Lögberg - 21.03.1957, Síða 1
SAVE MONEYI
US6
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Yt Lb. Tlns
Makes the Flnest Bread
Available at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYl
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Vt Lb. Tins
Makes the Ftnest Bread
Avallable at Yonr Favorite
Grocer
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 21. MARZ 1957
NÚMER 12
Fréttir fró ríkisútvarpi íslands
Prestur tekinn fyrir ölvun við akstur
— 26. FEBRÚAR —
1 dag afhenti dr. Helgi P.
Briem forseta Svisslands trún-
aðarbréf sitt sem sendiherra
íslands í Sviss, íneð búsetu í
Bonn, Þýzkalandi.
☆
Félag íslenzkra 1 hljóðfæra-
leikara á 25 ára afmæli n. k.
íimmtudag. Núverandi for-
ftiaður er Gunnar Egilsson
☆
Nýlega er lokið Skákþingi
Norðlendinga, 1957, skák-
^eistari varð Ingimar Jóns-
s°n, og öðlaðist hann þátttöku-
réttindi í landsliði.
☆
27. FEBRÚAR
í dag var snjókoma á Norð-
Urlandi, og eins til þriggja
sliga frost á láglendi. Sunnan
lands var víðast 1—5 stiga hiti.
☆
Sex skip hafa nú stöðvazt
vegna sjómannaverkfallsins,
^ettifoss, Reykjafoss, Tungu-
f°ss, Hekla, Skjaldbreið og
Herðubreið. — Sáttafundur
Var í sjómannadeilunni í gær,
en ekki náðist árangur.
☆
Afli er enn tregur í ver-
stöðvum suðvestan lands! —
^lestir Keflavíkurbátar voru
með 5—6 lestir hver í gær.
Akranesbátar voru með svip-
aðan afla, og sömu sögu er að
Segja af bátum, sem róa frá
Grindavík og Sandgerði.
☆
28. FEBRÚAR
Undanfarin dægur hefir
snjóað svo mikið og skafið í
^orgarfirði, að vegir í hérað-
inu urðu ófærir öllum bílum.
Síö ýtur voru að ryðja snjó af
Vegum þar í dag. Bílar fóru
ekki frá Borgarnesi til mjólk-
Ur-aðdrátta fyrr en eftir há-
de§i og höfðu þeir komizt
lengst 30 kílómetra leið klukk-
an 6. Snjóbílar Páls Sigurðs-
s°nar og Guðmundar Jóns-
sonar eru nú vestur á Snæ-
íellsnesi og hafa flutt vörur
frá vegamótum út í Staðar-
sveit og víðar. Snjóbílarnir
^nunu brátt halda til Borgar-
ness og flytja þaðan mikið a:i
vörum vestur í Eyjahrepp.
☆
f janúar og febrúar luku 6
stúdentar embættisprófi í
jæknisfræði frá Háskóla ís-
ands, 2 í tannlækningum, 2 í
ögfræði, 3 í viðskiptafræðum,
■ f guðfræði, 1 kennaraprófi í
sögu íslands og 2 B.A. prófi.
1. MARZ
Kirkjuráð hinnar íslenzku
Pjóðkirkju hélt fund í Reykja-
yík 19. til 25. fyrra mánaðar.
Fjallaði ráðið um rúmlega 20
mál. — Kirkjuráð á 25 ára
starfsafmæli á næsta hausti.
☆
íþróttafélag Reykjavíkur
minnist 50 ára afmælis síns
innan skamms með fjölþætt-
um íþróttamótum og hófi að
Hótel Borg hinn 11. þ.m.
☆
2. MARZ
Sjö skip, þrjú strandferða-
skip og 4 millilandaskip, hafa
nú stöðvast vegna sjómanna-
verkfallsins og liggja í Reykja
vík. Kl. 5 í gær boðaði sátta-
semjari til fundar í deilunni
og stóð hann til kl. 8 í morgun.
Fundur hófst að nýju kl. 5 í
dag og mun standa ennþá.
Yfirmenn, þjónar og mat-
reiðslumenn á skipunum hafa
sagt upp samningum við
skipafélögin og ganga þeir
samningar úr gildi 1. júní n.k.
