Lögberg - 25.04.1957, Page 1
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Yt Lb. Tins
Makes the Finest Bread
'.vallable at Your Favorite
Grocer
SAVE MONEYl
US6
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
in y4 Lb. Tlns
Makes the Finest Bread
Avallablc at Your Favorlte
Grocer
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 25. APRÍL 1957
NÚMER 17
VINARKVEÐJA
Fréttir fró starfsemi S. Þ. apríl 1957
MENN BORÐA VEL A NORÐURLÖNDUM
— Margvíslegur íróðleikur úr hagskýrslum S. Þ. —
Árna morguns hinn 6. des-
ember 1956, lézt í svefni að
heimili sínu í San Francisco,
California, Dr. Andrés Fjeld-
sted Oddstad, merkur og
mikilhæfur borgari; hann var
gæddur frábærum mannkost-
um, stálminnugur og reglu-
legur urðarbrunnur í sögu-
legum fræðum; hann var
manna snjallastur í viðræð-
um, en slíkt gerði það að verk-
um, að þeir, sem hópuðust
umhverfis hann, urðu brátt í
sólskinsskapi.
Hinn látni var ástríkur eig-
inmaður og faðir, og óbrigðull
vinur vina sinna yfirleitt; og
átti þá aðdáanlegu hæfileika
til að bera, að vekja unað og
traust samferðamanna sinna;
svo var hann brjóstgóður, að
enginn, sem leitaði ásjár hans,
mun bónleiður frá honum
farið hafa.
Dr. Oddstad var fæddur í
Kalastaðakoti á Hvalfjarðar-
strönd hinn 17. dag ágúst-
mánaðar 1887. Foreldrar hans
voru Jón Sveinbjörn Oddstad
og kona hans Guðný Fjeldsted
Oddstad; hann fluttist til
Canada sjö ára að aldri og
ólst upp í íslenzkri nýbygð
vestur af Winnipeg; 'hann
hlaut skólamentun sína í
Flutti erindi á
kennaraþingi
Dr. Richard Beck var einn
af þrem ræðumönnum á fundi
deildar kennara í norrænum
fræðum, sem haldinn var í
sambandi við ársþing Félags
kennara í erlendum málum í
Mið-Vesturríkjunum (Central
States Modern Language
Teachers Association) á ríkis-
háskólanum í Illinois, Urbana,
Illinois, föstudaginn og laúg-
ardaginn 12,—13. apríl. Flutti
hann erindi síðdegis á laugar-
daginn og nefndist það “On
Ancestrai Trails in Norway”
(Á fornum feðraslóðum í
Noregi); byggði hann þá ræðu
sína á heimsókn á fornar
stöðvar margra helztu land-
námsmanna íslands í Noregi
og jöfnum höndum á íslenzk-
um sagnaheimildum. Fundinn
sátu allmargir háskólakennar-
ar í Norðurlandamálum og
bókmenntum.
Föstudaginn 5. apríl flutti
dr. Beck sérstakan fyrirlestur
um ísland á vegum blaða-
mennskudeildar ríkisháskól-
ans í Norður Dakota (Univer-
sity of North Dakota) fyrir all
fjölmennum hópi kennara og
stúdenta þeirrar deildar há-
skólans.
Canada að öðru leyti en því
sem hann nam sérgrein sína
við Chiropractic College í
San Francisco og þar stundaði
hann lækningar frá 1931 til
1946. Upp úr því stofnaði hann
fasteignasölu í félagi við son
sinn, Andrés, sem nú er for-
seti Oddstad Homes Incorpo-
rated í San Francisco og
grend.
Árið 1914 kvæntist Dr.
Oddstad og gekk að eiga
Stefaníu I. M. Stoneson, og
eignuðust þau fimm yndisleg
börn, einn son, Andrés, Ather-
ton, California, Mrs. Milton
Parkas, McKeesport, Pennsyl-
vania, Elma, búsett að Red-
wood City, California, Mrs.
Harry Haskins, Cornwall on
Hudson og Mrs. Marcus Gor-
don, Oakland, Cal. Barnabörn-
in eru átta að tölu.
