Lögberg - 18.04.1957, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 18. APRIL 1957
Þegar Jerúsalem var hertekin
Frásögn þessi er eftir IjOWEIjIí THOMAS, rithöfundinn og
fræðlmanninn, sem kunnur er um allan heim. Hann flaug frá
Heliopolis til Jerúsalem rétt eftlr að Tyrkir yfirgáfu borgina,og
þar komst hann í kynni við Arabíu Lawrenee, og ritaði síðan
bók um hlnn ævintýralega lífsferil þessa merkilega manns.
í fyrri heimsstyrjöidinni var Lowell Thomas fréttaritari sitt á
hvað hjá herjum allra bandamanna. Síðar varð hann hand-
genginn ýmsum innlendum höfðingjum í Indlandi, Malaja,
Burma og Mið-Asíu. Hann hefir skrifað margar bækur, þar á
meðal sögu byltingarinnar í Þýzkalandi.
Það var haustið 1917. Með
a ð s t o ð eyðimerkursonanna
undir forystu hins dularfulla
Lawrence, hafði Allenby hers-
höfðingi sótt jafnt og þétt
fram í áttina til Jerúsalem.
Hann mundi hafa getað hrak-
ið setulið Tyrkja og Þjóð-
verja úr borginni fyrir
nokkru, ef hann hefði einbeitt
fallbyssum og sprengjuflug-
vélum gegn henni. En það
vildi hann ekki, og ekki var
skotið einu einasta fallbyssu-
skoti á borgina. Allenby ótt-
aðist að skothríð mundi geta
brotið niður Grátmúr Gyð-
inga, kirkjuna á gröf Krists,
eða Omar musterið, sem er
þriðji mesti helgistaður Mú-
hameðsmanna. Hann hrakti
því Þjóðverja og Tyrki beggja
megin borgarinnar, og sótti
fram austur á bóginn yfir
hæðirnar í Júdeu. Þá fyrir-
skipaði von Falkenhausen
undanhald, og borgin skyldi
yfirgefin. Þar með var lokið
sjö alda harðstjórn Tyrkja.
Zion var aftur í höndum krist-
inna manna.
En þá kom spaugilegt atvik
fyrir. Morguninn eftir að
borgin var yfirgefin, voru
herbúðir Breta í hæðum
Júdeu, aðeins nokkrar mílur
Bel-Air
Glass Lined
Water Heaters
with
5 YEAR
GUARANTEE
• Manufactured
by Greensteel
Industries
Ltd., Wpg.
• 3 Inch
Fibreglass
Insulation.
• White baked
enamel
casing.
• Two Immersion type heaters
thermostatically controlled.
• 22% and 30 gallon sizes.
• Installation within 24 hours.
Single Heaíer
Models
Double Heater
Heater
$oo-50
“V up
$112op
Also Everdur Copper
Water Heaters available
with 25 year guarantee
CITY HYDRO
Where satisfaction ls guaranteed
PORTAGE
East of Kennedy
PHONE: 96-8201
frá borginni. Meðal hersveita
Allenbys þar var hin 60. skip-
uð Lundúnabúum eingöngu.
Einn af liðsforingjunum þar
sendi matreiðslumann og einn
Tommy á stað til þess að vita
hvort þeir gætu ekki náð í
nokkur egg. Nú er það kunn-
ugt um Lundúnabúa, að þeir
rata hvergi nokkurs staðar
nema í London. Og áður en
þessir tveir höfðu langt farið,
voru þeir orðnir ramhiviltir.
Allt í einu komu þeir á breið-
an þjóðveg og héldu eftir
honum. Og er þeir fóru fyrir
beygju á veginum, sáu þeir
blasa við sér mikla borg, og
þar gnæfðu gullnir turnar og
turnspírur yfir háa borgar-
veggi. Ekki höfðu þeir hug-
mynd um að þetta var Jerú-
salem.