☆
Fyrsta Góudag var aðalfjár-
söfnunardagur Kvennadeildar
Slysavarnafélagsins í Reykja-
vík; alls söfnuðust 70 þúsund
krónur.
☆
4. MARZ
Agnar Kl. Jónsson afhenti
forseta Portúgals, Lopes hers-
höfðingja trúnaðarbréf sitt
sem sendiherra Islands hinn 1.
marz s.l.
☆
Á þessu skólaári eru um
20,000 börn í barnaskólum, en
samtals rúmlega 32.000 í skól-
um landsins, eða fimmti hver
Islendingur. Útgjöld á fjár-
lögum 1956 voru áætluð 83,4
milljónir króna. Fastir barna-
skólar 'eru nú 140, farskólar 77
og sérskólar 113. Fastir kenn-
arar við þessa skóla eru alls
1155. Samkvæmt lauslegri á-
ætlun, sem gerð var 1955 um
byggingaþörf skóla næstu 10
árin, var talið að rúmtak
barnaskóla og gagnfræðaskóla
þyrfti að aukast um 300.000
rúmmetra, en kostnaður af því
myndi, með núverandi verð-
lagi, vera um 300 milljónir
króna.
☆
5. MARZ
Menntamálaráðuneytið efn-
ir til listkynningar 1 skólum
og hófst það starf í Austur-
bæjarskólanum í gærmorgun
með kynningu' á verkum Hall-
dórs Laxness, sem las þar
kafla úr hinni nýju bók sinni,
Brekkukotsannál. — Gunnar
Gunnarsson mun innan
skamms heimsækja Mennta-
skólann í Reykjavík, og Árni
Thorsteinsson Melaskólann.
☆
6. MARZ
í gærkvöldi var minnzt 40
ára hljómleika-afmælis dr.
Páls ísólfssonar með tónleik-
um Dómkirkjunni. — Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri flutti
ávarp við þetta tækifæri, en
séra Jón Auðuns dómprófast-
ur lokaorð.
Nýlega var danskur prestur
tekinn fyrir ölvun við akstur.
Frá þessu er sagt í Unge
Kræfter. Presturinn er nafn-
greindur og starfssvið hans.
Danir og Norðmenn eru ekk-
ert ragir við að nafngreina
menn, sem gerast þannig al-
varlega brotlegir. Hvers vegna
purfum við, hér á landi, að
íalda áfram með þennan felu-
eik, að þora ekki að segja frá
viðburðunum eins og þeir
gerast, nafngreina mennina
og áfengið, þegar það er að
verki. Það gæti þó orðið
mörgum til viðvörunar. Við
Dekkjum hörmulegar sögur,
sem ekki má tala um upphátt.
Við þekkjum líka aðdragand-
ann. Fólk horfir á þegar bíll-
inn veltur um koll, sér fólk
velta út úr honum, einnig
flöskur og á götunni liggja af-
höggnir fingur, en svo heyrist
aldrei orð um viðburðinn.
Menn undir áhrifum áfengis
fá annan til að stýra bifreið-
inni á meðan þeir eru að kom-
ast úr augsýn manna, en taka
svo við stjórninni og valda
dauðaslysi. Frá slysinu er sagt,
en um allan aðdragandann
verður að þegja.
Danski presturinn var að
koma frá Svíþjóð. Hafði sopið
ofurlítið á leiðinni, en var svo
öruggur um, að hann væri
alls ekki ölvaður, að hann
gekk fúslega undir rannsókn,
en þá kom í ljós, að hann var
í meira lagi undir áhrifum.
Þannig er það alltaf með þessa
menn, sem halda sig geta
ratað veg hófsemdarinnar,
þeir trúa því ekki sjálfir, að
þeir séu undir áhrifum, þótt
þeir séu stórhætfulegir limum
og lífi manna. Presturinn var
búinn að aka ofurlítið á bíl,
sem stóð kyrr, en hélt samt
áfram. Maður á vélhjóli var á
eftir honum og sá, hversu ó-
styrkur aksturinn var og
gerði lögreglunni aðvart. .
