Lögberg - 02.05.1957, Blaðsíða 1
SAVE MONEYI
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Yt Lb. Tlns
Makes the Flnest Bread
Avallable at Tonr Favorlte
Grocer
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In Ví Lb. Tlni
Makes the Finest Bread
Avallable at Tonr Favorlte
Grocer
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1957
NÚMER 18
25 Kínverjar á mínútu
Fólksfjölgunin nemur 13
miljónum á ári
Kínversku stjórnarvöldin
hafa ákveðið að takmarka
barneignir í landinu, einkum
með fóstureyðingum; lækna-
stéttin í Kína er alvarlega
andvíg slíkum ráðstöfunum
og telur að með þeim geti svo
farið, að heilbrigði þjóðarinn-
ar bíði þess aldrei bætur; en
þeir, sem með völdin fara
benda á, að fólksfjölgunin sé
svo ör, að til stórra vandræða
horfi nema því aðeins að
gripið sé umsvifalaust í taum-
ana; íbúatalan í landinu sé nú
komin yfir 600 miljónir og
fari hækkandi jafnt og þétt
von úr viti.
Merkur viðburður
Hinn 23. apríl síðastliðinn
hófst vinna við 50 herbergja
viðbót við Lyons verustað
hinna blindu, sem telja má
víst að af sér leiði marghátt-
aða blessun fyrir bæjarfélag-
ið. Hon. R. W. Bend heil-
brigðismálaráðherra mætti
fyrir hönd bæjarstjórnar, Mr.
Alex Robertson og Mr. F. J.
Boyd fóru með umboð Lyons
klúbbsins í borginni, og lét
Mr. Boyd þess getið, að fylkis-
stjórnin myndi veita $42,500
til að ljúka við álmuna.
Situr alþjóðaþing
Edward B. Tait
Þessa viku fór Mr. Edward
B. Tait, Miami, Florida, for-
maður Rotary klúbbanna í því
ríki, til Lake Placid, New
York, þar sem hann mun sitja
í vikutíma á alþjóðaþingi
Rotary samtakanna. Þaðan
fer hann á annað alþjóðaþing
félagsins í Lucerne í Sviss,
sem einnig stendur yfir í
vikutíma. í ferð með honum
verður kona hans, Kristín
Laxdal Tait. Á leiðinni til
baka munu þau hjónin koma
við í London og heimsækja
síðan Island. Þau eru væntan-
leg til New York 2. júní.
Kona í
sendiherraembætti
Eisenhöwer forseti hefir
skipað Miss Frances E. Willis í
sendiherraembætti í Noregi;
hún hefir starfað samfleytt í
tuttugu og sjö ár í utanríkis-
þjónustu Bandaríkjanna og
síðustu þrjú árin verið sendi-
herra í Svisslandi. Miss Willis
er önnur ameríska konan,
sem skipuð hefir verið í slíka
virðingarstöðu; fyrirrennari
hennar var Mrs. Clare Booth
Luce/ sendiherra á ítalíu, er
um eitt skeið átti sæti í neðri
málastofu þjóðþingsins í
Washington.
Úr borg og bygð
— DÁNARFREGN —
Mrs. Petrína Sigrún Egg-
ertson, 6'Patricia Court hér í
borg, lézt á laugardaginn á St.
Boniface sjúkrahúsinu. Hún
var 94 ára að aldri. Hún lætur
eftir sig son sinn, Edward;
þrjár dætur, Mrs. Paul V.
Paulson, Mrs. Eileen Gíslason
og Mrs. R. J. Beaupre; enn-
fremur 13 barnabörn* og 27
barna-barnabörn. Útförin fór
fram frá Fyrstu lútersku
kirkju; Dr. Valdimar J. Ey-
lands jarðsöng.
☆
Mr. H. S. Sveinsson frá
Cypfess River var staddur í
borginni á mánudaginn.
☆
Meðal þeirra utanbæjar-
gesta, er hingað komu á mánu
daginn til að hlusta á kosn-
ingaræðu forsætisráðherrans,
Mr. St. Laurents, voru þeir
B. J. Lifman, Árborg, Árni
Brandsson frá Hnausum og
Ólafur Hallsson frá Eriksdale.