Og sem þeir nú nálguðust
borgina, kom fríð fylking út
um vesturhlið hennar. Maður
gekk þar í fararbroddi nq|feð
hvítan fána, en næstur hon-
um kom ríðandi maður, og
hafði sá eldrauðan fez á höfði.
Þetta var hinn arabiski borg-
arstjóri í Jerúsalem og kom
nú út úr borginni til þess að
afhenda hana Allenby hers-
höfðingja. Þegar hann mætti
þessum tveimur piltum, hóf
hann upp raust sína og hélt
ræðu af mikilli mælsku, eins
og sæmdi athöfninni. Einhver
þýddi ræðuna fyrir piltana,
og þó hálfhikandi, en þá tók
kokksi til máls:
„Við erum alls ekki komnir
til þess að taka hina helgu
borg, herra minn! Við erum
að leita að eggjum handa liðs-
foringjanum!“
Þetta fékk borgarstjórinn
ekki skilið, og það var ekki við
annað komandi en að hann af-
henti piltunum lyklana að
borginni. Og þannig skeði það,
eftir aldalanga stjórn Tyrkja,
að hin heilaga borg, sem Rík-
arður ljóshjarta fékk ekki
unnið, var gefin upp og afhent
venjulegum kokk frá London!
En hér með er sagan ekki
fullsögð.
Þegar piltarnir komu aftur
til hersins, skýrðu þeir majór
sínum frá þessu. Hann ætlaði
að springa af stolti og fór með
þessar góðu fréttir til yfir-
manns síns, Watson Brigadier-
general. Nú mundi hver ein-
asti yfirforingi í her Allenbys
glaður hafa gefið hægri hönd
sína fyrir að fá að taka á móti
uppgjöf hinnar helgustu borg-
ar í heimi. Og Watson Briga-
dier-general ákvað þegar að
taka sjálfur á móti uppgjöf
borgarinnar. Hann fékk kokk-
inn til að fylgja sér, og svo
flýtti hann sér allt hvað af tók
til borgarinnar. Þar hitti
hann borgarstjórann og kom
því til leiðar að uppgjafarat-
höfnin var endurtekin. Allir
borgarbúar fóru í skartklæði
sín og þyrptust út um borgar-
hliðið til þess að fagna hers-
höfðingjanUm og hinu fríða
föruneyti hans. Fánum var
veifað, menn æptu gleðióp,
blómum var stráð á veginn,
borgarstjórinn flutti hina
snjöllu ræðu sína, og Jerú-
salem var formlega afhent
Watson brigadier-general.
Þegar hann kom aftur til
hersins, skýrði hann yfir-
manni sínum, Sir John Shea
majór-general, frá þessu. Nú
var Sir John íri og auk þess
sann-kaþólskur, og hann var
nú ekki á því að láta einhvern
og einhvern mótmælendatrú-
ar mann taka heiðurinn frá
sér. Hann sendi því hraðboða
til Jerúsalem þeirra erinda,
að skýra borgarstjóranum frá
því, að morguninn eftir mundi
hann sjálfur, Sir John, koma
og taka formlega við uppgjöf
borgarinnar. Og það var eng-
inn annar en Watson briga-
dier-general, sem varð að fara
með þessi skilaboð. Hann lét
söðla <þest sinn, reið til borg-
arinnar og tilkynnti borgar-
stjóranum að næsta morgun
yrði hann að afhenda borgina
í þriðja sinn.
Og enn hófst þessi merki-
lega athöfn í Jerúsalem. íbú-
arnir flyktust út um borgar-
hliðið, veifuðu fánum, æptu
fagnaðaróp og sungu. En það
var þó áberandi, að farið var
að draga úr fögnuðinum og
borgarstjórinn flutti nú ræðu
sína alveg hrifningarlaust. Og
þannig gafst Jerúsalem upp í
þriðja sinn.
