Lögberg - 14.03.1957, Page 4

Lögberg - 14.03.1957, Page 4
4 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 14. MARZ 1957 Lögberg Gefið út hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 303 KENNBDY STREET, WINNIPEG 3, MANITOBA Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street/Winnipeg 3, Manitoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Verð $5.00 um árið Borgist fyrirfram The ‘‘Lögberg" ls published by The Columbia Press Limited, 303 Kennedy Street, Winnipeg 3, Manitoba, Canada Printed by Columbia Printers Limited Authorized as Second Class Mail, Poet Office Department, Ottawa PHONE 03-9931 __________________ Tekur saeti meðal lýðfrjálsra þjóða Gullstrandarnýlendan í Vestur-Afríku, sem Bretar hafa fram að þessu ráðið yfir, öðlaðist hinn 6. þ. m. fullkomið sjálfsforræði og hefir þegar gerzt meðlimur í bandalagi Sameinuðu þjóðanna, og gengur undir nafninu Gahna; stærð landsins, sem liggur að öllu í hitabeltinu, er eitthvað um 92 þúsundir fermílna, en íbúatalan rösklega hálf fimmta miljón; þingið verður fyrst um sinn í einni deild og á því eiga sæti Í04 fulltrúar; hér er um ómengaða blökkumanna þjóð að ræða, og er það þar af leiðandi ekkert smáræðis fagnaðarefni, að litarhátturinn skyldi ekki lengur verða landslýðnum að farartálma, en raun er orðin á. Landið er allauðugt að náttúrufríðindum, svo sem marg- háttaðri málmtekju, og má þess því með fullum rétti vænta, að hin unga þjóð komist vel í álnir áður en langt um líður eftir því sem tækniþróun hennar vex. Hver veit nema einmitt á þessum stöðvum sé að koma fram á sjónarsviðið fyrirmyndar þjóð, er hvítu gortararnir í Afríku og víðar, megi á sínum tíma margt þarflegt af læra; og víst er um það, að kynþáttahatrið í Suður-Afríku er heilli álfu til ósóma og hvíta þjóðflokknum' til hinnar mestu háðungar. Við fullveldistökuna bárust hinni ungu þjóð velfarnaðar- óskir heimsskautanna á milli, þar á meðal frá Canada og Bandaríkjunum. Fyrir hönd brezku krúnunnar tók þátt í hátíðahöldunum hertogainnan af Kent. ★ ★ ★ lllræmd löggjöf úrskurðuð ógild Hengiláslöggjöfin > illræmda, er Duplessis forsætisráð- herra í Quebec hratt í framkvæmd fyrir nokkrum árum fyrir atbeina þingflokks síns, Union Nationale, hefir verið vegin og léttvæg fundin; þetta gerðist í vikunni, sem leið, er hæzti- réttur Canada, ellefu dómarar gegn einum, feldi þann úr- skurð, að fylkisþingið hefði skort stjórnskipulegan myndug- leika til að afgreiða slíka löggjöf og láta hana öðlast gildi; þessi kúgunarlöggjöf mæltist hvarvetna illa fyrir, að minsta kosti utan takmarka viðkomandi fylkis, þó það vissulega væri síður en svo, að allir fylkisbúar hölluðust á sveif forsætis- ráðherra. Mönnum standa enn í fersku minni ofsóknir Duplessis- stjórnarinnar gegn trúarbragðareglunni, Vottar Jave, og hversu það gat orðið handhægt að beita hengilásnum til að loka inni og hnýsast í skjöl þeirra manna, sem stjórnin af ein- hverjum ástæðum að hennar skoðun, taldi líklega til að vera hlynta kommúnistum, hvort sem svo var eða eigi; löggjöf þessi varð Quebec-fylki til lítillar sæmdar, og mun því víðfagnað verða að hún er úr sögunni. ★ ★ ★ Spor í rétta ótt Fylkisþingið í Manitoba hefir