í ágústmánuði 1955 var Dr.
Oddstad af forseta íslands
sæmdur riddarakrossi hinnar
íslenzku Fálkaorðu.
— 10. APRÍL 1957 —
Kæri Einar og lesendur
Lögbergs:
Það er loksins farið að hlýna
á Fróni; hækkandi sól og vor
í lofti. Eftir er samt að koma
páskahret, en það má fara
fram hjá íslandi í þetta sinn,
því að ekki síðan útvarpið tók
að senda út veðurfréttir fyrir
nær 40 árum, hefur hver
landshluti átt við svo mikla
samgönguerfiðleika að stríða.
Síðan rétt eftir áramót hefir
tíðarfarið verið slæmt, og
hérna í Húnavatnssýslunni
hafa flestir vegir verið ófærir
fram að þessu.
Sums staðar á landinu voru
snjóbílar teknir í notkun til
að flytja matvörur til bænda.
Dr. Andrés Fjeldsted Oddslad
Um það leyti, er dauða Dr.
Oddstads bar að, var hann for-
seti íslenzka félagsskaparins í
Norður Californíu, varaforseti
Oddstad Homes Incorporated,
og embættismaður í Frímúr-
arareglunni.
Hvíl í guðs friði, kæri vinur.
Krisibjörn S. Eymundson,
læknir,
San Francisco, Cal.
20. marz 1957.
Því miður vantar fleiri snjó-
bíla á íslandi. Og hérna í
Vestur-Húnavatnssýslu hefir
verið bráðnauðsynlegt að eiga
slíkt farartæki.
Á meðan þetta veður stóð
yfir, fór kona mín út af veg-
inum skammt héðan; hún
missti stjórn á jeppanum
(jeep), og datt hann niður í
gil. Hún handleggsbrotnaði og
fékk heilahristing. Ekki var
unnt að flytja hana suður
vegna fannkyngis, þess vegna
varð að fá litla flugvél. Hún
náði sér furðu fljótt. Var ferða
fær eftir sex vikur, en komst
ekki vegna veðurs. Hún er ný-
lega komin hingað og líður
Framhald á bls. 8
MENN borða vel á Norður-
löndum, að minsta kosti í
hlutfalli við fólk í flestum
öðrum löndum heims. Frá
þessu er skýrt í hagskýrslu í
árbók Sameinuðu þjóðanna
(Statistical Yearbook 1955),
sem nýlega er komin út og
sem að vanda flytur margvís-
legan fróðleik um hagræn
efni. — Á Norðurlöndum geta
menn, ef þeim svo sýnist,
borðað mat daglega, sem inni-
heldur 3000 hitaeiningar, eða
kaloríur, eins og það er al-
mennt kallað. Slíkan munað
geta aðeins leyft sér sjö aðrar
þjóðir, þ. e.: Bandaríkjamenn,
Bretar, Kanadamenn, írar,
Svisslendingar, Ástralíumenn
og íbúar Nýja Spálands. Á
Indlandi er kaloríumagn fæðu
hvers og eins hvað snauðust í
heiminum.
73 miljónir íólksbíla
í heiminum
Árið 1955 voru 73,000,000
fólksbíla til í heiminum (tölur
eru ekki fyrir hendi yfir bif-
reiðaeign í Sovétríkjunum,
Kína og Austur-Evrópuríkj-
úm). Voru þetta 73% fleiri
fólksbílar en til voru 1948 og
helmingi fleiri en skrásettir
voru 1938.
Sama ár, 1955, voru nærri
20,000,000 vörubílar og stræt-
isvagnar í notkun í heiminum,
sem var 56% meira en 1948 og
helmingi meira en 1938. 76%
af öllum fólksbílum heimsins
og 58% af vörubílum og
strætisvögnum bera banda-
rískt skrásetningarmerki. 17%
af fólksbílum og 26% af vöru-
bílum og strætisvögnum
heimsins áttu heima í Evrópu
löndum.
Afl þeirra hluta . . .
