Lögberg - 06.06.1957, Síða 1
SAVE MONEYI
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
In y4 Lb. Tln*
Makes the Finest Bread
Available at Your Favorlte
Grocer *
70. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 6. JÚNI 1957
SAVE MONEYl
use
LALLEMAND
quick rising
DRY YEAST
ln y4 Lb. TUu
Makes the Finest Bread
Avallable at Tonr Favorite
Grocer
1_______________ —
NÚMI 23
' * ’••••: s'7S.s /'l •'•-■' ±:\ ■ .'«• & <> i:í<Z:3'.kÍ\yLíL-i
Merkum mannúðar- og menningarlegum ófanga nóð
íslandsfarar
Viðbyggingin við Beiel vígð
að viðsiöddu fjölmenni
Síðastliðinn sunnudag var
hin mikla og glæsilega við-
bygging við dvalarheimili
sólsetursbarnanna á Gimli
vígð og tekin til notkunar að
viðstöddu afarmiklu fjöl-
menni þó kalt væri og hvasst
um daginn norður við Vatnið.
Hátíðarskráin var birt í
blaðinu í fyrri viku, ög þar af
leiðandi er hún lesendum
blaðsins svo kunn, að endur-
tekningar eða áréttingar ger-
ist ekki þörf; vígsluathöfnin
fór skipulega fram og varð,
svo sem vera bar, hlutaðeig-
endum öllum til sæmdar;
hljóðaukakerfinu var óþægi-
lega ábótavant, og örðugt með
köflum að fylgjast með því,
sem fram fór.
Hin nýja bygging er einn sá
alglæsilegasti minnisvarði,
sem unt var að reisa í frum-
landnámi íslendinga við
strendur Winnipegvatns, þar
sem öndvegissúlur frumherj-
anna fyrst bar að landi; stór-
merkum áfanga hefir þegar
verið náð með höfðingslund
og eindrægni almennings, og
tillagi frá stjórnarvöldum
Manitobafylkis.
Næst á dagskrá er að hressa
upp á gamla heimilið, eða rífa
það og byggja nýtt í staðinn,
sem sennilega væri hyggileg-
ast, en um það verða íslend-
ingar að leggjast á eitt.
Fólk var þarna saman koín-
ið víðsvegar að, eigi aðeins úr
Gimlibæ, Winnipeg, Selkirk
Nýja íslandi, heldur og marg-
menni úr bygðunum við
Manitobavatn.
\
Hamingjuóskaskeyf-i
lesin við vígslu Betel á
sunnudaginn:
Premier Douglas L. Campbell,
Ásgeir Ásgeirsson,
forseti íslands,
Grettir og Arni G. Egertson'
Reykjavík ísland,
Dr. og Mrs. R. Marteinsson,
Dr. Richard Beck,
Dr. Haraldur Sigmar og frú
og Sigmars-fjölskyldan í
Kelso, Wash.
Óvenjumargir Vestur-ís-
lendingar heimsækja ísland á
þessu sumri. Margir hafa þeg-
ar farið og aðrir eru í þann
veginn að leggja af stað. Lög-
berg hefir reynt að afla upp-
lýsinga um þetta ferðafólk og
hér fara á eftir nokkur nöfn.
Þessir eru þegar farnir:
Elías Elíasson frá Vancouver.
Grettir og Arni G. Eggertson,
Winnipeg.
Miss Laura Johnson, Winni-
peg, sótti hjúkrunarkvenna-
þing í Rome fyrir nokkrum
vikum og þaðan ætlaði hún til
íslands.
Mrs. Ruby Tergesen, Gimli,
lagði af stað í fyrri viku til
Evrópu til móts við Miss Joey
Thordarson, sem stundaði
kennslu á Þýzkalandi síðast-
liðið ár. Munu þær ferðast um
Evrópulöndin. Mrs. Tergesen
verður 4 mánuði í ferðalaginu
og heimsækir ísland.
Magnús Magnússon frá St.
Boniface, og bróðir hans Jón
Magnússon, sem fer alfari til
ættjarðarinnar. Þeir verða
samferða þeim bræðrum
Kjartani og Eiríki Vigfússon-
um frá Chicago.
Eftir því sem blaðið kemst
næst mun eftirgreint fólk í
þann veginn að leggja af stað,
stór hópur, þann 12. þ. m.
flugleiðis frá Winnipeg:
Mrs. Gerða Ólafsson,
Winnipeg. ^
Miss Katrín Brynjólfsson,
Winnipeg
Mrs. Vilborg Anderson,
Winnipeg,
Mrs. María Sigurdson,
Winnipeg
Mrs. Kristín Johnson
(Mrs. B. E. Johnson),
Winnipeg
Mrs. Kristín Johnson
(Mrs. G. J. Johnson),
Winnipeg
Mrs. Anna Árnason,
Winnipeg.