í einu hljóði afgreitt tillögu til þingsályktunar þess efnis, að stjórnin skipi umboðsmann, er vinni með fiskimönnum að samtökum þeirra á meðal og helgi starfsemi sína hagsmunum þeirra; stjórnin hefir fallist á að þetta verði gert. Dr. Steinn O. Thompson þingmaður Gimli kjördæmis mælti með tillögunni og kvaðst oftar en einu sinni hafa mælt með hliðstæðri tillögu sem þessari, og væri það þakkarvert, að nú væri nokkur skriður kominn á málið, því þörfin til umbóta væri knýjandi og þyldi ekki bið. ★ ★ ★ Fréttir fró starfsemi S. Þ. Framhald af bls. 1 arútflutningur var 83 mill- jarðar dollara eða 9% hærri en 1954- Orsökin á mismuninum á inn- og útflutning er sú, að flutningskostnaður er talinn með í innflutningnum og svo aukinn flutningskostnaður. Þrjár breylingar á verzlunar- ástandinu frá því fyrir slríð í árbókinni eru yfirlitstöflur og nákvæm verzlunargreinar- gerð fyrir 104 lönd, þar kemur greinilega í ljós, að endur- bygging og aukning heims- verzlunarinnar, sem hefir átt sér stað fyrstu 10 árin eftir heimsstyrjöldina síðari, bygg- ist á uppbyggingu og verzlun- arháttum líkt og fyrir stríðið, en þó með þremur mikils- verðum undantekningum: 1. Hinn stóraukni hlutur dollaralandanna í hinni sam- einuðu heimsverzlun. 2. Hin mikla minnkun verzl- unaryiðskipta milli Austur- Evrópu (Sovétríkin meðtalin) og Vestur-Evrópu miðað við ástandið fyrir stríðið, þó hefir verzlun milli Stóra-Bretlands, Frakklands og Vestur-Þýzka- lands annars vegar og A,ustur- Evrópulandanna hins vegar aukizt töluvert á árinu 1955. 3. Hlutur hinna fjarlægari Austurlanda hefir minnkað mikið, aðallega vegna þess að Japan hefir ekki tekizt að ná aftur verzlunaraðstöðu sinni frá því fyrir stríðið. Verzlunaraukningin 19 5 5 gildir fyrir heim allan, nema suður-amerísku löndin, þar er minnkun vegna lækkandi kaffiverðs. Aukningin er mest í Vestur-Evrópu (Stóra-Bret- land undanskilið), þar var inn- flutningur 15% hærri og .út- flutningur 14% hærri en 1954. Hlutur þessara landa jókst um 1%. Hlutur Bandaríkj- anna minnkaði úr 20% í 19% árið 1955, vegna samdráttar á hernaðarhjálp til annarra þjóða. Bandaríkin eru þó heimsins mestu inn- og útflytjendur. Bandaríkin fluttu inn fyrir 11,4 milljarða dollara og út fyrir 15,4 milljarða dollara. Næst á heimsmarkaðinum er Stóra-Bretland með 10,6 milljarða dollara innflutning og 8,1 milljarða dollara út- flutning; þriðja í röðinni er Vestur-Þýzkaland, sem að hundraðstali jók mest utan- ríkisverzlun sína af þessum löndum. — Vestur-Þýzkaland jók árið 1955 innflutning sinn um 27% svo hann varð 5,8 milljarðar dollara og útflutn- ingurinn um 17% upp í 6,1 malljarða dollara. Sovétríkin eru mesti verzlun- araðili Póllands Fyrsta skipti síðan 1950 getur árbókin gefið opinberar verzlunartölur fyrir Pólland, reyndar eina austur-evrópiska landið sem svo er ástatt um. Af þeim tölum sézt að hlut- ur austur-evrópisku landanna (Sovétríkin meðtalin) í inn- flutningi Póllands jókst úr 33% árið 1947 upp í hér um bil 62% árið 1955 og sömu lönd tóku árið 1955 við tæplega 58% af útflutningi Póllands, en 41% árið 1947. Eftir stríðið hafa Spvétríkin því verið stærsti verzlunar- aðili Póllands. IV. Fréttir frá S. Þ. í sluttu