Aflframleiðsla í heiminum
reyndist 82% meiri 1955 en
hún var 1937. Svaraði afl-
notkun mannkynsins til þess,
að hver maður á jörðinni not-
aði að meðaltali árlega 1,29
smálest af kolum.
Aflnotkun skiptist þannig
milli heimsálfa, segir í hag-
skýrslum Sameinuðu þjóð-
anna:
Bandaríkjamenn n o t u ð u
40% af öllu afli, sem framleitt
var í heiminum, Evrópuþjóð-
irnar 23%, Sovétríkin, Austur
Evrópa og Kína 22,5% í sam-
einingu, önnur Asíulönd
1,75%.
Mesta aukning í aflnotkun
reyndist á þessu tímabili vera
í Suður-Ameríku þar sem afl-
notkunin jókst um 221% á
árunum 1937—1955. í Afríku
var aukningin 161%, í Vestur-
Evrópu 34%, í Sovétríkjun-
um, Austur-Evrópulöndum og
Kína 158%.
---0----
JARÐARBÚUM FJÖLGAR
UM 1.7% ARLEGA
Árið 1955 var íbúatala jarð-
arinnar 2,691 miljón, eða 172
miljónum fleiri en 1951, Svar-
ar þetta til 1,7% aukningu
íbúatölunnar árlega.
Aukningin er að sjálfsögðu
misjöfn frá einu landi til ann-
ars. Minnst reyndist fjölgunin
í Evrópu, eða tæplega 1% og
mest á Kyrrahafssvæðinu, þar
sem fólksfjölgunin hefir num-
ið 3,6% hin síðari árin.
Fjölgun íbúanna á Kyrra-
hafssvæðinu stafar ekki af
auknum barnsfæðingum ein-
um, heldur mest vegna inn-
flytjendastraumsins til Ástra-
líu og Nýja-Sjálands.
Tölur þessar eru birtar í
hagskýrslum Sameinuðu þjóð
anna, árbókinni fyrir 1955, er
bent á, að það séu ekki auknar
barnsfæðingar, sem séu aðal-
orsökin fyrir hærri íbúatölu
heimsins, heldur stafi það ekki
hvað minnst af því, að heilsu-
far hefir batnað, hreinlæti
aúkist og að mönnum hefir
tekizt að vinna bug á skæð-
um sjúkdómum og farsóttum,
sem felldi fólk áður í tugþús-
unda tali árlega.
Á ráðstefnu, sem nýlega var
haldin á vegum Sameinuðu
þjóðanpa í aðalstöðvum þeirra
í New York var kvartað yfir
því, að manntali væri enn
mjög ábótavant í heiminum.
Fulltrúi Indlands á ráðstefn-
unni gat þess t. d. sérstaklega,
að það skorti mjög ábyggileg-
ar tölur um íbúa Kína, en þar
býr sennilega um V4 hluti
mannkynsins. Þá var bent á
þá staðreynd í umræðunum,
að það er ekki af forvitni einni
að menn vilja vita hve margir
menn búa í hverju landi. Það
er t. d. nauðsynlegt, að sem
ábyggilegastar tölur séu fyrir
hendi þegar félagslegar og
efnahagslegar endurbætur eru
ráðgerðar.
Framhald á bls. 8
Dóttir íslands
Þú dóttir Islands! dóttir Sögu og Braga,
dularrrjagn töfra og yndis fylgir þér
í háttum, brosi og kynning ljóðs og laga.
1 ljúfum tónum, sem frá engla her,
þú kallar fram allt fegurst, bezt og blíðast,
sem blundað hefur með oss dægrin löng,
og lýsir oss í vöku draumi víðast
um víðfeðmn lönd með yndislegum söng.
Já, alheims rödd, sem á sér djúpar rætur
hún ryður veginn inn að þjóðar sál,
og vermir, gleður, syngur böli bætur
og boðar frið og túlkar hjartans mál.
Ó, söngva dís! Þig lofar allt sem lifir! —
unz lokast brá í drauma himinn inn.
Þér drottning lista, drottinn vaki yfir
daga og nætur, — blessi hópinn þinn.
DAVÍÐ BJÖRNSSON
Fréttabréf úr Húnaþingi