Mrs. Thorey Eggertson,
Winnipeg
Mrs. Valgerður Daniels,
Winnipeg
Mrs. Ingibjörg Fortier,
Winnipeg
Mr. og Mrs.
Jakob F. Kristjánsson,
Winnipeg
Mrs. Jakobína Hallson,
Ericksdale, Man.
Mrs. Guðrún Árnason,
Gimli, Man.
Mrs. Kristín Thorsteinsson,
Gimli, Man.
Mr. Ólafur Bjarnason,
Gimli, Man.
Mrs. Guðrún Davidson,
Pickle Crow, Ont.
Mr. Páll Guðmundsson,
Leslie, Sask.
Mr. og Mrs.
Sigurður Sigurðsson,
Elfros, Sask.
Mr. og Mrs.
Carl Finnbogason,
Vancouver, B.C.
Mr. Einar C. Erickson,
Vancouver, B.C.
Ánægjulegt er hve margir
eiga þess kost að „lyfta sér
upp“ og fara þessa ferð. Lög-
berg árnar þeim góðs gen|is,
og megi ferðafólkið njóta vel
sólar og sumars á ættjörðinni.
Úr borg og bygð
Miss Ingibjörg Bjarnason
forseti B. L. K.
A nýáfstöðnu á r s þ i n g i
Bandalags lúterskra kvenna,
sem haldið var í Árborg, var
Miss Ingibjörg Bjarnason
kjörin forseti; Mrs. Bína Free-
man, skrifari, og Mrs. Helga
Guttormson, féhirðir.
Nánari fréttir af þinginu
birtast í næsta blaði.
☆
Gefin saman í hjónaband
í kirkju Selkirk-safnaðar
Raymond Gawriluk, Lockport,
og Edna Margot Aalen, Sel-
kirk, Man. They were assisted
by Miss Ruth Gawriluk, an4
Mr. Ernest Koterla. Rev. S.
Ólafsson gifti.
Prestsvígsla
Dr. Valdimar J. Eylands, forseti íslenzka-lúterska
kirkjufélagsins vígði Albert C. Neubauer til Blaine
og Pt. Roberts safnaða í lútersku kirkjunni í Bloom-
ington, Ulanois, á sunnudaginn 26. maí. — Myndin
sýnir þátt'úr vígsluathöfninni. Til vinstri fer séra
Skillrud, prestur safnaðarins í Blommington.
Sýndur fógætur sómi
Dagblaðið “Grand Forks
Herald” flutti þá fregn sunnu-
daginn 26. maí, að Stúdenta-
ráð ríkisháskólans í Norður-
Dakota (University of Student
Council) hefði ákveðið að
veita dr. Richard Beck heið-
ursviðurkenningu í þakkar-
og virðingarskyni fyrir það,
hvað hann hefir aukið á
hróður háskólans með víð-
tækri starfsemi sinni á sviði
norrænna fræða.
í ársveizlu Stúdentaráðsins,
sem haldin var þriðjudags-
kvöldið 28. maí, voru þau dr.
Beck og frú Bertha sérstakir
gestir, og afhenti forseti Stú-
dentaráðsins honum heiðurs-
verðlaunin, er voru fagurlega
áletraður veggskjöldur. Við
það tækifæri var dr. Beck
einnig hyltur í mörgum ræð-
um, en meðal ræðumanna var
dr. George W. Starcher, for-
seti ríkisháskólans.
Er þetta í fyrsta skipti, sem
nokkrum háskólakennaranna
hefir verið §líkur sómi sýndur
af hálfu Stúdentaráðsins.
Boðinn til Vesturheims
Halldór Kiljan Laxness
í nýkomnu fréttablaði frá
Reykjavík er þess getið, að
Bandaríkjastjórn hafi boðið
N óbels-ver ðlaunaskáldinu
Halldóri Kiljan Laxness í
heimsókn til Bandaríkjanna.
Skáldið var fjarverandi svo
ekki var kunnugt um hvort
hann myndi þiggja boðið.
Situr fund
W. J. Lindal dómari lagði af
stað austur til Prince Edward
Jsland í lok fyrri viku til að
sitja þar fund í atvinnuleysis-
trygginganefndinni, sem hann
er formaður í og mun koma
heim á föstudaginn.