máli. Ráðstefna um notkun “ísótopa” í vísindalegu augna- miði verður haldin í París í september n.k. Það er U. N. E. S. C. O. sem á þar frumkvæð- íð og taka yfir 1000 vísinda- menn víðsvegar að þátt í henni. ♦ * * Alþjóðabankinn hefir í fyrsta sinn veitt Iran lán, eru það 75 milljónir dollara til hjálpar 7 ára fjárhagsáætlun ríkisins. * * * Lokið er 2 vikna ráðstefnu í Washington á vegum alþjóða- stofnunarinnar W. M. O. Sóttu hana sérfræðingar í veður- fræði frá 26 löndum, þar á meðal Noregi og Svíþjóð. Áheýrnarfulltrúar frá FAO, UNESCO, ICAO (Alþjóðaflug- málastofnunin) og WHO (Al- þjóðaheilbrigðismálastofn- unin) voru viðstaddir. Sérfræðingarnir, sem einnig voru frá Sovétríkjunum, komu sér saman um, að vinna að útgáfu loftlagskorta fyrir all- an heiminn, að betri alþjóða- not yrðu af veðurfréttum ein- stakra landa, að hafa sam- vinnu um veðurfréttir í sam- bandi við jarðeðlisfræðiárið og að undirbúa alþjóðaloftlags orðabók. * * * Ný eyja hefir skotið upp kollinum í Sviss. Hún er gerð af granit-hnullungum í Wen- chatelvatni sem griðland fyrir Hellumáfa, sem eru orðnir þar mjög sjaldgæfir. Fréttir frá UNESCO herma að gróður mikill sé þegar kominn í hólma þennan og máfarnir geti nú óáreyttir hreiðrað þar um sig. ♦ * * Fréttaþjónusta UNESCO tilkynnir að í Indónesíu hafi á síðasta ári orðið framför í fræðslumálum þjóðarinnar. Á Vel að verki verið Það væri synd að segja að hinn ungi þingmaður St. George kjördæmis, Mr. Elman Guttormson, hefði legið á liði sínu það, sem af er þingtímans, því hann hefir hvorki meira né minna en flutt þrjár þingræður, er allar lúta að hags- munum kjósenda hans og allar eru bygðar á sterkum rökum; í ræðunum hafa aðstæður veiðimanna verið gaumgæfilega athugaðar og á það misrétti bent, er nú ríkir t. d. milli verð- lags á vatnsrottuskinnum og þeirrar gróða hlutdeildar, er stjórnin innheimtir; þá hefir Mr. Guttormson einnig tekið til yfirvegunar timburúlfafarganið og lagt áherzlu á hve nauðsynlegt kjósendum sínum það sé, að framræzlufram- kvæmdir verði auknar að stórum mun. árinu 1956 voru 268 nýir skól- ar teknir í notkun. Alls eru nú 31.109 skólar fyrir námsfólk á skólaskyldualdri og jókst tala þess á árinu 1956 yfir 34.000. * * * Noregur hefir enn staðfest þrjár af samþykktum ILO (Al- þjóðavinnumálastofnunin), en þær eru um lágmarksaldur við landbúnaðarstörf, um út- flytjendur, og um útbúnað og birgðir skipshafna. I Hefur þá Noregur staðfest 45 af samþykktum ILO. ADDITIONS Bctel Building Fund Frá Riverlon, Man. Mr. & Mrs. Oli Olafson $50,00 Einar Stadfeld 25.00 Hallgrímur Stadfeld 25.00 Valgeir Stadfeld 25.00 Björgvin S. Einarson 50.00 Sigurbjörn Gíslason 25.00 Th. G. Bjornson 15.00 0 M. G. Gudlaugson 1135 Stayte Road, White Rock, B.C. $15.00 In kind memory of Hannes Kristjánsson, Thorður Isfjord and Siggi Kristjánsson, all of Gimli. Hannes passed away lately, the others some years ago. ----0---- Mr. & Mrs. Herman Thorvardson Riverton, Manitoba $10.00 In memory of Jónas J- Thorvardson. "Betel" $180,000.00 Building Campaign Fund ----—rl80 —160 Make your donallons to tb» "Betel" Campalgn Fund, 123 Princeas Streel, Wlnnipeg 2.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.