Við lifum á öld vélanna. Öll
farartæki eru vélknúin. Millj-
ónir manna vinna daglega við
vélar. Allir þurfa á fullum
sönsum að halda, því að þeir
eru sjaldan um of. Fólk á að
afsegja alla embættismenn,
alla lækna, alla presta, alla
stjórnendur farartækja, sem
geta ekki látið áfengið eiga
sig. Það verður að vera lág-
markskrafa til kennara, presta
og allra embættismanna, sem
launaðir eru í þjónustu al-
mennings, að þeir eéu fyrir-
mynd í bindindi og reglu-
semi. Sömu kröfu verður að
gera til ríkisstjórna og bæjar-
stjórna, að þær hætti öllu á-
fengissulli í veizlum sínum,
ekkert annað sæmir siðuðu og
menntuðu fólki, og velferð
þjóðanna krefst þess.
—EINING
Menntun póstleiðis
Svíar nota mjög mikið bréf-
skólanámskeið, er veita bæði
fræðilega og hagnýta kennslu
í landbúnaði. Á undanförnum
10 árum hefir Búnaðarfélag
Svíþjóðar rekið bréfaskóla —
LTK-skólanum. Á þeim tíma
hafa um 400 þúsund manns
tekið þátt námskeiðum skól-
ans í búfræði og hússtjórn.
Ungir og gamlir, hvar sem
er í landinu, geta notið bréfa-
skólanámskeiðanna. Meðal-
aldur nemendanna er um þrí-
tugt. Sá yngsti var árið 1954
12 ára og sá elzti 84 ára. Þegar
unnt er að koma því við, er
aukið við námskeiðin rrieð
verklegri kennslu og sýning-
um, sem bæta upp lexíubréfin.
Bréfin, sem eru 16—32 bls.
hvers ,eru send eitt í einu til
nemendanna. Að loknum
lestri þeirra koma nemendur
svo saman í smáhópa til um-
ræðna, ef þeir geta. Þar sem
hópar, er stunda sömu náms-
grein, geta hitzt, tekur héraðs-
ráðunauturinn, eða e. t. v.
bændaskólakennari þátt í um-
ræðunum. Lesin lexíubréf eru
send aftur með pósti til leið-
réttingar, en á meðan hefur
LTK sent út næsta bréf.
Spurningum nemenda er svar-
að um leið og hin leiðréttu
bréf eru send öðru sinni til
þeirra.
Rösklega helmingur af þeim
bændum og bændasonum, sem
taka þátt í þessum námskeið-
um, búa á jörðum, sem hafa
minna en 10 hektara ræktan-
legt land. Þessir menn eru,
ásamt búnaðarverkamönnum
(er nema 10% af nemendum),
í þeim hluta sveitamanna, er
sjaldnazt sækja búnaðarskóla.
Þetta fyrirkomulag hefur
þann mikla kost, að það veitir
menntun í búfræði öllum
þeim, er vilja, sama hver ald-
urinn er, hvar þeir eiga heima,
eða hvert starf þeirra er. Þeir
njóta, með litlum tilkostnaði,
kerfisbundinnar menntunar,
sem er nátengd dagsins önn.
—FREYR
Ólafur Stefán Laxdal
(SEXTUGUR)
Þú komst hingað ungur, af íslenzkri grund.
Eyjafjörð kvaddir, og Tungu.
I athafnaheiminum handan við sund
var höfn þeirra sterku og ungu.
Einungis framtíðin ávöxtinn sér
og eins það, hver reynzt hefir mætur.
Vesturheims lendingin lánaðist þér
og líka að festa þar rætur.
Að læra af reynslunni líkaði þér,
lífsviðhorf ýmiss að kanna,
og berjast með heiðri gegn öllu sem er
andstætt því rétta og sanna.
1 ókunnum heimi þér haslaðir völl
og hafðir í glímunni betur.
En sögu þíns framtaks, um árin þín öll,
aldrei þú færðir í letur.
í framsókn þig leitt hefir lundin þín sterk;
þó löndin þín oft sýndust kalin.
Þú kenndir þér sjálfur að vinna þau verk,
er verða til sæmdar þér talin.
Þú skildir það ungur, að margt er til meins
í mannheimi spurninga og svara:
Að reisa skal þjóðlíf á afli hvers eins,
og ekkert í grunninn má spara.
Mount Vernon, Wash., 19. febr. 1957. S. E. Björnsson