☆
Mr. Egill Egilsson kaup-
maður í Brandon korp til
borgarinnar í byrjun vikunn-
ar ásamt sonum sínum tveim-
ur. — Mr. Egilsson ætlar að
heimsækja Island í sumar
ásamt frú sinni.
☆
Hinn 16. marz síðastliðinn
voru gefin saman í hjónaband
í Sydenham United Church í
Kingston, Ont., Miss Wanda
Marie Magnússon frá Gimli,
dóttir Mr. ’ og Mrs. Grímsi
Magnússon, og Ronald Fulton^
sonur Mr. og Mrs. James
Fulton í Kingston. — Séra
Davidson gifti. — Framtíðar-
heimili ungu hjónanna verður
í Kingston.
☆
Mr. W. J. Johannson leik-
hússtjóri frá Pine Falls, Man.,
var staddur í borginni um
miðja fyrri viku.
Sl. Laurent forsælisráðherra of Elman Guttormson fylkisþingmaður
Mr. Elman Guttormson Liberalþingmaður fyrir St. George kjördæmið í Manitoba,
er kynntur var St. Laurent forsætisráð herra síðastliðinn mánudag á Fort Garry
hótelinu sem yngsti þingmaður fylkisþi ngsins. Mr. Guttormsson var aðeins 27 ára,
er hann var kosinn á þing hinn 3. desember síðastliðinn.
SAMKOMA
Þjóðræknisdeildin í Árborg
efnir til al-íslenzkrar skemti-
samkomu í samkomuhúsi
Geysis-byggðar þann 17. maí.
Skemtiskráin er mjög fjöl-
breytt.
Próf. Haraldur Bessason frá
Winnipeg flytur ræðu. Börn
og unglingar skemta með
söng. Tveir söngflokkar
skemta, yngri og eldri, um 30
börn í hvorum flokk. Einnig
þrísöngur og fjórsöngur. —
Sömuleiðis framsögn íslenzkra
ljóða. — Þá verður sýndur
gamanleikur í einum þætti,
„Lási trúlofast“, — leikinn af
beztu leikurum, sem völ er á
hér um slóðir.
Þjóðræknisdeildin ESJAN
er þekkt fyrir að koma af stað
góðum samkomum, er óhætt
að fullyrða að þessi verði engu
síðri. — Með því að kenna
börnum íslenzkan söng og ís-
lenzk ljóð, er verið að vinna
að þjóðrækni á virkilegan
hátt.
Þessi samkoma er þess virði
að hún verði vel sótt, af yngri
sem eldri. —H. E.
Stórskotahríð hafin
Megin stjórnmálaflokkarnir
í Canada hafa hrundið af
stokkum sinni pólitísku stór-
skotahríð vegna sambands-
kosninganna, sem fram fara
þann 10. júní næstkomandi.
Mr. Diefenbaker hóf sennuna
í Toronto í lok fyrri viku, en
forsætisráðherrann valdi Win-
nipeg til ræðuflutnings á
mánudagskvöldið, þar sem
um 3,000 manns hlýddu á mál
hans. Solon Low hóf innreið
sína í Ontario, en Coldwell er
væntanlegur hingað einhvern
hinna næstu daga.
Hótun um morð
Dagblaðið Winnipeg Free
Press birti á mánudaginn
kafla úr bréfi til >ritstjórans
frá ónafngreindum manni, er
kvaðst hafa tekið þátt í seinni
heimsstyrjöldinni og kveðst
ekki munu hika við ef svo
bjóði við að horfa, að myrða
forsætisráðherrann, Mr. St.
Laurent, er selt hafi Banda-
ríkjunum í hendur meginið af
canadískum náttúrufríðind-
um, og sömu örlög geti auð-
veldlega beðið viðskiptamála-
ráðherrans, C. D. Howes. —
Bréfkaflinn var samstundis
fenginn lögreglunni í hendur
til rannsóknar.