-Þýzkaland
jók árið 1955 innflutning sinn
um 27% svo hann varð 5,8
milljarðar dollara og útflutn-
ingurinn um 17% upp í 6,1
malljarða dollara.
Sovétríkin eru mesti verzlun-
araðili Póllands
Fyrsta skipti síðan 1950
getur árbókin gefið opinberar
verzlunartölur fyrir Pólland,
reyndar eina austur-evrópiska
landið sem svo er ástatt um.
Af þeim tölum sézt að hlut-
ur austur-evrópisku landanna
(Sovétríkin meðtalin) í inn-
flutningi Póllands jókst úr
33% árið 1947 upp í hér um
bil 62% árið 1955 og sömu lönd
tóku árið 1955 við tæplega
58% af útflutningi Póllands,
en 41% árið 1947.
Eftir stríðið hafa Spvétríkin
því verið stærsti verzlunar-
aðili Póllands.
IV. Fréttir frá S. Þ.
í sluttu máli.
Ráðstefna um notkun
“ísótopa” í vísindalegu augna-
miði verður haldin í París í
september n.k. Það er U. N. E.
S. C. O. sem á þar frumkvæð-
íð og taka yfir 1000 vísinda-
menn víðsvegar að þátt í
henni.
♦ * *
Alþjóðabankinn hefir í
fyrsta sinn veitt Iran lán, eru
það 75 milljónir dollara til
hjálpar 7 ára fjárhagsáætlun
ríkisins.
* * *
Lokið er 2 vikna ráðstefnu í
Washington á vegum alþjóða-
stofnunarinnar W. M. O. Sóttu
hana sérfræðingar í veður-
fræði frá 26 löndum, þar á
meðal Noregi og Svíþjóð.
Áheýrnarfulltrúar frá FAO,
UNESCO, ICAO (Alþjóðaflug-
málastofnunin) og WHO (Al-
þjóðaheilbrigðismálastofn-
unin) voru viðstaddir.
Sérfræðingarnir, sem einnig
voru frá Sovétríkjunum, komu
sér saman um, að vinna að
útgáfu loftlagskorta fyrir all-
an heiminn, að betri alþjóða-
not yrðu af veðurfréttum ein-
stakra landa, að hafa sam-
vinnu um veðurfréttir í sam-
bandi við jarðeðlisfræðiárið
og að undirbúa alþjóðaloftlags
orðabók.
* * *
Ný eyja hefir skotið upp
kollinum í Sviss. Hún er gerð
af granit-hnullungum í Wen-
chatelvatni sem griðland fyrir
Hellumáfa, sem eru orðnir þar
mjög sjaldgæfir. Fréttir frá
UNESCO herma að gróður
mikill sé þegar kominn í
hólma þennan og máfarnir
geti nú óáreyttir hreiðrað þar
um sig.
♦ * *
Fréttaþjónusta UNESCO
tilkynnir að í Indónesíu hafi
á síðasta ári orðið framför í
fræðslumálum þjóðarinnar. Á
Vel að verki verið
Það væri synd að segja að hinn ungi þingmaður St.
George kjördæmis, Mr. Elman Guttormson, hefði legið á liði
sínu það, sem af er þingtímans, því hann hefir hvorki meira
né minna en flutt þrjár þingræður, er allar lúta að hags-
munum kjósenda hans og allar eru bygðar á sterkum rökum;
í ræðunum hafa aðstæður veiðimanna verið gaumgæfilega
athugaðar og á það misrétti bent, er nú ríkir t. d. milli verð-
lags á vatnsrottuskinnum og þeirrar gróða hlutdeildar, er
stjórnin innheimtir; þá hefir Mr. Guttormson einnig tekið
til yfirvegunar timburúlfafarganið og lagt áherzlu á hve
nauðsynlegt kjósendum sínum það sé, að framræzlufram-
kvæmdir verði auknar að stórum mun.
árinu 1956 voru 268 nýir skól-
ar teknir í notkun. Alls eru nú
31.109 skólar fyrir námsfólk á
skólaskyldualdri og jókst tala
þess á árinu 1956 yfir 34.000.
* * *
Noregur hefir enn staðfest
þrjár af samþykktum ILO (Al-
þjóðavinnumálastofnunin), en
þær eru um lágmarksaldur
við landbúnaðarstörf, um út-
flytjendur, og um útbúnað og
birgðir skipshafna.
I
Hefur þá Noregur staðfest
45 af samþykktum ILO.
ADDITIONS
Bctel Building Fund
Frá Riverlon, Man.
Mr. & Mrs.
Oli Olafson $50,00
Einar Stadfeld 25.00
Hallgrímur Stadfeld 25.00
Valgeir Stadfeld 25.00
Björgvin S. Einarson 50.00
Sigurbjörn Gíslason 25.00
Th. G. Bjornson 15.00
0 M. G. Gudlaugson
1135 Stayte Road,
White Rock, B.C. $15.00
In kind memory of Hannes
Kristjánsson, Thorður Isfjord
and Siggi Kristjánsson, all of
Gimli. Hannes passed away
lately, the others some years
ago.
----0----
Mr. & Mrs.
Herman Thorvardson
Riverton, Manitoba $10.00
In memory of Jónas J-
Thorvardson.
"Betel" $180,000.00
Building
Campaign Fund
----—rl80
—160
Make your donallons to tb»
"Betel" Campalgn Fund,
123 Princeas Streel,
Wlnnipeg 2.