Síðan sendi Sir John boð til
Allenby yfirhershöfðingja og
lét segja honum hvernig kom-
ið væri. Sendiboði kom aftur
með þau skilaboð frá Allenby,
að hann mundi brátt koma
sjálfur og taka við uppgjöf
borgarinnar. Og nú varð Shea
hershöfðingi að ríða sjálfurí
til Jerúsalem og tilkynna
borgarstjóranum, að hann
yrði enn einu sinni að efna til
mikillar viðhafnar og afhenda
borgina.
Allenby yfirhershöfðingi
kom með fríðu föruneyti. Það
var riddaralið, fótgöngulið,
stórskotalið og hópur af gull-
fjölluðum hershörðingjum. En
í stað þess að halda glæsilega
innreið í borgina, steig hann
af baki hesti sínum og fór fót-
gangandi í gegnum Jaffa-
hliðið, „þar sem Kristur hafði
áður gengið“, eins og hann
sagði sjálfur. Enn einu sinni
flykktust borgarbúar saman,
fánum var veifað og borgar-
stjórinn thélt ræðu sína enn
einu sinni við mikinn fögnuð
allra.
Mánuði seinna dó borgar-
stjórinn úr lungnabólgu. En
menn segja að hann hafi dáið
af ofþreytu, vegna þess hve
oft hann varð að halda upp-
gjafarræðuna.
----0----
Ég dvaldist marga daga í
Jerúsalem. Því var fagnað um
allan heim að hún skyldi vera
laus undan yfirráðum Tyrkja,
en langmestur var þó fögnuð-
urinn í Bretlandi. Og fyrir
þetta fékk Allenby nafnbót-
ina Field-Marshall og var
aðlaður. Hét hann síðan
Allenby greifi af Megiddo og
Felixtowe. Margir aðrir voru
heiðraðir. Georg V. konungur
gat ekki ferðast sjálfur til
Palestínu, en hann sendi
frænda sinn, hertogann af
Connaught til þess að útdeila
heiðursmerkjum. Einn þeirra
manna, var þó ekki á staðn-
um, hann var einhvers staðar
úti í eyðimörk Arabíu. Hann
hafði ekki átt minnstan þátt
í sigrinum, en þó vissu jafnvel
mjög fáir í herforingjaráði
Allenbys nafn hans.
Um það leyti sem hertogans
var von, var ég á gangi um
götur Jerúsalem. Leið mín lá
þá fram hjá hópi Araba, og
einn í þessum hópi vakti sér-
staka athygli mína. Hann var
að vísu í arabiskum þjóðbún-
ingi, en hann var hvítur á
hörund og skegglaus. Nú telja
Arabar engan karlmann,
nema hann hafi skegg, og þeir
vinna eið við skegg sitt. Og
ég vissi að ekki var til hvítur
Arabi. Ég afréð því að komast
eftir hver maðurinn væri.
Ég fór á fund landstjórans,
sem þá hafði aðsetur í höll
utan við Damaskuð-hliðið.
Það var Robert Storrs colonel.
CARLING'S
MIKILVŒG TILKYNNING
Varðandi endurgreiðslu bensínleyfa
BÆNDUR VERZLUNARFISKIMENN,
MÁLMLEITARMENN, VEIÐMENN,
VÖRUFLUTNINGAMENN
OG SVEITARFÉLÖG
í eldsvoðanum, gem nýlega réði niðurlögum Provincial
Governmeni Revenue Building, Winnipeg, Maniioba, fóru
forgörðum meginið af endurgreiðsluleyfum fyrir bensín-
skatii.
Þess vegna verður það nauðsynlegt, að sérhver leyfishafi,
sendi inn nýja umsókn um endurnýjað leyfi, samkvaemi
fyrirmælum bensín skatilaganna.
Umsóknir um endurgreiðsluleyfi fási með því að skrifa ±11:
The Gasoline Tax Division,
232 Legislaivie Building,
Winnipeg 1, Manitoba